Þjóðviljinn - 29.05.1984, Blaðsíða 4
12 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN Þriðjudagur 29. maí 1984
2. deildin f knattspyrnu:
FramherjarNjarðvíkinga
gerðu gæfumuninn
Tindastóll-Njarð vík 0-2
Sprækir framherjar Njarvík-
inga, Haukur Jóhannsson og
Jón Halldórsson, gerðu gæfu-
munin fyrir sunnanmenn í þess-
um fyrsta 2. deildarleik á
Sauðárkróki á laugardaginn.
Hefðu þeir verið í Tindastóls-
búningnum hefðu úrslitin sjálf-
sagt snúist við.
Þetta var barningsleikur og fá
marktækifæri. Sérílagi var
framlína Tindasóls dauf og
skapaði sér aðeins eitt færi,
Sigurfinnur Sigurjónsson fékk
góðan stungubolta seint í fyrri
hálfleik en skaut framhjá.
Á 10. mínútu seinni hálfleiks
tók Jón Halldórsson horn-
spymu og Haukur Jóhannsson
afgreiddi boltann snyrtilega í
mark Tindastóls, 0-1. Síðara
markið gerði Haukur síðan á
82. mínútu eftir fyrirgjöf Freys
Sverrissonar. Eitt færi umtals-
vert fengu Njarðvíkingar að
auki, komust þá inní sendingu
til Gísla Sigurðssonar mark-
varðar en Gísli náði að bjarga
vel.
Framherjar Njarvíkur,
Haukur og Jón reyndust nettari
í rokinu og höfðu meiri tilfinn-
ingu fyrir því sem þeir voru að
gera. Auk þeirra lék ólafur
Björnsson vel. Eskfirðingurinn
Grétar Ævarsson lék sem
„sweeper“ hjá Tindastól og var
áberandi besti maður liðsins.
Slæm byrjun hjá Tindastóli en á
næstu dögum kemur góður liðs-
auki, nokkrir leikmenn eru að
klára skóla fyrir sunnan, þannig
að úr getur ræst.
-PS/Sauðárkróki
Víðir-Völsungur 1-0
Glæsiskalli Klemens Sæm-
undssonar á 35. minútu tryggði
Vfði sigur á Húsvíkingum á gra-
svellinum í Garði á laugardag-
inn. Grétar Einarsson gaf góða
sendingu inná markteig þar sem
Klemens stökk upp og skallaði í
netið, óverjandi fyrir Gunnar
Straumland markvörð Völs-
ungs.
BJörn Jónsson skoraöl sigurmark
Skallagrlms gegn Einherja.
á 27. mínútu, glæsilega, og skalla
Garðars Jónssonar eftir horn á 30.
mínútu, mjög vel. Einherjar kom-
ust ekkert áleiðis þar til í byrjun
seinni hálfleiks er þeir voru frískir í
tíu mínútur. Ógnun þeirra var þó
takmmörkuð, háar sendingar inní
vítateig Borgnesinga sem Kristinn
Amarson markvörður og vamar-
menn hans hirtu af öryggi.
Á 74. mínútu skallaði Garðar í
þverslá Einherjamarksins og mark
lá í loftinu, enda kom úrslitamark-
ið þremur mínútum síðar. Björn
Axelsson tók homspyrnu og nafni
hans Jónsson gnæfði yfir alla og
skoraði með laglegum skalla, 1-0.
Gunnar Orrason komst einn
innfyrir Einherjavömina mínútu
síðar en á óskiljanlegan hátt fram-
hjá og á lokamínútunni átti Jóhann
P. Sturluson ágætt skot sem
Hreiðar varði glæsilega. Úrslit 1-0,
sigur í minnsta lagi.
Lið Skallagríms var jafnt og allir
áttu góðan dag, Björn Jónsson var
mest áberandi. Hreiðar var lang-
bestur í liði Einherja en lærisveinar
hans vom slakir í heildina.
-VH/Borgarnesi
ÍBI-FH 0-2
Það tók bæði lið nokkra stund að
laga sig að aðstæðum á ísafirði á
laugardaginn, hörðum malarvelli
og sterkum vindi. FH lék undan
næðingnum í fyrri hálfleik og var
meira með boltann framan af. Á
20. mínútu ætlaði Pálmi Jónsson að
senda fyrir ísafjarðarmarkið en
með dyggum stuðningi Kára gamla
sveigði knötturinn af leið og hafn-
aði í bláhorni Isafjarðarmarksins,
fjær, 0-1 fyrir FH.
Eftir markið jafnaðist leikurinn
og liðin sóttu til skiptis. Tíðinda-
lítið var þó langt fram í síðari hálf-
leik. Þá vom ísfirðingar komnir
með vindinn í bakið og famir að
sækja meira.
