Þjóðviljinn - 22.10.1982, Blaðsíða 1
Föstudagur 22. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Kvikmyndir
Skemmtanir
Félagslif o.fl.
„Grafík á vetrum, blýantur á sumrin“.
segir Edda Jónsdóttir.
Dáist að þeim
sem ern vissir
í sinni sök”
Edda Jónsdóttir sýnir nú verk sín
á tveimur stöðum í borginni, As-
mundarsal og í Gallerí Langbrók.
Við báðum hana að segja okkur
lítillega frá verkunum:
„í Ásmundarsal sýni ég 20
teikningar sem allar bera heitið
Ljóð um land, en í Langbrók er ég
með það sem ég kalla polaroidskúl-
ptúra, þar sem ég hleð saman
myndum af t.d. líkamspörtum sem
ég síðan raða saman ljkt og um
púsluspil væri að ræða. Ég reyni að
haga vinnu minni þannig að á vetr
um vinn ég grafíkverk en þegar
fer að vora, þá vel ég frekar efni
eins og blýantinn eða önnur efni
sem ég get unnið meira spontant
með. Ég hef bjarta og rúmgóða
vinnustofu og mér finnst gott eftir
að hafa þrykkt lengi grafík, að
hreinsa til og byrja aftur að vinna
með öðrum vinnuaðferðum."
„Hvernig tilfinning er það að
sýna verk sín - verður þú öruggari í
list þinni?“
„Ég tel það mjög nauðsynlegt
fyrir myndlistarmenn að sýna;
bæði það að þeir sjálfir sjá verk sín
sem heild og einnig gefur það öðr-
um kost á að fjalla um þau. Ég hef
alltaf dáðst undir niðri að þeim sem
fást við listsköpun og eru vissir í
sinni sök um að þeir séu að búa
eitthvað til sem sé einhvers virði
fyrir aðra. Því eftir því sem maður
skoðar meira af list, því óöruggari
finnst mér maður verða og raun-
verulega sjá lítið af sjálfstæðri list-
sköpun sem kemur eitthvað við
mann; þá á ég við samtímalist.
Samt hlýtur sú list sem búin er til í
dag að lýsa okkur og samtíð okkar
eins og hún hefur alltaf gert og þar
af leiðandi vera einhvers virði.”
— Það hefur ekki þótt við hæfi
að fjalla opinskátt um tilfinningar
og tiltlnningaleg vandamál ung-
linga, og á þeim hefur hvílt viss
bannhelgi af hálfu eldri kynslóð-
anna, sagði danski rithöfundurinn
Hans Hansen í stuttu spjalli við
Þjóðviljann, en Hans cr þckktur
hér á landi m.a. fyrir unglingabæk-
urnar Per og Sjáðu sæta naflann
minn.
— Ég hafði starfað sem kennari í
10 ár og fann áþreifanlega fyrir því,
að mikili skortur var á bók-
menntum, er fjölluðu um þann
raunveruieika, sem unglingarnar
lifa í, tilfinningar þeirra og tilfinn-
ingaleg vandamál.
— Barna- og unglingabók-
menntir hafa átt erfitt uppdráttar,
og þær hafa ekki hlotið þá viður-
kenningu í menningu okkar sem
þær verðskulda, en það er þeim
inun bagalegra sem þessar bók-
menntir eru sá grunnur er lesendur
framtíðarinnar byggja á. Það hefur
sérstaklega sýnt sig, að dagblöðin
eru treg til að taka barna- og ung-
lingabókmenntir til umfjöllunar.
— Hvað er það í nútímanum,
sem kallar fram þörfina fyrir sér-
stakar unglingabókmenntir, sem
ekki þekktust áður fyrr, þegar börn
og fullorðnir lásu það sama?
— Ég tel vissa hættu felast í því
að halda fram unglingamenningu
sem einangruðu fyrirbæri, sem
ekki eigi erindi til annarra þjóðfél-
agshópa. Það hefur sýnt sig að fjár-
Er tilfinningalíf
piógsaðilar hafa gert þetta menn-
ingunni til óþurftar. Þess vegna tel
ég ákaflega mikilvægt að styðja við
hina mannlegu hlíð unglingamenn-
ingarinnar, sem vissulega kemur
okkur öilum við.
Það hefur sýnt sig að börn og
unglingar eru ákaflega þakklátir
lesendur, og þau nýta bækurnar
betur en nokkrir aðrir. Ég hef sjálf-
ur fengið bréf frá 7—8 hundruð les-
endum mínum í þessum aldurshópi
og þau hafa sýnt mér að bækurnar
hafa uppfyllt ákveðna þörf. Þörf
fyrir umfjöllun um raunveruleika
unglinganna og tilfinningalff
þeirra.
