Þjóðviljinn - 27.11.1981, Blaðsíða 7
_____________ Föstudagur 27. nóvember 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
— BÆKUR — BÆKUR — BÆKUR — BÆKUR — BÆKUR — BÆKUR —
ÍPARADÍS
Skáldsaga eftir
Snjólaugu
Bragadóttur
Sumarblóm
í Paradís
Bókaútgáfan örn ogörlygur hf.
hefur sent frá sér bókina Sumar-
blóm i Paradis nýja skáldsögu
eftir Snjólaugu Bragadóttur frá
Skáldalæk. Er þetta áttunda
skáldsaga Snjólaugar, en fyrsta
bók hennarj Næturstaður, kom út
áriö 1972.
Sumarblóm i Paradis er saga
úr nUtimanum. Fjallar um unga
stúlku sem beðið hefur hálfgert
skipbrotog stendur á krossgötum
i liifi sinu, er vinkona hennar
býður henni að koma með sér út i
eyðieyju á Breiðafirði, þar sem
komið hefur verið upp sumar-
paradis fyrir ferðamenn. Margt
óvænt hendir hina ungu stúlku
meðan á eyjardvölinni stendur,
ástir lifna og deyja og fyrr en
varir er aftur komið haust.
Saga um
Þráln
Bókaútgáfan örn og örlygur hf.
hefur sent frá sér nýja skáidsögu
eftirHafliða Vilhelmsson. Nefnist
bókin „Sagan um Þráin” og er
hún þriðja skáldsaga Hafliða.
Fyrsta bók hans kom út árið 1977
og nefndist hún „Leið 12
Hlemmur — Fell” og ári siðar
kom út bókin „Helgarlok”
Sagan um Þráin er saga úr nú-
timanum og er Reykjavik aðal-
sögusviðið en leikurinn berst þó
viðar. Aöalsöguhetjan, Þráinn er
barn sins tima, mótaður af um-
hverfinu og föstum venjum, bæði
ieinkalifisinu og atvinnu. Bak við
skelina býr persóna búin mörgum
eðlisþáttum sem togast á og eiga i
innbyrðis styrjöld. Hvað gerist
þegar viðjarnar bresta? Fellur
lifið i þann farveg sem ætlað
er — eða fer persónan i enn
smærri einingar en áöur. Er
niðurlæging sjálfskaparviti, eða
eitthvað sem maðurinn verð-
skuldar? Og þaö getur meira að
segja verið spurning hver niður-
lægir hvern.
Landið þitt,
ísland
2. bindi er komið út
Bókaútgáfan örn og öriygur hf.
hefur sent frá sér bókina Landið
þitt — island, 2. bindi (H-K), en i
fyrsta bindi endurútgáfu þessa
mikla ritverks kom út i fyrra.
Fyrsta útgáfa bókarinnar
Landið þitt — Island kom Ut á ár-
unum 1966 og 1968 i tveimur bind-
um. Var fyrra bindið eftir Þor-
stein Jósepsson en seinna bindið
eftir Steindór Steindórsson. Bæk-
urnar fengu mjög góðar viðtökur
og seldust upp á skömmum tima.
Voru þær brautryðjendaverk i
staðfræðiútgáfu hérlendis. Hin
nýja útgáfa á bókinni er með
mjög frábrugðnum hætti frá
fyrstu útgáfunni. Bókin hefur
verið gifurlega mikið aukin og
endurbætt og i henni eru nú mikið
magn litmynda, og þegar ritverk-
inu lýkur munu verða i þvi fleiri
litmyndir en i nokkru öðru is-
lensku ritverki.
Bók um Loft „ríka”
eftir Magnús
Bjarnfreðsson
Þá læt ég
slag standa
Bókaútgáfan örn ogörlygur hf.
hefur gefið út bókina Þá læt ég
slag standa — Loftur Einarsson
segir frá ævintýralegu lifshlaupi
sinu hcima og erlendis. Bókin er
skráð af Magnúsi Bjarnfreðssyni.
Sennilega eiga fáir Islendingar
eins ævintýralegt lifshlaup og
Loftur Einarsson, eða „Loftur
riki”,einsog hanner oft kallaður,
en þótt Loftur beri þetta þetta
viðurnefni hefur hann ckki alltaf
verið rikur af veraldlegum auði,
heldur þvert á móti stundum alls
ekki átt málugi matar.