Á 73. mínútu fengu heimamenn
síðan vítaspyrnu. Jóhann Torfason
skaut, á mitt markið en Halldór
Halldórsson, markvörður FH, sem
hafði kastað sér til hliðar, varði
með tánum! Strax á eftir þmmaði
Atli Einarsson naumlega framhjá
FH-markinu og mikill handa-
gangur var í öskjunni en leikur ÍBÍ
datt samt greinilega mikið niður
við þennán vítamissi. Tíu mínútum
fyrir leikslok var síðan dæmd vafa-
söm aukaspyma á ÍBÍ. Sent fyrir
og Ingi Björn Albertsson þjálfari
FH reis hæst og skallaði í netið.
0-2.
Þetta var aðeins fjórði leikur ís-
firðinga saman með fullskipuðu
liði á árinu en framfarimar em
greinilegar milli leikja. Miðvörður-
inn Benedikt Einarsson bar af í liði
‘þeirra og Jóhann lék vel. Lið FH
var jafnt, góð blanda af yngri og
eldri leikmönnum hjá Hafnfirðing-
um og þeir leika mjög vel og yfir-
vegað. Gætu farið mjög langt í 2.
deildinni í sumar.
-GK/ísafirði
Leik ÍBV og KS sem fara átti
fram í Vestmannaeyjum var frest-
að.
Gleði og
sorg N.lra
Norður-írar urðu sigurveg-
arar í síðustu bresku meistara-
keppninni í knattspyrnu á
laugardaginn er England og
Skotland skildu jöfn, 1-1, í
Glasgow. Mark McGhee
skoraði fyrir Skota en Tony
Woodcock jafnaði fyrir Eng-
lendinga. Norður-írar sigruðu
á markatölu en allar þjóðirnar
fjórar fengu 3 stig. Á sunnudag
léku Norður-írar svo við Finna í
Helsinki í undankeppni HM en
biðu óvæntan sigur, 1-0.
Víkingur og
Vaskur unnu
Vaskur vann Vorboðann 4-2 í
1. umferð bikarkeppni KSÍ á
föstudagskvöldið. Leikurinn
fór fram á KA-vellinum á Akur-
eyri. Vaskur fær 2. dcildarlið
KS f heimsókn í 2. umferð. Vfk-
ingur Ólafsvík náði að sigra Ár-
vakur 1-0 á Háskólavelli á
fimmtudagskvöldið. Magnús
Teitsson skoraði sigurmark
Ólsara sem leika við Leikni
Reykjavík á útivelli f 2. umferð.
Fjórir leik-
ir í kvöid
Fjórir leikir eru á dagskrá f 2.
deildinni í knattspyrnu f kvöld
og hefjast þeir allir kl. 20.
Skallagrímur og ÍBV leika f
Borgarnesi, Völsungur og Tind-
astóll á Húsavfk, Njarðvík og
ÍBK f Njarðvfk og KS-Vfðir á
Siglufirði.
3. deildin í knattspyrnu
Markvörður Magna
skoraði öðru sinni!
Þrátt fyrir nóg af góðum tæki-
fæmm tókst Víðispiltunum
ekki að skora fleiri mörk.
Minnstu munaði þó er Guð-
mundur Jens Knútsson var í
góðu færi en knötturinn small í
marksúlunni. Bæði lið sýndu
mjög góða knattspyrnu en sam-
leikur Víðismanna var virkari
en Völsunga. Víðir átti meira í
leiknum ef undanskilinn ér kafli
í byrjun seinni hálfleiks er norð-
anmenn sóttu mjög fast en
traust Víðisvörn og markvörð-
ur hrintu öllum áhlaupum.
Guðmundur Jens var einna
bestur í jöfnu Víðisliði en
Guðni Arason og Jónas Hall-
grímsson vam bestir Húsvík-
inga. Róbert Jónsson dæmdi
leikinn ágætlega.
-SM/Suður nesj um
Skallagnmur-Einherji 1-0
Það var nánast eitt lið á vellinum
f Borgarnesi, heimamenn sóttu all-
an leikinn og voru ógnandi við
V opnaQ arðarmarkið frá fyrstu
mfnútu tU hinnar síðustu.
Jóhann Hákonarson gaf tóninn
strax á 2. mínútu er þrumufleygur
hans af 40 m færi sleikti vinkilinn.
Hreiðar Sigtiyggsson, markvörður
og þjálfari Einherja sýndi stórleik
og varði vel hvað eftir annað. Hjól-
hestaspymu frá Gunnari Orrasyni
SV-riðill
ÍK-Víkingur Ó. 1-3
Jafn leikur og í jámum þar til
Orri Hlöðversson kom ÍK yfir með
góðu marki á 10. mínútu síðari
hálfleiks. Þá tóku Ólafsvíkingar öll
völd og þjálfari þeirra, Magnús
Teitsson, jafnaði skömmu síðar.
