Þjóðviljinn - 21.02.1984, Síða 3

Þjóðviljinn - 21.02.1984, Síða 3
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN i Þriðjudagur 21. febrúar 1984 Þriðjudagur 21. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 1. deild kvenna í handknattleik: Stórleikur áhorf- enda frá Akranesi Akranesstelpurnar eiga alla möguleika á að halda sæti sínu í 1. deildinni eftir geysi- þýðingarmikinn sigur, 15:14, á KR í Selj- askólanum á sunnudaginn. Annar sigur þeirra í höfuðborginni í röð og liðið sem flestir spáðu falli hefur sannarlega komið á óvart síðustu tvær helgarnar. ÍA var alltaf yfir í leiknum, 7:5 í hálfleik og síðan 11:7. Staðan var 15:13 þegar ör- skammt var eftir og því vart nokkur spenna þótt KR næði að skora síðasta markið. Lið IA var jafnt, sömuleiðis lið KR, það voru liðsheildirnar sem blifu. Bestan leik áttu sennilega áhorfendurnir frá Akranesi sem héldu uppi gífurlegri stemmningu í garð sinna stúlkna. Agústa Friðriksdóttir, Laufey Sigurðardóttir og Ragnheiður Jón- asdóttir skoruðu 3 mörk hver fyrir íA, Kar- ítas Jónsdóttir og Ragna Stefánsdóttir 2 hvor, Hrefna Guðjónsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir 1 hvor. Karolína Jónsdóttir skoraði 7 fyrir KR, 5 úr vítum, Sigurbjörg Sigþórsdóttir 2, Hansína Melsteð, Valgerð- ur Skúladóttir, Valdís Hallgrímsdóttir, Kristbjörg Magnúsdóttir og Hjördís Sigur- jónsdóttir 1 hver. ÍR lenti óvænt í feikilegu basli með Val í fyrrakvöld en náði að vinna 16:15. Darrað- ardansinn síðustu 2 mínúturnar var ótrú- legur, hvorugu liði tókst að skora og boltinn gekk á milli mótherja en ÍR gat hrósað sigri. ÍR var 11:7 yfir í hálfleik og leiddi allan tímann en Valur gerði tvö síðustu mörk leiksins. Ingunn Bernótusdóttir var best hjá ÍR en lítið bar á Erlu Rafnsdóttur að þessu sinni. Þær voru báðar mikið teknar úr um- ferð og þá datt spilið niður hjá ÍR. Erna Lúðvíksdóttir átti ágætan leik með Val og sömuleiðis Karen Guðmundsdóttir. Ing- unn skoraði 7 mörk fyrir ÍR, Erla 2, Kartín 2, Ásta S.2, Ásta Ó. 2 og Þorgerður 1. Erna skoraði 6 fyrir Val, Karen 4, Soffía 2, Steinunn 2 og Elín 1. Fram lenti líka í erfiðleikum, gegn barátt- uglöðu Víkingsliði um hádegisbilið á laug- ardag. Úrslitin urðu 26:21 fyrir Fram eftir 14:11 í hálfleik og Fram er þar með tveimur stigum nær meistaratitiinum. Munurinn á liðunum var aldrei mikill og Víkingsstúlkurnar vantaði oft bara hersl- umuninn til að jafna, það var eins og þær hefðu ekki trú á að þær gætu það. Guðríður Guðjónsdóttir var best hjá Fram, en hefur þó oft leikið betur og Framliðið náði sér aldrei fyllilega á strik. Eiríka Ásgrímsdóttir var langbest hjá Víkingi og Hrefna Harðar- dóttir lék ágætlega í markinu. Guðríður skoraði 10 mörk fyrir Fram, Margrét 6, Hanna 5, Oddný 3 og Sigrún 2. Eiríka gerði 9 fyrir Víking, Sigríður 4, Valdís 4, Inga 3 og Svava 1. FH vann öruggan sigur á Fylki, 25:17, í Hafnarfirði á laugardaginn og Árbæjar- stúlkurnar stefna því niður í 2. deildina á