Þjóðviljinn - 13.03.1984, Síða 4
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 13. mars 1984
Enska knattspyrnan
íl»rcrt-tir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
John Barnes sveiflaði vinstri fætin-
um með glæsilegum árangri i Birm-
ingham.
Það var bikarkeppnin sem átti at-
hygli breskra um helgina. Þrír
leikir voru á laugardag í FA bikarn-
um. 40 þúsund áhorfendur komu á
St. Andrews völlinn í Birmingham
til að sjá viðurcign sinna manna og
Watford, mesti fjöldi þar í 17 mán-
uði. Leikurinn var allskemmtilegur
eins og svo margir leikir þar sem
liðið hans Elton John á í hlut. Eftir
22 mín. leik fékk John Barnes bolt-
ann inn í teig Birmingham, lék
snaggaralega á tvo varnarmenn,
sveiflaði vinstri fætinum með þeim
árangri að tíu þúsund Watford-
áhangendur lyftust í sætum sínum.
Watford hefði hæglega getað
bætt tveimur mörkum við í fyrri
hálfleiknum en þá léku þeir kump-
ánar George „stóri" Reilley og Mo
„litli" Johnston vörn Birmingham
stundum illa, vel studdir af útherj-
uiium Nigel Callaghan og John
Barnes. Ron karlinn Saunders,
stjórinn hjá Birmingham, hefur
Iíkast til lamið krumlunum í borðið
í búningsherberginu í hálfleik því
Birmingham kom tvíeflt til leiks í
seinni hálfleik. 15 mín. eftir hlé
tókst heimaliðinu að jafna metin.
Robert Hopkin sendi lágbolta fyrir
markið hvar Byron Stevenson og
Steve Terry börðust við að koma
fæti í tuðruna. Af þeim síðarnefnda
hrökk boltinn í netið, 1-1, og nú
reiknuðu flestir með því að Birm-
ingham myndi taka leikinn í sínar
hendur. En Watford sem notaði
leikaðferðina 4-2-4 var ekki dautt
og grafið. Þeir Kenny Jackett og
Les Taylor voru óstöðvandi á miðj-
unni og það var einmitt Taylor sem
fékk samherja sína til að brosa út
að öxlum á 78. mín. er hann skaut
firnaföstu skoti framhjá Tony Cot-
on í marki Birmingham. Og ekki-
liðu nema tvær mínútur til þegar
útherjinn snjalli John Barnes birt-
ist við fjærstöngina og ýtti boltan-
um inn fyrir marklínana og
innsiglaði góðar sigur, 1-3.
Everton er lið sem stöðugt kemur
á óvart. Á laugardaginn tókst því
að sigra Notts County á Meadow
Lane og tryggja sér þar með þátt-
tökurétt í undanúrslitum bikarsins.
Everton tók forystuna eftir aðeins
5 mín. Gary Stevens átti þá send-
ingu á nærstöngina. Andy Gray
náði ekki til boltans en það kom
ekki að sök því Kevin Richardson
kom eins og davíðskur íkarus-
strætó og skoraði 1-0. Það var
markvörður Everton, Neville So-
uthall sem hélt liði á floti með
snilldarmarkvörslu í fyrri hálf-
leiknum. Þrívegis mátti hann hefja
sig til flugs í markinu til að verjast
skotglöðum County leikmönnum.
Ekki fékk Southall þó við neitt
ráðið á 18. mín. Honum tókst að
verja skot frá Trevor Christie en
John Chidozie fylgdi vel á eftir og
kom fæti í boltann; þar með hafði
County jafnað, 1-1.
Strax í byrjun seinni hálfleiks,
nánar tiltekið eftir 75 sek, skoraði
Everton mark sem reyndist vera
sigurmarkið í leiknum. Eftir brot á
einum sóknarmanna Everton
spyrnti Kevin Sheedy dágóðum
bolta inn í teig County. Andy Gray
fleygði sér flötum og af hausnum á
honum fór boltinn í netið. Everton
verðskuldaði sigurinn í leiknum og
það voru einkum Southall í mark-
inu og snjallir miðvallarspilarar
sem gerðu úslagið.
Hvorki fleiri né færri en 34 þúsund
áhorfendur komu á Home Park í
Plymouth til að öskra á sína menn í
leiknum gegn Derby. Litlum sög-
um fer af ágæti þessa leiks, sparkað
var og hlaupið í 90 mín. Sjö mínút-
um fyrir leikslok var Gordon Stan-
iforth nálægt því að skora er hann
vegis varði Clemmence frá honum
sannkallaða þrumufleyga.
Man. Utd lék ekki skemmtilega
gegn Leicester í fyrri hálfleiknum.
