Þjóðviljinn - 08.02.1984, Side 7
Miðvikudagur 8. febrúar 1984 j ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Sendikennarastarf í
norrænu í Frakklandi
Senn verður sendikennarastarf í
norrænu við háskólann í Lyon II
auglýst laust til umsóknar, en Orn
Ólafsson hefur gegnt því undanfar-
in fímm ár.
Blaðiö hefur fengið þær upplýs-
ingar að ráðlegt sé að sækja um
þetta starf, ef menn hafa hug á,
fyrir miðjan mars. Laun eru um
8000 frankar á mánuði. 1 umsókn
þurfa menn að greina frá prófum
sínum í íslenskum fræðum og er
líklegt að íslenskar fornbók-
menntir séu hátt metnar sem sér-
svið, ennfremur þurfa þeir plagg
upp á sína kunnáttu í frönsku.
Umsóknir ber að senda til:
Mr. Girard.
Institut d’Etudes allemandes
et scandinaves
86 Rue Pasteur
69007 Lyon
France
Meistarakökur
Um 30 ára skeið hefur Brauð-
gerð Mjólkursamsölunnar fram-
leitt kökur, sem upphaflega voru
seldar í mjólkurbúðum MS og
víðar. I áranna rás hefur þessi
kökuframleiðsla og sala farið
minnkandi og kemur ýmislegt til,
en einkum samkeppnin við inn-
fluttar kökur sem þykja standa
framar hinum innlendu yflrleitt,
um gæði og útlit.
En nú hefur Brauðgerð MS hafið
framleiðslu á nýrri kökutegund,
sem auglýst er og seld undir fram-
leiðslumerkinu „Meistarakökur".
Hefur undirbúningur þessarar
framleiðslu staðið yfir í rúmt ár.
Áhersla hefur verið lögð á bragð-
gæði og vandaðar umbúðir og hafa
margir starfsmenn MS lagt þar
hönd að verki.
Neytendur hafa tekið „Meistara-
kökunum" mjög vel. Mun áhersla
verða á það lögð að þær standist
samkeppni við innlenda sem er-
lenda framleiðslu. -mhg
Nýjungar hjá
EMMESS-IS
Að undanförnu hafa verið að
koma á markaðinn nýjungar frá
EMMESS-ÍS. Má þar nefna ís-
blómið, sem eru 4 mi dósir í hulstri.
í þeim er skafls, súkkulaðihjúpur
og jarðaberjahlaup. Neytendur
hafa tekið þessari nýjung mjög vel,
enda markaðskynningu fylgt eftir
með skipulögðum sjónvarpsauglý-
singum.
Fyrir jólin var hafin framleiðsla á
sérstökum jólaís, piparmyntuís
með súkkulaðibitum. Á markað-
inn var og sett hulstur með 4 jóla-
sveinum, en það eru sérstakar dós-
ir með jólasveinaandlit á botnin-
um.
í haust fékk ísgerðin svokallaða
Flex-e-Fill vél, tæki, sem rutt hefur
sér til rúms á undanförnum árum,
bæði austan hafs og vestan. Aðal
kostir vélarinnar eru að hún veitir
mikla möguleika á fjölbreytni í um-
búðum og mismunandi stærð
þeirra.
-mhg
Phan Hoi afhendir Magnúsi Kjartanssyni fyrrverandi ráðherra orðu og viðurkenningarskjal frá ríkisstjórn
Víetnamí maí 1981. A myndinni sést einnig Ólafur Gísiason. Þettamun vera ein síðasta myndin sem tekin var
af Magnúsi Kjartanssyni áður en hann lagðist banaleguna.
Phan Hoi er látinn
Mér voru að berast þær fréttir að
okkar góði vinur og félagi Phan
Hoi væri Iátinn. Hann mun hafa
látist í Hanoi þann 8. desember si.
Hoi veiktist af illkynja sjúkdómi
meðan hann var í Osló og gekkst
undir aðgerð þar í des. ’80. Þessi
sjúkdómur mun nú hafa valdið
dauða hans fyrir aldur fram.
Félagi Hoi var fæddur í Suður-
Víetnam. Hann hóf feril sinn í
þjóðfélagsbaráttunni ungur að
árum, fyrst í stríðinu gegn frönsku
nýlenduherrunum og síðar gegn
bandarísku heimsvaldastefnunni.
