Þjóðviljinn - 15.03.1983, Síða 4
12 SÍÐA - ÞJÓÐVÍLJINN Þriðjudagur 15. márs 1983
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Mesti áhorfendafjöldi á einum
leik í ensku knattspyrnunni í vetur,
tæplega 60.000 manns, urðu vitni
að æsispennandi leik Manchester
United og Everton á Old Trafford í
6. umferð ensku bikarkeppninnar
á laugardaginn. Leikurinn var
mjög jafn og opinn og allt stefndi í
jafntefli en þegar mínúta var komin
framyfir venjulegan leiktíma tókst
Frank Stapleton að skora sigur-
mark United, 1:0, og lið hans er þar
með komið í undanúrslitin.
Innáskipting hjá United þegar
mínúta var eftir af venjulegum
'leiktíma gerði gæfumuninn. Ron
Atkinson, framkvæmdastjóri liðs-
ins, tók bakvörðinn Mike Duxbury
útaf og sendi Skotann smávaxna,
Lou Macari, í fremstu víglínu.
Hann skeiðaði beint inní vítateig
Everton. Ray Wilkins sendi háa.
sendingu fyrir markið, Lou litli,
minnsti og elsti maður vallarins,
stökk allra hæst og skallaði knött-
inn fyrir fætur Stapleton sem
skoraði af stuttu færi. Everton
gerði örvæntingarfullar tilraunir til
að jafna, Adrian Heath brunaði
upp að vítateig United en áður en
honum tækist að athafna sig kom
Gordon McQueen á fleygiferð og
þrumaði knettinum lengst uppí
stúku. Par með fauk síðasta von
,Everton, sem var síst lakari aðilinn
fií leiknum, en meginþorri áhorf-
| enda fagnaði ákaft.
I Everton sótti mjög í fyrri hálfleik
og þá fékk Heath bestu færin.
Hann skaut framhjá og lét síðan
Gary Bailey verja frá sér í upp-
Enska knattspyrnan:
Loulitli gerði
gæfumuninn
lögðu færi. United komst einnig
nokkrum sinnum nálægt því að
skora, Wilkins skaut framhjá, Jim
Arnold markvörður Everton varði
naumlega frá McQueen og síðan
frá Steve Coppell á lokamínútu
hálfleiksins.
Síðari hálfleikur var jafn framan
af en síðan tók United öll völd.
Flestar sóknarlotur strönduðu þó á
Arnold sem lék frábærlega í marki •
Everton. Hann varði tvívegis mjög
vel frá Norman Whiteside og allt
stefndi í aukaleik á Goodison Park
en Macari og Stapleton voru á öðru
máli.
Bikarár hjá Arsenal
Það er bikarár hjá Arsenal. Þrátt
fyrir slakt gengi í 1. deildinni í vetur
komst liðið í undanúrslit deildabik-
arsins og hefur nú leikið sama leik í
FA-bikarnum. Evrópumeistarar
Aston Villa komu í heimsókn á
Highbury á laugardaginn og máttu
sætta sig við tap, 2:0. '■
Vörn Villa var veikari en vana-
lega, Ken McNaught var ekki með
vegna meiðsla sem hann hlaut á
æfingu á fimmtudag og Allan
Evans vissi vart hvort hann var í
London eða Birmingham eftir að
hafa fengið högg á höfuðið snemma
leiks. Arsenal nýtti sér þetta til
hins ýtrasta og skoraði tvívegis í
fyrri hálfleik eftir varnarmistök
andstæðinganna. Fyrst Tony Woo-
dcock á 31. mínútu eftir auka-
spyrnu Graham Rix, síðan Vladim-
ir Petrovic eftir hælsendingu Alan
Sunderland. Petrovic hefur ekki
uppfyllt þær vonir sem bundnar
voru við hann og á í erfiðleikum
með að komast í lið Arsenal. Á
laugardag var ekki ákveðið fyrr en
rétt fyrir leik að hann yrði með í
þessari bikarviðureign;
Bjórinn flýtur
í Brighton!
Brighton, með miðvörðinn Steve
Foster sem besta mann, vann
Norwich sanngjarnt 1:0 og er kom-
ið í undanúrslit keppninnar í fyrsta
skipti. Án efa hefur haft sitt að
segja hjá Brighton að undanförnu
að bruggverksmiðja í heimaborg-
inni sendir félaginu nú tíu gallon af
bjór fyrir hvert mark sem liðið
skorar í deild eða bikar!
Það var Jimmy Case sem var
hetja Brighton, rétt eins og gegn
Liverpool í 5. umferðinni. Hann
skoraði eina mark leiksins um
miðjan síðari hálfleik og réttlæt-
inu var fullnægt.
Burnley og Sheffield Wednes-
day þurfa að leika aftur í kvöld á
Hillsborough um fjórða sætið í
undanúrslitunum. Steve Taylor hjá
Burnley lét verja frá sér vítaspyrnu
strax á 4. mínútu og það kann að
reynast örlagaríkt. Wednesday réð
gangi leiksins í fyrri hálfleik og
komst yfir með marki Gary Bann-
ister en heimaliðið var mun betra í
síðari hálfleik og á fyrstu mínútu
hans jafnaði Tommy Cassidy með
skalla.