En Loftur Einarsson hefur
borið margt við um dagana. Hann
hefur t.d. rekiö hótel á Akureyri
og grætt þar á tá og fingri en
siðan tapað öllu austur i Vagla-
skógi; hann kom sér einnig upp
hóteli á Spáni en þar missti hann
allt i miklu syndaflóði og varð að
flýja undan Francólögreglunnij
Aöalhöfunfuar bókarinnar eru
Þorsteinn Jósepsson og Steindór
Steindórsson, en margir aðrir
hafa lagt fram efni i bókina, enda
lögð áhersla á samvinnu við stað-
kunnuga menn viða um land.
hann var lengibúsettur iGrimsby
og hjálparhella íslenskra sjo-
manna þar i borg við allskonar
útréttingarj hann var öryggis-
vörður og tollvörður á Kefla-
vikurflugvelliog siöarstóö hann i
stórsmygli framan við byssu-
kjafta dáta Gaddhafis i Libýu.
Hann stofnaði naglaverksmiðju i
Borgarnesi meö Halldóri E. og
fleir i góðum mönnum og er nú að
koma upp fyrirtæki á Suöur-
nesjum.
Þjóðsögur
og þættir
úr Mýrdal
Bók eftir Eyjólf
frá Hvoli
Bókaútgáfan örn ogörlygur hf.
hefur nú sent frá sér bókina. Þjóð-
sögur og þættir úr Mýrdal eftir
Eyjólf Guðmundsson frá Hvoli i
Mýrdal, en Þórður Tómasson
safnvörður á Skógum bjó bókina
til prentunar.
Eyjólfur Guðmundsson var
fæddur 31. ágústárið 1870, en lést
16. október 1954. Hann var lengst
af ævi sinnar bóndi að Hvoli i
Mýrdal, en gaf sig þó mikiö að
fræðistörfum og skrifum og ailar
þær bækur er hann sendi frá sér
hlutu einstaklega góðar viðtökur,
einkum þó bækurnar „Pabba og
mamma”og „Afiog amma”sem
Sjómanns-
ævi
Endurminningar
Karvels
Ogmundssonar
komnar út
Bókaútgáfan örn og örlygur hf.
hefur gefið út bókina Sjómanns-
ævi — endurminningar Karvcls
Ögmundssonar skipstjóra og út-
gerðarmanns, skráðar af honum
sjálfum.
Hann er fæddur og uppalinn á
Snæfellsnesi við kjör og kringum-
stæður sem eru svo ólikar þvi sem
fólk býr við i dag, aö i raun til-
heyrir saga bernsku hans og æsku
fornöldinni til. Karvel ögmunds-
son hefur haft opinn hug og gott
I minni, þannig að þær sögur og
sagnir sem hann heyrði i bernsku
komast óbrenglaðar til skila i bók
hans,ogað þeim er mikill fengur.
Karvel bregður einnig einkar
komu Ut á árunum 1941 og 1944.
Þegar Eyjólfur lést lá mikið
magn óprentaðra handrita á
skrifborði hans, m.a. mannlifs-
þættir úr Mýrdal, þjóðsögur og
ýmis fróðleikur yngri og eldri.
Þórður Tómasson tók saman safn
úr þessum handritum og birtist
það i bókinni.
skýru ljósi á atvinnuhætti á fyrstu
áratugum aldarinnar, þegar sjór
var enn sóttur á opnum róðrar-
bátum og fiskurinn verkaður á
frumstæðan hátt. Þessi bók er
fyrsta bindi æviminninga Kar-
vels, en hann mun siöan halda
áfram að rekja sögu sina i fleiri
bókum. Mikill fjöldi mynda er; i
bókinni, m.a. nokkrar teikningar
eftir Aka Gr'ánz myndlistarmann.
Skrifað
í skýin
Æsku- og flugsaga
Jóhannesar R.
