Þjóðviljinn - 01.03.1983, Blaðsíða 4
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 1. mars 1983
íþróttir
Umsjón:
Víöir Sigurösson
Úrsiit:
1. deild:
I Birmingham-Nottm.Forest.......1-1
5 Brighton-StokeCity............1-2
j Everton-Swansea City..........2-2
! Ipswich-Luton Town............3-0
í Manch.United-Liverpool........1-1
j Notts County-Coventry.........5-1
j Sunderland-Manch.City.........3-2
1 Tottenham-Norwich City........0-0
3 Watford-Aston Villa...........2-1
j W.B.A.-Arsenal................0-0
3 WestHam-Southampton...........1-1
2. deild:
j Barnsley-Rotherham............2-1
i Bolton-Middlesborough.........3-1
j Burnley-Charlton..............7-1
j Carlisle-Leeds United.........2-2
i Chelsea-Blackburn.............2-0
DerbyCounty-Grimsby.............2-0
Fulham-Newcastle................2-2
, Leicester-Wolves..............5-0
| Oldham-Cr.Palace..............2-0
f Sheff.Wed.-Cambridge..........3-1
j Shrewsbury-Q.P.R..............0-0
3. deild:
I Bournemouth-Portsmouth........0-2
Bradford City-Chesterfield......1-0
í Brentford-Doncaster...........1-0
I Gillingham-Cardiff City.......2-3
' Huddersfield-Preston N.E......1-1
Lincoln City-Plymouth...........1-2
I Millwall-ExeterCity...........5-2
Newport County-Orient...........4-1
| Reading-Southend United.......1-1
j Wallsall-Oxford United........1-0
j Wigan-Bristol Rovers..........0-5
! Wrexham-Sheffield United......4-1
4. deild:
I Blackpool-Rochdale............1-0
s Bristol City-Hartlepool.......2-0
J Crewe-Hereford United.........3-1
J Darlington-Cokchester.........1-3
| Hull City-Scunthorpe..........1-1
J Mansfield-Chester.............2-1
j Northampton-Torquay...........2-0
í Peterborough-Tranmere.........3-0
| Port Vale-Halifax.............2-1
Stockport-Aldershot.............2-1
J Swindon Town-Bury.............1-1
j Wimbledon-YorkCity............4-3
Staðan:
Liverpool .28 19 6 3 65-23 63
Watford ..27 15 4 8 49-28 49
Manch.Utd ..27 13 9 5 37-21 48
Nottm.For .28 13 6 9 42-36 45
AstonVilla ..28 13 3 12 40-37 42
Coventry .28 12 6 8 39-37 42
Everton .28 11 7 10 45-36 40
Tottenham .28 11 7 10 39-37 40
W.B.A .29 10 10 9 38-36 40
Southampton 29 11 7 11 38-43 40
Ipswich .28 10 8 10 43-32 38
West Ham .27 12 2 13 43-41 38
StokeCity .27 11 5 11 39-41 38
Arsenal .27 10 7 10 34-34 37
Manch.City .29 10 7 12 38—48 37
NottsCounty., .29 11 4 14 39-51 37
Sunderland.... .28 8 9 11 33-43 33
LutonTown.... .27 7 9 11 47-57 30
Swansea .28 7 7 14 34-42 28
Birmingham... .27 5 12 10 23-36 27
Norwich .27 7 6 14 26-45 27
Brighton .28 6 7 15 25-53 25
2.deild:
Wolves .28 17 5 6 53-31 56
Q.P.R .28 17 5 6 44-22 56
Fulham .28 15 7 6 50-34 52
Leicester .29 14 3 12 50-32 45
Oldham .30 10 13 7 49-37 43
Sheff.Wed .27 11 9 7 43-34 42
Grimsby .29 12 5 12 40-48 41
Barnsley .28 10 10 8 40-36 40
Leeds .28 8 15 5 35-32 39
Blackburn .29 10 9 10 39-40 39
Newcastie .28 9 11 8 42-39 38
Shrewsbury... .28 10 8 10 33-38 38
Chelsea .29 9 8 12 39-39 35
Bolton .29 9 8 12 34-39 35
Cr.Palace .28 8 10 10 31-35 34
Rotherham .29 8 10 11 32-41 34
Charlton .28 9 6 13 40-59 33
Carlisle .29 8 8 13 49-53 32
Middlesboro... .28 6 11 11 30-51 29
Cambridge .28 7 7 14 29-45 28
Burnley .27 7 5 15 43-49 26
Derby County 27 5 11 11 32-43 26
3.deild:
Portsmouth.... ...31 20 4 7 55-34 64
Cardiff ...32 19 5 8 59-43 62
Lincoln ...30 17 4 9 59-32 55
Huddersfield.. ...31 15 9 7 59-36 54
Bristol Rov ...31 16 5 10 68-39 53
Newport ...31 15 8 8 55-38 53
4.deild:
Port Vale ...30 19 6 I 5 47-20 63
HullCity ...32 17 11 4 56-23 62
Wimbledon ...31 17 8 I 6 57-35 59
Bury ...33 16 10 I 7 53-29 58
Colchester ...31 16 6 i 9 48-35 54
Scunthorpe.... ...29 13 11 5 40-23 50
Swindon ...29 14 8 J 7 41-28 50
Enska knattspyrnan
Blissett stakk upp í
blaðamennina!