ný. Hjá FH bar mest á Margréti Theódórs- dóttur sem skoraði 5 mörk og Heiðu Ein- arsdóttur sem gerði 4 en Margrét Hjartar- dóttir skoraði 5 mörk fyrir Fylki, Rut Bald- ursdóttir og Jóna Sigurðardóttir 4 hvor. Staðan í 1. deild: Fram 11 10 0 1 247:177 20 ÍR.......................11 8 2 1 240:180 18 FH.......................11 8 1 2 251:185 17 Akranes..................11 4 1 6 165:209 9 Valur....................11 3 17 166:214 7 Víkingur.................11 2 2 7 193:218 6 KR.......................11 2 2 7 1 71:199 6 Fylkir...................11 2 1 8 178:229 5 - VB/VS Otrúlegur skellur Fram Grótta vann ótrúlegan sigur, 25:12, á Frömurum í lokaumferð forkeppninnar í 2. deild karla í handknattleik á sunnudaginn. Algerir yfirburðir Seltirninga á höfuð- lausum her Framara sem þar með misstu Breiðablik þremur stigum framúr sér. Blik- arnir unnu Fylki 21:12 á laugardeginum. HK vann þýðingarmikinn fallbaráttusigur á ÍR, 21:17, í Seljasókn á laugardaginn og á fimmtudagskvöldið vann efsta liðið, Þór, öruggan sigur í botnliðinu, Reyni, 29:18 í Eyjum. Staðan í 2. deild þegar aðeins einn leikur er eftir af forkeppninni: ÞórVe....................13 13 0 0 300:220 26 Brel&ablik...............14 11 0 3 298:253 22 Fram.................... 14 9 1 4 296:276 19 Qrótta...................14 7 1 5 284:255 15 HK......................14 4 1 9 250:276 9 ÍR..................... 14 4 0 10 241:288 8 Fylkir..................14 1 4 9 240:285 6 ReynirS................ 14 1 2 11 299:355 5 Liðin taka öll stig með sér í úrslitakeppn- ina, bæði í efri og neðri hlutanum. - VS Uppreisn æru ÍS! Stúdentar fengu heldur betur uppreisn æru á laugardaginn er þeir burstuðu Fram- ara 3:0 í bikarkeppni karla í blaki. Fyrir stuttu sigraði Fram í leik liðanna í 1. Stórsigrar þeirra stóru Celtic og Rangers unnu stóra sigra á útivöllum í 4. umferð skosku bikarkeppninnar í knatt- spyrnu á laugardaginn. Celtic vann East Fife úr 2. deild 6:0 og Brian McClair og Tommy Burns skoruðu 2 mörk hvor í ieiknum. Rangers vann utandeildaliðið Inverness Caledonian 6:0 og þcir lan Redford, Bobby Williamson og Ally McCoist skiptu mörkunum bróðurlega á milli sín. Jóhannes Eðvaldsson og félagar í Motherwell unnu öruggan sigur, 3:1, á 1. deildarliði Clyde- bank eftir að hafa komist í 3:0, Aberdeen vann Clyde 2:0 á útivelli, St. Mirren vann Hamilton 2:1 og Morton vann Dumarton 2:1. Þá vann Dundee United Hearts 2:1 í hörkuspennandi leik. Paul Sturrock skoraði fyrst fyrir meistarann en John Robertson jafnaði úr vítaspyrnu fyrir Hearts. David Dodds skoraði síðan sigurmark Dundee United fjórum mín. fyrir leikslok. Einn leikur var háður í úrvalsdeildinni, St. Johnstone fékk dýrmæt fallbaráttustig með því að sigra Hibernian 1:0. -VS deildinni en á laugardag sýndi ÍS sinn allra besta leik í vetur og afgreiddi Framara á aðeins 43 mínútum. Hrinurnar enduðu 15:2, 15:2 og 15:4, algerir yfirburðir. Þróttur er einnig kominn í 4-liða úrslit, vann Samhygð 3:0 