Þjóðviljinn - 05.07.1983, Page 3

Þjóðviljinn - 05.07.1983, Page 3
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 5. júlí 1983 Þriðjudagur 5. júií 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 íbróttir Umsjón: Víðir Sigurðsson íbróttir Umsjón: Víðir Sigurðsson Gillespie fer til meistaranna Liverpool keypti um helgina skoska varnar- manninn Gary Gillespie frá Coventry City fyrir 325,000 pund. Par með þykir sýnt að ensku meistararnir í knattspyrnu láti lands- liðsmiðvörðinn Phil Thompsonfara, það er tœpast nokkuð pláss fyrir hann lengur. Gillespie erstórog sterkur leikmaður sem er talinn eiga góða mögu- leika á sœti í skoska landsliðinu innan skamms. Pá fór einn hinna kunnu leikmanna sem Everton ákvað að látafrásérfrítt, Trevor Ross, fráfélaginu. Nœsti ákvörðunarstaður Ross, sem áður lék með Arsenal, verður Grikkland þar sem hann leikur nœsta vetur með bikarmeisturum AEKfrá Aþenu. Sigurður fyrstur á nýju meti Sigurður P. Sigmundsson, FH, varð fyrstur í mark í hinu árlega Álafosshlaupi sem fram fór á sunnudaginn. Hann náði þar besta tíma frá upp- hafi áþessari vegalengd, 42,37 mínútur. Ágúst Por- steinsson, UMSB, og Gunnar Páll Jóakimsson, ÍR, urðu í öðru ogþriðja sœti og hlupu þeir einnig á betri tíma en gamla metið. Fríða Bjarnadóttir, Breiðabliki, sigraði í kvennaflokki, hljóp á 61,59 mínútum. Heimsmetið loks fallið Heimsmetið í 100 m hlaupi karía er loks fallið. Frá því Jimmy Hines hljóp þessa vegalengd á 9,95 sekúndum á Ólympíuleikunum í þunna loftinu í Mexíkó árið 1968 hefursá tími verið spretthlaupur- um óyfirstíganleg hindrun. Bandaríkjamaðurinn Calvin Smith rauf múrinn á móti í Colorado um helgina, sigraði þar á tímanum 9,93 sekúndur. Landa hans, Evelyn Ashford, bœtti einnig heims- metið ílOOm hlaupi kvenna um helgina. Hún hljóp á 10,79 sekúndum en metið áður átti Marlies Göhr frá A-Pýskalandi, 10,81 sek. Silva fékk gullskóinn Brasilíski knattspyrnumaðurinn Giovani Silva var heiðraður með gullskófrá Adidas fyrir að vera markakóngur heimsmeistarakeppni unglinga sem lauk fyrirstuttu í Mexíkó meðsigri Brasilíumanna. Silva skoraði 6 mörk, Klementz Joachim kom nœstur meðfimm og Gabrieli frá Argentínu gerði 4. Silva fékk einnig gullbolta, var kjörinn besti leikmaður keppninnar. Keflvíking- ar aftur á blað.... Ragnar Margeirsson skoraði sigur- markið í fyrsta leik sínum í sumar Keflvíkingum tókst að rífa sig úr botnsæti 1. deildar íslandsmótsins í knattspyrnu á laugardaginn með því að sigra ÍBÍ 2-1 á ísafírði í tvísýnum og spennandi leik. Dýrmæt stig til Suðurnesjamanna og úrslitin þjappa liðunum í deildinni enn nær hvert öðru. ísfirðingar voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og fengu gott marktækifæri á 12. mínútu, Jó- hann Torfason átti þrumuskot rétt framhjá Keflavíkurmarkinu eftir gott uphlaup. Þeir tóku síðan for- ystuna á 18. mínútu. Eftir ágætis undirbúning fékk Gunnar Péturs- son knöttinn í góðu færi frá Jó- hanni, skaut og í netinu hafnaði knötturinn eftir viðkomu í varnar-' manni Keflvíkinga. Hálfgert klúðursmark þó frá sjónarhóli gestanna. 1-0. Á 32. mínútu skeði gífurlega um- deildur atburður. Jón Oddsson komst í gegnum vörn Keflvíkinga og vippaði knettium framhjá-Þor- steini Bjarnasyni markverði..