Þjóðviljinn - 02.03.1983, Blaðsíða 1
UÚÐVIUINN
Þráttfynr
yfírlýsingar
um að samstaða
stjórnarskrárbreyt-
ingu eru nokkrir
þingmenn í
andstöðu við
breytinguna.
Sjá 9
mars 1983
miðvikudagur
29. tölublað
48. árgangur
í kvöld frumsýnir Þjóðleikhúsið eitt mesta stórvirki heimsbókmenntanna,
forn gríska þrfleikinn Oresteiu eftir Æskýlos. Oresteia er eini heili þríleik-
urinn sem varðveist hefur frá blómaskeiði forn grisku menningarinnar.
Blaðamenn Þjóðviljans brugðu sér á æfíngu í fyrrakvöld og árangurinn
birtist í máli og myndum í Þjóðviljanum í dag. Ljósm. eik. . ,
Sja 9
Franska rallið trúlega ekki haldið hér í sumar:
Ríkisstjómin hefur
lýst andstöðu sinni
Á ríkisstjórnarfundi í gærmorg-
un lýsti dómsmálaráðherra sig and-
vígan því að heimila frönskum aðil-
um að skipuleggja bílarall á hálendi
íslands næsta sumar, en í dóms-
málaráðuneytinu liggur nú fyrir
beiðni um slíkt. Aðrir ráðherrar
tóku í sama streng og virðist því
vera samstaða í ríkisstjórninni um
að heimila ekki hinum erlendu
akstursköppum að aka villt um há-
lendi íslands á komandi sumri.
„Ég hef verið því algerlega and-
vígur að keppni af þessu tagi verði
heimiluð og teldi það mikið ó-
happaverk ef af yrði. Á ríkisstjórn-
arfundinum í gær innti ég Friðjón
Þórðarson dómsmálaráðherra eftir
hans afstöðu og kom fram að hann
var sama sinnis, þ.e. að ekki ætti að
veita leyfi fyrir keppninni", sagði
Hjörleifur Guttormsson iðnaðar-
ráðherra í samtali við Þjóðviljann í
gærkvöldi.
„Á ríkisstjórnarfundinum lagði
ég fram og ítrekaði afstöðu Nátt-
úrúverndarráðs og landvarða auk
þess sem kynningarbæklingur
hinna frönsku skipuleggjenda um-
ræddrar keppni var til skoðunar.
Afstaða ráðherranna kom afdrátt-
arlaust fram og í framhaldi af því
treysti ég því að þessi keppni verði
ekki haldin hér á landi næsta sum-
ar“, sagði Hjörleifur Guttormsson
iðnaðarráðherra að lokum.
Á fundinum voru einnig til um-
ræðu hugmyndir um að samræma
aðgerðir ráðuneytanna með það að
markmiði að upplýsa útlendinga
sem til landsins koma um reglur og
skilmála varðandi umgengni við
landið.
Sjá baksiðu
200 hús í Rangárþingi án heita vatnsins:_
Er borholan ónýt?
Frumniðurstöður sérfræðinga
Orkustofnunar benda til að borhol-
an að Laugalandi sé ónýt. Athugan-
ir halda áfram.
„Ég hygg að það verði komið á
hreint á allra næstu dögum hvort
vænta megi þess að vatn komi úr
borholunni. Starfsmenn Orku-
stofnunar fullyrða að ekki sé von á
heitu vatni og ef svo fcr þá er ekki
1 um annað að ræða en að bora
aftur. Slíkt ætti, ef vel gengur, að
taka um einn mánuð,“ sagði
sveitarstjórinn á Hellu, Jón Þor-
gilsson, þegar Þjóðviljinn hafði
samband við hann í gær.
Sl. föstudag hætti alveg að koma
vatn úr borholu Hitaveitu Rangæ-
inga að Laugalandi í Holtum og eru
nú 200 hús, sem höfðu verið tengd
við veituna, án heits vatns og kynd-
ingar. Starfsmenn Orkustofnunar
fóru austur í gær og skoðuðu að-
stæður.
„Sem betur fer geta nú flestir
skipt yfir í olíukyndingu, en því er
ekki að neita að sumir voru búnir
að farga þeim tækjum sem áður
voru notuð til upphitunar. Það er
þó mikill minnihluti," sagði Jón.
Hann sagði að menn þyrftu ekki að
hverfa úr húsum sínum vegna þessa
ástands.
Ljóst er að fólk þarf að klæða sig
vel og reyna jafnframt að hita upp
hús sín með einum eða öðrum
hætti, gaskútar og rafmagnsofnar,
sem mikið eru notaðir í sumarbú-
stöðum, dregnir fram í stórum stfl.
Borholan sem um ræðir gaf frá
sér þrjátíu sekúndulítra af nítíu
gráðu heitu vatni. Dælan í henni er
á um 130 metra dýpi. Enn kemur
heitt vatn upp úr holunni en það er
afar lítið.
- hól.
Deila SVR og
Verðlagsráðs:
Aðgerða
að vænta
í dag
Scm kunnugt er af fréttum gaf
Verðlagsstofnun borgaryfirvöldum
frest til 1. mars að hefja sölu afslátt-
arkorta, að öðrum kosti yrði 25%
fargjaldahækkun sú er borgaryf-
irvöld höfðu ákveðið án þess að
leita lcyfís verðlagsyfírvalda ekki
leyfð.
í gær var ekki hafin sala afslátt-
arkorta hjá SVR og Þjóðviljinn
fékk þær upplýsingar hjá Verðlags-
stofnun að þetta mál yrði tekið
fyrir í dag og þá ákveðið hvað gert
yrði. - S.dór
Einvígi Kasparovs
og Beljavskí:
Jafntefli
í1. skák
1. einvígisskák Sovétmannanna
Harry Kasparov og Alexander
Beljavskí var til lykta leidd á mánu-
daginn og lauk skákinni með jafn-
tefli eftir 64 leiki og geysiharða
viðureign.
Eins og greint var frá í blaðinu í
gær hafði Beljavskí hvítt en þegar
skákin fór í bið eftir 40 leiki stóð
Kasparov þó betur að vígi. Beljav-
skí hélt þó sínum hlut og var samið
jafntefli eftir 64 leiki eins og áður
sagði. Einvígi þeirra félaga fer
fram í Moskvu. - hól.
Aðstoðarfram-
kvæmdastjóri
Landsvirkjunar
kvartar undan því
að raforkuverð til'
almcnnings hafí
ekki fylgt
by ggingarvísitölu.
Viðfjöllumum
málið í
fréttaskýringu.
Búnaðarþing
stendur nú sem hæst
og sér þar ekki út úr
augum fyrir
annríki. í blaðinu í
dag birtast viðtöl
við tvo fulltrúa á
þinginu.