Þjóðviljinn - 18.01.1983, Blaðsíða 3
10 StÐA — J>JÖÐVILJINN Þriðjudagur 18. janúar 1983
Þriðjudagur 18. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — StDA 11
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Umsjón:
Viðir Sigurðsson
Þrjú töp og
tveir sigrar
„íslendingunum‘‘ í belgísku knatt-
spyrnunni gekk misjafnlcga um helgina, tvö
unnu og þrjú töpuðu. Arnór Guðjohnsen er
í leikbanni hjá Lokeren og félagið mátti þola
tap á heimavelli gegn Beerschot. Arnór cr í
fjögurra leikja banni eftir brottrekstur fyrir
áramótin og á því þrjá leiki enn eftir af
þeirri refsingu.
Best gekk hjá Pétri Péturssyni og fé-
lögum í Antverpen en þeir unnu stórsigur á
Gent, 5-1. Lið Sævars Jónssonar og Ragn-
ars Margeirssonar, CS Brúgge, náði í tvö
dýrmæt stig með því að sigra Kortrijk 1-0.
Ragnar lék ekki með liðinu. Þá töpuðu Lár-
us Guðmundsson í Waterschei gegn RWD
Molenbeek 2-0 á útivelli og lið Magnúsar
Bergs, Tongeren, tapaði fyrir meisturum
Standard Liege á útivelli, 3-1.
Næst bestur
í heiminum!
Hann Sigurður Matthíasson,
Dalvíkingurinn með stökkkraftinn
dæmalausa, setti nýtt íslandsmet í
hástökki án atrennu á móti í KR-
húsinu á föstudagskvöldið, stökk
1,80 metra. Sigurður bætti þar með
eigið met um tvo sentimetra og er
árangur hans sá næst besti í heimin-
um í þessari íþróttagrein.
Víkingarnir
komu á óvart
Botnliðið í 1. deild karla í blaki, Víking-
ur, kom verulega á óvart um helgina með
frammistöðu sinni gegn íslandsmeisturum
Þróttar en urðu að sætta sig við 2-3 tap.
Þróttur vann fyrstu hrinuna 15-5 en Víking-
ar þá næstu, 15-13, eftir að hafa komist í
14-6.Víkmgar unnu einnig þá þriðju, 15-5
en þá sögðu Þróttarar stans. Þeir settu allt á
fullt, samhliða því sem úthald og sjálfs-
traust þvarr hjá Víkingum. Þróttur vann
tvær síðustu hrinurnar 15-7 og 15-4 og hef-
ur því örugga forystu í 1. deild sem fyrr.
í 1. deild kvenna vann Þróttur öruggan
sigur á Breiðabliki, 3-0 (15-6, 15-9, 15-12).
HK sigraði síðan Breiðablik 3-0 í 2. deild
karla (15-2, 15-7 og 15-12).
- VS.
Óvæntur
sigur
Motherwell
Jóhannes Edvaldsson og félagar í skoska
úrvalsdeildarliðinu í knattspyrnu, Mother-
well, komu virkilega á óvart á laugardag er
þeir báru sigurorð af meisturum Celtic,
2- 1, á heimavelli sínum, Fir Park. Celtic var
yfir í hálfleik, 0-1, Murdo McLeod skoraði
en háskólastúdentinn tvítugi Brian
McClair jafnaði úr vítaspyrnu á 47. mín-
útu. Á lokasekúndunum barst há sending
utan af kanti fyrir mark Ccltic, Pat Bonnar,
markvörðurinn írski, missti knöttinn
klaufalega yfir sig og McClair náði að skora
af stuttu færi. Hann hefur gert stórliðunum
frá Glasgow miklar skráveifur að undan-
förnu, um áramótin skoraði hann þrennu í
3- 0 sigri Motherwell á Rangers.
Rangers varð að sætta sig við jafntefli,
1-1, á heimavelli gegn botnliðinu Kilmar-
nock. Mortin náði 3-3 jafntefli í Dundee
eftir að hafa verið 3-0 undir í hálfleik, Hi-
berniai ig Dundee United skildu jöfn, 0-0,
svo og St. Mirren og Aberdeen, 1-1. Celtic
hefur 34 stig í úrvalsdeildinni, Aberdeen
32, Dundee United 29, Rangers 21, Dund-
ee 19, Hibernian 16, St. Mirren 15, Morton
15, Motherwell 15 og Kilmarnock 10 stig.
