Þjóðviljinn - 11.03.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 11.03.1983, Blaðsíða 3
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. mars 1983 Föstudagur 11. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 Gránufjelagið: Tvær sýningar , verða um helgina á Fröken Júl- íu eftir Strindberg, og fer nú hver að verða síðastur í Hafnar- bíó áður en leikhúsið verður rifið. Félagar Gránufjelagsins hafa fengið góða dóma leikgagnrýnenda fyrir djarf- mannlega og vel lukkaða til- raunastarfsemi. Sýnt er á iaugardagskvöld kl. 20.30 og á sunnudag kl. 14.30. íslenska óperan: í kvöki verður frumsýnd óperan vinsæla Míka- dó eftir þá félaga Gilbert og Sullivan. 9 söngvarár, 27 manna kórog 25 manna hljóm- sveit. Næsta sýning er á sunnu- dagskvöld. Leikfélag Akureyrar: Nú er Flosi Ólafsson að leggja lokahönd á' uppsetningu norðanmanna á ''einu frægasta gamanléik Feyde- uas Spékoppar, sem verður frumsýndur í lok mánaðarins. Leikfélag Hafnarfjarðar: Bubbi kóngur verður sýndur í síöasta sinn ásunnudagskvöld kl. 20.30 í Bæjarbíói. Sýningin hejfur hlotið mjög góða dóma. Missið ekki af síðustu sýningunni. Leikfélag Reykjavíkur: Mikiö um að vera hjá Leikfélaginu um helgina. Salka Valka í k völd i Iðnó. Skilnaður Kjartans Ragnarssonar annað kvöld, uppselt, en sýningum fer að fækka á þessum vinsæla leik og á sunnudagskvöld er það For- setaheimsóknin. Ekki má gleyma Hassinu hennar mömmu á miðnætursýningu á laugardagskvöld. Leikllokkurinn sunnan Skarðs- heiðar: Frumsýnir í kvöld Hreppstjórann á Hraunhamri efíir Loft Guðmundsson í Fé- lagsheimilinu Fannahlíð í Skil- mannahreppi. Næsta sýning á sunnudag kl. 21. Leikklúbburinn Saga á Akureyri: Annað kvöld kl. 20.30 verður rokksöngleikurinn Lísa í ^Undralandi frumsýndur í fél- agsmiðstöðinni Dynheimum. Saga er unglingaleikhús og hef- ur starfað sem sjálfstætt leikhús um nokkurra ára skeið. Um 40 félagar taka þátt í uppfærslunni en leiknum stýrir Viðar Egg- ' ertsson; Hljómsveitin 1/2 7 semur og flytur tónlistina sem er hressileg rokktónlist. Næstu ■ sýningar í Dynheimum eru á mánudags- og þriðjudagskvöld. Nemendaleikhúsið:' Allra síðustu sýningar á Sjúkri æ*u í kvöld kl. 20.30 og á sunnudagskvöld á sama tíma. Missið ekki af góðu stykki. Kevíulcikhúsið: Brátt verður Hafn- arbíó rifið, en Karlinn í kassan- um verður á sínum stað í kvöld kl. 20.30. Sýningum fer að fækka. Þjóðleikhúsið: í kvöld er það Jóm- frú Ragnheiður Kambans í leik- gerð Bríetar Héðinsdóttur. Ór- esteia vaf frumsýnd um síðustu hélgi og hefur hlotið mikla hrifningu leikhúsgesta; næsta sýning á laugardagskvöld. 3 sýningar verða á Línu langsokk og auðvitað allt löngu uppselt, og eins er uppselt á 25. sýning- una á Súkkulaði handa Silju á litla sviðinu. Þessi mynd var tekin af Lúðrasveit verkalýðsins á æfíngu í vikunni fyrir afmælistónleikana. Mynd -eik. Afmœlistónleikar í Háskólabíói á laugardag_________ Lúðrasveit verkalýðsins hefur starfað í þrjátíu ár Efnisskrá tónleikanna er að Aögangur að afmælistónleikun- vandafjölbreyttogflutt verðabæði um er ókeypis. inn|end og erlend lög. Lúðrasveit verkalýðsins skipa í Um þessar mundir er Lúðrasveit dag 34 hljóðfæraleikarar og er verkalýðsins 30 ára en sveitin var meginhluti þess hóps ungt og upp- stofnuð 8. mars 1953 að tilstuðlan rennandi tónlistarfólk. Stefáns Ögmundssonar og Harald- ar Guðmundssonar. Af þessu tilefni heldur Lúðra- sveitin tónleika í Háskólabíói á laugardaginn