Þor- steinn gerði sér lítið fyrir og kastaði sér á Jón og feldi hann, ekkert ann- að en vítaspyrna virtist koma tii greina, en Guðmundur Haralds- son, sem annars dæmdi sæmilega þótt oft hafi hann verið betri, sá ekkert athugavert og lét leikinn halda áfram. Keflvíkingar voru því heppnir að vera aðeins einu marki undir í leikhléi. Eftir hlé hófst leikurinn af mikl- um krafti af beggja hálfu en Kefl- víkingar voru nú öllu ákveðnari og náðu undirtökunum. Á 68. mínútu var dæmd aukaspyrna á ísafjörð við vítateiginn. Framkvæmd henn- ar tók nokkurn tíma, Keflvíkingur fékk gult spjald fyrir að stjaka við ísfirðingi, en síðan var knettinum rennt til Sigurðar Björgvinssonar sem sendi hann í netið, 1-1. Sjö mínútum síðar gerðu svo Keflvíkingar út um leikinn. Hreiðar Sigtryggsson markvörður ÍBÍ fór í hálfgerða skógarferð útí vítateiginn, náði ekki knettinum sem síðan var rennt til Ragnars Margeirssonar, og landsliðsmaður- inn afgreiddi hann í mannlaust markið,2-l. Leikurinn var jafn þegar á heildina er litið og úrslitin hefðu getað orðið á hvorn veginn sem var. Keflvíkingar börðust betur í síðari hálf- , leiknum og uppskáru eftir því. Þeirra bestu menn voru Þorsteinn markvörður, Óli Þór Magnússon og Ragnar sem þarna lék sinn fyrsta leik með ÍBK í sum- ar, nýorðinn löglegur eftir að hafa leikið í Belgíu sl. vetur. Hjá ís- firðingum voru þeir Jóhann, Bene- dikt Einarsson, Ámundi Sig- mundsson og Jón Oddsson bestu menn að þessu sinni. - P/VS Eftir stórsigur Skagamanna á Þrótti: „Arangur aukinnar rslu á sóknarleik“ Vignir Baldursson og Sigurður Grétarsson, Breiðabliksmenn, í baráttu við Þórsarana Nóa Björnsson. Mynd: -eik. ánægður með þennan leik og reyndar tvo síðustu leiki okkar Skagamanna. Þetta er árangur aukinnar áherslu okkar á sóknar- leik. Við mætum bjartsýnir til síð- ari umferðar íslandsmótsins en ein- beitum okkur þó aðeins að einum leik í einu.“ Þetta sagði Hörður Helgason, þjálfari ÍA, eftir að menn hans höfðu gersigrað Þrótt- ara, 5-0, á Akranesi í 1. deildinni í knattspyrnu á laugardaginn. Skagamenn mættu grimmir til leiks og eftir u.þ.b. tíu mínútna þreifingar tóku þeir hann í sínar hendur og áttu góð marktækifæri með stuttu og jöfnu millibili allan leikinn á móti tveimur tækifærum Þróttar. Of langt mál yrði að telja öll tækifæri Skagamanna, aðeins drepið á þau bestu. Það fyrsta kom á 13. mínútu. Sigþór Ómarsson átti fast skot langt fyrir utan vítateig. Guð- mundur Þróttarmarkvörður Er- lingsson ætlaði að handsama knött- inn sem fleytti kerlingar í döggvotu grasinu og lenti í öxl hans og þeyttist aftur útá völl. Fyrsta markið kom á 18. mínútu. Knötturinn barst inní vítateig Þróttar, einn varnarmanna liðsins varð fyrstur að honum og hugðist hreinsa frá, hitti boltann mjög illa þannig að hann barst óvænt til Guðbjörns Tryggvasonar sem varð fjarska glaður og þakkaði pent fyrir sig með góðu marki, 1-0. Það næsta kom sjö mínútum síð- ar og þar var Sveinbjörn Hákonar- son að verki. Hann skaut fast með jörðinni utan vítateigs, knötturinn fór milli fóta Guðmundar mark- varðar og í netið. Mikið klaufa- mark, 2-0. Þriðja og síðasta markið í fyrri hálfleik skoraði Hörður Jóhannes- son eftir frábæra sendingu Sveinbjörns. Hörður lék á Guð- mund markvörð sem kom út á móti honum og renndi knettinum í hetið. Síðari hálfleikur fór rólega af stað og ekkert markvert gerðist lengi vel. Á 69. mínútu fengu Þróttarar loks sitt fyrsta