Þjóðviljinn - 05.07.1983, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 05.07.1983, Blaðsíða 1
Ekkert víti segja Blikar Hjá Breiðabliki eru allir sam- mála um að vítaspyrnan sem færði liðinu annað markið gegn Þórsur- um í 1. deildinni í knattspyrnu á laugardaginn hafí ekki átt rétt á sér. Þeir hafa horft á atvikið aftur og aftur af myndsegulbandi og við- urkenna fúslega að knötturinn hafí ekki lent í hendi varnarmannsins Sigurjóns Randverssonar. Þegar vítið var dæmt kom það öllum í opna skjöldu, áhorfendum sem leikmönnum, og Blikarnir voru að búa sig undir að taka hornspyrnu þegar bent var á vítapunktinn. En, svona er knattspyrnan, ákvörðun dómara verður ekki breytt þrátt fyrir að í Ijós komi eftir á að hún hafí verið röng. Nánar um leikinn í opnu. - VS. Kaupin til baka Zico, brasilíska knattspyrnu- snillingnum, hefur verið neitað um leyfí til að leika með ítalska félaginu Udinese næsta vetur. Kaupin höfðu þegar farið fram en ítalska knatt- spyrnusambandið hefur nú lýst samninginn ólöglegan vegna fjár- hæðarinnar sem greiða átti, fjórar miljónir dollara, telur hana alltof háa. Sama gildir um AS Roma sem hafði keypt landa Zico, hinn frá- bæra Cerezo, og hvorugur leikur því í ítölsku knattspyrnunni á kom- andi keppnistímabili. Ingi Þór nálægt metinu Sundkappinn Ingi Þór Jónsson hefur einn íslensku þátttakendanna hafíð keppni á heimsleikum stúd- enta sem hófust í Edmonton í Kan- ada um helgina. Ingi Þór keppti í 200 m skriðsundi og varð þar nr. 22 af 31 keppenda. Þar fékk hann tím- ann 2:05,59 mínútur. Síðan tók hann þátt í 100 m flugsundi og varð þar í 26. sæti af 40 keppendum á 1:00,93 mínútum. Ingi Þór var mjög nálægt eigin íslandsmeti í þeirri grein. Oddur Sigurðsson, Óskar Jakobsson og Einar Vil- hjálmsson eru einnig staddir í Ed- monton og keppir Oddur í 400 m hlaupi í dag. Bikarleikir í kvöld Tveir leikir verða háðir í 1. um- ferð bikarkeppni KSÍ í kvöld, báðir í Reykjavík. Víkingur mætir Isfirð- ingum á Laugardalsvelli og Fylkir tekur á móti Siglfirðingum á Ár- bæjarvellinum. Báðir leikirnir hefjast kl. 20. Hinir sex leikirnir í 1. umferðinni fara fram annað kvöld. leiknum í gærkvöldi. Nýju KR-búningarnir sjást ágætlega á myndinni, nú Mynd: -eik. Jón G. Bjarnason, besti maður KR-inga, snýr á aðvífandi Eyjamann í er loks hægt að lesa númerin á bökum þeirra röndóttu og er það vel. - Sanngjarnt jafntefli í stórgóðum leik Skemmtilegur samleikur og sóknarknattspyrna í hávegum ein- kenndu ieiki KR og ÍBV sem fram fór á Valbjarnarvelli í Laugardal í gærkvöldi og lauk með jafntefli, 2- 2. Bæði lið sýndu góð tilþrif, eink- um KR-ingar, og leikurinn lofar góðu fyrir síðari hluta 1. deildar- innar í knattspyrnu sem hefst um næstu helgi. Taugaspenna leikmanna ein- kenndi fyrstu mínúturnar. Eyja- menn náðu forystu strax á 10. mín- útu eftir skemmtilega útfærða aukaspyrnu. Viðar Elíasson sendi á Ómar Jóhannsson, hann renndi út á Hlyn Stefánsson sem skaut firnaföstu skoti, með jörðinni, knötturinn breytti stefnu af varnar- manni og þeyttist í hornið fjær, ger- samlega óverjandi. KR var ekki lengi að kvitta fyrir. Fimm mínútum síðar lék Jón G. Bjarnason óáreittur inní vítateig ÍB V vinstra megin og renndi knett- inum fyrir Sæbjörn Guðmundsson sem skaut að marki, Aðalsteinn Jó- hannsson virtist verja en knöttur- inn fór undir hann og skreið yfir marklínuna, 1-1. Eyjamenn misstu nokkuð