Þjóðviljinn - 22.03.1983, Page 1
Þriðjudagur 22. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Emlyn
Hughes
rekinn!
Emlyn Hughes, fyrrum
leikmaður með Liverpool og enska
landsliðinu í knattspymu, var í gær
rekinn úr starfi sínu sem fram-
kvæmdastjóri 2. deildarliðs Rot-
herham. Undir stjóm Hughes
komst Rotherham mjög nálægt 1.
deildarsæti í fyrra en nú stendur
liðið í harðri fallbaráttu og hefur
ekki náð sigri í síðustu ellefu
leikjunum. Knattspyrnan er mis-
kunnarlaus, ekki satt?
- VS
Lands-
liðið
Torfi Magnússon fyrirliði hampar íslandsbikarnum, Ríkharður Hrafnkelsson og Jón Steingrímsson veifa til áhorfenda, og á litlu myndinni er
Tim Dwyer miðpunkturinn. Myndir: -eik
Úrslitaleikur úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik:
Það er Hlíðarendi!
í blaki
Karlalandsliðið í blaki, sem
leikur þrjá landsleiki við Færey-
inga hér á iandi í næstu viku, hefur
verið valið. í því era eftirtaldir leik-
menn:
Amgrímur Þorgrímsson, Víkingi
Friðbert Traustason, ÍS
Gunnar Ámason, Þrótti
Haraldur G. Hlöversson, Þrótti
Jason ívarsson, Samhygð
Jón Ámason, Þrótti
Lárentínus Ágústsson, Þrótti
Leifur Harðarson, Þrótti
Samúel Örn Erlingsson, HK
Sigurður Þráinsson, ÍS
Sveinn Hreinsson, Þrótti
Þorvarður Sigfússon, ÍS
Þjálfari liðsins er Valdemar Jón-
asson. _yg
Getraunir
í 29. leikviku Getrauna komu
fram 2 raðir með 12 réttum og var
vinningur fyrir hvora röð kr.
143.705.- en með 11 rétta voru 68
raðir og vinningur fyrir hverja röð
kr. 1.811,-
Annar tólfarinn var nafnlaus 36
raða seðill og vinningur fyrir hann
samtals kr. 154.571.- en hinn 16
raða seðill frá Hvolsvelli og vinn-
ingur fyrir hann kr. 150.949.-
Mike Duxbury, bakvörðurinn
efnilegi hjá Manchester United, var
í fyrsta skipti valinn í enska lands-
liðshópinn í knattspyrnu en Bobby
Robson landsliðseinvaldur til-
kynnti hann í gær. Englendingar
mæta Grikkjum á Vembley og Ev-
rópukeppni landsliða annan mið-
vikudag. Trevor Francis, sem
leikur með Sampdóría á Ítalíu, er
kominn í hópinná ný en hann hefur
misst af síðustu landsleikjum Eng-
lands vegna meiðsla.
Robson heldur tryggð við ungu
kynslóðina sem hann hefur verið
að prófa í landsleikjum að undan-
fömu og þeir Gordon Cowans, De-
rek Statham, Ricky Hill, Sammy
Lee, Gary Mabbutt, Luther Blis-
sett og Mark Chamberlain eru allir
í hópnum. Þá hefur verið tekið frá
pláss fyrir fyrirliðann Bryan Rob-
son, verði hann orðinn góður af
ökklameiðslunum.
Að Hlíðarenda verður íslands-
bikarinn í körfuknattleik geymdur
næsta árið. Valsmenn sigruðu
Kcflvíkinga í úrslitaleik úrvals-
deildarinnar, 88-87, eftir hörku-
spennandi og skemmtilega baráttu í
gærkvöldi. Lokasekúndurnar voru
hörkuspennandi, Valsmenn voru
yfir, 88-80, þegar tæpar tvær mín-
útur voru til leiksloka og sigur
þeirra virtist í höfn en undir lokin
munaði engu að bikarinn rynni úr
greipum þeirra og Keflvíkingar
Nicholas valinn
Jock Stein, einvaldur Skota, hef-
ur valið tvo nýliða í sinn hóp fyrir
leikinn gegn Sviss annan miðviku-
dag. Nicholas er talið eitt mesta
efni á Bretlandseyjum um þessar
mundir og hefur skorað 42 mörk
fyrir Celtic á keppnistímabilinu.
Hann keppir við Álan Brazil og
Kenny Dalglish um sæti í framlínu
Skotlands. Hinn nýliðinn er Ric-
hard Gough frá Dundee United.
O’Neill með
Allar líkur eru á að fyrirliði
Norður-írlands, Martin O’Neill frá
Norwich, geti leikið með sama
kvöld gegn Tyrkjum. Hann hefur
verið frá í sex vikur með brotinn
olnboga. Þá er Gerry Armstrong,
varaliðsmaðurinn frá Watford sem
var hetja Norður-íra á Spáni í sum-
ar, kominn í hópinn á ný eftir að
hafa misst tvo leiki vegna meiðsla.
næðu honum á fyrsta ári sínu í úr-
vaisdeildinni.
Dómararnir, Jón Otti Ólafsson
og Sigurður Valur Halldórsson,
voru ekki öfundsverðir af hlutverki
sínu í Laugardalshöllinni í gær-
kvöldi. Á síðustu hálfu mínútunni
urðu þeir að taka tvær örlagaríkar
ákvarðanir,fyrst var karfa Rík-
harðs Hrafnkelssonar dæmd af 24
sekúndum fyrir leikslok og þegar
þrjár sekúndur voru eftir náðu
Keflvíkingar knettinum á vallar-
Daly settur út
írar leika við Möltu og í þeim
herbúðum vekur mesta athygli að
Gerry Daly frá Coventry, sem nú
leikur sem lánsmaður hjá Leicest-
er, hefur verið settur út úr hópnum
en þar hefur hann verið í hartnær
áratug. Tony Galvin frá Totten-
ham kemur inn í írska liðið á ný en
hann meiddist í sínum fyrsta lands-
leik, gegn Hollendingum í sept-
ember.