Gary Bailey var í banastuði og kom
í veg fyrir að leikmenn Leicester
skoruðu þrívegis, Steve Lynex
tvisvar og Kevin McDonald einu
sinni. Bryan Robson átti skot í
stöng Leicester í fyrri hálfleiknum.
United var mun ákveðnara í seinni
hálfleik og tókst að skora tvívegis.
Á 53 mín. skaut Remi Moses í
gegnum þvögu og í netið rataði
boltinn. Seinna markið gerði Mark
Hughes með skalla en þetta var
hans fyrsti deildaleikur í byrjunar-
liði United. Lynex var ýkja óhepp-
inn að laga ekki stöðuna en Gary
Bailey varði firnafasta vinstrifótar-
bíru frá honum.
Það verður að teljast bjartsýni ef
önnur lið ætla að blanda sér í bar-
áttuna um meistaratitilinn. En hart
verður barist til þess að komast í
Evrópukeppnina. Eitt þeirra liða
sem komið hefur á óvart í vetur er
Andy Gray var í jafn láréttri stöðu og á myndinni að ofan
þegar hann kastaði sérflötum og skoraði sigurmark Evert-
on gegn Notts County í bikarkeppninni á iaugardaginn.
Hann var svo nálægt grasrótinni þegar hann skallaði að
með ólíkindum þótti.
„Ég var með höfuðuð í drullunni þegar ég skallaði, en þetta var eina
leiðin til að ná til knattarins!“ sagði Gray, einn ósérhlífnasti leikmaður í
ensku knattspyrnunni, eftir leikinn.
Um 15 þúsund áhangendur fylgdu Everton til Nottingham og þeir
urðu ekki fyrir vonbrigðum. Howard Kendall framkvæmdastjóri félags-
ins var orðinn tæpur í starfi sínu fyrir áramót en nú er hann dýrlingur
eftir frábæran árangur það sem af er þessu ári. Hann þakkaði áhang-
endum Everton stuðninginn í leikslok og sagði síðan: „Ég hef trú á að
öll æðstu verðlaun enskrar knattspyrnu hafni á Merseyside í vor!“
Auðvitað átti hann við að Liverpool yrði meistari en Everton ynni báðar
bikarkeppnirnar!
-HB/Englandi
Brosað út að öxl-
um í Birmingham
skaut bylmingsskoti af 20 metra
færi. Boltinn fór í stöngina þegar
leikmenn Derby náðu að hreinsa
frá. Steve Cherry markvörður Der-
by var maður leiksins og honum
einum má þakka að Derby fær nú
tækifæri á heimavelli sínum á mið-
vikudaginn. „Við vorum heppnir
að fá annað tækifæri“ sagði Peter
Taylor, stjóri Derby, eftir leikinn.
Engin breyting
á toppi
Lítið var um óvænt úrslit í 1.
deildinni á laugardag. Liverpool
fékk Spurs í heimsókn og Man Utd
tók á móti Leicester. Þeireru sjálf-
sagt flestir steindauðir Spurs-
aðdáendurnir sem muna þann dag
þegar liðið þeirra bar síðast sigur-
orð af Liverpool á Anfield. Sam-
kvæmt munnmælum og áreiðan-
legum heimildum gerðist það árið
1912. Eftir 103 sek. hitti Steve karl-
inn Perryman beint á Gary Stevens
úr aukaspyrnu og Stevens kom
Spurs yfir. í 42 mín. var Spurs mun
betra liðið og hillti undir sigur eftir
öll þessi ár. En Liverpool er aldrei
betra en einmitt þegar þeir eru
marki undir. Á tveggja mín. kafla
snéru þeir dæminu við. Kenny
„kóngur“ Dalglish jafnaði eftir að
hafa þjarmað ögn að Clemence í
markinu. Mín. síðar náði Miller að
hreinsa frá hornspyrnu Sammy
Lee. Ekki tókst þó betur til en að
knötturinn hafnaði á ristinni á
Ronnie Whelan og þaðan í mark-
hornið. Það var síðan faiti strákur-
inn hann Sammy Lee sem veitti
Spurs rothöggið þremur mínútum
fyrir leikslok, 3-1. Aumingja Mike
Robinson gengur svolítið illa að
gleðja áhorfendur á Anfield. Tví-
West Ham. Liðið hefur þó átt mis-
jafna leiki og vantar alla festu til að
eiga raunhæfa möguleika í barátt-
unni um efsta sætið. Á laugardag
lék liðið afar illa er Úlfarnir komu í
heimsókn. Scott McGarvey, láns-
maðurinn frá Man Utd kom Úlfun-
um yfir með langskoti á 30. mín.
