Þjóðviljinn - 22.10.1981, Qupperneq 12
12 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. október 1981
Mjúkar plötur undir
ÞREYTTA FÆTUR
Teg. „Hamburg"
Þolir olíu og sjó, rafeirt-
angrandi, grípur vel fót
og gólf, dregur úr titr-
ingi, svört, 11,5 mm
þykk, stæröir allt að
1x10 metrar.
Notast í vélarrúmum og
verksmiðjum þar sem
fólk stendur tímum
saman við verk sitt.
Teg. „Rotterdam"
Þolir sæmilega olíu og
sjó, gripur vel fót og
gólf, dregur úr titringi,
svört, 23 mm á þykkt,
stærðir 40x60 cm, 40x120
cm, 60x80 cm og 80x120
cm.
Notast yf ir vélarrúmum
og i brú og á brúar-
vængjum.
Vesturgötu 16, Reýkjavík, símar 13280/14680.
Stýrimannafélag
Islands
heldur félagsfund að Borgartúni 18
fimmtudaginn 22. okt. kl. 20.30.
Fundarefni:
1. uppsögn samninga, kjaramál.
2. kosning fulltrúa á þing F.F.S.Í.
Stýrimannafélag íslands.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i sjúkrakallskerfi fyrir B-
álmu Borgarspítalans.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
að Frikirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtu-
daginn 26. nóvember 1981 kl. 11 f. hád.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVIKURBORGAR
Fnkirkjuvegi 3 — Sími 2S800
§§ BH 9
m P*
'V
ISnPR i m --v ■ ip| % r . .. : 'fflm o
? j I ■
Nýjung í þjónustu
Hagvangs:
Þeir kynna nýja þjónustu á 10 ára afmæli Hagvangs hf., hugbúnaö fyrir
tölvur: Fulltrúar PF Data i Færeyjum, Hagtölu hf., Fjárfestingarfél-
agsins, þe. Fasteignamarkaðarins og Veröbréfamarkaðarins og Raf-
rásar í sýningarsalnum á Grensásvegi 13. — Ljósm.: — eik—
Hugbúnaður fyrir tölvur
Ráðgjafarfyrtækið Hagvangur
hf. eða öllu heldur dótturfyrirtæki
þess, tölvuvinnsiu- og bókhalds-
fyrirtækið Hagtaia hf. hefur nú
tekið upp nýja þjónustugrein,
hugbúnaðarþjónustu, þe. gerð
forrita og tölvukerfa, staðlaðra
eða sérhannaðra eftir þörfum og
ráðgjöf um hugbúnaö og tölvu-
lausnir.
Hagtala hf. hefur tekið upp
samvinnu við innlend og erlend
sérfræöifyrirtæki á sviði vél- og
hugbúnaðar. Islensku samstarfs-
aðilarnir eru að sjálfsögðu Hag-
vangur með sina sérþekkingu á
rekstri Islenskra fyrirtækja og
stofnana og svo Rafrás hf. sem
hefur sérhæft sig á sviði örtölvu-
tækni og mun annast viðhald og
úrlausn tæknilegu málanna. Er-
lendu aðilarnir eru i Danmörku,
Bandarikjunum og Kanada, en þó
fyrst og fremst Færeyjum, {re.
tölvufyrirtækið PF Data. Færey-
eyingar eru mun framar okkur á
þessu sviði, en hafa að mörgu
leyti við svipuð vandamál að
glima i fyrirtækjum sinum, enda
eðli þeirra llkt þvi sem er hér á
landi.
Forráðamenn Hagvangs og
Hagtölu hyggjast ganga útfrá þvi
við þessa nýju þjónustu, að tölvan
verði „betra stjórntæki til bætts
rekstrar” eins og Ólafur örn Har-
aldsson framkvæmdastjóri orð-
aði það á fundi með blaðamönn-
um og segjast ekki ætla að reka á-
róður fyrir tölvuframleiðslufyrir-
tækin. Fyrir þeim vakir að leita
uppi erlendis tölvukerfi, unnin og
profuð af viðurkenndum hugbún-
aðarþjónustum i stað ósveigjan-
legra tölvupakka og aðlaga siöan
þessi kerfi islenskum aðstæðum,
bæði hvað varðar kröfur um bók-
haldsreglur, rekstrarlegar upp-
lýsingar og Islenska stafi. Þeir
ætla hinsvegar ekki að búa til ein-
angraðan Islenskan hugbúnað.