Snorrasonar flugstjóra
Út er komin hjá Almenna bóka-
félaginu bókin Skrifað iskýin eft-
ir Jóhannes R. Snorrason flug-
stjóra. Þetta er æsku- og flugsaga
höfundarins, hefst vestur á Flat-
eyri og endar árið 1946, þegar
fastur grundvöllur hefur verið
lagður að áætlunarf lugi innan-
lands og hafið er farþegaflug til
útlanda, en Jóhannes R. Snorra-
son var einn af aðalfrumherjun-
um i hvoru tveggja.
Þessibók erfyrri hlutiflugsögu
Jóhannesar. Fyrstsegir hann frá
viðburöarikum bernskuárum á
Flateyri við önundarfjörð og svo
enn viöburðarikari unglingsár-
um norður á Akureyri. Siðan
hefst flugsagan sjálf i miðju stríði
og endar i' þessu bindi 1946, þegar
Jóhannes er nýbúinn að fljúga
SKRÍFAÐÍ
SKYIN V
JÓHANNESR SNORRASON
fyrstu farþegaflugin frá tslandi
til Skotlands og meginlandsins og
ferja tvo Katalinuflugbáta hingað
frá Ameriku yfir Grænland i ill-
viðrum um hávetur.
Skrifað i skýin er 266 bls. að
stærð auk 37 myndasiðna með um
70 myndum frá æskuárum höf-
undar og þó einkum frá fyrstu ár-
um flugferils hans, " nsum mjög
mikilvægum fyrirfh --ögu lands-
ins.
Dvergmál
Ljóðabók eftir Baldur Eiríksson á Akureyri
Dvergmál heitir ljóðabók eftir Akureyri og er þekktur hagyrö-
Baldur Eiriltsson frá Dvergs- ingursem gjarnan hefur ort undir
stöðum. Þaö er bókaforlagið nafninu Dvergur. Hafa þau um
Skjaldborg á Akureyri sem gefur árinbirst iDegi,Speglinum,Tim-
bókina Ut en Baldur hefur um anum og viöar.
langan aldur verið búsettur á
Minningabók
ai bændum
Bókaútgáfan örn og örlygur hf.
hefur gefið út bókina Bændur
segja allt gott eftir Jón Bjarnason
frá Garðsvlk. Er þetta þriðja
minningabók höfundarins, en
áður hafa komið út bækurnar:
Bændablóð og Hvað segja bændur
núog hlutu þær góðar viðtökur al-
mennings og gagnrýnenda.
Listin að segja vel og skemmti-
lega frá hefur um langan aldur
verið hluti þjóðmenningar tslend-
inga. Hin rómaða bændamenning
tslendinga átti ekki hvað sist
rætur að rekja tilþeirra manna er
höfðu lifandi áhuga á umhverfi
sinu og viðfangsefnum og gátu
miðlaö öðrum bæöi þekkingu og
skemmtun meö frásögnum
sinum. Jón Bjarnason frá Garðs-
vik er meiður á stofni þessarar
listgreinar, og i bók sinni Bændur
BjamasonFPÁ W* "
Bændur
allt
ott
segja allt gott bregöur hann upp
lifandi myndum af lifi og starfi
bænda og segir frá skemmti-
legum mönnum og atvikum.Fjöl-
margar myndir eru i bókinni.
Bók í tveimur bindum eftir
Rosemary Rodgers
Líf í ljóma
Bókaútgáfan örn og örlygur hf.
hefur gefið út bokina Llf i Ijóma
frægðar (The crowd pleasers)
eftir bandariska rithöfundinn
Rosemary Rodgers I islenskri
þýðingu Dags Þorleifssonar. Er
bókin I tveimur bindum og nefnist
fyrra bindið Skin og skuggar
stjörnulifsins og seinna bindið
nefnist 1 hringiðu frægðarinnar.
Rosemary Rodgers hefur um
árabil veriö i hópi mest seldu rit-
frægðar
höfundanna bæöi i Bandarikj-
unum og Bretlandi.
Lif i ljóma frægðar fjallar aö
verulegu leyti um fólk sem
starfar i kvikmyndaiðnaöinum,
en óþarfi er að fjölyrða um þaö
seiðmagn sem hann hefur haft
yfir sér frá fyrstu tið. Aðalsögu-
hetja bókarinnar verður kvik-
myndastjarna, en verður að stiga
yfir marga þröskulda á leið sinni
upp á stjörnuhimininn.