Þjóðviljinn - 18.11.1982, Page 10

Þjóðviljinn - 18.11.1982, Page 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. nóvember 1982 Runólfur Agústsson, nemi: Smápistill um kynþáttahatur Á síðustu árum hefur kynþátta- hatur breiðst út um hinn vestræna heim eins og eldur í sinu. Andúð í garð blökkumanna, Tyrkja og fleiri minnihlutahópa fer vaxandi með hverjum deginum sem líður. í mörgum löndum V-Evrópu þar sem innflytjendur frá 3. heiminum hafa undanfarin ár unnið þau störf sem „innfæddir" hafa þóst of fínir fyrir, er kynþáttahatrið orðið al- varlegt vandamál. Gott dæmi um þann ógeðslega rasisma sem nú tröllríður „hinum siðmenntaða heimi“ er forystu- grein Dagblaðsins Vísis síðastliðna helgi, þar sem greinarhöfundur, uppblásinn af þjóðarrembingi og „ættjarðarást", hellir úr skálum reiði sinnar yfir kjöri forseta FIDE og tapi Friðriks Ölafssonar. í grein sinni leyfir hann sér þá ósvífni í garð lesenda blaðsins að kalla alla fulltrúa 3. heimsins á þinginu villimenn og ætlast til að lesendur hans gleypi það sam- stundis hrátt og fyllist um leið sama kynþáttahatrinu og hann virðist haldinn af. Einnigsegir hann „villi- menn“ þessa ekki eiga til neitt sem heitir drengskapur og að þeir troði fótum allar lagareglur og siðvenjur sem hinn æðri og siðmenntaðri hvíti Evrópumaður hafi sett. Hér er sem sagt komin aftur kenningin um hinn þróaða æðsta kynstofn. Runólfur Ágústsson Rasistinn Jónas Kristjánsson hefur með grein sinni afhjúpað það dulda kynþáttahatur sem ávallt virðist blunda undir niðri hjá öfga- fullum hægrimönnum. Fegar svo tækifæri gefst er rasisminn dreginn fram í dagsljósið og dubbaður upp í gerfi þjóðernishyggju og falskrar ættjarðarástar. Nærtækasta dæmið um slíkt er valdataka Nasista í Þýskalandi með þeim afleiðingum sem allir þekkja. Við íslendingar stærum okkur oft af því að hér fyrirfinnist ekkert kynþáttahatur, raunveruleikinn er allt annar. Sem dæmi um hið gagn- stæða má nefna komu flótta- fólksins frá Vietnam hingað til lands hér um árið. Það tækifæri notuðu íslenskir kynþáttahatarar sér til að skríða fram úr myrkum holum sínum með sínar ógeðfelldu skoðanir. Grein Jónasar ber að sama brunni. Allir þeir sem trúa á jafnrétti, frelsi og bræðralag kynþáttanna verða ávallt að vera á verði gagn- _ vart ofstækisfullum kynþáttahöt- urum. Litarháttur trúarbrögð eða menning eiga ekki að skipta máli. Við erum öll lifandi persónur með t sömu þarfir, tilfinningar og á- stríður Við erum öll líkamlega og andlega jöfn. Jónas Kristjánsson ritstjóri er ekkert æðri eða göfugri maður en „villimenn“ þeir sem hann talar um í greininni og þykir lítið til koma. Runólfur Ágústsson, nemi Ljóðasafn Hannesar Sigfússonar komið Út er komið hjá ISunni, Ljóða- saf'n eftir Ilannes Sigfússon skáld. Kjartan Guðjónsson listmálari gerði myndir í bókina. - í kynningu forlags á kápubroti segir meðal annars: „Hannes Sigfússon er einn hinn fremsti í hópi skálda sem ruddu braut nýjum stíl í íslenskri ljóðlist um miðbik aldarinnar og nefnd hafa verið atómskáld. Fyrsta bók hans, Dymbilvaka, 1949, var eitt nýstárlegasta verk í ljóða- gerðinni um þær mundir. Seinni bækur Hannesar, Imbrudagar, Sprek á eldinn, Jarteikn og Örva- mælir hafa staðfest enn frekar stöðu hans meðal samtíðarskálda. Ljóð Hannesar einkennast af Nýjasta skáld- saga Nóbels- skáldslns Út er komin hjá Iðunni nýjasta skáldsaga sagnaskáldsins frá Kól- umbíu, Gabriels Garcia Marquez sem hlaut bókmenntaverðlaun Nó- bels á þessu hausti. Sagan nefnist Frásögn um margboðað morð. Guðbergur Bergsson þýddi söguna og er þetta þriðja skáldsaga höf- undarins sem Guðbergur hefur þýtt á íslensku. Hinar voru Hundr- að ára einsemd og