Þjóðviljinn - 08.02.1983, Qupperneq 2
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. febrúar 1983
Tvö töp og
Þórarar
úr leik
Eftir leiki helgarinnar í2. deild karla í
handknattleik er Ijóst hvaða lið leika um
1. deildarsœti og hver þurfa að berjast
við fallið í 3. deild. KA, Haukar,
Breiðablik og Grótta eru í efri hlutanum,
Pór Eyjum, HK, Ármann og Aftureld-
ing í þeim neðri.
Þór átti möguleika fyrir hlegi en tvö
töp gegn Kópavogsliðunun sendu
Eyjamennina í neðri hlutann. Þeir töp-
uðu 16-13 fyrir Breiðabliki og 25-20fyrir
HK. Á föstudagskvöldið vann Grótta
HK 27-17, kærkominn sigur Seltirninga
eftir þrjú töp í röð. Sverrir Sverrisson
skoraði 8 mörk fyrir Gróttu en Sigurður
Sveinsson 7 fyrir HK. Þá sigruðu
Haukar Aftureldingu 27-21 í Hafnar-
firði. Þórir Gíslason var markahœstur
Haukanna með 8 rnörk en Sigurjón
Eiríksson skoraði mest fyrir Mosfell-
inga, 6 mörk.
Staðan í 2. deild:
KA.............. 11 7 2 2 278-243 16
Haukar.......... 13 7 2 4 305-282 16
Breiðablik.......13 6 4 3 253-235 16
Grótta...........12 8 0 4 286-283 16
ÞórVe........... 13 4 3 6 272-281 11
HK...............13 5 1 7 279-294 11
Ármann.......... 12 2 3 7 241-262 7
Afturelding......13 2 3 8 252-286 7
Leik KA og Armanns á Akureyri var
frestað.
Bikarkeppni
í bordtennis
Lið Gerplu úr Kópavogi sigruðu bœði
í keppni A og B-liða á bikarmóti Fim-
leikasambands íslands sem haldið var í
Ármannsheimilinu og Laugardalshöll
um helgina. Keppnin í báðum flokkum
var milli Gerplu og Bjarkar úr Hafnar-
firði og munaði ekki miklu. í keppni
A-liða hlaut Gerpla 122,6 stiggegn 108,5
og hjá B-liðunum 123,75 gegn 118,75.
Armenningar áttu tvö efstu liðin í
keppni C-liða. Armann 2 sigraði með 92
stig en Ármann 1 hlaut 87,95 stig. Þá
kom Björk með 86,35, Fylkir 83,15 og
KR 75,05. Tvö lið féllu út í undanrásun-
um, ÍBA og ÍR.
Ármann vann einnig í piltaflokki,
hlaut þar 177,60 stig, Gerpla kom næst
með 130,5 og Björk þriðja með 117,9
stig. Að sögn Lovísu Einarsdóttur hjá
FSÍ er það vandamál, ekki aðeins hér á
landi heldur einnig í nágrannalöndun-
um, hve erfitt er að fá pilta til þátttöku í
fimleikum og eru þeir í miklum minni-
hluta í þessari íþrótt.
Mótið var mjög fjölmennt, um 200
þátttakendur eða fleiri en nokkru sinni
áður. Mikið af ungu og efnilegu fim-
leikafólki kom fram á sjónarsviðið, eink-
um hjá C-liðum stúlkna, en þar eru
keppendur alltfrá sjö ára aldri. Lið Fylk-
is, KR og ÍBA bœttust við frá því ífyrra.
-VS
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Stefán Þ. Stefánsson á leið yfir 1,90 metra í
hástökki karla og það reyndist tryggja honum
sigurinn. Mynd:-eik.
Jón og Bryndís bættu
metin í langstökkinu
Jón Oddsson, KR, og Bryndís
Hólm, ÍR, unnu bestu afrekin á
Meistaramóti íslands í frjálsum
íþróttum innanhúss sem haldið var
í Reykjavík um helgina. Þau settu
bæði glæsileg íslandsmet í lang-
stökki og Jón, miðherji 1. deildar-
liðs ísfirðinga í knattspyrnu, varð
fyrstur Islendinga til að stökkva
lengra en 7,50 metra. Hann nálgast
óðum það að geta talist boðlegur á
stórmót erlendis en algengt er að
þeir sem þar ná verðlaunasætum
stökkvi um 8 metra eða lengra.