í kringum 1. des. 1971 kom hann
fyrst til Islands í boði fjögurra fé-
lagasamtaka. í þann mund var
Bráðabirgðabyltingarstjórnin í
SVN að setja á laggirnar upplýs-
ingaskrifstofu í Osló og veitti Phan
Hoi henni forstöðu. Heimsókn
hans hingað varð kveikjan að
stofnun Víetnamnefndarinnar á ís-
landi, samstarfi 15 félagasamtaka,
stjórnálaflokka, kvenna- og náms-
mannasamtaka.
Phan Hoi var lífæðin í því sam-
bandi sem íslendingar höfðu við
þjóðfrelsisbaráttuna í Víetnam á
þeim árum sem úrslit hennar réð-
ust. Hvar sem hann kom á Norður-
löndunum laðaði hann fólk að sér
með hreinskilni sinni og hlýju.
Hann var ekki góður málamaður á
norsku né ensku, en framganga
þessa hugsjónamanns, þekking
hans á sögu og aðstæðum sinnar
þjóðar, baráttuvilji hans og þrek
vógu margfalt upp tungumálaörð-
ugleikana.
Eftir að innrásarherir Banda-
ríkjanna höfðu verið lagðir að velli
og leppstjórn þeirra í Saigon verið
steypt var Phan Hoi kallaður til
starfa í utanríkisráðuneytinu í
Hanoi. Þegar endursameining
landsins hafði átt sér stað kom
hann á ný til starfa í Osló, í sendi-
ráði Víetnam fyrir Noreg, Dan-
mörku og ísland.
í apríl 1981 kom Phan Hoi til
íslands á ný, þá í boði Vináttufé-
lags íslands og Víetnam. Á ársaf-
mæli þess félags 3. maí var hann á
fundi á Hótel Borg gerður að
heiðursfélaga VÍV. I þeirri heim-
sókn átti hann fundi með framá-
mönnum í opinberum stöðum, en
sérstaklega minnistæð er heimsókn
hans til Magnúsar Kjartanssonar,
fyrrum ritstjóra, alþingismanns og
ráðherra. Phan Hoi afhenti Magn-
úsi við það tækifæri þá einu orðu
sem hann féllst á að þiggja á sínum
ferli, vináttuorðu víetnömsku
þjóðarinnar.
í þeim miklu erfiðleikum sem
eftirleikur stríðsins hefur verið sáu
Víetnamar sig tilneydda til að
draga saman seglin í utanríkisþjón-
ustu. Sendiráðinu í Osló ásamt
mörgum öðrum var lokað. f lok
júní hélt Phan Hoi heimleiðis. Síð-
asta kvöldið í Osló hringdi hann til
mín og bað fyrir innilegar kveðjur
til vina og félaga á íslandi. Það var
greinilegt að aðskilnaðurinn var
erfiður en landið hans kallaði og
heima beið hans kona og tvær upp-
komnar dætur sem hann hafði lítið
séð af á löngum og ströngum árum
baráttunnar.
Phan Hoi auðnaðist aðeins rúmt
ár lífs eftir heimkomuna. Hann var
kominn á eftirlaun en lét þó ekki
sitt eftir liggja í hlutastarfi allt fram
á síðustu stund.
Við höfum misst góðan vin og
baráttufélaga.
Phan Hoi er allur, en andi hans
lifir.
Blessuð sé minning hans.
Húsavík, 31. janúar
Sveinn Rúnar Hauksson.
9. umferð á Búnaðarbankamótinu tefld í gærkveldi:
Magnþrungin spenna
vegna fjölda biðskáka
Guðmundur Sigurjónsson stór-
mcistari varð fyrstur kcppenda á
skákmóti Búnaðarbankans til að
sigra sænsku stúlkuna Piu Cram-
ling. Staðan í mótinu að loknum
níu umferðum er mjög óljós vegna
íjölda biðskáka en biðskákir úr 6.,
7., 8. og 9. umferð verða tefldar á
morgun.
Þau Guðmundur og Pia tefldu
afbrigði af Sikileyjarvörn sem
nefnist Scheveningen-afbrigðið en
Guðmundur tefldi það afbrigði
töluvert á árum áður. I tuttugasta
og öðrum leik gerði Guðmundur út
um skákina er hann fórnaði skipt-
amun og gaf Pia skákina fjórum
leikjum síðar (sjá skákina).
Helgi Ólafsson og Shamkovic
tefldu Slavneska vörn en í sjötta
leik brá Shamkovic út af hefð-
bundnum leiðum og tefldi afbrigði
sem lítt er þekkt. Skákin fór í bið
og hefur Helgi betri stöðu eins og
sjá má.