Tony Cottee jafnaði skömmu síð-
ar. Þeir Cottee og Billy Bonds fóru
illa með upplögð færi í leiknum
sem gamla roðhænsnið Trevor
Brooking hafði skapað.
Gamla góða ipswich Town er nú í
miklu basli þessa dagana. Hvorki
gengur né rekur hjá þessu fyrrum
stórskemmtilega liði. í leiknum á
Highbury voru það gamlir Ipswich-
leikmenn, Paul Mariner og Brian
Talbot, sem snéru hnífnum í sár-
inu. Mariner gerði tvö mörk en
Talbot eitt. Tony Woodcock kom
Arsenal í 4-0 áður en Eric Gates
lagaði stöðuna undir lokin.
Stoke krækir stöðugt í stig. Ian
Painter afgreiddi Aston Villa með
marki í fyrri hálfleik. Stoke og
Joe Corrigan, fyrrum mark-
vörður Man.City, lék með Brigh-
ton gegn sínu gamla félagi á
laugardag og sýndi af sér mikla
hörku í 1 -1 jafnteflinu. Hann slas-
aðist snemma í leiknum og var í
fyrstu talið að hann væri hand-
leggsbrotinn. Svo reyndist þó
ekki eftir á, en sá gamli lék allan
leikinn eins og ekkert hefði í
skorist. Meiðslin eru þó ansi
slæm og líklegast verður hann að
taka sér eitthvert frí frá störfum.
-HB/Englandi
úrslit...úrslit...úrslit ■
Bikarkeppnin - 6. umferð
Birmlngham-Watford..............1-3
Notts C-Everton.................1-2
Plymouth-Derby..................0-0
Sheff.Wed.-Southampton..........0-0
1. deild:
Arsenal-lpswich.................4-1
Liverpool-Tottenham.............3-1
Manch Utd-Leicester.............2-0
Q.P.R.-Coventry.................2-1
Stoke-Aston Villa...............1-0
West Ham-Wolves.................1-1
2. deild:
Brighton-Manc.City..............1-1
Cambridge-Cardlff...............0-2
Charlton-Grimsby................3-3
Leeds Utd.-Blackburn............1-0
Newcastle-Chelsea...............1-1
Oldham-C.Palace.................3-2
Portsmouth-Carlisle.............0-1
Shrewsbury-Huddersfield.........1-0
Swansea-Barnsley................1-0
3. deild:
Bournemouth-Southend.............1-0
Brentford-Orient.................1-1
Burnley-Bristol Rovers...........0-0
Exeter-Sheff.Utd.................1-2
Gillingham-Walsall...............1-3
Millwall-Bradford................0-0
Newport-Hull...................- T1
Oxford-Port Vale.................2-0
Rotherham-Preston................0-1
Scunthorpe-Lincoln...............0-0
Wimbledon-Wigan..................2-2
4. deild:
Aldershot-Chester...............5-2
Blackpool-Doncaster.............3-1
BristolC-Darlington.............1-0
Chesterfield-Peterbro...........1-0
Colchester-Mansfield............1-0
Crewe-Bury......................2-1
Hartlepool-Swindon..............0-1
Northampton-Hereford............0-3
Rochdale-Tranmere...............2-3
Wrexham-Reading.................0-3
Halifax-Stockport...............2-0
Torquay-York....................1-3
Æ*
Staðan
1. deild:
Ipswich eru nú jöfn að stigum en
markahlutfall Ipswich er heldur
skárra.
Q.P.R. sigraði Coventry 2-1.
Gerry Daly náði forystunni fyrir
Coventry með marki úr víta-
spyrnu. í seinni hálfleik náðu þeir
Simon Stainrod og Clive Allen að
tryggja Q.P.R. sigur, 2-1.
Hörkubarátta
í 2. deild
Önnur deildin er að dómi undirritaðs
óvenju skemmtileg í ár. Þar er að finna
mörg stórveldi sem væntanlega ætla sér
ekki að dvelja í skugganum lengi, og
vilja eiga sæti með 22 þeim bestu. Stóri
leikurinn var í Newcastle þar sem
Lundúnaliðið Chelsea var í heimsókn.
Chelsea náði forystunni á 53. mín. með
marki Dave Speedie en gamla Liver-
poolrörið, Terry McDermott, sá til þess
að Newcastle krækti í stig í leiknum.
Sem kunnugt er var Charlton forðað
frá gjaldþroti í síðustu viku. Grímsbæ-
ingar komu í heimsókn á The Valley og
áhorfendur sáu stórgóðan leik krydd-
aðan með sex mörkum. Derek Hales
kom Charlton yfir í fyrri hálfleik og
strax í upphafi þess síðari bætti ungur
nýliði, Robert Lee, við öðru marki.
