Þjóðviljinn - 14.02.1984, Side 3
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. febrúar 1984
Þriðjudagur 14. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Ænm wm im
íþrottir
Umsjón:
Vlöir Sigurösson
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Valur-Haukar 80-79
Boltinn dansaði á
körfuhring Valsara
Valsmenn voru rétt búnir að
giopra unnum leik niður í tap. Eftir
góða forystu þeirra, 75-64, 6 mín-
útum fyrir leikslok minnkuðu
Haukarnir muninn niður í eitt stig,
80-79, þegar 50 sek. voru eftir og
þeir náðu knettinum og voru með
hann síðustu tuttugu sekúndurnar.
Tvívegis dansaði boltinn á körfu-
hring Valsara en ofaní fór hann
ekki og Hlíðarendapiltarnir sluppu
með skrekkinn og tvö dýrmæt stig.
Leikurinn var fjörugur og
skemmtilegur á að horfa, þrátt
fyrir talsverða taugaveiklun
margra framan af sem lýsti sér í því
að knötturinn gekk liða á milli
hraðar en auga á festi. Valur var
ávallt yfir, nema 4-5 í byrjun, eða
þá Haukar jöfnuðu. Um miðjan
fyrri hálfleik breytti síðan Valur
stöðunni úr 25-25 í 37-27, Haukar
minnkuðu niður í þrjú stig en í hléi
stóð 47-40, Val í hag.
Valur var síðan með fimm til ell-
efu stiga forskot þar til undir lokin.
Furðuieg tiltekt þá hjá annars
góðri liðsstjórn að taka Kristján
Ágústsson og Torfa Magnússon
útaf þegar enn voru 6 mín. eftir.
Það hefði getað orðið afdrifaríkt.
Þeir Kristján og Tómas Holton
voru bestu menn Vals. Torfi lék
ágætlega en hefur oftast hitt betur.
Aðrir stóðu fyrir sínu og Valsliðið
lék mjög vel, nema undir lokin, og
er á ný orðið líklegasta liðið til að
veita Njarðvík keppni um meistar-
atitilinn.
Haukarnir urðu fyrir áfalli þegar
Pálmar Sigurðsson, þeirra besti
maður, fór útaf með fimm villur
um miðjan seinni hálfleik. Hann
hafði leikið mjög vel, í vörn og
sókn, og naut þess að geta loks
leikið gegn Val án þess að vera í
öruggri gæslu Jóns Steingríms-
sonar sem er að rísa upp úr veikind-
um. Hálfdán Markússon tók við
aðalhlutverkinu undir lokin og lék
þá frábærlega. Kristinn Kristins-
son, varnarmaðurinn sterki, var
hins vegar jafnbesti maður
Haukanna og var drýgri í sóknar-
leiknum en oftast áður. Eitt stig
skildi í lokin, það reyndist Einari
þjálfara Bollasyni afdrifaríkt að
láta dæma á sig tæknivíti í fyrri hálf-
leik sem færði Val eitt stig!
Stig Vals: Kristján 23, Torfi 18, Tómas
16, Páll Arnar 9, Leifur Gústafsson 6, Jó-
hannes Magnússon 4 og Valdimar Guð-
laugsson 4.
Stig Hauka: Pálmar 19, Kristinn 17,
Hálfdán 16, Ólafur Rafnsson 8, Eyþór
Árnason 7, Reynir Kristjánsson 6 og
Sveinn Sigurbergsson 6.
Gunnar Valgeirsson og Sigurður
Valur Halldórsson dæmdu alls ekki
lýtalaust en frammistaða þeirra var
góð þegar á heildina er litið.
-VS
Keflavík-Njarðvík 60-69
Þráaðist við,
leik, síðan á
Sturla Örlygsson, nýliðinn í landsliðshópnum í körfu-
knattleik, kom mjög við sögu í Keflavík á föstudags-
kvöldið.
átti stór-
sjúkrahús!
Það var jafnræði lengst af með nágrönnunum «
Keflavík á föstudagskvöldið. ÍBK ieiddi fyrri hálfleik,
var 34-27 yfir í hléi en Njarðvík jafnaði fljótlega í
seinni hálfleik. Staðan var 52-52 þegar UMFN missti
Val Ingimundarson útaf með 5 villur en þá gerði liðið
níu stig í röð og tryggði sér sigurinn.