Halldór Gíslason kom Víkingum
yfir og Magnús skoraði síðan öðm
sinni og tryggði sínum mönnum
þrjú stig. Góð byrjun vestanmanna
í ár og þeir em til alls líklegir.
Selfoss-Grindavík 1-0
Þófkenndur leikur og ekki mikið
fyrir augað. Selfyssingar vom áber-
andi sterkari aðilinn en Grindvík-
ingar börðust vel. Láms Jónsson
skoraði eina markið eftir rúmt
korter, potaði þá boltanum í netið
af tveggja metra færi eftir horns-
pymu.
Reynir S.-Stjaman 1-0
Skúli Jónsson markvörður
Reynis hélt sínum mönnum á floti
með frábærri markvörslu og Júlíus
Jónsson var sterkur sem fyrr í vöm-
inni. Ómar Bjömsson skoraði
sigurmarkið strax á 11. mínútu eftir
sendingu Sigurðar Guðnasonar.
Stjaman, með Ragnar Gíslason
sem besta mann, átti mörg mjög
góð færi en Skúli var óyfirstíganleg
hindmn. —SM/Suðurnesjum
Magnús Teltsson skoraðl tvfvegls
fyrir Ólafsvíklnga.
Snæfell-Fylkir 0-4
Mikið jafnræði ríkti í heilan
klukkutíma í Stykkishólmi á sunn-
udaginn. Sævar Geir Gunnleifsson
var rétt búinn að koma Snæfelli yfir
í upphafi síðari hálfleiks er hann
skaut í stöng. Á 61. mínútu skoraði
Brynjar Jóhannsson úr vítaspymu
fyrir Fylki. Það lét hann ekki duga,
heldur bætti við mörkum á 71. og
84. mínútu og Anton Jakobsson
rak síðan endahnútinn á sigur Ár-
bæinga emð marki eftir þvögu á 87.
mínútu.
-gsm/Stykkishólmi
Staðan:
Fylklr , VÍKIngurÓ ReynirS 2 2 0 0 7-0 6 2 110 4-24 2 110 2-14
2 10 15-23
Selfoss 1 10 0 1-03
2 0 112-31
2 0 112-61
HV
ÍK 2 0 0 2 1-6 0
Markahæstur.
Brynjar Jóhannsson, Fylkl......3
NA-riðill
Leiftur-Magni 1-1
Það er alltaf lygilegt þegar mark-
vörður skorar beint úr útsparki en
þegar sá sami gerir það tvo leiki í
röð...ja, hvað er þá hægt að segja?
Logi Einarsson markvörður
Magna lék þann leik í fyrsta
leiknum á Reyðarfirði og á laugar-
daginn þmmaði hann yfir allan
völlinn á Ólafsfirði á 60. mínútu
leiksins, boltinn sveif undan vind-
inum og skoppaði yfir markvörð
heimamanna og í netið, 0-1!
Leiftur var búið að sækja látlaust
allan fyrri hálfleik og hélt sínu
striki í seinni hálfleik en markið
kom ekki fyrr en korter var til
leiksloka. Geirharður Ágústsson
var þar að verki með hörkuskoti
útvið stöng, 1-1.
Þróttur M.-Huginn 2-2
Sanngjöm úrslit í Neskaupstað
og frískir Seyðfirðingar komu
nokkuð á óvart. Öll mörkin komu í
seinni hálfleik, Kristján Kristjáns-
son skoraði fyrir Þrótt á 55. mínútu
en Hilmar Sigurðsson jafnaði
þremur mínútum síðar. Guðmund-
ur Ingvason kom Þrótti yfir á ný en
Þorsteinn, „Sotti“, bakvörður náði
að jafna fyrir Hugin þegar fimm
mínútur vom til leiksloka.
Austri-HSÞ.b 1-1
Fremur daufur leikur á Eskifirði
á sunnudaginn og jafnræði með lið-
unum. Austramenn ollu nokkmm
vonbrigðum en náðu forystu eftir
32 mínútur þegar Sigurjón Krist-
jánsson stakk sér innfyrir vöm Mý-
vetninga og skoraði. Gestimir
jöfnuðu uppúr þvögu um miþjan
síðari hálfleik, Þórhallur Guð-
mundsson, og lokatölurnar því 1-1.
Staðan
Magni.................2 110 3-14
Huglnn................1 0 1 0 2-2 1
ÞrótturN..............1 0 10 2-21
HSÞb..................1 0 10 1-11
Austrl................1 0 10 1-11
Leiftur...............1 0 10 1-11
ValurRF...............1 0 0 10-20
Markahastun
Logi Elnarsaon, Magna............2
-VS