Öruggur
Valssigur á
Frömurum
íslandsmót kvenna í innanhússknattspyrnu:
Skagastúlkur hirtu bikarinn
úr höndum Breiðabliks
Keflvíkingar eru sennilega
orðnir eina liðið sem getur veitt
Valsmönnum keppni um Islands-
meistaratitilinn í körfuknattleik og
miðað við frammistöðu þeirra gegn
KR á laugardag ættu þeir að geta
það. Sigurgangan á heimavelli hélt
áfram, Keflavík sigraði 106-91 eftir
að hafa leitt með 14 stigum í
leikhléi, 55-41.
Leikurinn fór rólega af stað og
var jafn framan af, eftir 8 mínútur
var staðan 20-17, Keflvíkingum í
hag. Þá tóku þeir mikinn kipp og á
fjórum mínútum skoruðu þeir
fimmtán stig gegn engu og breyttu
stöðunni í 35-17. Þetta var mesti
munur sem skildi liðin að í leiknum
og má segja að sigurinn hafi ráðist á
þessum kafla.
Munurinn hélst svipaður fram að
leikhléi, þá stóð 55-41 eins og áður
sagði en KR-ingar sóttu nokkuð í
sig veðrið í byrjun síðari hálfleiks.
Eftir átta mínútur höfðu þeir
minnkað muninn í fimm stig, 74-
69, en nær komust Vesturbæingar
ekki. Keflvíkingar náðu sér á strik
á ný og tryggðu sér öruggan sigur.
Keflvíkingar áttu flestir ágætis
leik að þessu sinni. Viðar Vignis-
son er kominn heim frá Bandaríkj-
unum og styrkir liðið mikið en
vantar auðsjáanlega samæfingu við
aðra liðsmenn. Hann var afar
sterkur í fráköstunum. Hinir
„nýju“ mennirnir, Bjarni Sigurðs-
son knattspyrnumarkvörður og
Einar Steinsson, léku ekki með,
Bjarni vegna prófa. Brad Miley
sýndi snilldartakta í vörninni og
hélt Stu Johnson alveg niðri í fyrri
hálfleiknum, svo mjög að sá síðar-
nefndi skoraði aðeins 9 stig þá,
óvanalegt mjög. Jón Kr. Gíslason
var góður og Axel Nikulásson
sýndi virkilega styrk sinn með því
að leika með 4 villur á bakinu síð-
ustu 15 mínúturnar. Hann virtist
aðeins eflast við mótlætið og sýndi
mikla grimmd og ákveðni.
Stu Johnson skaut og skaut og
skaut en hittnin var ekkert sérstök.
Jón Sigurðsson lék vel og virðist
vera að komast í sitt gamla form á
ný. Þeir Páll Kolbeinsson og Stefán
Jóhannsson áttu einnig góðan dag
og þá kom Jón Pálsson nokkuð á
óvart í KR-liðinu. En þeir KR-
ingar mega vara sig, fallhættan er
skammt undan og þeir verða að
halda vel á spöðunum það sem eftir
er móts ef ekki á illa að fara.
Stig ÍBK: Axel 30, Jón Kr. 29,
Brad Miley 15, Viðar 14 og Þor-
steinn Bjarnason 14 en aðrir
minna.
KR: Stu Johnson31, Jón Sig. 14,
Jón Pálsson 13, Páll Kolbeinsson
12, aðrir minna.
Gunnar Bragi Guðmundsson og
Sigurður Valur Halldórsson kom-
ust ágætlega frá dómgæslunni.
-gsm
„Viðar ólöglegur
ytra en ekki hér“
Strax að loknum leik Keflavíkur og KR á laugardag gerðu KR-ingar
athugasemd við þátttöku Viðars Vignissonar í leiknum. Þeir telja að hann
sé ekki löglegur með liði ÍBK þar sem hann hafl ekki tilskylda pappíra frá
KKÍ til að leika hér eftir að hai'a leikið í Bandaríkjunum undanfarið.
Kcflvíkingar segja aftur á móti að Viðar hafi aldrei sagt sig úr ÍBK og sé
hann einhvers staðar ólöglegur þá sé það í Bandaríkjunum en ckki hér.