Liðsforingjan- um berst aldrei bréf. Frásögn um margboðað morð kom út í fyrra og hefur þegar verið þýdd á fjölda tungumála. Efni sögunnar er kynnt svo á ÓLAFSVÍK Sveitarstjóri Starf sveitarstjóra á Ólafsvík er laust til um- sóknar. Starfið veitist frá 1. febr. 1983. Um- sóknir um starfið ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist sveitarstjóra Ólafsvíkurhrepps, sem veitir allar nánari upplýsingar, fyrir 7. desember n.k. Hreppsnefnd Ólafsvíkurhrepps. Föstudagur 19. nóvember Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins hefst með setningarathöfn að Hótel Loftleiðum kl. 17.15 föstudaginn 19. nóvember nk. Setning- arathöfnin er öllum opin. Formaður Alþýðubandalagsins Svavar Gests- son flytur ræðu. „Verkafólk í bókmenntum" - dagskrá í tali, söng og tónum flutt af Guðmundi Ólafssyni, Olgu Guðrúnu Árnadóttur, Guðmundi Hall- varðssyni, Kristínu Ólafsdóttur, Silju Aðal- steinsdóttur og Þorleifi Haukssyni. Kynnir verður Guðrún Ágústsdóttir borgarfull- trúi. Ráðgert er að setningu Ijúki kl. 18.45. Kl. 20.30 á föstudagskvöld hefjast hin eign- legu störf flokksráðsfundarins með skýrslum og almennum umræðum. Laugardagur 20. nóvember Kl. 9 verður flokksráðsfundi fram haldið með umræðum og nefndarstörfum. Kl. 12 verður sameiginlegur málsverður á Hót- el Loftleiðum þar sem ráðherrar flokksins, og formenn þingflokks og framkvæmdastjórnar sitja fyrir svörum. Strax að málsverði loknum verður hin nýja flokksmiðstöð Alþýðubandalagsins að Hverf- isgötu 105 skoðuð. Kl. 14.30 hefjast nefndarstörf að nýju og standa fram til kl. 18. Kl. 18 fer fram kjör til nýrrar miðstjórnar. Sunnudagur21. nóv. Kl. 9 verður nefndarstörfum fram haldiö. Kl. 13 verður tekið til við umræður og afgreiðslu mála. Sfefnt er að því að Ijúka fundinum kl. 16 á sunnudag. Flokksrádsfundur Alþýðubandalagsins 1982 Fundurinn verður settur á Hótel Loftleiðum kl. 17.15 nk. föstudag. Sigurjón Pétursson Ólafur Ragnar Grímsson Ragnar Arnalds Setningarathöfn kl. 17.15- 18.45 föstudag - Allir velkomnir Ráðherrar og formenn þingflokks og framkvæmdastjórnar svara spurningum flokksráðsfuiltrúa og blaðamanna kl. 12 laugardag. Skoðunarferð í nýja flokks- miðstöð kl. 13.30 laugardag. Svavar Gestsson Guðmundur Ólafsson Guðmundur Hallvarðsson Silja Aðalsteinsdóttir Guðrún Ágústsdóttir Þorleifur Hauksson Svavar Gestsson Olga Guðrún Árnadóttir Kristín Ólafsdóttir frjórri málgáfu, mikilli myndvísi og innri spennu sem gæðir þau fá- gætum þrótti." Ljóðasafn hefur að geyma allar fimm frumortar ljóðabækur Hann- esar Sigfússonar og auk þess nokk- ur ljóð sem falla utan þeirra. FRASOGN UM MARGBOÐAÐ MORÐ kápubaki: „Sagan greinir frá at- burðum í litlu þorpi á strönd Kara- bíska hafsins. Allir þorpsbúar vita fyrirfram að Santíago Nasar á að deyja, - allir nema hann sjálfur. Brúðkaup var haldið í þorpinu, en brúðkaupsnóttina sjálfa var brúðinni skilað heim í föðurgarð af því að hún reyndist ekki hrein mey. Heiður fjölskyldunnar hafði verið flekkaður og bræður brúðarinnar neyða hana til að skýra frá nafni hins seka. Tveim tímum síðar er Santíago Nasar dauður. Hvers vegna reyndi enginn að hindra þetta morð - því fremur sem morðingjarnir báðu nánast um að einhver stöðvaði þá?“ Hversdags- ljóð húsmóður Mál og menning hefur gefið út ljóðabókina Tréð fyrir utan glugg- ann minn eftir Normu Samúels- dóttur. Tréð fyrir utan gluggann minn er fyrsta ljóðabók Normu, en hún hefur áður gefið út eina skáldsögu, Næstsíðasti dagur ársins sem kom út hjá Máli og menningu 1979. í bókinni eru þrátíu og fimm ljóð sem öll tengjast á einn eða annan hátt hversdagslífi húsmóður í borg.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.