og hefjast þeir kl. 14.00. Kvennakór Kvennakór Suðurnesja 15 ára Tónleikar í Njarðvíkurkirkju Kvennakór Suðurnesja heldur sína árlegu tónleika í Ytri- Njarðvíkurkirkju í kvöld föstudag- inn 11. mars en kórinn er 15 ára um þessar mundir. Auk hinna árlegu tónleika í Keflavík hefur kórinn ferðast víða um landið og tvisvar farið utan. í alþjóðasöngkeppni í Cork á írlandi og á Íslendingahátíð í Canada. Einnig hefur hann komið fram bæði í útvarpi og sjónvarpi og sung- ið inn á hljómplötu. Ávallt hefur verið kappkostað að hafa tónleikana sem fjöl- breyttasta. Sungin verða íslensk og erlend lög svo og lög úr óperettum og öðrum þekktum verkum. I hluta efnisskrár syngja með kórnum 9 karlmenn. Fjórir einsöngvarar koma fram en þau eru: Hlíf Kára- dóttir, Jón M. Kristinsson, Sverrir Guðmundsson og Steinn Erlings- son. Núverandi söngstjóri er Kris- tjana Ásgeirsdóttir og undirleikari Ragnheiður Skúladóttir. Kurt Weill og A tli Heimir Fyrstu tónleikar Islensku hljóm- sveitarinnar á síðara misseri verða fimmtudagskvöldið 17. mars kl. 20.30. Þessum tónleikum var áður frestað vegna veikindaforfalla. Tónleikarnir eru helgaðir minn- ingu hins kunna þýska tónskálds og leikhúsmanns Kurts Weills. Flutt verða verk eftir Weill, sinfónía og tónlist við leikrit Bertolts Brechts, en þeir tveir áttu mikið samstarf ög gott. í upphafi tónleikanna verður frumflutt verk eftir Atla Heimi Sveinsson sem helgað er Weill og heitir „Kurt, hvar ertu?“. Sala áskriftarkorta stendur enn yfir fyrir síðara misseri. Áskriftar- sími hljómsveitarinnar er 22035 (9- 12 fh.). Eitthvað verður um lausa- sölumiða á þessa tónleika. Landsmót íslenskra barnakóra Sungið á Akranesi Landsmót íslenskra barnakóra verður haldið á Akranesi um næstu helgi. Sautján barnakórar taka þátt í mótinu, og eru um 700 börn alls í þessum kórum. Landsmótinu lýk- ur með tvennum tónleikum í í- þróttahúsinu á Akranesi á sunnu- dag, 13. mars, og hefjst hinir fyrri kl. 14.30, en hinir síðari kl. 16.30. Frumflutt verður lag eftir Gunn- ar Reyni Sveinsson tónskáld, og færir Tónmenntakennarafélag fs- lands honum þakkir fyrir lagið, sem hann samdi sérstaklega fyrir landsmótið. Landsmót íslenskra barnakóra eru haldin annað hvert ár og er þetta hið fjórða í röðinni. Broadway i kvöld Gamla rokkið alveg á fullu í kvöld verður seinni hluti rokk- hátíðarinar miklu á Broadway. Síðasta föstudagskvöld var troðfullt hús og mikið fjör, og vafa- laust verður ekki mini gleði í kvöld. Þarna koma fram með Hljóm- sveit Björgvins Halldórssonar: Harald G. Haralds, Guðbergur Auðunsson, Þorsteinn Eggertsson, Astrid Jenssen, Berti Möller, Anna Vilhjálms, Mjöll Hólm, Sig- urdór Sigurdórsson, Garðar Guð- mundsson, Stefán Jónsson, Einar Júlíusson, Sigurður Johnny, Sæmi og Didda rokka og kynnir Þorgeir Ástvaldsson. Stúden takjallarinn Djass á sunnudag Á sunnudagskvöldið verður djassað í Stúdentakjallaranum við Hringbraut. Spilamennirnir Eyþór Gunnarsson píanóleikari, Sigurður Flosason saxafónleikari og Tómas Einarsson bassaleikari, leika af fingrum fram. Skemmtunin hefst kl. 21.00. Leikklúbbur Skagastrandar um helgin Er þetta mitt líf? Leikklúbbur Skagastrandar frumsýndi sjónleikinn „Er þetta ekki mitt líf?