Njarðvíkingar voru afslappaðir, enda komnir í úr-
slitakeppnina, svo við kæruleysi jaðraði á köflum.
Sturla Órlygsson og Gunnar Þorvarðarson voru bestu
menn. Sturla meiddist í fyrri hálfleik, var teipaður
rækilega í hálfleik, þráaðist við að leika, og sýndi
snilldartakta í seinni hálfleik. Skoraði þá 14 stig, þar
af úr fimm langskotum í röð. Eftir leikinn fór hann
beint á sjúkrahús, staulast nú um á hækjum og leikur
vart með gegn Val á föstudagskvöldið. Gunnar Þor-
varðarson þjálfari var vankaður eftir síðasta leik en
fór inná um miðjan fyrri hálfleik og skoraði síðustu 12
stig UMFN í hálfleiknum. Seigur, sá gamli, og lék
mjög vel. Valur náði sér hins vegar ekki á strik og
skoraði minna en áður í manna minnum.
ÍBK lék fyrri hálfleikinn mjög vel, í sókn sem vörn,
en síðari helmingurinn var afleitur hjá liðinu. Sigurð-
ur Ingimundarson, Jón Kr. Gíslason og Þorsteinn
Bjarnason léku allir fyrri hálfleikinn geysivel en duttu
niður á sama plan og aðrir í þeim seinni. Enn gustar
því af falldraugnum í Keflavík og erfið barátta fram-
undan.
Stig UMFN: Gunnar 23, Sturla 14, Valur 8, Ingimar Jónsson 7, Ástþór
Ingason 6, Kristinn Einarsson 5, ísak Tómasson 4 og Júlíus Valgeirsson 2.
Sftig IBK: Sigurður 17, Jón 14, Þorsteinn 14, Pótur Jónsson 5, óskar
Nikulás8on 4, Björn V. Skúlason 4 og Guðjón Skúlason 2.
-SV/VS
íslandsmótið í blaki:
Vestur-þýska knattspyrnan:
Atli skoraði í Nurnberg.
Fortuna Dusseldorf, lið Atla Eð-
valdssonar, beið annan ósigur sinn í
röð í Bundesligunni um helgina, tapaði
geysilega óvænt 2-1 í Núrnberg.
Heimaliðið sat á botninum og hafð að-
eins fengið eitt stig útúr síðustu ellefu
leikjunum, þar af tapað síðustu sex.
Atli náði að skora mark Dússeldorf,
sitt sjöunda í deildinni, en það dugði
ekki tU.
Stuttgart vann hins vegar Borussia
Dortmund 3-1 og er eitt í efsta sætinu.
Peter Reichert, hinn 34 ára gamli Her-
mann Oiicher og Karl-Heinz Förster
skoruðu mörkin fyrir Suttgart. Ásgeir
Ovæntur sigur
Atla og félaga
Nurnberg hafði ekki unnið í 11 leikjum
Sigurvinsson lék mjög vel og átti m.a.
skot í stöng Dortmund-marksins.
Bayern Munchen lék ekki, leiknum
við Kickes Offenbac var frestað og
Werder Bremen komst í annað sætið
með stórsigri, 4-1, á fallandi stórveldi
Kölnar, og það í Köln. Borussia
Mönchengladbach var á skotskónum
óg vann Eintracht Braunschweig 6-2.
Hamburger vann Leverkusen 3-0.
Stuttgart hefur 30 stig, Bremen 29, Ba-
yern og Hamburger 28, Mönchengla-
dbach 27 og Dusseldorf 25 stig sem
fyrr. -VS
2. deild karla í handknattleik:_
Sjö Blikamörk í röð
gerðu útaf við Fram
„Eftir að þeir höfðu skorað sjö mörk
í röð í fyrri hálfleiknum, breytt stöð-
unni úr 3-5 í 10-5, áttum við aldrei
möguleika. Þeir léku mjög vel, voru
mikið betri og unnu afar sanngjarnt,“
sagði Hermann Björnsson, handknatt-
leiksmaðurinn kunni úr Fram í samtali
við Þjóðviljann. Fram tapaði á laugar-
daginn fyrir Breiðabliki, keppinaut
sínum um annað sætið í 2. deiid karla í
handknattleik, 21-16 í Kópavogi og
Blikarnir eru þar með komnir í annað
sætið. Stefnir í mikla baráttu þessara
liða um h verj ir fylgja Þórurum upp í 1.
deild.