Áðeins einu liðanna, sem
skipuðu þrettán efstu sæti 1.
deildarinnar fyrir lcikina á laugar-
dag, tókst að sigra, nýliðum Wat-
ford. Liðið hans Elton Johns komst
þar með í annað sætið, fjórtán stig-
um á eftir Liverpool, en naumt var
það gegn Evrópumeisturum Aston
Villa. Á lokamínútu leiksins sendi
Wilf Rostron knöttinn í mark Villa
af 25 metra færi, Watford hafði
sigrað, afar sanngjarnt, 2-1.
Enskir blaðamenn höfðu í síðustu
viku kallað landsliðsmiðherjann
hjá Watford, Luther Blissett, fyrir
„Luther Mishit" vegna þess hve
miklu af marktækifærum hann
hafði sólundað að undanförnu og
sögðu hann vera langt fyrir neðan
nokkurn landsliðsklassa. Hann
stakk upp í þá á 7. mínútu, fékk
knöttinn rétt utan vítateigs Villa
vinstra megin og sendi hann í netið
með gullfallegu skoti, 1-0. Vörn
.... '• **
®?..
Mark Walters skoraði jöfnunar-
mark Aston Villa gegn Watford.
Þctta var hans fyrsta deildamark en
áður hafði hann skorað fyrir fé-
lagið í enska bikarnum og Evrópu-
bikarnum.
Watford, og þá sérstaklega Ian
Bolton, urðu á slæm mistök á 20.
mínútu og blökkumaðurinn efni-
legi, Mark Walters, notfærði sér
það til hins ýtrasta, lyfti knettinum
snyrtilega yfir Steve Sherwood
markvörð Watford, 1-1. Það sem
eftir var fyrri hálfleiks sótti Wat-
ford mjög, Nigel Spink varði vel í
marki Villa, nokkrum sinnum
m.a.s. frá eigin varnarmönnum
sem ekki virkuðu alltof öruggir.
Síðari hálfleikur var jafnari, Wat-
ford þó alltaf sterkara, en Villa
fékk tvö bestu færin. Sherwood
varði stórkostlega skalla frá Allan
Evans og rétt á eftir skot Dennis
Mortimer. Loks var komið að Ros-
tron og Watford fagnaði sigri, sæt
hefnd eftir 4-1 tapið fyrir Villa í
bikarnum um síðustu helgi.
Swansea lék með fimm táninga á
Goodison Park gegn Everton en
var mjög nærri sínum fyrsta útisigri
í vetur. Andy King kom Everton
yfir á 24. mínútu, Allan Irvine
skaut, Ray Kennedy komst fyrir
skotið en knötturinn hrökk til King
sem skoraði. Robbie James jafnaði
með ótrúlegu rnarki af 40 ni færi
rétt fyrir hlé, og níu mínútum fyrir
L*leikslok tók Swansea forystuna;
besti maður vallarins, hinn 19 ára
Darren Gale var þar að verki. King
bjargaði síðan stigi fyrir Everton
með miklu einstaklingsframtaki,
fimm mínútum fyrir leikslok, 2-2.
Óvæntustu úrslitin voru í Nott-
ingham þar sem Notts County salt-
aði Coventry 5-1. Justin Fashanu
skoraði tvö í fyrri hálfleik, síðan
Ian McCulloch og Paul Hooks.