tækifæri. Páll Ólafsson tók aukaspyrnu og lét vaða á markið en Bjarni fleygði sér endilöngum og greip knöttinn. Vel varið. Á 75. mínútu komst Hörður í sæmilegt færi en skaut í hliðarnet Þróttarmarksins. Hann skoraði síðan fjórða markið á 79. mínútu af markteig eftir sendingu frá Sigþóri. Varnarmaðurinn kunni, Sigurður Halldórsson, átti mjög góðan leik með Skagamönnum. Fimmta markið kom á 83. mín- útu og varð það jafnframt það fal- legasta. Sigþór fékk boltann á miðju, hljóp ótrauður að Þrótt- armarkinu þrátt fyrir þrjá varnar- menn í nágrenninu. Lengi lifi bar- áttuviljinn. Eftir tvö návígi og hafa leikið skemtilega á þriðja varnarm- anninn og Guðmund skaut hann, upp undir slá í opið markið. Hefur viljað hafa þetta svolítið sætt. Þorvaldur Þróttari Þorvaldsson átti síðasta færið í leiknum en Skaga- menn björguðu í horn. Akranesliðið var jafnt og lék vel. Jafnari en aðrir voru helst Ólafur Þórðarson, Sveinbjörn og Sigþór. Þá hlýtur Sigurður Halldórsson að fara að banka hressilega á lands- liðsdyrnar að nýju. Um Þróttarliðið er lítið hægt að segja. Manni finnst það eigi að geta mun meir en það sýndi á laugar- daginn. Vörnin var slöpp og þar mættu menn tala meir sín á milli til að koma í veg fyrir misskilning. Áhorfendur voru 607. Dómari var Baldur Scheving og dæmdi hann slælega. - MING/Akranesi Innáskiptingin örlagarík! Enn eitt jafntefi Hákon hressti heldur betur uppá Breiðabliksliðið Breiðablik hreiðraði um sig í efsta sæti 1. deidarinnar í knattspyrnu í háif- tíma á laugardaginn, þar til leik ÍA og Þróttar lauk, með því að sigra daufa Þórsara frá Akureyri 3-0 á Kópavogs- vellinum. Leikurinn var slakur framan af en síðan lifnaði yfir báðum liðum, einkum þó Blikunum sem oft á tíðum sýndu skemmtilega og áferðarfallega knattspyrnu. Breiðablik sótti stanslaust fyrsta korterið. Á ó.mínútu komst Jóhann Grétarsson að endamörkum og sendi fyrir á bróður sinn Sigurð sem skaut hörkuskoti af stuttu færi og Þorsteini Ólafssyni markverði Þórs tókst naum- lega að halda boltanum'. Á 13. mínútu skeiðaði Þorsteinn all ævintýralega útúr markinu, Sævar Geir Gunnleifsson lék á hann og sendi fyrir frá vinstri en varn- armenn Þórs náðu að skalla frá. Eftir þetta fóru Þórsarar að koma meir inní myndina og á 20. mínútu fékk fyrrum Blikinn Helgi Bentsson boltann í góðu færi á markteig en hitti hann illa og Guðmundur Ásgeirsson náði að verja. Á 31. mínútu komst síðan Sig- urður Grétarsson einn í gegn eftir hrikaleg varnarmistök Þórs, lék á Þor- stein en tókst á óskiljanlegan hátt að renna boltanum framhjá galopnu markinu. „Er markið ekki á réttum stað“, heyrðist úr stúkunni! Á 35. mínútu kom svö fyrsta markið. Sigurjón Kristjánsson hafði verið með rólegra móti fram að því en þarna braust hann í gegnum miðja vömina, missti knöttinn frá sér, varnarmaður hugðist ýta boltanum aftur á Þorstein en Sigurjón Kristjánsson hafði verið með rólegra móti fram að því, en þarna braust hann í gegnum miðja vörnina, missti knöttinn frá sér, varnarmaður hugðist ýta boltanum aftur á Þorstein en Sigurjón fylgdi af mikilli grimmd og lyfti yfir markvörðinn og í netið, 1-0 í hálfleik. Þórsarar bókstaflega áttu fyrstu tíu mínúturnar í síðari hálfleik. Þeir sóttu stanslaust en sköpuðu sér aðeins eitt færi, Árni Stefánsson skaut hörkuskoti af vítateig og Guðmundur Ásgeirsson gerði vel