Þórarar léku ekki um helgina, leik
þeirra við Gróttu var frestað vegna
slæmsku í veðurguðum. Reynir er að
koma til, vann ÍR í Sandgerði 28-24 á
föstudagskvöldið. Þá gerðu HK og
Fylkir jafntefli í fyrrakvöld, 14-14, í
Kópavogi, og var HK með góða for-
ystu þar til á lokamínútunum að Árbæ-
ingum tókst að jafna af mikilli seiglu.
Stefnir nú í gífurlega harða fallbaráttu
í deildinni.
Staðan í 2. deild:
ÞórVe.............12 12 0
Breiðablik........13 10 0
Fram..............13 9 1
Grótta............12 6 1
ÍR.............. 13 4 0
HK................13 3 1
Fylkir............13 1 4
ReynirS...........13 2 1
0 271-202 24
3 277-241 20
3 284-251 19
5 259-243 13
9 224-267 8
9 229-259 7
8 228-264 6
10 281-326 5
-vs
1. deild kvenna í handknattleik:
Skagastúlkur í
fjórða sætið!
Skagastúlkurnar rifu sig uppí fjórða
sætið í 1. deild kvenna á laugardaginn
er þær burstuðu Fylki óvænt í Selja-
skólanum, 22-13. Oflugt klapplið frá
Akranesi setti Fylkisstúlkurnar útaf
laginu strax í byrjun og þegar lands-
liðskonan Eva Baldursdóttir varð að
yfirgefa völlinn meidd eftir 10 mínútur
stóð ekki steinn yfir steini hjá Fylki.
Laufey Sigurðardóttir og Ágústa Frið-
riksdóttir skoruðu 6 mörk hvor fyrir
ÍA og Karítas Jónsdóttir fjögur. Rut
Baldursdóttir skoraði 5 fyrir Fylki,
Eva og Jóna Sigurðardóttir 2 hvor.
íslandsmeistarar Vals sitja í fallsæti
ásamt Fylki og steinlágu fyrir FH í
Höllinni í fyrrakvöld, 23-12.
Staðan í 1. deild:
Fram................10 9 0 1 221-156 18
ÍR..................10 7 2 1 224-165 16
FH..................10 7 1 2 226-168 15
Akranes.............10 3 1 6 150-195 7
Víkingur............10 2 2 6 172-192 6
KR..................10 2 2 6 157-184 6
Valur............... 9 2 1 6 136-184 5
Fylkir.............. 9 2 1 6 147-189 5
Aðgefnu tilefni er rétt að taka fram
að Valsstúlkurnar teljast ofar Fylki
þrátt fyrir lakari markatölu vegna
betri útkomu úr innbyrðis viðureign.
-VS
Pétur
skoraði
fyrsta
Pétur Pétursson skoraði mark þegar
Antwerpen sigraði Lierse 3-0 í belgísku
1. deildinni í knattspyrnu um heigina.
Það var fyrsta mark leiksins og
Antwerpen þokaðist upp í sjöunda sæti
deildarinnar með 24 stig úr 22 leikjum.
Lárus og félagar í Waterschei gerðu
markalaust jafntefli gegn Molenbeek
og eru með 20 stig um miðja deild. Á
svipuðum slóðum eru Sævar Jóns og
félagar í CS Brúgge sem töpuðu 1-2
fyrir Waregem. CS Btúgge hefur 22
stig. Beveren er með 7 stiga forskot, 37
stig, Seraing tapaði 1-3 fyrir- FC
Brúgge og hefur 30, Anderlecht vann
Beringen 1-0 og hefur 29 stig. _y§
Tvö töp
Pórsara
Þórsarar frá Akureyri töpuðu
tveimur leikjwm í 1. deild karla í körfu-
knattleik á suðvesturhorninu um helg-
ina. Fyrst í Njarðvík gegn Grindvík-
ingum, 86-82, og síðan fyrir Fram í
Reykjavík, 84-77. Loks unnu
Laugdælir Skallagrím 64-53 í Borgar-
nesi.
Fram hafði ávallt undirtökin gegn
Þór og leiddi 47-39 í hálfleik. Þorvald-
ur Geirsson skoraði 27 stig fyrir Fram
og Ómar Þráinsson 17. Konráð Ósk-
arsson var stigahæstur hjá Þór með 18
stig en Jóhann Sigurðsson og Guð-
mundur Björnsson skoruðu 17 stig
hvor.