Þeir ncl'na að aldrei hafi verið gert veður útaf því að menn lékju með
skólaliðum, en Viðar hefur stundað nám í Bandaríkjunum og lcikið með
liði skólans. Telja Keflvíkingar fordæmi nokkur máli sínu til stuðnings,
t.d. hafi Pétur Guðmundsson, Flosi Sigurðsson og Símon Olafsson gert
slíkt hið sama, leikið með skólaliðum ytra en síðan komið heim og gengið
beint inní
Akranesstúlkurnar urðu ís-
landsmeistarar í innanhússknatt-
spyrnu kvenna en íslandsmótið fór
fram í Laugardalshöllinni um helg-
ina. Tólf lið léku í þremur riðlum
og komust sigurvegararnir í úrslit-
akeppnina. Uslit og lokastaðan í
hverjum riðli fyrir sig varð þessi:
A-riðill:
Valur-fsafjöröur.............6-0
Víðir-HSÞ....................2-1
Ísafjörður-HSÞ...............3-3
Valur-Víðir..................1-0
Ísafjörður-Víðir.............3-2
Valur-HSÞ....................6-3
Valur...............3 3 0 0 13- 3 6
ísafjörður..........3 111 6-11 3
Víðir................3 1 0 2 4- 5 2
HSÞ..................3 0 1 0 7-11 1
B-riðill:
UMFK-Fram....................... 4-1
Breiðablik-Fylkir............... 6-1
Breiðablik-Fram.................12-1
Fylkir-UMFK..................... 6-2
Fylkir-Fram..................... 7-1
Breiðablik-UMFK................. 7-1
Breiðablik...........3 3 0 0 25- 3 6
Fylkir...............3 2 0 1 14- 9 4
UMFK.................3 1 0 2 7-14 2
Fram ...............3 0 0 3 3-23 0
C-riðill:
KR-Hveragerði....................9-1
Víkingur-Akranes.................2-2
Akranes-KR.......................4-1
Víkingur-Hveragerði..............8-2
KR-Víkingur......................3-2
Akranes-Hveragerði...............8-0
Akranes..............3 2 1 0 14- 3 5
KR...................3 2 0 1 13- 7 4
Víkingur.............3 1 1 1 12- 7 3
Hverageröi...........3 0 0 3 3-25 0
Valur-Breiðablik
í úrslitin voru sem sagt komin
Valur, Breiðablik og Akranes.
Fyrst mættu fslandsmeistararnir
frá því í fyrra, Breiðablik, Vals-
stúlkunum og var þar um öruggan
Blikasigur að ræða, 4-1. Staðan í
hálfleik var 2-0, Magnea Magnús-
dóttir skoraði bæði mörkin. Ásta
M. Reynisdóttir bætti þriðja mark-
inu við strax á 2. mínútu síðari hálf-
leiks, Jóhanna Pálsdóttir minnkaði
muninn í 3-1, en þegar nokkrar
sekúndur voru til leiksloka bætti
Erla Rafnsdóttir fjórða markinu
við fyrir Breiðablik.
Torfi Magnússon Val og Símon Ólafsson Fram í harðri baráttu um knöttinn í leik liðanna á laugardag.
Mynd: -eik
Rósa Valdimarsdóttir, fyrirliði
kvcnnalandsliðsins og Breiðabliks,
í baráttu við Skagastúlkurnar í úr-
slitaleik á laugardag.
Mynd: -eik .
Keflavík kaffærdi KR
en KR kærir Keflavík!
Akranes-Valur
Valsstúlkurnar stefndu í sigur í
þessum jafna og spennandi leik,
þær voru yfir 3-2 þegar leiktíminn
var að renna út en 8 sekúndum fyrir
leikslok náðu Skagastúlkurnar
hraðaupphlaupi. Þegar klukkan
sýndi að tvær sekúndur væru eftir
sendi Ragnhildur Jónasdóttir
knöttinn í netið og jafnaði þar
með, 3-3, sanngjörn úrslit þegar
upp var staðið.
Guðrún Sæmundsdóttir kom
Val yfir strax á fystu mínútu en
Laufey Sigurðardóttir jafnaði, 1-1,
í hálfleik. Sama sagan var í byrjun
síðari hálfleiks, Guðrún skoraði,
Laufey jafnaði, 2-2. Einni og hálfri
mínútu síðar skoraði Jóhnna Páls-
dóttir þriðja mark Vals en það
dugði ekki til sigurs.
Akranes-Breiðablik
Þegar hér var komið sögu voru
Valsstúlkurnar úr leik og Breiða-
bliki nægði jafntefli við Akranes 1
lokaleiknum. ÍA tók strax for-
ystuna með marki Laufeyjar Sig-
urðardóttur og Kristín Reynisdótt-
ir bætti um betur, 2-0 fyrir Akranes
í hálfleik. Kristín Reynisdóttirkom
f A í 3-0 áður en Magneu tókst að
minnka muninn fyrir Breiðablik.
Kristín Aðalsteinsdóttir tryggði
Skagastúlkunum sigur með fjórða
markinu en Rósa Valdimarsdóttir
náði að laga stöðuna í 4-2 þegar
nokkrar sekúndur voru til leiks-
loka. Stúlkurnar af Skaganum
höfðu þar með tryggt sér íslands-
meistaratitilinn en meistarar síð-
asta árs, Breiðablik, urðu að sætta
sig við annað sætið.