Handhafi Islandsmetsins
fyrir mótið var
Armenningurinn
efnilegi,
Kristján
Harðarson, en það
var 7,32 metrar. Kristján
bætti það Um heila 9 sentimetra,
7,41, en það dugði ekki til sigurs
því ísfirðingurinn sveif 7,52 metra.
Bryndís var í sérflokki í lang-
stökki kvenna og hennar helsti
keppinautur var Islandsmetið.
Hún náði því, bætti eigið met um
10 sentimetra með því að stökkva
5,92 metra. Bryndís var einnig ná-
lægt sigri í 50 m hlaupi kvenna, þar
varð hún þriðja þrátt fyrir að ná
sama tíma, 6,6 sek., og sigurvegar-
inn, Helga Halldórsdóttir, KR.
Önnur varð Sigurborg Guömunds-
dóttir, Ármanni.
Keppnin í hástökkinu var einnig
tvísýn en þar sigraði Stefán Þór
Stefánsson, ÍR, stökk 1,90 m, sem
og þeir Kristján Sigurðsson, UM-
SE og Gunnar Sigurðsson, UMSS.
Stefán Þór varð þriðji í langstökk-
inu með 7,07 metra.
Þrístökkið vann Eyfirðingurinn
Guðmundur Sigurðsson en hann
náði góðum árangri, stökk 14,54
m. Annar varð Kári Jónsson,
HSK, með 13,81 m og þriðji Örn
Gunnarsson, USVH, með 13,37
metra.
f kúluvarpi karla hafði Helgi Þ.
Helgason, USAH, nokkra yfir-
burði og kastaði 15,40 metra. Egg-
ert Bogason, FH, varð annar með
14 29 m og Garðar Vilhjálmsson,
UIA, þriðji með 13,78 metra.
Jóhann Jóhannsson, IR,
reyndist sprettharðastur þegar að
50 m hlaupinu kom. Hann fékk
tímann 5,8 sek, Akureyringurinn
úr KR, Hjörtur Gíslason einnig en
varð annar og Gísli Sigurðsson,
KR, þriðji á 6,0.
FH vann þrefalt í 800 m hlaupi.
Magnús Haraldsson kom fyrstur í
mark á 2:06,3 mín, þá Viggó Þóris-
son, sá efnilegi hlaupari, á 2:08,1
og Sigurður Haraldsson lenti í
þriðja sæti með 2:08,3 mín.
Magnús sigraði einnig í 1500 m
hlaupi á 4:22,8 mínútum. Gunnar
Birgisson, ÍR, varð annar á 4:29,7
og Ómar Hólm, FH, þriðji á
4:32,1.
í boðhlaupi karla reyndust
Hafnfirðingarnir úr FH fljótastir,
þá ÍR-ingar, síðan Breiðablik.
Kvennasveit ÍR sneri dæminu við
og varð á undan FH-stúlkunum í
mark.
Jllöt'jOúiiblsiíijs
Bryndís Hólm bætti
íslandsmetið í
langstökki kvenna.
Þórdís Gísladóttir var fjarri góðu
gamni í hástökki kvenna en sú
grein vannst á 1,45 m. Þórdís var að
stökkva 1,86 í Bandaríkjunum á
dögunum. Hanna Símonardóttir,
UMSB, og Sigríður Guðjónsdótt-
ir, HSK, stukku báðar áðurnefnda
hæð en Hanna sigraði á færri til-
raunum.
Á eftir Bryndísi í langstökkinu
komu þær Birgitta Guðjónsdóttir,
HSK, og Linda B. Loftsdóttir, FH
með 5,21 og 5,15 metra.
Soffía Gestsdóttir, HSK, varp-
aði kúlu lengst allra kvenna, 12,68
metra. Helga Unnarsdóttir,
UIA, kom næst með 11,93 og
þáMargrét Oskarsdóttir, ÍR,
með tíu og liálfan.
