Þjóðviljinn - 25.10.1984, Síða 6
MENNING
Blaðburðarfólk \ G. ress?
Ef þúert niorounhi
Hafðu þá samband við afgreiðslu Þjoðviljans, sími 8 13 33
Laus hverfí:
Fossvogur Kaplaskj óls vegur Skerjafjörður Háteigsvegur Asahverfí
Það bætir heilsu ( að bera út Þjóðvi hag Jjann
l VOÐV/Um 1
Betra blað
MFA
Félagsmálaskóli alþýðu
1. önn 11.-24. nóvember.
1. önn verður haldin í Félagsmálaskóla alþýðu
dagana 11.-24. nóvember, í Ölfusborgum.
Viðfangsefni annarinnar er einkum eftirfarandi:
Félags- og fundarstörf, ræðumennska, framsögn,
skipulag og starfshættir ASÍ, vinnuréttur, stefnuyfirlýs-
ing ASI hópefli (leiðbeining í hópvinnu), og þættir úr
félagsfræði og hagfræði.
Námsstarfið fer fram í fyrirlestrum, hópvinnu og al-
mennum umræðum. Flesta daga er unnið frá kl. 8.30
- 18.30 með hléum. Nokkur kvöld á meðan skólinn
starfar verða menningardagskrár, listkynningar, upp-
lestur og skemmtanir.
Félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eiga rétt á skólavist í
Félagsmálaskólanum. Hámarksfjöldi á önninni er 25.
Umsóknir um skólavist þurfa að berast skrifstofu MFA
fyrir 7. nóvember nk. Nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu MFA Grensásvegi 16, sími 84233.
Menningar- og fræðslusamband alþýðu
Laus staða
hjúkrunarforstjóra við dvalarheimilið Hlíð og Skjaldar-
vík, Akureyri.
Staða þessi er ný og veitist frá 1. janúar 1985 eða eftir
nánarasamkomulagi. Hjúkrunarmenntun áskilin. Um-
sóknarfrestur er til 1. deseber 1984. Skriflegar um-
sóknir sendist stjórn dvalarheimilanna Geislagötu 9,
Akureyri.
Nánari upplýsingar veita formaður stjórnar dvalar-
heimilanna Svava Aradóttir hjúkrunarfræðingur sími
96-22456 og 96-22100 og Jón Kristinsson forstöðu-
maður sími 96-22860.
Aðalfundur Landverndar
verður haldinn í Munaðarnesi 10. og 11. nóvember
1984.
Auk aðalfundarstarfa verða framsöguræður og um-
ræður um viðfangsefni og starfshætti náttúruverndar-
samtaka.
Aðildarfélög tilkynni þátttöku á skrifstofu Landverndar
fyrir 1. nóvember n.k.
Stjórn Landverndar
Atli Magnússon umsjónarmaður með útgáfu lúðrasveitabókarinnar. Eiríkur Rósberg formaður SlL og Leó E. Löve
framkvæmdastjóri fsafoldarprentsmiðju. Þeir halda á bókinni sem unnið hefur verið að í 5 ár og nú er komin í verslanir.
Mynd-eik.
Myndskreytt saga
lúðrasveita
Bókin „Skœrt lúðrar hljóma" komin út. Geysileg vinna
og upp úr grjótinu, segir umsjónarmaður útgófunnar.
Hvað væru hátíðir og skrúð-
göngur án lúðrasveita? sagði
Eiríkur Rósberg formaður Sam-
bands íslenskra lúðrasveita við
útkomu bókarinnar „Skært lúðrar
hljóma", sem er saga lúðrasveita
á íslandi.
Fyrsti lúðraflokkurinn á ís-
landi var stofnaður fyrir 108
árum. í bókinni segir frá starfi
lúðrasveita á 22 stöðum á
landinu. Kom í Ijós að fleiri
lúðraflokkar hafa starfað hér en
menn héldu. Þeir voru jafnframt
fyrstu hljómsveitirnar á íslandi. í
„Skært lúðrar hljórna" er mikill
fjöldi mynda af föngulegum blás-
urum sem allir eru nafngreindir.
20 menn skrifuðu í bókina um
sínar lúðrasveitir. Um aðra
lúðraflokka skrifaði Atli
Magnússon sem er umsjónar-
maður með útgáfunni.
Bókin er unnin að frumkvæði
Sambands íslenskra lúðrasveita
og kostuðu sveitirnar það starf.
ísafoldarprentsmiðja hf gefur
bókina út ásamt SÍL. „Skært
lúðrar hljóma“ mun kosta 1198
krónur út úr búð.
Atli Magnússon hefur unnið að
útgáfu bókarinnar í 5 ár. Hann
safnaði saman ritgerðunum og
skrifaði allmargar sjálfur. Einnig
aflaði hann myndanna, sem eru
180 talsins, og tókst að ná
nöfnum allra einstaklinga á þeim.
„Þetta var geysilega ntikil vinna
og alveg upp úr grjótinu“, sagði
Atli blaðamaður og blásari með
meiru. -jp
Ragnar Stefánsson
Hafnarveriramenn
styðja verkfall BSRB
Óhœfa að stimpla stéttina,
vegna nokkurra bráðlátra stráka íSundahöfn.
í yfirlitsgrein um BSRB-
verkfallið í Þjóðviljanum á
þriðjudaginn fannst mér mjög
hallða á hafnarverkamenn þegr
lýst var atburðunum sem urðu í
Sundahöfn föstudaginn 19. októ-
ber síðastliðinn. Mætti skilja af
greininni að hafnarverkamenn
hafi almennt verið ándvígir verk-
fallinu.
Hið rétta er að nokkrir strákar
úr hópi hafnarverkamanna tóku
þátt í aðsúg að verkfallsvörðum.
Með þessum strákum gengu
menn úr öðrum starfsstéttum
einnig hart fram og skal þar sér-
staklega nefndur stýrimaður
nokkur sem böðlaðist þarna um á
gráum Saab. Enginn mundi
stimpla alla stýrimenn fyrir það.
Sagt er í greininni að Guðm-
undi J. hafi tekist að firra frekari
slag. Hið rétta er að þegar Guð-
mundur J. kom var komin á alger
ró. Það sem Guðmundur J. gerði
var að veita þau vilyrði fyrir
•Ragnar Stefánsson
er jarðskjálftafræðingur hjá
Veðurstofu. Hann er einn fjöl-
margra verkfallsvarða BSRB.
stuðningi Dagsbrúnar sem nægðu
stjórn BSRB sem trygging svo að
hún leyfði að skipin yrðu bundin.
Verkfallsstjórn BSRB hafði
lengi lýst því yfir að hún hefði
ekkert á móti því að skipin yrðu
bundin ef skipafélögin lýstu því
yfir að ekki yrði skipað uppúr
þeim. Skipafélögin tregðuðust
við, sérstaklega Eimskip. Það
voru skipafélögin sem héldu sjó-
mönnum úti á ytri höfninni
lengur en nauðsynlegt var.
Þá tryggingu sem skipafélögin
vildu ekki veita veittu hins vegar
hafnarverkamenn sjálfir og
stjórn Dagsbrúnar.
Hjá hafnarverkamönnum í
Sundahöfn sem annars staðar
hafa verkfallsverðir mætt miklum
stuðningi og mikilli samstöðu.
Sumir strákanna sem voru að
tuddast þarna á föstudaginn hafa
viðurkennt að það hafi byggst á
misskilningi og bráðræði.
Hjá forystumönnum Eimskips
höfum við hins vegar mætt hroka
og ógnunum.
Ragnar Stefánsson
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 25. október 1984