Þjóðviljinn - 25.03.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. mars 1983
ORIGINAL KÚPLINGSDISKAR, KÚPLINGSPRESSUR, KÚPLINGS
LEGUR, KÚPLINGSBARKAR OG HJÖRULIÐSKROSSAR.
(fflmnaust h.t
VBUggW Siöumula 7-9. simi B2722.
BORG&BEGK
BORGXWARNER
-- .I <
■
C'< •*
Æ K v-'i ■■
■ ÍWÖHri
(jrliiggar
Smíðum glugga og hurðir. Vönduð vinna
á hagkvæmu verði. Gerum tilboð og
veitum nánari upplýsingar, ef óskað er.
[Glugqa- qq
deífdinOD
Dalshraun 17, Haínaríirði, sími 53284.
Ettu kartöflur strákur!
Árni Bergmann
skrifar um
leikhús
Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti:
Ionesco:
Jakob og hlýðnin.
Leikstjóri:
Rúnar Guðbrandsson.
Kannski er ekkert eðlilegra en
skólafólk velji sér einmitt Jakob,
séu þeir á annað borð að hugsa til
Ionesco. Jakob er piltur sem neitar
að bera fram nokkur einföld orð,
sem mundu tákna að hann gengist
inn á fjölskyldustaðalinn ef svo
mætti segja: verði eins og aðrir, láti
sér þykja góðar „kartöflur með
hýðinu“. Þegar búið er að brjóta á
bak aftur þvermóðsku stráksa er
mál að hann gifti sig. Enn grípur
þrjóskan Jakob og hann færist
undan í flæmingi. Róberta er með
tvö nef og hann heimtar þrjú, og
þegar'komið er með aðra Róbertu
sem fullnægir þeim skilmálum
finnst hún honum ekki nógu ljót!
Samt sem áður verður Jakob að
lúffa í annað sinn: og nú er það
kynhvötin sem endanlega bannar
viðleitni hans til að segja nei, vera
öðruvísi.
Sýning Breiðhyltingá er um
margt skemmtileg. Það er að sönnu
fullmikið óreiðuráp á sviðinu fram-
an af meðan tvær fjölskyldur eru að
reyna að tala Jakob til og hávaði
yfrið nógur. En yfirleitt má segja
að flest leikaranna hafi átt drjúga
spretti í einföldum farsaleik og
leikstjórinn fékk skemmtilegar
sveiflur út úr þeim, bæði í fagn-
aðardansi sem var eins og kominn
úr þögulli kvikmynd og í þeim
„kvikindislega" lokadansi, sem á
að skilja áhorfandann eftir ringl-
aðan og skömmustulegan að því er
Ionesco ætlaðist til.
Seinni hlutinn hvílir mest á Rafni
Rafnssyni (Jakob) og Ellen
Freydísi Martin (Róbertu). Sam-
spil þeirra varð bæði fyndið og
magnað og Ellen Freydís átti fleiri
blæbrigði í meðferð erfiðs texta en
gestur á byrjendasýningu býst við
að heyra.
Þetta var semsagt myndarlegasta
átak - og leiðinlegt að því skyldi
ekki vera betur fylgt eftir á frum-
sýningu með forvitni og aðsókn.
Næsta sýning er í kvöld í Menning-
armiðstöð Breiðholts.
ÁB
LAUS STAÐA
Lektorsstaða í bókmenntum við heimspekideild Háskóla
íslands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um
vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 18. apríl nk.
Menntamálaráðuneytið,
18. mars 1983.
JL-PORTIÐ • NYR INNGANGUR
Fjöldi nyrra bilastœoa i JL-portinu.
RAFTÆKJADEILD
MIKIÐ OG GOTT
ÚRVALAF
PÁSKAEGGJUM
Á
MARKAÐSVERÐI
Húsgögn f
úrvali til
fermingargjafa
AUGLYSIR
LAMPA OG FLEIRA
TIL
FERMINGARGJAFA
ds
_ c: u u
D D C3 uJUÖDj j i
P'l MITtltTTIll
1_____________ •___________________I ■
Sími 10600
Munið okkar
hagstæðu
greiðsluskilmála
Opið til kl. 10 í kvöld
og til hádegis laugardag.
Hringbraut 121
o