Þá er aðeins ótalið 50 m
grindahlaup kvenna en þar sigraði
Helga Halldórsdóttir, KR, rétt
eins og í 50 m hlaupi án grinda.
Hún var þó 0,6 sekúndum lengur
eftir að grindurnar höfðu verið
settar upp og hljóp því á 7,2 sek-
úndum. Sigurborg Guðmundsdótt-
ir, Ármanni, hljóp á 7,3 sekúndum
(og vonandi á skóm líka) og Birg-
itta Guðjónsdóttir, HSK, varð
þriðja á 7,9 sekúndum.
-VS
Allt eftir
bókinni hjá
stulkunum
Það fór allt eftir bókinni í 1. deild
kvenna í handknattleik á laugardaginn.
Þrír leikir fóru fram í 1. deild, þrjú lið úr
efri hluta deildarinnar sigruðu þrjú
þeirra neðri. Fyrst vann Fram Hauka
25-11, þá sigraði FH KR 19-15 og loks
unnu Valsstúlkurnar Víking 18-12.
Staðan í 1. deild:
Valur.......... 11 8 2 1 176-134 18
FH...............10 7 2 1 169-125 16
Fram.............10 7 1 2 153-116 15
ÍR...............10 7 1 2 165-133 15
Víkingur.........11 3 1 7 131-162 7
KR.............. 10 3 0 7 123-134 6
Haukar.......... 10 0 1 9 111-179 1
Þór Ak........... 6 0 0 6 80-124 0
Bikararnir
til Gerplu
og Ármanns
Bikarkeppni Borðtennissambands ís-
lands verður haldin ífyrsta skipti í vetur
ogferfyrsta umferðin fram sunnudaginn
13. febrúar í Fossvogsskóla. Um nœstu
umferðirfer eftir þátttöku og verða þœr
tilkynntar eftir þá fyrstu.
Þátttökutilkynningar skulu berast
mótanefnd fyrir 10. febrúar. Þátttöku-
gjald er kr. 500,- fyrir hvert lið. ímóta-
nefnd eru Jón Kr. Jónsson, s. 30354,
Gísli Hjartarson, s. 83674 ogÁgústHaf-
steinsson, s. 83674.
Celtic slapp
með jafntefli
Celtic slapp fyrir horn gegn Dundee
United í skosku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu þegar félögin mœttust á Tannar-
dice Park í Dundee á laugardaginn. Pat
Bonnar markvörður Celtic varði víta-
spymu frá Eamonn Bannonn rétt fyrir hálf-
leik og lið hans hélt því öðru stiginu.
Charlie Nicholas skoraðifyrir Celtic á 4.
mínútu en Davið Dodds jafnaði fyrir
heimaliðið á 38. mínútu og úrslitin því
1-1.
Rangers varð að sœtta sig við enn eitt
jafnteflið á heimavelli, nú 1-1 gegn
Dundee, og stjórinn, John Greig, er ekki
talinn líklegur til að endast út keppnis-
tímabilið. Hibernian vann Morton 2-0.
St.Mirren sigraði Kilmarnock 2-0. Leik
Aberdeen og Kilmarnock var frestaðþar
sem völlur Aberdeen, Pittodrie, var
gegnsósa af vatni.
Staðan í úrvalsdeildinni:
Celtic.........22 17 3 2 59-24 37
Aberdeen........22 15 4 3 43-14 34
Dundee United 22 13 6 3 48-19 32
Rangers........22 6 10 6 30-27 22
Dundee........ 22 6 8 8 28-29 20
Hibernian......23 4 10 9 19-30 18
St.Mirren......23 4 9 10 23-36 17
Motherwell.....22 8 1 13 25-44 1 7
Morton.........23 4 7 12 23-42 15
Kilmarnock... 23 2 8 13 18-51 12
Charlie Nicholas, einn efnilegasti knatt-
spyrnumaður Skota, skoraði mark Celt-
ic eftir fjórar mínútur.
Þriðjudagur 8. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
íbróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Einn maður úr hvoru byrjunar
liði inná undir lokin!