að slá boltann í horn. Á 60. mínútu átti sér stað örlagarík innáskipting hjá Breiðabliki, Hákon Gunnarsson kom inná í stað Sævars Geirs. Þremur mínútum síðar hitti hann boltann af seinum varnarmanni Þórs, brunaði inní vítateiginn, ætlaði að renna á Sigurð sem var dauðafrír en boltinn iór í varnarmann og í horn. Blikar ætluðu að taka hornið en þá var Magnús dómari Theodórsson búinn að benda á vítapunktinn, knötturinn hafði snert hönd varnarmannsins. Strangur dómur en Sigurður skoraði úr vítasp- yrnunni þrátt fyrir góð tilþrif Þorsteins. Tvær mínútur í viðbót, Sigurður sleppur einn í gegn og sendir afar óeigingjarnt á Hákon sem rennir bolt- anum í opið markið, 3-0, og Þórsarar allt x einu slegnir útaf laginu. Þeir náðu ágætum kafla eftir þetta en undir lokin voru Blikar nær því að bæta við mörkum, Hákon og Björn Þór Eg- ilsson komust báðir í opin færi en sama sagan í bæði skiptin, náðu ekki vel til knattarins. Blikarnir eru komnir í toppslaginn og verða þar áfram, á því er enginn vafi. Sigur þeirra var sanngjarn en í stærsta lagi. Hákon var maður dagsins, dreif liðið í gang þegar hann kom inná. Ólafur Bjömsson var traustur. Jóhann átti góðan fyrri hálfleik og Sigurjón og Sigurður voru alltaf ógnandi. Sigurð er þó einum of auðvelt að veiða rang- stæðan. Jónas Róbertsson bakvörður var bestur Þórsara, stóð uppúr í svifaseinni vörn, sem Þorsteinn markvörður bjarg- aði oft með því að hlaupa útfyrir vítat- eiginn. Óskar Gunnarsson átti góða spretti í fyrri hálfleik, Halldór Áskels- son gerði skemmtilega hluti og Helgi Bentsson olli stundum usla í vörninni hjá hinum gömlu félögum sínum. Magnús Theodórsson dæmdi mjög vel en vítaspyrnudómurinn var einn sá alstrangsti sem undirritaður hefur séð. ið hjá meisturunum Geysifjörug helgi í 4. deildinni í knattspyrnu: Svarfdælir blómstruðu í síðari hálfleik! Voruundir3-0ensigruðu5-4-Reynirskoraði4aftíumörkumHSS - Þjálfari Leiknis varði vítaspyrnu - Stefnulaus vallarmál á Suðureyri - Gunnar sendur á spítala Það var heldur betur tíðindaríkur leikur sem háður var á sjálfum aðal- leikvanginum á Akureyri í E-riðli 4. deildar í knattspyrnu á laugardag- inn. Þar tók Vaskur á móti Svarfdæl- um frá Dalvík sem ekki höfðu fengið stig í riðlinum á meðan Vaskur hafði lagt Vorboðann og Árroðann að velli í síðustu leikjum. Vaskur var með yfirburðastöðu í hálfleik, 3-0, en Svarfdælir gerðu sér lítið fyrir í síðari hálfleik og sneru blaðinu við, jöfnuðu og sigruðu síðan 5-4. Hinn eldfljóti Guðjón Georgsson skoraði þrjú markanna og Stefán Jóhannes- son tvö en Bergur Gunnarsson 2, Jó- hannes Bjarnason og Flallur Stefáns- son skoruðu fyrir Vask. A-riöill: Haukar-Óðinn........................8-0 Stefnir-HrafnaFlóki.................1-1 ReynirHn.-Afturelding...............2-3 Þór Hinriksson skoraði 4 fyrir Hauka, Henning Henningsson 2, Gunnar Svavarsson og Ómar Strange eitt hvor. Gunnar Guðmundsson þjálfari Aftureldingar slasaðist illa fyrir vest- an, fékk slæmt spark í bakið. Hann lék út leikinn en var síðan fluttur beint á sjúkrahús í Reykjavík. Lárus Jónsson skoraði tvö marka Aftur- eldingar og Hafþór Kristjánsson eitt. Gunnlaugur Guðleifsson kom Stefni yfir en það dugði ekki til. Stefnismenn verða að leika á fsa- firði, völlurinn þeirra á Suðureyri var hirtur undir raðhús og nánast ekkert látið í staðinn, þeir geta vart æft við þær aðstæður sem þeim er boðið uppá heima fyrir. Staðan: Haukar..............5 4 1 0 18-1 9 Afturelding.........5 3 2 0 18-6 8 Hrafna-Flóki.. 