móð- inn og KR náði góðum tökum á leiknum. Aðalsteinn var óöruggur í marki ÍBV, missti t.d. boltann fyrir tærnar á KR-ingum á 31. mín- útu en þeir náðu ekki að skjóta. í kjölfarið var honum skipt útaf og inná kom hin aldna kempa, Páll Pálmason. Markamínútan, sú 43., rann upp og aftur var Jón G. á ferðinni. Nú sneri hann glæsilega á varnarmann og sendi fyrir mark ÍBV þar sem Oskar Ingimundarson skallaði í netið, 2-1 fyrir KR. KR réð síðan gangi leiksins fram eftir síðari hálfleik, boltinn gekk skemmtilega á milli manna og færi til að auka forskotið buðust. Á 60. mínútu bjargaði Páll tvívegis vel, fyrst í horn af stuttu færi frá Helga Þorbjörnssyni og uppúr horn- spyrnunni komst hann fyrir skalla- bolta frá Willum Þórssyni sem var staddur innan markteigs. Strax á eftir þrumaði Óskar yfir Eyja- markið og skömmu síðar sló Páll boltann í horn eftir skalla frá Helga. Þriðja markið kom ekki og ÍBV tók að sækja á ný. Á 74. mínútu óð Valþór Sigþórsson upp völlinn— stakk boltanum inná Hlyn sem var óvaldaður og hann renndi honum framhjá Stefáni Arnarsyni mark- verði KR, 2-2. Liðin sóttu til skiptis það sem eftir var og spennan var mikil en fá virkileg marktækifæri buðust. Engu munaði þó að Tóm- asi Pálssyni tækist að tryggja Eyja- mönnum sigur tveimur mínútum fyrir leikslok, þá skaut hann föstu skoti af vítateigslínu og knötturinn rétt smaug yfir þverslána. Úrslitin 2-2, nokkuð sanngjörn en KR-ing- ar þó öllu nær sigri. Jón G. var yfirburðamaður í liði KR, lagði upp mörkin og var miðjupunkturinn í hverri sóknar- lotunni á fætur annarri. Ottó Guð- mundsson og Jósteinn Einarsson voru traustir í vörninni ásamt Stef- áni markverði og Sæbjörn Helgi og Magnús áttu ágæta kafla. Miðju- spilið hjá KR var virkilega skemmtilegt og allir virkir. Ómar Jóhannesson var bestur Eyjamanna, gaman var að sjá hve gífurlega gott vald hann hefur á boltanum og auga fyrir að senda hann hárnákvæmt á samherja við- stöðulaust. Mætti þó vera virkari stundum. Að öðru leyti var Eyja- liðið nokkuð jafnt, Tómas sýndi oft Óskar Ingimundarson skoraði síðara mark KR-inga í gærkvöldi. skemmtileg tilþrif og Valþór var með afbrigðum öruggur í vörninni. Þóroddúr Hjaltalín dæmdi all sæmilega. - VS. 1. deild Úrslit leikja í 1. deild íslands- mótsins í knattspyrnu um helgina: Akranes-Þróttur R.................5-0 Breiðablik-Þór Ak.................3-0 Ísafjörður-Keflavík...............1-2 Valur-Víkingur...................1-1 KR-Vestmannaeyjar.................2-2 Akranes.............9 5 1 3 17-5 11 Vestm.eyjar.........9 4 3 2 17-9 11 Breiðablik..........9 4 3 2 10-5 11 KR..................9 2 6 1 11-12 10 Valur...............9 3 3 3 14-16 9 ísafjörður..........9 2 4 3 9-12 8 Víkingur............8 1 5 2 6-8 7 Keflavík...........8 3 1 4 10-14 7 ÞórAk...............9 1 5 3 8-12 7 Þróttur R...........9 2 3 4 8-17 7 Markahæstir: Ingi Björn Albertsson, Val.... Hlynur Stefánsson, Vestm...... SigþórÓmarsson, Akranesi...... Kári Þorleifsson, Vestm....... Sigurður Björgvinsson, Keflav. SigurðurGrétarsson, Breiðab... Sveinbjörn Hákonarson, Akranesi Guðjón Guðmundsson, Þór...... Hörður Jóhannesson, Akranesi.... Kristinn Kristjánsson, ísaf.. Ómar Johannsson, Vestm....... ÓmarTorfason, Vikingi........ Óskar Ingimundarson, KR...... Sigurður Pálsson, Þór......... 7 6 5 .4 4 .4 4 .3 .3 co co o co rt

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.