Einn maður úr hvoru byrjunar-
liði, hjá ÍR og Fram, var eftir á
vellinum á lokamínútum leiks
liðanna í úrvalsdeildinni í körfukn-
attleik á sunnudaginn. Fimm IR-
ingar voru komnir útaf með 5 villur
og fjórir Framarar, tveir þeirra
reknir út úr húsinu eftir útistöður
við dómara. Jafnvel þeir þaulsætn-
ustu á varamannabekkjunum
fengu því að spreyta sig undir lokin
en þegar að mestu upplausninni
kom voru úrslitin ráðin; ÍR vann
96-86, annar sigur liðsins á fjórum
dögum og sá sjötti í átta síðustu
leikjunum í úrvalsdeildinni.
Framarar voru ákveðnari í byrj-
un en ÍR náði fljótlega forystunni.
Aldrei munaði þó meiru en 4 til 6
stigum og þegar stutt var til hálf-
leiks jöfnuðu Framarar 37-37. Þá
tók ÍR góðan sprett og leiddi í hléi
49-40.
Sú forysta stóð ekki lengi, Fram-
arar gáfu ekkert eftir og voru
komnir yfir um miðjan síðari hálf-
leikinn, 66-64. Um svipað leyti var
Pétur Guðmundsson hjá ÍR kom-
inn með 4 villur og Gylfi Þorkels-
son og Jón Jörundsson horfnir af
leikvelli með 5 stykki hvor. En hin-
um megin fengu Þorvaldur Geirs-
son, Val Brazy og Viðar Þorkels-
son 4. villuna hver og vendipunkt-
urinn var sjö mínútum fyrir leiks-
lok. ÍR var yfir 73-69 og þá
fékk Brazy sína 5. viilu. IR
skoraði 16 stig gegn 3,
staðan 89-72 þegar
þrjár mínútur voru eftir,
enþáfyllti Pétursinn
villukvóta. Urslitin voru
ClllKUIIl
fékk 5. villuna og var rekinn útúr
húsinu fyrir að dangla í Gunnar
dómara og Ómar Þráinsson fauk
sömu leið fyrir kjafthátt. Viðar
fékk 5. villuna og Guðsteinn Ingi-
marsson einn eftir af byrjunarliði
Fram. Hreinn Þorkelsson og Krist-
inn Jörundsson ÍR-ingar kláruðu
einnig sinn skammt og Kolbeinn
Kristinsson einn eftir úr þeirra
byrjunarliði en þó Frömurum tæk-
ist að laga stöðuna nokkuð komst
sigur ÍR-inga ekki í hættu.
Staða f R styrkist enn og fallhætt-
an óðum að hverfa. Mikill kraftur
og barátta einkennir leik liðsins og
sjálfstraustið, sem ekkert var fram-
an af vetri, skín úr augum allra.
Pétur var óstöðvandi í fyrri hálfleik
og skoraði þá 21 stig en hann var
öllu mistækari í þeim síðari.
Hreinn lék mjög vel allan tímann
og Kolbeinn Kristinsson átti stór-
góðan síðari hálfleik. Skoraði þá
hvað eftir annað með glæsilegum
langskotunr. Þessir þrír báru af en
aðrir stóðu fyrir sínu. Pétur skoraði
29 stig, Hreinn 22. Kolbeinn 20,
Hjörtur Oddsson 7, Kristinn og
Jón Jör. 6 hvor, Gylfi 4 og Kristján
Einarsson tvö.
Fram átti ágætan dag þar til villu-
vandræðin fóru að segja til sín. Val
Brazy lék samherja sína virkilega
vel upp, allt annað að sjá til hans en
gegn Keflavík í þeirn efnum, og
hann skoraði t.d. ekki fyrr en um
miðjan fyrri hálfleik, úr sinni ann-
arri skottilraun. Viðar skoraði
drjúgt úr langskotuni þótt nýtingin
hefði kannski getað verið vetri og
Þorvaldur átti góðan dag. Ómar
lék sinn besta leik í langan tíma og
það er mikill styrkur fyrir Fram að
Guðsteinn skuli vera kominn á ný,
ekki síst meðan Sínron Ólafsson er
fjarverandi vegna veikinda.