6 3 1 2 7-10 7 Augnablik 6 3 2 1 9-8 8 6 2 1 3 9-8 5 Léttir 3 0 3 11-11 6 6 0 5 1 9-11 5 Grótta 6 2 1 3 15-14 5 4 1 1 2 8-6 3 Hafnir 6 1 1 4 9-13 3 6 0 1 5 1-28 1 Grundarfjöröur 6 0 2 4 7-19 2 B-riðill Augnablik-Hafnir......................1-0 Stjarnan-Léttir.......................5-1 Grundarfjörður-Grótta.................1-1 Sveinn Ottósson skoraði sigur- markið fyrir Augnablik. Jón Haukur Jensson kom Létti yfir en Stjarnan skoraði síðan fimm í síðari hálfleik. Ógerlegt hefur reynst að ná sambandi við forráðamenn Stjörnunnar varðandi markaskorara og vonandi bæta þeir úr því hið fyrsta. Staðan: Stjarnan............6 4 2 0 15-3 10 ÍR..................6 4 0 2 14-12 8 C-riðill: Víkverji-Þór Þ......................2-2 Drangur-Stokkseyri..................2-3 Eyfellingur-Hveragerði..............1-3 Víkverjar komust í 2-0, Svavar Hilmarsson og Hermann Björnsson skoruðu, en sveitarstjórinn mark- heppni, Stefán Garðarsson svaraði síðan tvívegis fyrir Þór. Kjartan Busk 2 og Björgvin Sig- urðsson skoruðu fyrir Hveragerði. Guðni Einarsson úr víti og Kjart- an Páll Einarsson gerðu mörkin fyrir Drang en Páll Leó skoraði tvö marka Stokkseyringa. Staðan: Víkverji.. .6510 16-3 11 Stokkseyri..............6 3 1 2 17-11 7 Árvakur.................6 3 12 14-10 7 Hveragerði..............6 3 0 3 12-9 6 ÞórÞ.................. 5 13 1 8-9 5 Drangur.................5 1 0 4 8-16 2 Eyfellingur.............6 1 0 5 6-23 2 0-riðill: Glóðafeykir-Hvöt.................frestað HSS-Skytturnar.....................10-0 Strandamenn fóru heldur betur illa með. Skytturnar siglfirsku. Reynir Ingimarsson skoraði 4 mark- anna, Kristinn þjálfari Guðmunds- son 2, Haraldur Jónsson, Örn Stef- ánsson, ísak Lárusson og Guðbrand- ur Hallsson eitt hver. Staðan: HSS...................3 2 0 1 13-2 4 Hvöt..................2 2 0 0 3-0 4 Skytturnar............3 1 0 2 2-12 2 Glóðafeykir...........2 0 0 2 0-4 0 E-riðilí: F-riðill: Leiftur-Vorboðinn 6-0 2-1 ReynirÁr.-Árroðinn 2-1 0-2 Vaskur-Svarfdælir 4-5 Hrafnkell-Leiknir 0-1 Leiftur heldur áfram sigurgöng- unni. Hafsteinn Jakobsson 2, Róbert Gunnarsson 2, Halldór Guðmunds- son og Sigurbjörn Jakobsson skoruðu mörkin. Björn Friðþjófsson og Örn Viðar Arnarson skoruðu fyrir Reyni en Hilmar Baldvinsson fyrir Árroðann. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Staðan: Leiftur...............4 4 0 0 19-2 8 ReynirÁr...............4 3 0 1 8-3 6 Árroðinn...............5 2 0 3 12-12 4 Vaskur.................5 2 0 3 10-13 4 Vorboðinn..............5 2 0 3 10-14 4 Svarfdœlir.............5 1 0 4 7-22 2 Ólafur Gíslason þjálfari og mark- vörður Leiknis varði vítaspyrnu frá Jóni Jónassyni í Breiðdalnum og Borgþór Harðarson skoraði síðan sigurmark Fáskrúðsfirðinganna. Árni Ólason og Andrés Skúlason skoruðu mörkin fyrir Borgfirðinga sem heyja nú einvígi við Leikni um efsta sætið fyrir austan. Staðan: Leiknir ..............6 5 0 1 15-3 10 Borgarfjörður..........6 5 0 1 11-4 10 Höttur..................6 3 0 3 9-11 6 Hrafnkell...............6 2 1 3 9-8 5 Súlan...................6 2 0 4 8-10 4 Egillrauði..............6 0 1 5 1-15 1 Jafntefli, 1-1, varð niðurstaðan þegar Reykja víkurfélögin Valur og