Næstu viku, þe. frá og með
mánudeginum, verður haldin
kynning i húsakynnum Hagvangs
hf. á Grensásvegi 13 á þessari
nýju hugbúnaðarþjónustu og eru
þar til sýnis tölvur i notkun við
mismunandi viðfangsefni, svo
sem bókhald allskonar, þám.
lager-, fjárhags- og viöskipta-
mannabókhald, efnis- og fram-
leiðsluútreikninga, útreikninga
fyrir fasteignamarkað og fyrir
verðbréfamarkað og ýmis önnur.
— 'og
Búnaðar-
blaðið
FREYR
Freyr er læsilegur að venju. 1
18. tbl., sem okkur hefur nýlega
borist, ritar ólafur R. Dýrmunds-
son forystugreinina: „Höfðatölu-
regian er úreltur mælikvarði”.
Þar vekur hann athygli á þvi, að
ýmislegt mæli með sérhæfingu I
búskap. Hinsvegar beri margar
jarðir ekki verðlagsgrundvallar-
bú ef það er sérhæft sauðfjárbú
þótt þær beri þá bústærð sé búið
blandaö. Þeir, sem reka sauðf jár-
bú geta hinsvegar styrkt aðstöðu
sina með þvi að auka afurðir
gripanna fremur en fjölga þeim.
Af öðru efni ritsins má nefna:
„Ræktunarsamböndin spara hinu
opinbera mikil útgjöld”, viðtal
við Skúla Gunnlaugsson i Miðfelli
I Hrunamannahreppi, þar sem
hann bendir m.a. á hversu hag-
kvæmt það er fyrir hið opinbera
að geta tekið á leigu jarðýtur
ræktunarsambandanna. „Li'feyr-
issjóður bænda 1971 - 1980”. Pétur
Sigurðsson, framkvæmdastj.
sjóðsins, gerir grein fyrir starf-
seminni fyrsta áratuginn írekstri
sjóðsins. „Óhefðbundið fóður”.
Jón Arnason tilraunstj. á Möðru-
völlum fjallar um mysu, slóg-
mdtu, heilsæði og rótarávexti,
(rófur, næpur), sem fóður.
„JUgurbólgurannsóknir 1980”,
Guðbrandur Hliðar gerir grein
fyrir starfsemi Rannsóknarstofu
Mjólkursamsölunnar 1980. „Ferð
til Tékkóslóvakiu”. Haraldur
Arnason segir frá ferö, sem Is-
lensk-Tékkneska verslunarfélag-
ið bauð hópi íslendinga í sept.
1980. „Loðdýrarækt er landbún-
aður”. Brynjólfur Sæmundsson,
héraðsráðunautur á Hólmavik
rekur sögu loðdýraræktar hér á
landi og bendir á að skilyrði fyrir
þessa búgreinséu á margan hátt
hagstæö hér. „Aburðarstokkur”,
Óttar Geirsson segir frá „áburð-
arstokki”, sem Aburðarverk-
smiðja rikisins hefurlátið búa til i
þvi skyni að auðvelda mönnum
áburöarpantanir og áburð-
aráætlanir. — mhg
Auglýsinga-
teiknun í 25 ár
Félag islenskra auglýsinga-
teiknara hefur gefið út rit i tilefni
25ára afmæli félagsins. Rit þetta
er vandað I útliti, en um hönnun
þeks sáu ýmsir félagar i FIT. 1
ritinu er gerð grein fyrir sögu fél-
agsins, upphafsmanna stéttar-
innar og stöðu þess i islenskri
menningarsögu.
Hörður Ágústsson, listmálari,
skrifar grein um grafiska hönn-
un, frumherja þeirrar starfs-
greinar allt frá Sigurði málara
fram til nútimans. Hafsteinn
Guðmundsson, prentsmiðjustjóri,
segir frá prentfaginu eins og það
gekk til áður en auglýsingastofur
og auglýsingateiknarar fóru að
vinna að undirbúningi á þvi sviði.
I ritinu er einnig yfirlit verka 31
teiknara i FIT, sem unnin eru á
árinu 1978 og fyrr. Að lokum er
ískrá yfir þau fyrirtæki, sem veita
þjónustu i auglýsingagerð og
prentiðnaði nú.
Þetta umferðarmerki
táknar
að
innakstur
er öilum
bannaður
■
— einnig þeim
sem hjólum aka.
||UMFERÐAR