í Hagaskóla. Hrinurnar enduðu 15:8, 15:9 og 15:6. Sveinn Hreins- son lék þarna sinn fyrsta leik með Þrótti eftir að hafa snúið heim á ný frá Fram. Völsungar unnu auðveldan sigur á KA, 3:0, í 1. deild kvenna að Ýdölum á föstu- dagskvöldið. Húsavíkurstúlkurnar eru því jafnar ÍS á toppnum með 22 stig úr 13 leikjum. Breiðablik vann Víking nokkuð létt, 3:0, og er með 18 stig úr 15 leikjum. - VS „Ertu bilaður?" „Ertu bilaður", mlssti Viggó Sigurðs- son útúr sér vlð Gunnar Kjartansson dómara á lokamínútum leiks Víkings og Vals í fyrrakvöld. Þessi lausmælgi hans gætl reynst Víkingum dýrkeypt, hann missir sennilega af fyrsta leik þeirra í úrslitakeppninni fyrir vikið, nema hann sleppl með bikarleik. Sama er að segja um Pál Ólafsson, Þróttara, hann fékk rauða spjaldið fyrir orðbrúk við dómara á lokamínútunum gegn Stjörnunni. - Frosti/VS Umsjón: Víöir Sigurösson Allt um íslandsmótið í körfuknattleik á bls. 13 1. deild karla í handknattleik í 1. deild karia í handknattleik forkeppni -1983-84: FH.............14 14 0 0 417-285 28 Valur..........14 9 1 4 314-286 Víkingur.......14 8 0 6 328-308 16 Stjarnan.......14 7 1 6 290-314 15 Þróttur..... Haukar.... KA ...14 6 2 6 251-251 ...14 5 3 6 303-325 13 ...14 2 1 11 288-348 14 0 2 12 248-322 2 ÍMarkahæstir: l Kristján Arason, FH......... lólafsson, Þróttl........ | Slgurður Gunnarsson, Víkingi, I ÞorgilsÓttar Mathiesen, FH. | Vlggó Sigurðsson, Víkingi.. 1 Brynjar Harðarson, Val Eyjólfur Bragason, Stjörnunnf. Atli Hllmarsson, FH......... Jakob Jónsson, KR........... Hannes Leifsson, Stjörnunni... Þróttur - Stjarnan 21-25 Eyjólfur skaut Stjörnunni í úrslit Stjörnumenn fögnuðu, Þróttar- ar og KR-ingar drúptu höfðum, í Laugardalshöllinni á sunnudags- kvöldið. Þetta var hreinn úrslita- leikur um sæti í 4-liða úrslitunum, jafntefli hefði komið KR áfram í stað hinna tveggja. Sigur Garðbæ- inga var sanngjarn, þeir voru sterkari þegar á leið og í lokin gerðu þeir síðustu þrjú mörkin. Leikurinn yar jafn og tvísýnn all- an tímann. Jafnt á flestum tölum í fyrri hálfleik en Þróttur var 11-10 yfir í hléi. Stjarnan náöi fljótlega undirtökunum í seinni hálfleik, var eitt til þrjú mörk yfir, en Þróttur gafst ekki upp og staðan var 22-21 fyrir Stjörnuna þegar enn voru fimm mínútur eftir. Undir lokin fór síðan allt í vitleysu hjá Þrótti, Páll Ólafsson lét reka sig útaf fyrir kjafthátt en Stjarnan hélt haus og tryggði sér sigur, 25-21. Eyjólfur Bragason hefur haft sig Haukarnir sýndu þarna einn sinn albesta leik í vetur og þessi viðureign varð ekki einstefna á jjeirra mark eins og flestir spáðu. Leikurinn var skemmtilegur og jafnvel spennandi á köflum því Haukárnir leyfðu aldrei „stóra bróður“ að sigla verulega framúr fyrr en undir lokin er úthald þeirra var á þrotum. Leikurinn var jafn framan af, 8-8 um miðjan fyrri hálfleik en FH komst síðan í 16-12 fyrir hlé. Sá munur héist þar til stutt var eftir að FH seig sjö mörkum framyfir og vann 34-27. Þetta var