Skortur á breidd háir Fram þó
nokkuð, kannski ekki eins mikið
og virðist því Guðmund Hallgríms-
son mætti að ósekju nota meira.
Hávaxinn piltur og nokkuð efni-
legur að því er virðist. En Fram
gæti átt í erfiðleikum í næsta leik, í
Guðsteinn Ingimarsson, Fram, sækir að Hirti Oddssyni, IR, í hinum sögulega leik liðanna á
sunnudaginn. Báðum tókst að sleppa við „fimmvillurnar“ og leika leikinn á enda þótt flestir félaga
þeirra hyrfu af leikvelli. Mynd: -eik
Valsmenn ekki í miklum
vandræðum með botnlið KR
Það fór eins og við var að búast
þegar efsta lið úrvalseildarinnar í
körfuknattleik, Valsmenn, léku við
botnlið KR í Ilagaskólanum á
laugardaginn. Valsmenn léku allan
tímann eins og þcir sem valdið
hafa, tóku þegar forystuna og héldu
henni allan tímann. Nítján stiga
inunur þegar upp var staðið var síst
of lítið, Valsmenn sigruðu 103-94
eftir að hafa leitt í hálfleik 49-35.
Leikurinn var nokkuð hraður og
fjörugur þegar í upphafi en hittni
leikmanna var nokkurn tíma að
komast í eðlilegt horf, einkum hjá
KR-ingum. Það tók t.d. Stewart
Johnson sjö skottilraunir að kom-
ast á blað og þegar það loks tókst
voru Valsmenn komnir með góða
forystu, 21-9. Munurinn jókst og
varð mestur 45-27 rétt fyrir lok
fyrri hálfleiks.
í byrjun síðari hálfleiks náðu
KR-ingar sínum besta leikkafla
eftir að Valur hafði komist í 55-39.
Johnson og Jón Sigurðsson
skoruðu hverja körfuna á fætur
annarri og allt í einu munaði aðeins
sjö stigum, 57-50. En þá settu Vals-
menn allt á fullt, komust í 68-52 og
eftir það átti KR aldrei möguleika.
Tuttugu og tveggja stiga forysta
náðist tvívegis, 86-64 og 96-74, og
Valsmönnum tókst að rjúfa hundr-
að stiga múrinn eina ferðina enn í
vetur, 103-84.
Liðsheildin hjá Val er afar sterk
og engu virtist skipta þótt Rík-
harður Hrafnkelsson væri í
leikbanni. Tómas Holton fékk í
staðinn betra tækifæri en oftast
áður til að sýna hve geysilega efni-
legur leikmaður hann er og lét það
ekki ónotað. Jón Steingrímsson
átti mjög góðan fyrri hálfleik og
Tim Dwyer tók að skora sjálfur í
þeim síðari eftir að hafa gert mest
af því að mata aðra fyrir hlé. Torfi
Magnússon var drjúgur að vanda,
samt nokkuð frá sínu besta og
Kristján Ágústsson lék vel. Tim
skoraði 22 stig, Jón, Kristján og
Tómas 18 h ver, Torfi 13, B j örn Zo-
ega og Sigurður Hjörleifsson 4,
Hafsteinn Hafsteinsson, Hannes
Hjálmarsson og Leifur Gústafsson
tvö hver. Allir skoruðu - undir-
strikar enn breiddina og yfirburði
Vals.
Tveir menn, Johnson og Jón Sig.
sjá um allt hjá KR og ekki bætti úr
skák að sá sem stendur þeim næst-
ur, Páll Kolbeinsson, lék ekki með
vegna meiðsla. Johnson var lengi í
gang en hitti ágætlega eftir það og
Jón lék virkilega vel. Kraftur hans
fleytti liðinu langt. Aðrir voru slak-
ir, helst að Þorsteinn Gunnarsson
kæinist þokkalega frá leiknum.