- VS
WestHam hélt
út framyfir hálfleik
Urslít:
FA—bikarinn:
6. umferft:
Arsanat-Aston Villa........... 2-0
Brighton-Norwich...............1-0
Bumley-Sheffieid Wed...........1-1
Manch.United-Everton...........1-0
1. deild:
Coventry-Tottenham.............1-1
Llverpooi-West-Ham.............3-0
Nottm.Forest-Luton.............0-1
Stoke City—Sunderland..........0-1
Swansea-Manch.City.............4-1
Watford-Notts County...........5-3
W.B.A.-lpswich.................4-1
2. deild:
Blackburn-Charlton.............2-0
Bolton-Q.P.R................. 3-2
Cambridge-Grlmsby..............1-0
Chelsea-Carlisle...............4-2
Derby County-Wolves............1-1
Fulham-Crystal Palace..........1-0
Middlesboro-Rotherham..........1-1
Newcastle-Leeds United.........2-1
Shrewsbury-Barnsley............3-1
3. deild:
Bournemouth-Preston N.E........4-0
Bradford City-Lincoln..........1-1
Brentford-Plymouth.............2-0
Chesterfield-Doncaster.........3-3
Exeter City-Oxford.............3-1
Huddersfield-Gillingham........3-2
Millwall-Sheffield United......1-2
Newport County-Wigan...........1-0
Portsmouth-Cardiff City........0-0
Reading-Bristol Rovers.........1-2
Wrexham-Walsall................4-0
4. deild:
Blackpool-Port Vale............2-0
Bristol City-Aldershot.........2-0
Colchester-Bury................2-1
Crewe-Halifax..................1-1
Darlingtori-Mansf ield.........0-0
HarplepooF-York City...........2-0
Hull City-Tranmere.............0-1
Peterborough-Northampton.......2-0
Rochdale-Hereford..............4-1
Scunthprpe-Torquay.............2-0
Stockport-Wimbledon............1-3
Swindon Town-Chester...........2-3
Staðan:
í 1. deildinni er Liverpool við sama heygarðshornið og
heldur sínu 14 stiga forskoti. West Ham lék sterkan varnar-
leik á Anfield og hélt út fram á 51. mínútu. Þá tók Kenny
Dalglish hornspyrnu og Geoff Pike skallaði í eigið mark.
Eftir það átti West Ham ekki möguleika. Fjórum mínútum
síðar skoraði Sammy Lee, 2:0, með því að lyfta yfir Phil
Parkes markvörð West Ham af 25 m færi. Fyrsta deildamark
Lee síðan í ágúst. Ian Rush skoraði svo sjálfur þriðja markið
á glæsilegan hátt eftir fyrirgjöf Alan Kennedy.
Á meðan skoraði Watford fimm
gegn Notts County sem þó tók for-
ystuna á 2. mínútu með marki Tre-
vor Christie. Luther Blissett svar-
aði tvívegis fyrir Watford og John
Barnes bætti einu við fyrir hálfleik,
3:1. Nigel Worthington lagaði
stöðuna í 3:2 en Blissett og Nigel
Callaghan svöruðu fyrir Watford,
staðan 5:2 þegar enn var hálftími
eftir. Justin Fashanu bætti við fyrir
County, 5:3, en gestirnir áttu aldrei
möguleika og ekki bætti úr skák
fyrir þeim þegar Nígeríumaðurinn
John Chiedozie var rekinn af
leikvelli seint í leiknum.
Swansea hrökk loks í gang og
náði sínum öðrum sigri í 14
leikjum. Fórnarlömbin voru þó
slakasta lið deildarinnar um þessar
mundir, Manchester City. Bob
Latchford er hættur við að yfirgefa
Swansea, a.m.k. um stundarsakir,
og hann skoraði fyrsta markið. Ian
Walsh bætti tveimur við og Robbie
James einu en Bob Mc
Donald náði að skora
fyrir City rétt fyrir
leikslok; úrslitin
4:1, Swansea í vil.
WBA hafði leikið
fjóra markalausa
leiki í röð en
gegn Ipswich
komu mörkin sem af færibandi.
Garry Thompson skoraði tvö, hans
fyrstu fyrir félagið eftir komuna frá
Coventry, Derek Statham eitt og
það fjórða var sjálfsmark bak-
varðarins unga hjá Ipswich, Irwin
Gernon.
Stig á útivelli hjá Tottenham
þykir sigur í þeim herbúðum um
þessar mundir. Steve Hunt tók for-
ystuna fyrir Coventry með marki
úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik en
varnarmaðurinn Paul Miller náði
að jafna fyrir Tottenham í þeim
síðari.
Sunderland vinnur enn, nú 1:0 í
Stoke, og enn skorar Gary Rowell.
Hans fimmtánda deildamark í vet-
ur kom í síðari hálfleiknum og
tryggði Sunderland þrjú stig.