einvígi máganna, línu- mannanna Þorgils Óttars Mathie- sen hjá FH og Ingimars Haralds- sonar hjá Haukum. Þeir voru í miklum ham og bestu menn liða sinna. Dæmigerð FH-Hauka viðureign eins og á árum áður, ekk- ert gefið eftir, og það kom FH- lítið í frammi að undanförnu, verið meiddur og lítið beitt sér. Hann hafði einnig þann þáttinn á í fyrri hálfleik en í þeim seinni var það þessi gamalreynda kempa sem skaut Stjörnunni áfram. Hann skoraði sjö mörk í seinni hálf- leiknum, reif sig upp hvað eftjr annað og Þróttarar réðu ekkert við hann. Sigurjón Guðmundsson átti mjög góðan leik í vinstra horninu, Magnús Teitsson var drjúgur og Gunnar Einarsson skoraði stórgóð mörk. Þá var vörn Stjörnunnar með Guðmund Þórðarson og Eyjólf sem traustustu pósta hreint frábær. Það voru Páll Björgvinsson og Konráð Jónsson sem héldu Þrótt- urum gangandi, einkum í seinni hálfleik. Páll Ólafsson náði sér aldrei á strik, en Palli B. virtist ætla að sigrast á Stjörnunni aleinn er hann raðaði inn mörkum seint í seinni hálfleik. Það dugði þó ekki ingum greinilega á óvart hve Haukarnir bitu hressilega frá sér. Þorgils Óttar var bestur hjá FH en Kristján Arason og Atli Hilmarsson léku einnig vel. Auk Ingimars hjá Haukum átti Gunnlaugur Gunnlaugs- son markvörður góðan leik. Ef Haukarnir leika svona í fallkeppninni gætu þeir náð að brúa eitthvað af því átta stiga bili sem skilur þá frá næsta liði fyrir ofan. Með þessum sigri innsiglaði FH frá- bæra forkeppni, vann alla 14 leikina. Synd og skömm að þetta yfirburðalið þarf að byrja úrslitakeppnina með sama stigafjölda og lið sem voru 12-13 stigum neðar. Mörk FH: Kristján 9, Þorgils Öttar 9, Atli 5, Hans Guðmundsson 4, Guðmund- ur Magnússon 3, Pálmi Jónsson 1, Guð- mundur Óskarsson 1, Guðjón Árnason 1 og Valgarður Valgarðsson 1. Mörk Hauka: Hörður Sigmarsson 8, Ingimar 7, Slgurgeir Marteinsson 4, Sigur- jón Sigurðsson 3, Þórir Gislason 3 og Lár- us Karl Ingason 2. -Ig/VS til og Þróttarar verða að sætta sig við drungalega fallkeppnina annað árið í röð. Mörk Stjörnunnar: Eyjólfur 7, Gunnar 4, Magnús 4, Sigurjón 4, Guðmundur 3, Bjarni Bessason 1, Gunnlaugur Jónsson 1 og Skúli Gunnsteinsson (Skúlasonar) 1. KR náði sigrinum sem þurfti til að halda í vonina um að komast í úrslit en lengi vel stefndi í að Vesturbæingar færu tómhentir frá Akureyri. Staðan var 15-13 fyrir KA um miðjan seinni hálfleik en þá hrökk allt í baklás hjá norðanmönnum, KR skoraði fimm mörk í röð og tryggði sér sigurinn. KA átti lokaorðið en KR-sigur var í höfn, 18-16. Lítið sem ekkert skildi liðin þar til á umræddum kafla. Jafnt var uppí 4-4, KA komst þá í 7-5 en KR jafnaði og síðan stóð 9-9 í hálfleik. í byrjun seinni hálfleiks skoraði hinn bráðefnilegi Jón Kristjánsson þrjú mörk í röð fyrir KA, 12-9, en síðan var hann tekinn úr um- ferð. Þá fór allt í steik hjá KA og KR jafnaði 13-13. Undir loitin var mikill hiti í KA-mönnum og þeir Ragnar Gunnarsson og Guðmundur Lárusson liðsstjóri fengu