Fimmta markið skoraði Finninn
Aari Lathinen en aðeins tveimur
mínútum síðar var hann borinn af
leikvelli, með ljótt sár á höfði, jafn-
vel með brákaða hauskúpu. Gary
Jjillespie náði að laga stöðuna ör-
lítið fyrir Coventry undir
lokin. Fjörugur leikur var
á Roker Park í
Sunderland. Heimaliðið
komst í 2-0 eftir markalausan fyrri
hálfleik með mörkum Ian Atkins
og Gary Rowell. Tommy Caton
minnkaði muninn í 2-1 en þá
skoraði Rowell úr vítaspyrnu, 3-1.
Peter Bodak hjá City var rekinn af
leikvelli fyrir að slá Iain Munro en
seint í leiknum tókst þó Kevin Ree-
ves að skora fyrir gestina, 3-2.
Brighton fékk hlýjar viðtökur á
heimavelli sínum, Goldstone
Ground í Hove, í upphafi leiks
gegn Stoke vegna sigursins frábæra
á Liverpool helgina áður í bikarn-
um. Fögnuðurinn var ekki eins
mikill í leikslok, Stoke vann 2-1, en
Brighton sótti þó nær látlaust allan
tímann. Andy Ritchie kom Brig-
hton yfir og liðið gat gert út um
leikinn áður en Stoke jafnaði úr
sínu fyrsta skoti, Mickey Thomas á
33. mínútu. Ian Painter skoraði
síðan sigurmark Stoke tveimur
mínútum fyrir leikhlé eftir mikinn
misskilning milli Steve Foster
miðvarðar og Percy Digweed mar-
kvarðar Brighton.
Ipswich lék stórvel gegn Luton
og vann sannfærandi. Alan Brazil
skoraði í fyrri hálfleik, John Wark
og Trevor Putney í þeim síðari.
Mick Harford skoraði snemma
leiks fyrir Birmingham og liðið
stefndi lengi vel í sigur en Peter
Davenport náði að jafna fyrir Nott-
ingham Forest sex mínútum fyrir
leikslok.
Danny Wallace kom Southam-
pton yfir á Upton Park gegn West
Ham en Frank gamli Lampard
jafnaði fyrir heimaliðið' mínútu
fyrir hálfleik.
Norwich náði góðu stigi í marka-
lausum leik á White Hart Lane
gegn Tottenham og það eina mark-
verða við leik WBA og Arsenal
var, að markvörður Arsenal, hinn
37 ára gamli Pat Jennings, lék þar
sinn þúsundasta leik á ferli sínum,
en þar eru taldir deilda- og bikar-
leikir, svo og landsleikirnir 95 sem
þessi frábæri markvörður á að baki
fyrir Norður-Irland.
Úlfarnir steinlágu!
„Þetta var minn fjórði og síðasti
leikur með Leicester, þrír sigrar og
eitt tap, og eins og liðið hefur leikið
sé ég ekkert því til fyrirstöðu að
það leiki í 1. deild að ári. Framherj-
arnir eru stórkostlegir, einkum
Gary Lineker, og Úlfarnir voru
heppnir að tapa aðeins 5-0“, sagði
írski landsliðsmaðurinn frá Coven-
' Luther
Blissett
skoraði
glæsilegt
mark fyrir j
W'atford.
try, Gerry Daly, sem verið hefur í
láni hjá Leicester, eftir stórsigur-
inn á toppliði Wolves. Úlfarnir
voru teknir í algera kennslustund á
Filbert Street, Steve Lynex 2 og
Alan Smith skoruðu fyr>r hlé, Gary
Lineker, sem nú er alinn besti
framherji 2. deildar og þótt víðar
væri leitað, sá um fjórða markið og
Daly sjálfur um það fimmta.
Newcastle náði tvívegis foryst-
unni í London gegn Fulham, Ivre
Varadi og Terry McDermott, en
Gordon Davies og Kevin Lock
jöfnuðu. Áhangendur Leeds eyði-
lögðu tvo járnbrautarvagna á
leiðinni til Carlisle og slógust síðan
af vana á áhorfendapöllunum.