Kaltz ekki með
Manfred Kaltz frá Hamburger,
hefur verið settur útúr lands-
liðshóp Vestur-Þjóðverja sem
mæta Albönum annan miðviku-
dag. Kaltz hefur leikið 69 lands-
leiki fyrir Vestur-Þýskaland og
aðeins misst tvo af síðustu 50 lands-
leikjum þjóðar sinnar.
-VS
helmingi Vals en hann var jafn-
harðan dæmdur af þeim aftur.
Fyrir „þrjár sekúndur“ á ÍBK
sögðu sumir en því miður var Sig-
urður Valur ekki fáanlegur til að
ræða þessa ákvörðun sína við und-
irritaðan að leik loknum.
„Þessi sigur hafðist með góðri
samvinnu og léttum anda, einkum
síðustu dagana fyrir leikinn þegar
við æfðum daglega. Það er alltaf
erfitt að leika við Keflvíkinga en
við náðum upp geysilegri baráttu
síðari hluta leiksins og það gerði
gæfumuninn. Við erum ákveðnir í
að vinna tvöfalt, við ætlum að sigra
IR-inga í úrslitaleik bikarkep-
pninnar á fimmtudagskvöldið,"
sagði Kristján Ágústsson, besti
maður Vals, eftir leikinn. Kristján
gaf félögum sínum tóninn þegar
hann skoraði fyrstu körfu leiksins
eftir aðeins tíu sekúndur. Hann
gerði betur, skoraði tíu af fyrstu
fjórtán stigum og var maðurinn á
bak við góða byrjun þeirra þegar
þeir komust í 14-8. Leikurinn jafn-
aðist fljótlega en Valsmenn náðu
þó tíu stiga forystu, 33-23. Undir
lok fyrri hálfleiks tóku Keflvíking-
ar mikinn kipp og jöfnuðu, 39-39,
og síðan 43-43 en Kristján átti lok-
aorð hálfleiksins, 45—43 fyrir Val.
Góður kafli í byrjun síðari hálf-
leiks færði Val tólf stiga forystu 61-
49, en rétt á eftir fékk Tim Dwyer
sína fjórðu villu og leikurinn jafn-
aðist á ný. Allt var á suðupunkti
þegar Keflvíkingar höfðu minnkað
muninn í 74-72 og áttu kost á að
jafna en óðagot og annað bráðlæti
gerði þær vonir þeirra að engu.
Lokamínútuna gekk allt Keflvík-
ingum í haginn, Jón Kr. Gíslason
minnkaði muninn í 88-87 þegar 16
sekúndur voru eftir og þegar Brad
Miley gómaði knöttinn á síðustu
sekúndunum héldu margir að hið
ómögulega ætlaði að takast. En,
fyrir piltana úr Keflavík á örugg-
lega eftir að koma enn betri tíð
með blóm í haga og allt það.
Valsmenn eru vel að sigrinum
komnir og í gærkvöldi léku þeir
virkilega vel og yfirvegað. Það sem
fyrst og fremst sicildi þá frá Keflvík-
ingum var yfirvegunin og ögunin í
sóknarleiknum þar sem vart sást
feil tsending. Vörnin var geysisterk
en átti þó erfitt með að stöðva hin
skæðu gegnumbrot Suðurnesja-
manna, einkum Jóns Kr. Gísla-
sonar. Kristján var bestur, átján
stigin hans í fyrri hálfleik voru
grunntónninn að sigri Vals. Rík-
harður lék frábærlega í síðari hálf-
leik og þeir Tim Dwyer, Torfi
Magnússon og Jón Steingrímsson
sýndu allir góðan og jafnan leik í
þessum sigri liðsheildarinnar.
Kristján skoraði 26 stig, Ríkharður
20, Dwyer 16, Torfi 16 og Jón tíu.
Slæm mistök í sókninni eyði-
lögðu mikið fyrir Keflvíkingum.
Ótímabær skot og rangar sending-
ar felldu nýliðanna og reynslu-
leysið kom þeim í koll. Þeir sýndu
þó oft á tíðum glæsileg tilþrif sem
fengu menn til að gapa af hrifn-
ingu, einkum fór Jón Kr. á kostum
í fyrri hálfleik. Axel Nikulásson var
gífurlega drjúgur en gerði þó af- [
drifarík mistök á þýingarmiklum
augnablikum. Brad Miley átti í
geysigóðan varnarleik, hirti þar 21
frákast, og náði sér síðan ágætlega
á strik undir körfu Valsmanna í síð-
ari hálfleik. Björn V.Skúlason og
Þorsteinn Bjarnason áttu ágæta
kafla, en liðsheildin var ekki eins
heilsteypt og hjá Valsmönnum.
Keflvíkingar þurfa þó ekki að ör-
vænta, með aukinni reynslu eru lítil
takmörk fyrir hvað þessir Suður-
nesjapiltar geta afrekað á komandi
árum. Jón Kr. skoraði 25 stig, Axel
24, Miley 17, Þorsteinn 10, Björn 7
og Einar Steinsson fjögur.
Duxbury og Francis
í enska landsliðið