að líta rauða spjaldið fyrir kjaftbrúk. Eftir spennuna í ieik Þróttar og Stjörnunnar á undan sló dauðaþögn á Laugardalshöllina eftir þennan mark- lausa leik Reykjavtkurfélaganna sem bæði voru fyrir örugg í úrslitakeppnina. Leikurinn bar keim af þessu, menn tóku hann alvarlega framan af en þegar á leið geystist hann upp í vitleysu sem þö var hægt að hafa lúmskt gaman af. Víkingur komst í 7-2 og þann mun réð Valur aldrei við þrátt fyrir að hafa minnkað bilið í 11-10. Staðan var 13-10 fyrir Víkingí hálfieik, liðiðlék léttanog skemmtilegan handknattleik og er til alls líklegt í úrslitakeppninni. Viggó Mörfc Próttar: Páll B. 7, Konráð 6, Páll Ó. 5(3), Birgir Sigurðsson 1, Gfsll Óskars- son 1 og Lárus Lárusson f. Árni Sverrisson og Hákon Sigur- jónsson dæmdu all þokkalega. - VS. KA-mennirnir gömlu, Gunnar Gísla- son og Jakob Jónsson, voru í aðalhlut-- verkum hjá KR. Gunnar var bestur, fljótur fram og góður í vörn. Jakob var óheppinn með skot framan af en það lagaðist er á leið. Aldrei þessu vant var markvarslan í núlli hjá KR. Jón var bestur hjá KA, mikið efni þar á ferð, og Magnús Gauti var vel með á nótunum í markinu. Engin stig höfðust þó frekar en oftast áður í vetur og 11 stigin sem skilja KA frá þriðja neðsta liði verða vart unnin upp í fallkeppn- inni. Mörk KR: Jakob 6, Gunnar 5, Guð- mundur Albertsson 3, Jóhannes Stefáns- son 3 og Friðrik Þorbjörnsson 1. Mörk KA: Jón 6, Erllngur Kristjánsson 4, Logi Elnarsson 3, Magnus Birgisson 1, Sigurður Sigurðsson 1 og Þorleifur Anan- íasson 1. Ólafur Haraldsson og Stefán' Arnalds hafa dæmt betur. - K&H/Akureyri. Sigurösson, Siguröur Gunnarsson, Hörður Harðarson og Guðmundur Guðmundsson léku allir vel hjá Víkingi ásamt markvörðunum Ellert Vigfús- syni og Kristjáni Sigmundssyni. Hjá Val lék Júlíus Jónasson langbest en Þorbjörn Guðmundsson, sem ekkert hefur verið með í vetur, kom á óvart. Mörk Víkings: Viggó 9(3), Guðmund- ur 6, Sigurður 4(1), Hörður 3, Steinar Birg- isson 2, Guðmundur B. Guðmundsson 1 og Karl Þráinsson 1. Mörk Vals: Július 6, Brynjar Harðar- son 4, Þorbjörn G. 4, Þorbjörn Jensson 4, Jakob Sigurðsson 2, Valdlmar Grímsson 2 og Steindór Gunnarsson 1. - VS. FH-Haukar 34-27________ Einvígi máganna KA-KR 16-18______ KR hafði það Víkingur-Valur 26-23________ Marklaus Víkingssigur verðlaskkun á jógúrt LETT-jógúrt Léttjógúrt er svar okkar við óskum fjölmargra neytenda. Léttjógúrt inniheldur ennþá minni fitu og minni sykur, en j afnframt meiri eggj ahvítu. Léttjógúrt er í femum og ódýrari en ódýra jógúrtin í dósunum og um 20% hitaeiningasnauðari. Mjólkursamsalan - Mjólkurbú Flóamanna Nú hefur tollur verið felldur niður af innfluttum ávöxtum sem notaðir em í hinar fjölmörgu jógúrttegundir okkar. Þetta gerir okkur kleift að lækka, - já, þú last rétt, lækka verð á allri jógúrt frá okkur um 10,6%. Þetta kemur að sjálfsögðu ekkert niður á gæðunum, þau verða eitir sem áður 100%.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.