Staðan í 1. deild:
(S...........15 11 4 1180-1030 22
Fram.........12 9 3 937- 801 18
Laugdælir..14 9 5 977- 919 18
ÞórAk......14 6 8 1081-1080 12
Grindavík....14 6 8 971- 974 12
Skailagrímur.13 0 13 793-1135 0
_____________________-vs_
Snæfell
gaf tvo
Snæfeil úr Stykkishólmi gaf tvo leiki
í 1. deild kvenna í körfuknattleik sem
fram áttu að fara um helgina, gegn
Njarðvík og KR. Ófærð og próftökur
urðu til þess að fallist var á þessa
niðurstöðu.
Stúdentar í fallbaráttuna!
ÍS, gamla stórveldið í blakinu, er
komið í fallbaráttu 1. deildar karla
eftir 3-2 ósigur fyrir Fram um helg-
ina. ÍS vann fyrstu hrinu 9-15 en
sterkir Framarar tvær næstu, 15-
12 og 15-11. Fram komst síðan í
14-10 í fjórðu hrinu en tapaði þó,
14-16, en vann loks lokahrinuna 15-
12. Þá léku einnig Þróttur og Vík-
ingur. Þróttarar voru án þriggja
lykilmanna en unnu öruggan sigur,
3-1. Hrinurnar enduðu 15-11,15-3,
11-15 og 15-7.
Fjórir leikir fóru fram norðan
heiða í 1. deild kvenna. Völsungur
fékk fjögur stig, vann fyrst Breiða-
blik 3-2 í skemmtilegum og æsi-
spennandi leik þar sem lokahrinan
endaði þó með yfirburðasigri
Völsungs, 15-2. Húsavíkurstúlk-
urnar unnu síðan Þrótt 3-1 í ótrú-
lega sveiflukenndum leik, 3-1 (15-
3, 15-0, 3-15 og 15-3). Þróttur og
Breiðablik léku einnig bæði á Ak-
ureyri gegn KA og unnu bæði 3-1.
Þróttur vann 15-4, 12-15, 15-7 og
15-9, og Breiðablik vann 8-15,15-
13, 15-10 og 15-13. Loks vann ÍS
Víking 3-0 fyrir sunnan (15-7, 15-9
og 15-10).
Staðan í 1. deild karla:
Þróttur...........12 12 0 36-10 24
HK.............. 11 8 3 25-18 16
ÍS................10 3 7 18-26 6
Fram..............11 3 8 19-30 6
Víkingur..........10 1 9 14-28 2
1‘. deild kvenna:
ÍS..............13 11 2 35-12 22
Völsungur......12 10 2 30- 9 20
Brei&ablik.....14 8 6 31-23 16
Þróttur........12 6 6 22-23 12
KA.............11 2 9 10-28 4
Víkingur.......12 0 12 3-36 0
f 2. deild karla fór fram einn af
úrslitaleikjunum, KA náði að
vinna Reynivík 3-2 á Dalvík.
Leikurinn var hörkuspennandi og
stóð í heilar 133 mínútur. KA
stendur því best að vígi í riðlinum.
-VS
Skoska knattspyrnan:
Burst hjá Aberdeen
Aberdeen burstaði Jóhannes Eðvaldsson og
félaga hjá Motherwell, 0-4, ■ skosku úrvarls-
deildinni. Gordon Strachan (2), Eric Black og
John Hewitt skoruðu mörkin. Celtic vann einn-
ig ytirburðasigur á sínum andstæðingum, St.
Johnstone, 5-2. Sigurinn hefði getað orðið
miklu stærri ef Celtic helði nýtt sín færi. Brian
McClair og Murdo Macleod skoruðu tvö hvor
og Frank McGarvey eitt en Gordon Scott og
Ray Blair skoruðu fyrir St. Johnstone.
Sá leikur sem mesta athygli vakti í Skotlandi
var viðureign Hearts og Rangers. Staðan var
2-0 fyrir Rangers fram á 88. mínútu, Bobby
Williamson og Ally McCoist höfðu skorað.
Undir lokin jafnaði Hearts með mörkum Der-
eks O’Conor og Johns Robertson. Dundee
United vann Hibs 2-0 með mörkum Paul Heg-
arty og Maruice Malpas og St. Mirren vann
góðan sigur, 4-0, á Dundee með mörkum lans
Scanlon (áður Notts County) scm gerði tvö,
Franks McDougall og Franks McAvennie.