Ég hef á síðastliðnum 8 árum
unnið með öðrum að gerð 8 kvik-
myndahandrita fyrir unglinga. Það
hefur sýnt sig, að einnig á þessu
sviði er mikil þörf fyrir myndir sem
fjalla um raunveruleg vandamál,
og danskar unglingamyndir liafa á
síðari árum hlotið alþjóðlega við-
urkenningu. M.a. fékk kvikmynd-
in Gúmmí-Tarsan, sem ég gerðj
handrit að í samvinnu við Sören
Krogh Jacobsen, Verðlaun Barna-
hjálpar Sameinuðui þjóðanna í fyr-
ra. Hans Hans Hansen er mikil-
virkur rithöfundur, sem hefur gefið
út 25 bækur, þar af hafa 4 verið
þýiddar á íslandi. Hann er nú
staddur hér á iandi vegna þess að á
næstunni kemur út á vegum Lyst-
ræningjans unglingaskáidsagan
Einkamál , sem Vernharður Linn
et hefur þýtt á íslensku. Þá er hann
einnig staddur hér í tilefni þess, að
nýlokið er gerð sjónvarpsþáttanna
um Hlldi, sem unnir voru í sam
vinnu íslenskra og danskra aðila til
notkunar fyrir dönskukennslu hér
á íslandi.
Einkamál, sein Vernharður L.innet
hefur þýtt á íslensku. Þá er hann
einnig staddur hér í tilefni þess, að
nýiokið er gerð sjónvarpsþáttanna
um Hildi, sem unnir voru í sam-
vinnu íslenskra og danskra aðila til
notkunar fyrir dönskukennslu hér
á íslandi.
Hans Hansen sem er einn af
þrem höfundum handritsins að
sjónvarpsþáttum þessum sagði að
gerð þeirra hefði verið ákaflega
spennandi verkefni fyrir hann.
Hans Hansen heldur fyrirlestur í
Norræna húsinu á mánudagskvöld-
ið kl. 20.30 þar sem hann mun
fjalla um reynslu rithöfundarins af
því að nota kvikmyndir og sjón
varp sem miðil.
Rœtt við
Hans Hansen,
höfund bókarinnar
„Sjáðu sæta
naflann minn’
Leiklist
Myndlist
Tónlist
um helgin
í háskólabíói á
morgun:
/
Irskir
söngvar
og
dansar
Tíu listamenn frá írska þjóð-
lagafélaginu Comhaltas Ceoltórirí
Éireann komu í gærkvöldi til lands-
ins í boði Írsk-íslenska félagsins.
Þeir halda tvenna tónleika í
Háskólabíói á morgun, laugardag,
og í dag halda þeir tvenna tónleika í
Tryggvaskála á Selfossi.
Tveir dansarar eru með flokkn-
um, en aðrir leika á hefðarhljóð-
færi eins og sekkjapípur írskar og
borhran og svo önnur kunnuglegri.
Allir hafa þeir hlotið frlandsmeist-
aratitla fyrir list sína, hver á sínu
sviði.
Samtökin Comhaltas voru stofn-
uð 1951 og hafa það á stefnuskrá
sinni að varðveita og vekja áhuga á
írskum menningareinkennum. Þau
senda á ári hverju fjölda lista-
manna í öll heimshorn til að flytja
og kynna írska tónlist, söngva og
dansa. Þau starfa bæði um allt ír-
land og meðal manna af írsku bergi
í öðrum löndum og eru utan við
pólitískar og trúarlegar fylkingar.
Samtökin leggja og rækt við út-
breiðslu og varðveislu írskrar
tungu.
Meðal íslendinga hefur áhugi á
írlandi og írskri menningu farið
vaxandi á undanförnum árum - hér
hafa verið flutt tiltölulega mörg
Tíu manna
flokkur
frá írska
þjóðlagafélaginu
írsk leikrit; írskir þjóðlagasöngvar-
ar hafa hresst upp á listahátíðir.
Það er því líklegt, að menn taki vel
undir frumkvæði hins unga írsk-
íslenska félags um að fá hingað
ágætan hóp listamanna.
Tónleikarnir í Háskólabíó á
morgun eru kl. 14.00 og'kl. 23.15.
Forsala aðgöngumiða er hjá
Blöndal, Eymundsson, Máli og
menningu og í Háskólabíói. Verð
miða er hundrað krónur.
-áb.