Leeds komst í 0-2 með mörkum
Terry Connor og Aiden Butterw-
orth en Carlisle jafnaði, Paul
Bannon og Alan Shoulder. Níu
leikmenn Charlton, Mark Aizlew-
ood og Derek Hales voru reknir
útaf, fengu ekki rönd við reist í síð-
ari hálfleiknum í Burnley og botn-
liðið vann 7-1 eftir 2-1 í hálfleik.
Steve Taylor skoraði 3 markanna
og Billy Hamilton tvö. Kevin Mo-
ore, Grimsby, skoraði sjálfsmark á
Baseball Ground og Bobby Davi-
son bætti öðru við fyrir Derby. Cli-
ve Walker og Peter Rhoades-
Brown skorðuðu mörk Chelsea
gegn Blackburn.
13. deild vann Portsmouth sinn
sjöunda leik í röð og í 4. deild hefur
Bristol City, sem lék í 1. deild fyrir
þremur árum, komið sjö liðum nið-
ur fyrir sig á töflunni, í fyrsta skipti
síðan í september.
-VS
Leikur helgarinnar
Hefðum við haldið for
ystu 5 mínútum lengur
Markahæstir:
Eftirtaldir leikmenn hafa skorað flest
mörk í leikjum l.deildar:
lan Rush, Liverpool.................20
Luther Blissett, Watford............15
Kenny Dalglish, Liverpool...........15
BrianStein, Luton...................15
Bob Latchford, Swansea..............13
JohnWark, Ipswich...................13
GaryRowell, Sunderland..............12
David Cross, Manch.City.............11
Peter Withe, Aston Villa............11
„Við fengum næg tækifæri í þessuni
leik til að leggja Liverpool að velli og
eftir að Arnold Muhren hafði skorað
hélt ég að okkur myndi takast það.
Eg er sannfærður um að við hefðum
sigrað ef við hefðum haldið foryst-
unni fímm mínútum lcngur, ekki
látið Liverpool jafna innan þriggja
mínútna, en svona er knattspyrnan
og það er vel hægt að sætta sig við
úrslitin“, sagði Ray Wilkins fyrirliði
Manchester United eftir að lið hans
hafði gert jafntefli, 1-1, við Liverpool
í stórleik helgarinnar í 1. deild. Um
57,400 manns fylgdust með leiknum
á Old TrafTord í Manchestcr en
hcimaliðinu tókst ekki að raska hinu
fimmtán stiga djúpi scm skiiur liðin
að.
Bruce Grobbelaar markvörður Li-
verpool hélt liði sínu á floti framan
af. Hvað eftir annað varði hann
glæsilega, m.a. skot frá Muhren og
skalla Gordon McQueen, og þá
bjargaði Craig Johnston á marklínu
Liverpool. United varð fyrir áfalli
þegar Kevin Moran var borinn af
leikvelli, illa nieiddur á fæti, en liðið
náði samt sem áður forystunni á 36.
mínútu. Eftir undirbúning Remi
Moses og Frank Stapleton sendi Ste-
ve Coppell fyrir mark Liverpool,
Muhren fékk knöttinn í dauðafæri og
skoraði, 1-0. Innan þriggja mínútna
hafði Liverpool jafnað. Johnston
skallaði fyrir fætur Kenny Dalglish
sem skoraði með góðu skoti, 1-1.
í síðari hálfleik sóttu lið á víxl,
United þó heldur meira. Muhren
náði fallegu skoti eftir fyrirgjöf Wilk-
ins, Norman Whiteside breytti
stefnu knattarins framhjá Grobbe-
laar, en einnig rétt framhjá mark-
stönginni. Hinum megin varði Gary
Bailey, sem lék í marki United þrátt
fyrir meiðsli á læri, vel frá Dalglish
og Johnston. Besta færið féll síðan í
hlut United sjö mínútum fyrir leiks-
lok. Coppell sendi fyrir frá hægri,
Whiteside var í dauðafæri á markteig
en skaut yfir og þar með var útséð
um að United næði sigrinum sem lið-
ið þurfti svo sannarlega á að halda í
baráttunni um meistaratitilinn. _vs
Gary Bailey, sem margir telja verð-
andi landsliðsmarkvörð Englend-
inga, lék vel í marki Manch. Utd.
þrátt fyrir slæm meiðsli á læri sem
m.a. hindruðu hann i að taka
markspyrnurnar.