Staðan í úrvalsdeildinni:
Aberdeen 22
Celtic 22
Dundee United 20
Rangers 23
St. MÍrren 22
Hearts 22
Hibernian 22
21
St. Johnstone 23
Motherwell 23
4 51-25 31
4 38-18 28
8 35-30 25
7 15 17-48 9
-AB/Húsavík
íslandsmótið í handknattleik - 1. deild karla:
Leikur þessi var háður í Selja-
skólanum á laugardaginn. KR kom
Víking í opna skjöidu strax í byrjun
þessa leiks, með því að spila vörn-
ina mjög framarlega. Stórskyttur
Víkinga áttu því erfitt uppdráttar.
Eyrri hálfleikur var allan tímann
hnífjafn, Víkingar þó oftar fyrri til
að skora. Liðin stóðu jöfn í hálf-
leik, 12:12.
Seinni hálfleikur var nokkuð
köflóttari. Víkingar komust í 15:13
KR svaraði með 4 mörkum og stað-
Valur-FH 21-27
an þá orðin 17:15. Er 9 mínútur
voru til leiksloka höfðu KR-ingar
náð 3 marka forskoti 21:18! Vík-
ingar tóku þá það til bragðs að taka
þá Guðmund Albertsson og Jakob
Jónsson úr umferð. Við þetta riðl-
aðist leikur KR nokkuð og Víking-
ur náði að jafna 22:22. Síðasta orð
þessa leiks átti síðan Guðmundur
Albertsson og lokatölur því 23:22
vesturbæjarliðinu í hag. Þrátt fyrir
sigurinn eru möguleikar liðsins á
því að komast í úrslitakeppnina
hverfandi.
Guðmundur Albertsson og Jak-
ob Jónsson stóðu upp úr í liði KR.
Þeir Sigurður Gunnarsson, Viggó
Sigurðsson og Steinar Birgisson
fylgdu skammt á eftir.
Mörk KR: Guðmundur Albertsson 10.
Jakob Jónsson 7, Gunnar Gíslason 3, Jó-
hannes Stefánsson 2, Björn Pétursson 1.
Mörk Vfkings: Viggó Sigurðsson 6,
Stelnar Birgisson, Sigurður Gunnarsson,
Hilmar Sigurgislason og Guðmundur
Guðmundsson 3, Hörður Harðarson 2,
Karl Þráinsson og Guðmundur B. Guð-
mundsson 1.
- Frosti
Óttar og Atli óstöðvandi
í síðari hálfleiknum
Ekkert virðist nú geta stöðvað
FH frá því að vinna fyrri hluta ís-
landsmótsins með fullu húsi stiga.
Þeir lögðu erkifjendurna, Val, í
leik sem fram fór í Laugardalshöll-
inni á sunnudagskvöldið.
Til marks um það hvað fyrri hálf-
leikur var jafn má geta þess að það
munaði aldrei meira en einu marki
á liðunum. í hálfleik hafði FH eins
marks forystu 11-10.
Staðan
Valsmenn náðu að jafna og
komast yfir, 14-13. En þá fóru
Hafnfirðingar í gang, komust í 19-
15. Þeir náðu síðan að auka for-
skotið enn meir undir lok leiksins,
lokatölur 27-12.
Nokkurrar þreytu virtist gæta
hjá báðum líðum. Varnarleikur
liðanna þó alltaf góður en sóknar-
leikurinn datt oft niður hjá báðum.
Hjá FH voru þeir Kristján Ara-
son og Haraldur Ragnarsson best-
ir. Þá voru þeir Þorgils Óttar og
Atli Hilmarsson óstöðvandi í
seinni hálfleik.
Hjá Val var Brynjar Harðarsson
bestur. Þá voru þeir Valdemar
Grímsson og Steindór góðir.
Mörk FH: Þorgils Öttar 8, Kristján Ar-
asin 7, Atli 5, Pálmi Jónsson og Jón Ragn-
arsson 2, Guðmundur Magnússon, Egg-
ert ísdal og Guðjón Árnason 1.
Mörk Vals: Brynjar 7, Valdemar 4,
Björn Björnsson, Jakob Sigurðsson og
Steindór 3, Jón P. Jónsson 1.