Jóhann Hjartarson ætlar sér
Búnaðarbankaskákmót 1984 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn. Röð
1 Pia Cramling G.M. 2405 1/2 1 1/2 1/2 1/2 B B 0 1 4 +2B 6
2 M. Knezevic G.M. 2450 1/2 1/2 1/2 1/2 0 1/2 0 1 1/2 4 7
3 L. Shamkovich G.M. 2450 0 1/2 1/2 B 1/2 B 1/2 1 1/2 37*+211 8
4 Jóhann Hjartarson 2415 1/2 1/2 1/2 1 B 1 1/2 1/2 B 47: +2B 3-4
5 Sævar Bjarnason 2375 1/2 1/2 B 0 1/2 0 1/2 0 B 2 +2B 11
6 deFirmian I.M. 2515 1/2 1 1/2 B 1/2 1 1/2 0 1 S +B 1-2
7 Helgi Ólafsson I.M. 2445 B 1/2 B 1/2 1/2 1/2 1/2 1 1 472 +2B 3-4
8 L. Alburt G.M. 2515 B 1 1/2 0 1/2' 1/2 B B 0 27i +3B 10
9 Guðm. Sigurjónss G.M. 2470 1 0 1 1/2 1/2 1/2 1/2 B 1/2 47. +B S
10 Margeir Péturss I.M. 2465 1/2 1/2 1/2 1 1/2 B 1/2 1 1/2 5 +B 1-2
11 Jón Kristinsson 2385 0 0 1/2 1 0 0 B B 0 17.+2B 12
12 Jón L. Árnason I.M. 2500 0 1/2 1/2 B B 0 1 1/2 1/2 3 +2B 9
Hvítt: Guðmundur Sigurjónsson
Svart: Pia Cramling.
Sikileyjar-vörn.
augljóslega ekkert að gefa eftir í
baráttunni um efstu sætin en skák
hans og deFirmians fór í bið og hef-
ur Jóhann góða möguleika á sigri.
Helgi Ólafsson-Shamkovic Biðskák
Alburt-Knezevic 1:0
deFirmian-Jóhann Hjartarson Bið-
skák
Sævar Bjarnason-Jón L. Árnason
Biðskák
Margeir Pétursson-Jón Kristinsson
1:0
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
e4 c5
Rf3 e6
d4 cxd4
Rxd4 Rc6
Rc3 a6
Be2d6
0-0 Rf6
Be3 Be7
f4 0-0
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
a4 Dc7
Khl Hd8
Bd3 Rxd4
Bxd4 e5
Be3 exf4
Hxf4 Be6
Rd5 Bxd5
exd5 He8
Bd4 Da5
Þegar Pia hafði leikið 18. leik sín-
um átti hún aðeins 25 mínútur eftir
til að Ijúka 40 ieikjum og lék hún
því mjög hratt það sem eftir var.
19. c3 Bd8 23. Dg4+ Kf8
20. DO Dc7 24. Bxh7 He5
21. Bxf6 Bxf6 25. Dg8+ Ke7
22. Hxf6! gxf6 26. Dxa8 Gefið
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: L. Shamkovich
Slavnesk vörn.
1. d4 Rf6 21. Df3 b5
2. c4 c6 22. Re5 a6
3. Rc3 d5 23. h4 Rd7
4. Rf3 dxc4 24. axb5 axb5
5. a4 Bf5 25. d5 Rxe5
6. e3 Bd3 26. Bxe5 f6
7. Bxd3 cxd3 27. Bf4 exd5
8. 0-0 e6 28. exdS Rxd5
9. Dxd3 Ra6 29. Rxd5 Hxd5
10. De2 Be7 30. Hxd5 cxd5
11. e4 0-0 31. Hxd5 f5
12. Bg5 h6 32. h5 b5
13. Bh4 Re8 33. Dd3 Dc8
14. Bg3 Rf6 34. Hd7 Hd8
15. Hfdl Da5 35. Dd5+ Kh8
16. Re5 Rb4 36. Hxd8+ Bxd8
17. Hd2 Ha-d8 37. Dd6 Bf6
18. Ha-dl Da6 38. Dxb4 Dc2
19. Rc4 b6 39. Df8+ Kh7
20. b3 Db7 40. Df7 De4
Biðskák
abcdefgh
Hvítur iék biðleik.
Hvítt: DeFirmian. Svart: Jóhann
Hjartarson.
Svartur lék biðlcik.
Hvítt: Sævar Bjarnason. Svart: Jón
L. Árnason.
Svartur lék biðleik.