Víkingur mættust á aðalleikvanginum í Laugardal í 1. deildinni í knattspy rnu á laugardaginn. Fimmta jafntefli meistara Vfkings í átta leikjum f deildinni og það þriðja hjá Valsmönnum í röð. Fyrri hálfleikur fór að mestu fram á miðjunni og var mikið um _sendingar mótherja á milli. Víking- ar voru þó heldur meira með bolt- ann. Valsliðið virkaði mjög óör- uggt lengi vel en það lagaðist er á leið. Þeim tveimur færum hálf- leiksins sem umtalsverð teljast skiptu liðin á milli sín. Víkingur á 35. mínútu, ÓskarTómasson skaut framhjá af markteigshorni eftir að hafa fengið sendingu frá Heimi Karlssyni. Valur á 42. mínútu, Hilmar Sighvatsson átti sendingu inní vítateig Víkings, Valur Vals- son afgreiddi boltann viðstöðu- laust með innanfótarskoti en Ög- mundur Kristinsson markvörður Víkings náði að verja. Síðari hálfleikur var heldur líf- legri. Strax á fimmtu mínútu skora Víkingar. Heimir lék upp að enda- mörkum vinstra megin, sendi inná markteig þar sem Stefán Halldórs- son skaut. Brynjari Guðmundssyni tókst að slá boltann frá, Óskar náði honum, lék á milli tveggja varnar- manna og renndi honum framhjá Brynjari og í netið, 1-0. Heldur lifnaði yfir Valsmönnum eftir markið þó sjaldan skapaðist mikilhætta. Húnkom þóáól. mín- útu, Þorgrímur Þráinsson náði hörkuskoti rétt innan vítateigs, knötturinn skall í þverslánni á Vík- ingsmarkinu og hrökk þaðan út. Á næstu mínútum sköpuðu síðan bæði lið sér færi sem nýttust ekki vel. En á 78. mínútu jafnaði Ingi Björn Albertsson metin fyrir Vals- menn með skoti rétt utan mark- teigs, 1-1. Eftir markið færðist mikið fjör í Valsmenn sem réðu þá gangi leiksins. Guðmundur Þorbjörns- son var nær því búinn að tryggja Óskar Tómasson skoraði sitt fyrsta mark í 1. deild í sex ár þegar hann kom Víkingum yfir gegn Val. þeim bæði stigin er hann átti hörk- uskot utan vítateigs en Ögmundi tókst að bjarga með því að slá bolt- ann afturfyrir. Víkingsliðið var nokkuð breytt að þessu sinni. Miðvörðurinn sterki, Stefán Halldórsson, skellti sér í fremstu víglínu og skarð hans í vörninni fyllti Jóhann Þorvarðar- son sem stóð sig vel, spilaði stöðuna án mistaka. Þórður Mar- elsson, Óskar Tómasson og Guðgeir Leifsson áttu einnig góðan dag. í Valsliðinu var Þorgrímur ör- uggur í vörninni og þess á milli skellti hann sér fram og tók nokk- urn þátt í sóknarleiknum. Ingi Biörn átti góða spretti, svo og Guð- jJPidur. Hilmar Harðarson hressti nokkuð upp á liðið þegar hann kom inná í síðari hálfleik. Sævar Sigurðsson dæmdi leikinn ágætlega þó stundum væri hann of fljótur á flautuna. -Frosti Tvöfalt hjá McEnroe og Navratilovu Bandaríkjamaðurinn skap- heiti, John McEnroe, vann auðveldan sigur á Chris Lewis frá Nýja-Sjálandi í úrslitaleiknum í einliðaleik karla á Wimbledon- mótinu í tennis sem lauk í London um helgina. McEnroe vann allar þrjár loturnar, 6-2, 6-2 og 6-2. McEnroe sigraði einnig í tví- liðaleiknum en þar lék hann ásamt landa sínum, Peter Fleming. Martina Navratilova, tékk- neska stúlkan sem nú er flutt til Bandaríkjanna, varð einnig tvö- faldur sigurvegari. Hún vanr Andreu Jaeger frá Bandaríkjun- um í úrslitum einliðaleiks, 6-0 og 6-3, og hún og Pam Schrives sigr- uðu síðan í tvíliðaleik kvenna. Tvenndarkeppnina vanu bresk/ástralska parið John Lloyd og Wendy Turnbull.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.