Þeir Þorgeir Pálsson og Guð-
mundur Kolbeinsson voru oft full
fljótir á flautuna en misstu þó
leikinn aldrei úr höndum sér.
-Frosti
Gunnar Gíslason skorar eitt
þriggja marka sinna gegn Víkingi á
laugardaginn. Mynd: - eik.
Haukar-KA 24-15
Haukar
eygja
glætu
Haukar eygja smá vonarglætu
um að halda sæti sínu í 1. deildinni
eftir þennan örugga sigur. Þeir
leiddu 10-8 í hálfleik og tóku síðan
öll völd eftir hlé, skoruðu þá 14
mörk gegn sjö norðanmanna sem
virðast dauðadæmdir.
Mörk Hauka: Hörður Sigmarsson 8,
Snorri Leifsson 5, Sigurjón Sigurðsson 3,
Sigurgeir Marteinsson 3, Pétur Guð-
mundsson 3 og Ingimar Haraldsson 2.
Mörk KA: Þorleifur Ananíasson 3, Er-
lingur Kristjánsson 2, Jón Kristjánsson 2,
Sigurður Sigurðsson 2, Sæmundur Sig-
fússon 2, Hafþór Heimisson 1, Jóhann
Einarsson 1, Jóhannes Bjarnason 1 og
Magnús Blrgisson 1.
-VS
Stjarnan-KA 30-21
Þessumleikjum er ólokið
í 1. deild:
Haukar-Þróttur
KA-KR
FH-Haukar
Þróttur-Stjarnan
Víkingur-Valur
FH.........13
Valur.....13
Víklngur.... 13
Stjarnan.... 13
KR.........13
Þróttur...12
Haukar....12
KA.........13
I3 0 0 383:258 26
9 1 0 291:260 19
7 0 6 302:285 14
6 1 6 265:293 12
5 2 6 233:235 12
4 3 5 254:275 11
2 1 9 236:286 5
0 2 11 232:304 2
Gunnarskaut KA í kaf
Markahæstir
Krlstián Arason, FH....O.....110
Páll Ólafsson, Þrótti.........80
Slgurður Gunnarsson, Vík......74
Þorglls Óttar Mathiesen, FH...69
Vlggó Sigurðsson, Víkingi.....66
Brynjar Harðarson, Val........64
Hannes Lelfsson, Stjörnunnl...63
Atli Hilmarsson, FH...........60
Eyjólfur Bragason, Stjörnunni.58
Guðmundur Albertsson, KR......58
Jakob Jónsson, KR.............58
Stjörnumenn urðu fyrir áfalli
strax í byrjun leiksins í Digranesi,
Hannes Leifsson meiddist á ökkla
og þurfti að yfirgefa völlinn. Við
hans hlutverki tók Gunnar Einars-
son og má í raun segja að hann hafi
skotið KA í kaf.
Annars var þessi leikur eign
Garðbæinga frá fyrstu mínútu. Þeir
komust snemma í 4:1 og síðar í
11:5. KA náði að rétta hlut sinn að
mestu fyrir leikhlé, staðan þá
13:10.
Stjarnan komst fljótlega í 5
marka forystu í byrjun seinni hálf-
leiks. Þeir juku muninn síðar jafnt
og þétt og lokatölur urðu 30:21.
Gunnar Einarsson bar höfuð og
herðar yfir aðra leikmenn. Hann
skoraði helming marka Stjörnunn-
ar þar af 10 mörk í þeim seinni. Þá
átti Brynjar góðan leik í markinu
og Guðmundur Þórðarson var
traustur í vörninni að vanda.
Hjá KA var Magnús Gauti ágæt-
ur í markinu, þá áttu þeir Sigurður
Sigurðsson og Jón Kristjánsson
ágæta spretti.
Mörk Stjömunnar: Gunnar Einars-
son 15, Guðmundur Þórðarson 5, Gunn-
laugur Jónsson 4, Magnús Teitsson 3,
Eyjólfur Bragason, Hannes Leifsson og
Sigurjón Guðmundsson 1.
Mörk KA: Jón Kristjánsson og Sigurð-
ur Sigurðsson 4, Logi Einarsson, Magnús
Blrgisson og Erlingur Kristjánsson 3,
Þorleifur Ananíasson 2, Sæmundur Slg-
fússon og Hafþór Heimisson 1.
- Frosti.