Nottingham Forest hefur slakað
mjög á að undanförnu og þarf nú
að halda vel á spilunum til að ná
Evrópusæti. Luton kom í heim-
sókn á laugardag og hafði þrjú stig
með sér á brott; eina mark leiksins
skoraði Ricky Hill í fyrri hálfleik.
Úlfarnir heppnir
Wolves var afar heppið að ná
stigi á Baseball Ground í Derby í 2.
deildinni. John Burridge mark-
vörður Wolves hélt liði sínu alger-
lega á floti en náði ekki að koma í
veg fyrir mark David Swindlehurst
á 34. mínútu. Ellefu mínútum fyrir
leikslok tókst Billy Kellock að
jafna fyrir Úlfana og toppliðið stal
þar með stigi af botnliðinu.
Newcastle á enn möguleika á 1.
deildrsæti og Kevin Keegan kom
liðinu á bragðið gegn Leeds með
marki úr vítaspymu. Fulham vann
nágrannana Crystal Palace;
miðvörðurinn Roger Brown
skoraði eina markið á lokamínútu
fyrri hálfleiks. QPR tapaði í Bolt
on, Mike Doyle, Tony Henry og
John Rudge skoruðu fyrir heima-
liðið. - VS.
Hjá Adrian Heath, Everton, og Steve
Foster, Brighton, snerist dæmið við frá því
þessi mynd var tekin. Heath og félagar féllu
á sfðustu mínútunni á Old Trafford en Fost-
er átti stóran þátt í að koma Brighton í
undanúrslit bikarsins í fyrsta skipti.
1. deíld:
Llverpool ..30 21 6 3 73-24 69
Watford .30 17 4 9 55-34 55
Manch.Utd .29 14 9 6 39-23 51
Aston Villa.... ..30 15 3 12 45-39 48
Nottm.For ..30 13 7 10 42-37 46
W.B.A ..31 11 11 9 42-37 44
Coventry ..30 12 7 11 40-39 43
Southampton. .30 12 7 11 40-44 43
Ipswich ..30 11 8 11 47-37 41
Everton ..30 11 8 11 46-38 41
IWest Ham .29 13 2 14 45-45 41
|Tottenham .30 11 8 11 40-41 41
Stoke ..30 12 5 13 41-47 41
Notts County.. . 32 12 4 16 45-58 40
Sunderland.... ..30 10 9 11 36-44 39
I Arsenal ..28 10 8 10 34-34 38
Manch.City .32 10 8 14 40-54 38
Luton ..29 8 10 11 48-57 34
Swansea ..31 8 7 16 40-47 31
Norwich ..29 8 6 15 31-48 30
Brighton ..30 7 7 16 28-56 28
Birmingham... ..28 5 12 11 24-39 27
2. deild:
Wolves ..31 18 7 6 56-33 61 ;
Q.P.R ..30 18 5 7 52-26 59
Fulham .30 16 7 7 51-35 55
Leicester ..30 14 4 12 51-33 46
Oldham ..31 12 14 7 49-37 44
Newcastle .30 11 11 8 46-40 44
| Shrewsbury... ..31 12 8 11 40-41 44
Sheff.Wed .29 11 10 8 44-36 43 !
Barnsley .30 11 10 9 44-40 43
Leeds ..30 9 15 6 38-35 42
Blackburn .. 31 11 9 11 42-42 42 :
Grimsby ..31 12 6 13 41-50 42
Chelsea ..31 10 8 13 45-46 38
Bolton ..31 10 8 13 38-44 38
Charlton ..30 10 6 14 45-64 36
Rotherham ..31 8 11 12 33-45 35
Cr.Palace ..30 8 10 12 31-38 34
Carlisle ..31 8 9 14 51-57 33
Middlesboro... ..31 7 12 12 34-57 33
Cambridge ..30 8 8 14 31-46 32
Burnley ..28 8 5 15 44-49 29 f
Derby Co ..29 5 13 11 34-45 28
3. delld:
Portsmouth.... ..34 20 7 7 55-34 67
, Cardiff ..34 19 7 8 59-43 64
Huddersf ield.. ..33 17 9 7 66-38 60
Bristol Rovers 33 18 5 10 72-41 59
Lincoln ..33 18 5 10 63-37 59
Newport ..34 17 8 9 60-41 59
4. deild:
Hull City ..35 19 11 5 61-27 68
Wimbledon ..33 19 8 6 62-37 65
PortVale .....33 19 8 6 50-25 65
Bury ...36 17 10 9 59-34 61
Colchester ..34 18 7 9 54-38 61 1
Scunthorpe... ..32 15 12 5 48-25 57 1
Markahæstir:
Eftirtaldir leikmenn hafa skorað flest
mörk 11. deildakeppninni:
lan Rush, Liverpool.................21
Luther Blissett, Watford............18
Kenny Dalglish, Llverpool...........17
Bob Latchford, Swansea..............15
Gary Rowell, Sunderland.............15
Brian Steln, Luton..................15
John Wark, Ipswich..................13
Peter Withe, Aston Villa............13