Grimsby jafnaði með mörkum frá Ke-
vin Drinkell sem skallaði inn eftir
hornspyrnu og Tony Ford sem skoraði
með viðstöðulausri spyrnu. Martin Ro-
binson kom Charlton yfir en Kevin
Drinkell jafnaði með síðustu spyrnu
leiksins.
Carlisle kemur heldur betur á óvart
oger nú í hópi efstu liða. Alan Shoulder
gerði eina mark leiksins gegn Portsmo-
uth. Man City hafði eingöngu eitt stig
upp úr krafsinu gegn Brighton. Asa
Hartford kom City yfir en Tony Greal-
ish náði að jafna. Loks ber að geta sig-
urs strákanna í Swansea sem náðu
heilum þremur stigum gegn Barnsley.
Það var Chris Marustik sem skoraði
eina markið.
-AB/Húsavík
Liverpool. 18 9 4 51-22 63
Manch.Utd . 31 17 10 4 59-31 61
West Ham .31 16 6 9 52-32 54
Nottm.For .30 16 5 9 54-34 53
Southampton. . 29 15 7 7 37-25 52
Q.P.R .31 15 5 11 47-28 50
Tottenham .31 12 8 11 48-48 44
Arsenal .31 12 6 13 50-43 42
Norwich .30 11 9 10 35-32 42
Watford .30 12 5 13 57-58 41
Luton 12 5 12 42-43 41
AstonVilla .30 11 8 11 43-46 41
Coventry.... 10 9 11 39-40 39
Birmingham... .30 11 6 13 31-34 39
Everton 9 10 9 26-33 37
Sunderland.... .30 9 10 11 31-41 37
Leicester . 30 9 8 13 48-52 35
WBA .30 9 6 15 33-49 33
Ipswich .30 9 5 16 37-47 32
Stoke . 31 8 8 15 28-50 32
Wolves 5 8 17 24-59 23
NottsCo .29 5 7 17 37-59 22
Markahæstir:
lan Rush, Liverpool.............22
SteveArchibald, Tottenham.......16
Garv Lineker. Leicester 15
Paui Mariner, Arsenal.. ' ...15
Tony Woodcock, Arsenal.
2. deild:
Chelsea ..32 17 11 4 64-33 62
Sheff.Wed ..30 18 8 4 57-27 62
Newcastle 17 5 8 59-42 56
Man.City .. 31 16 8 7 49-32 56
Carlisle .. 31 15 11 5 36-19 56
Grimsby ..31 15 11 5 48-35 56
Blackburn ..30 13 12 5 40-33 51
Charlton 13 8 9 41-41 47
Leeds 12 7 11 40-39 43
Brighton 11 8 12 48-44 41
Huddersfield. ..30 10 10 10 38-38 40
Shrewsbury... ..30 10 9 11 32-38 39
Portsmouth... ..31 11 5 15 52-46 38
Cardiff ..30 12 2 16 38-46 38
Middlesbro.... ..30 9 9 12 31-32 36
Oldham ..31 10 6 15 33-52 36
Fulham 8 11 12 41-41 35
Barnsley 9 6 15 40-42 33
Cr.Palace ..30 8 8 14 31-39 32
Derby 7 7 16 27-53 28
Swansea ..32 5 6 21 26-61 21
Cambridge.... .. 31 2 8 21'21-59 14
Markahæstir:
Kevin Keegan, Newcastie..........21
Kerry Dixon, Chelsea.............18
Mike Quinn, Oldham...............17
Mark Hateley, Portsmouth.........16
3. deild:
Oxford..........32 20 6 6 66-40 66
Wimbledon.......34 18 7 9 77-61 61
Walsall.........34 18 7 9 55-45 61
Sheff.Utd.......34 17 9 8 66-42 60
Bristol R.......34 17 8 9 52-38 59
HullCity........31 15 11 5 47-26 56
4. deild:
YorkCity........33 21 6 6 69-32 69
Doncaster.......34 18 11 5 61-42 65
Reading.........35 16 11 8 65-46 59
Aldershot.......34 17 7 1 0 58-51 58
Bristol C.....34 17 6 11.51-34 57
Colchester....32 14 12 6 52-28 54
Enskar getraunir
Stig fyrir leiki á Vernons- og
Littlewoods-getraunaseðlunum sem
ekki eru á síðunni:
3 stig: nr. 41 og 46. 2 stig: nr. 38, 43,
47, 53 og 55. l>/2 stig: 49, 51 og 52.