“ eftir Brian Clark, í þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur, í Fellsborg á Skagaströnd fimmtu- daginn 3. mars s.l. Leikstjóri er Ás- geir Sigurvaldason. Þetta er 8. verkefni Leikklúbbs- ins síðan hann var stofnaður í nó- vember 1975. Með helstu hlutverk fara Magnús Jónsson, Ólafur Bernódusson, Guðbjörg Viggós- dóttir, Elín Njálsdóttir, Ágústa Frá sýningu leikklúbbs Skagastrandar Friðriksdóttir og Kristján Blöndal. Leikendur eru 14 en alls hafa um 20 manns starfað að sýningunni. Auk fleiri sýninga á Skagaströnd eru fyrirhugaðar sýningar í ná- grannabæjunum. Hreppstjórinn á Hraunhamri Frumsýnt hjá Leikflokknum sunnan Skarðsheiðar Leikflokkurinn sunnan Skarðs- heiðar frumsýnir í kvöld kl. 21.00, leikritið „Hreppstjórinn á Hraunhamri“ eftir Loft Guð- mundsson í félagsheimilinu Fanna- hlíð í Skilmannahreppi. Leikstjóri er Kristján Jónsson en með hlutverk í leiknum fara: Þor- valdur Valgarðsson, Guðjón Friðjónsson, Þorsteinn Vilhjálms- son, Gunnar Heiðarsson, Sigríður Sigurðardóttir, Lára Ottesen, Pét- ur Ottesen og Fanney Sigurgeirs- dóttir. Þetta er 10. verkefni leikflokks- ins. Næsta sýning verður á sunnu- dagskvöld kl. 21.00. Frá uppfærslu leikflokksins sunnan Skarðsheiðar á „Hreppstjóranum á Hraunhamri“. Sýning á Mokka Myndasamkeppni Verslunarskólanema Á listahátíð sem haldin var í Verslunarskólanum í liðinni viku og m.a. efnt til myndasamkeppni og stendur nú yfir sýning á inn- scndu myndum á kaffihúsinu Mokka. Samtals eru 40 myndir á sýning- unni eftir 9 höfunda og eru nokkrar þeirra til sölu. Á sýningunni er bæði teikningar, ljósmyndir og málverk í lit og svart/ hvítu. Brynja Tomer á myndir á sýning- unni á Mokka en hún er formaður Listafélagsins í VÍ. Guðrún Tryggva dóttir sýnir í Rauða húsinu Á sunnudaginn opnar Guðrún Tryggvadóttir sína aðra sýningu í Rauða húsinu á Akureyri. Guðrún er fædd í Reykjavík 1958 og hefur stundað nám í mynd- list hér heima og í París og lýkur í vor námi við Akademie der Bilden Kúnste í Múnchen. Hún hefur haldið allmargar einkasýningar á síðustu árum hér heima og tekið þátt í samsýningum erlendis m.a. á útisýningu í Inwood Park á Manhattan í New York sem stendur nú yfir. Síðasta sýning sem Guðrún tók þátt í var samsýningin mikla „Gullströndin andar“ í síðasta mánuði. Sýningin í Rauða húsinu stendur fram til 19. þessa mánaðar. MlR-salurinn á sunnudag Verðlaunamynd um Tsjækovskí Á sunnudaginn kl. 16, verður fyrri hluti sovésku kvikmyndarinn- ar „Tsjækovskí" sýnd í MÍR- salnum, Lindargötu 48. Síðari hluti myndarinnar verður sýndur á sama stað annan sunnudag. Kvikmyndin er gerð 1970, leik- stjóri er Igor Talankin en titilhlut- verkið leikur Innokenti Smoktun- ovskí. Kvikmyndin hlaut verðlaun og viðurkenningu á sínum tíma á 8. alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í San Sebastian á Spáni og 5. alþjóð- legu kvikmyndahátíðinni í Dehli á Indlandi. I. Smoktunovskí hlaut verðlaun fyrir leik sinni í myndinni á hátíðinni á Spáni. í kvikmyndinni eru raktir ýmsir þættir úr ævisögu hins fræga rúss- neska tónskálds Pjotrs Tsjækov- skís, sagt frá bernsku hans, æsku og fullorðinsárum. Talsverður hluti myndarinnar fjallar um vináttu tónskáldsins og barónessunnar von Meck, sem var mikill aðdáandi hans og góður vinur í raun. Aðgangur að MÍR-salnum er ókeypis og öllurn heimill rneðan húsrúm leyfir. Súkkulaðið í 25. sinn Mjög góð aðsókn hefur verið að leikriti Nínu Bjarkar Árnadóttur „Súkkulaði handa Silju“ á litla sviði Þjóðleikhússins og á sunnu- dagskvöld verður leikritið fært upp í 25. sinn. Uppselt hefur verið á allar sýn- ingar verksins til þessa. Leikritið fjallar á áleitinn hátt um samband einstæðrar móður og unglingsdótt- ur í Reykjavík nútímans. Skákkeppni framhaldsskóla Skákkeppni framhaldsskóla 1983 hefst að Grcnsásvegi 46 í kvöld kl. 19.30. Keppninni verður fram haldið á morgun kl. 13 -19 og lýkur á sunnudag. Fyrirkomulag er með svipuðu sniði og áður, hver sveit skal skipuð fjórum nemendum á fram- haldsskólastigi, auk 1-4 til vara. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi, ef næg þátttaka fæst. Að öðrum kosti verður svei- tum skipt í riðla, en síðan teflt til úrslitá. Umhugsunartími er ein klukkustund á skák fyrir hvern keppanda. Árshátíð hjá Breiðfirðinga- félaginu Brerðfirðingafélagið heldur sína árlegu árshátíð í félagsheimili Sel- tjarnarness á morgun laugardag kl. 19.00. Veislustjóri er Árni Björnsson þjóðháttarfræðingur en heiðurs- gestir verða hjónin Sigurður Mark- ússon framkvstj. og Inga Árnadótt- ir. Meðal dagskráratriða árshá tíðarinnar má nefna, ávarp for- manns félagsins Eggerts Meðal dagskráratriða árshátíðarinnar má nefna, ávarp formanns félagsins Eggerts Kristmundssonar, ræðu heiðursgests Sigurðar Markús- sonar. Karlakór Reykjavíkur syng- ur, Dóra Valdimarsdóttir fer með gamanmál og Lúdó og Stefán leika fyrir dansi. Miðasala er í Breiðfirðingabúð. Ásmundarsalur: vErla B. Axels- dóttir sýnir 50 pastelmyndir. Öpið 14-22 um helgina. Athug- ið: síðasta sýningarhelgi. Gallerí Austurstræti 8: Hanna Kr. Hallgrímsdóttir sýnir málverk í veggkössum. Eina sýningin í borginni sem er opin allan sól- arhringinn. Gallerí Lækjartorg: Erla Ólafs- dóttir sýnir ljósmyndir. Vetrar- birtan, formið ’ og hugblær augnabliksins eru 1 megin- viðfangsefnin. Allar myndirnar unnar í lit. Síðasta sýningar- helgi. Gerðuberg Breiðholti: Samsýning 16 listamanna sem búa í Breiðholti í tilefni öpnunar menningarmiðstöðvárinnar. Málverk, grafík skúlptúrar og teiknmgar. Opið 14-^20 um helg- 1 ina. Sýningin stendur til 27. mars. Kjarvalsstaðir: Þrjár góðarsýning- ar í gangi. Meistari Zola í austursal, fréttaljósmyndarar f vestursal, og á ganginum og á kaffistofu sýnir Helgi Gfsíason myndlistarmaður skúlptúra unna í brons. Langbrók: Sigrid Valtingojer sýnir grafíkmyndir sem eru til- einkaðar Samúelv Jónssyni heitnum í Selárdal. r Lcikfélag Akureyrar: 13 myndþst- armenn sýna í anddyrinu. Opn- að klukkustund fyrir hverja leiksýningu. Listasafn ASÍ: Kristján Guð- mundsson og Ólafur Lárusson opna sýníngu á skúlptúrum, teikningum, bókurn og mál- verkum, þar sem ævintýrin og soíandi prinsar, eru í aðalhlut- verkuin. Opið frá kl. 14-22 nema mánudaga. Listmunahúsið: Margrét Guð- mundsdóttir búsett í Stokk- hólnri ffá 1966 sýnir nærri 70 verk unnin með olíu ogtempera á striga, auk mónoþrykk- mynda. Siðasta s'ýningarhelgi. Opið frá 14-18. Mokka: Nemendur úr Verslunar- skólanum sýna samtals 40 myndir á myndasamkeppni lista- hátíðar skólans, en alls eiga 9 myndlistarmenn myndir á sýn- ingunni. Norræna húsið: Jóhanha Boga- dóttir sýnir 70 málverk, teikningar og litógrafíkur í kjallaranum. Sýningin er opin frá kl. 15-22 franr til 20. mars. Nýiistasafniö: Felix Rozen fra- nskur listamaður sýnir óhlut- bundna rannsókn á skrift, tákn- um og skrautmyndum í beinu franthaldi af rannsóknum Cobra-manna. i Rauða húsið, Akureyri: Guðrún Tryggvadóttir opnar sína aðra sýningu í Rauða húsiriti. Guð- rún málar í anda nýja málverks- ins og hefur tekið þátt í sýning- um víða um heiminn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.