Um greinilegar framtarir er að
ræða hjá stúlkunum í innanhúss-
knattspyrnu frá því á síðasta móti
og þær gefa karlmönnunum orðið
lítið sem ekkert eftir í samspili og
leikskipulagi öllu. yS
Alls skoruðu 50 stúlkur mark
eða mörk á þessu íslandsmóti í
innanhússknattspyrnu, níu þeirra
fimm mörk eða fleiri. Þær voru
eftirtaldar:
Laufey Sigurðard.ÍA....... 12
Magnea Magnúsd.UBK......... 9
Erla Rafnsd.UBK............ 8
Eva Baldursd.Fylki......... 7
Alda Rögnvaldsd.Vík........ 6
Guðrún Sæmundsd.Val....... 6
Ásta B. Gunnlaugsd.UBK .... 5
Kolbrún Jóhannsd.KR....... 5
Jóhanna Pálsd.Val.......... 5
MHM/VS
Það stenst fátt Valsmenn í úrvals-
dcildinni í körfuknattleik þessa
dagana og á laugardag urðu Fram-
arar fyrir barðinu á þeim í Haga-
skólanum. Valsmcnn unnu all örugg-
an sigur, 100-94, mun öruggari en
þær tölur gefa til kynna því þegar
skammt var til leiksloka skildu 22
stig liðin að. Valur er því áfram í
efsta sæti úrvalsdeildarinnar, með
Keflvíkinga á hælunum, og eru sig-
urstranglegastir allra eins og dæm-
ið lítur út í dag.
Leikurinn var í jafnvægi til að
byrja með en frábær kafli Vals-
manna færði þeim góða forystu um
miðjan fyrri hálfleik, 25-12. Þeir
komust síðan í 58-43 en Fram náði
að laga stöðuna í 58-49 fyrir hálf-
leik. Framan af þeim síðari söxuðu
Framarar mjög á forskotið og eftir
7 mínútur munaði aðeins þremur
stigum, 66-63. Þar við bættist að
Tim Dwyer hjá Val var kominn
með 4 villur og Framarar virtust til
alls líklegir.
En þá tóku Valsmenn við sér á
nýjan leik og þegar Dwyer yfirgaf
leikvöllinn með sína fimmtu villu
var staðan orðin 83-69, Val í hag.
Framarar högnuðust ekkert á því
að hann hyrfi, Valur náði sínu
besta forskoti, 97-75, en lokakafl-
ann skoruðu Framarar 19 stig
gegn 3 án þess að eiga möguleika á
að ógna sigri Vals.
Ríkharður Hrafnkelsson og Torfi
Magnússon léku báðir mjög vel
hjá Val og skoruðu bróðurpartinn
af stigunum, Rikki 28 og Torfi 26.
Dwyer skoraði 18, Jón Steingríms-
son 17, Kristján Ágústsson 4, Tóm-
as Holton 4 og Leifur Gústafsson 3.
Hjá Fram skoraði Val Brazy
mest, 32 stig, Símon Ólafsson var
daufur framan af en hresstist þegar
á leið og skoraði 27 stig, Þorvaldur
Geirsson skoraði 20, Omar Þráins-
son 6, Jóhannes Magnússon 5 og
Viðar Þorkelsson 4. Staða Framara
í deildinni versnaði nokkuð við
þetta tap og fallbarátta vofir nú yfir
liðinu sem varð í öðru sæti úrvals-
deildarinnar á síðasta keppnistíma-
bilinu.
-VS
Staðan:
Staðan í úrvalsdeildinni eftir
leiki helgarinnar:
Valur...............11 9 2 1033-890 18
Keflavik............11 8 3 912-905 16
Njarðvík............10 5 5 827-828 10
Fram................11 4 7 969-978 8
KR..................11 4 7 954-991 8
ÍR..................10 2 8 741-832 4
Framarar mæta Njarðvíkingum í
Hagaskólanum í kvöld og hefst
leikurinn kl. 20.
Þór á
mögu-
leika
Þór frá Akureyri eygir nú sæti í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik
eftir sigur á Haukum fyrir norðan á
laugardag í hörkuspennandi leik,
100-91. Staðan var 85-85 að lokn-
um venjulegum leiktíma en Þórsar-
ar voru sterkari í framlengingunni.
Robert McField skoraði 59 stig
fyrir Þór en Pálmar Sigurðsson 30
fyrir Hauka.
Staðan í 1. deild:
Haukar.......9 8 1 847-644 16
Þór Ak.........9 7 2 758-668 14
IS.............8 5 3 721-545 10
Grindavík......9 2 7 632-785 4
Skallagrímur...9 0 9 626-942 0
—B———HT—■^T—c—J|»— .i
■BMæBwnoi
bbokbbí