Johnson skoraði 37 stig, Jón 24,
Þorsteinn 8, Björn Indriðason 4,
Kristján Rafnsson 3, Ágúst Líndal,
Birgir Guðjónsson og Stefán Jó-
hannsson tvö hver.
Gunnar Guðmundsson og Þrá-
inn Skúlason sýndu dómgæslu í
meðallagi.
-VS
Njarðvík, fari þeir Þorvaldur og
Ómar í bann eins og líklegt má
telja.
Viðar skoraði 21 stig fyrir Fram,
Brazy 16, Þorvaldur 16, Ómar 15,
Guðsteinn 8, Jóhannes Magnússon
5, Guðmundur 3 og Auðunn
Elíasson tvö.
Gunnar Valgeirsson og Davíð
Sveinsson dæmdu leikinn. Þeir
leyfðu alls konar röfl og raus og
geta því sjálfunr sér um kennt að
allt skyldi fara úr böndunum undir
lokin.
-VS
Staðan:
Staðan í úrvalsdcildinni í körfu-
knattleik eftir leiki helgarinnar:
Valur...........14 11 3 1278-1120 22
Keflavík........14 10 4 1162-1148 20
Njarðvik........14 7 7 1139-1158 14
ÍR.............15 6 9 1155-1198 12
Fram.......... 15 5 10 1317-1332 10
KR..............14 4 10 1178-1273 8
Næstu leikir eru á fiinmtudags-
kvöldið. Þá mætast KR og
Njarðvík í Hagaskólanum og
Keflavík-Valur í Keflavík.
Þurftu
engan
stórleik
Botnbaráttulið ÍR sigraði ís-
landsmcistara Njarðvíkur 78-60 í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik á
föstudagskvöldið þegar félögin
mættust í Njarðvík í einum léleg-
asta leik deildarinnar í vetur. Virt-
ust Njarðvíkingar alveg heillum
horfnir án Bandaríkjamannsins
þeirra, Bill Kottermann, sem
meiddist í leik Keflavíkur og
Njarðvíkur á dögunum.
ÍR komst strax yfir, 6-0 og fyrsta
karfa Njarðvíkinga kom ekki fyrr
ená þricVi nínútu eftir aragrúa til-
rauna. ÍR-ingar héldu forystunni
allan fyrri hálfleikinn og varð mun-
urinn mestur, 12-28, á 14. mínútu.
Þá skoruðu Njarðvíkingar næstu
átta stigin en ÍR var fyrir í hálfleik
29-39.
Strax í upphafi síðari hálfleiks
fóru heimamenn að saxa á for-
skotið og á 12. mínútu komust þeir
yfir í fyrsta og síðasta skipti, 54-53,
mest fyrir tilstilli Ástþórs Inga-
sonar og Alberts Eðvaldssonar
sem börðust eins og ljón í vörninni.
En allan aga virtist vanta í
Njarðvíkurliðið og leikur þess
hrundi algeriega. Ekki bætti úr
skák að þeir Hilmar Hafsteinsson
þjálfari og Valur Ingimundarson
voru reknir útúr húsinu undir lok
leiksins og eiga bann yfir höfði sér.
ÍR var langt frá því að eiga stór-
leik, þess þurfti einfaldlega ekki til
að leggja meistarana. Pétur Guð-
mundsson og Kolbeinn Kristinsson
léku mjög vel og báru uppi leik
liðsins. Þeir skoruðu sín 24 stigin
hvor, Gylfi Þorkelsson 13, Kristinn
Jörundsson 10, Hreinn Þorkelsson
6 og Jón Jörundsson eitt.
Valur Ingimundarson var eini
Njarðvíkingurinn sem var nálægt
því að sýna sitt rétta andlit og
skoraði 24 stig. Sturla Örlygsson
kom næstur með 9, Árni Lárusson
8, Gunnar Þorvarðarson 6, Ingim-
ar Jónsson 5, Albert Eðvaldsson 4
og Ástþór Ingason 4.
Dómgæsla Kristins Albertssonar
og Gunnars Guðmundssonar var
undir meðallagi en bitnaði ekki
frekar á öðru liðinu eins og
Njarðvíkingar virtust almennt
telja. -gsm