Þjóðviljinn - 15.01.1985, Page 3
IÞROTTIR
Diego Maradona lék frá miðju og skoraði.
Ítalía
Maradona með
glæsimark
Diego Maradona er loksins að ná sér á strik í
itölsku knattspyrnunni. Á sunnudaginn skoraði
hann fyrir Napoli, annan leikinn í röð, og það
dugði til 1-0 útisigurs gegn Fiorentina. Tíundi
leikur Fiorentina í röð án sigurs.
Á 48. mínútu leiksins fékk Maradona boltann á
miðju. Hann lék á hvern varnarmanninn á fætur
öðrum og skoraði glæsilegt mark. Annar sigur
Napoli í röð og liðið er nú komið af mesta hættu-
svæðinu.
Verona tapaði í fyrsta skipti, í 15. leik, 2-1 fyrir
Avellino. Liðið er þó áfram efst því Inter Milano
náði aðeins jafntefli, 1-1, gegn Ascoli, og Torino
tapaði 1-0 fyrir AS Roma. Þar gerði Roberto
Pruzzo sigurmarkið og Roma er komið í hóp efstu
liða eftir slæma byrjun - lék þarna sinn 10. Ieik í
röð án taps. Sampdoria hélt jöfnu, 0-0, gegn Atl-
anta á útivelli en AC Milano tapaði óvænt heima
fyrir Como, 0-2. Hætta þurfti leik Juventus og
Lazio eftir 20 mínútur þar sem snjóbylur einn
allharður skall á fyrirvaralaust. Verona er með 22
stig, Inter 21, Torino 20, Roma og Sampdoria 19.
-VS
Spánn
Barcelona með
8 stiga forskot
Englendingurinn Terry Venables er langt komin
með að gera Barcelona að spænskum meisturum í
knattspyrnu. Barcelona burstaði Elche 4-0 um
helgina að viðstöddum 75 þúsund áhorfendum og
er komið með átta stiga forskot á Real Madrid sem
gerði 1-1 jafntefli við Real Valladolid á útivelli.
Bernd Schuster og Steve Archibald voru meðal
markaskorara Barcelona.
f Portúgal stendur Porto áfram best að vígi eftir
3-0 sigur á Rio Ave. Markakóngurinn Gomez
gerði tvö markanna. Porto er efst, jafnt Sporting
Lissabon að stigum en með betri markatölu. Ben-
fica er tveimur stigum á eftir, í þriðja sæti, og vann
Varzim 5-1 um helgina. Nene gerði tvö markanna.
________-VS_
Körfubolti
Körfuboltaáhugamenn á höfuðborgarsvæðinu
geta valið milli þriggja leikja í kvöld, á þremur
stöðum. KI. 20 hefst í íþróttahúsi Kennaraháskól-
ans leikur ÍS og KR í bikarkeppni meistaraflokks
karla. Kl. 21 mætast ÍR og Haukar í úrvals-
deildinni og fer sá leikur fram í Seljaskóla og í
Hagaskólanum leika tvö efstu lið 1. deildar karla,
Fram og ÍBK, mjög þýðingarmikinn leik. Hann
hefst kl. 21.30.
Reykjanes
FH meistari
FH-ingar urðu um helgina Reykjanesmeistarar í
innanhússknattspyrnu en mótið var haldið í
íþróttahúsinu í Njarðvík. Alls tóku 28 lið þátt í
mótinu, sem stóð yflr allan laugardag og sunnu-
dag, og var þeim skipt í 7 riðla.
Körfubolti - úrvalsdeild
Skemmtilegt en köf lótt
þegar KR sigraði Val
Spennandi ílokin en KR vann 78-75
Það var mikil spenna undir lok
leiks Vals og KR á sunnudags-
kvöldið í Seljaskóla. Þegar 4 mín.
voru eftir var staðan 61-73, fyrir
KR, en 2 mín. síðar var staðan
orðin 71-73. Þessi kafli dugði
Valsmönnum ekki því KR-ingar
áttu næsta kafla og svöruðu með 5
stigum. Á síðustu mínútunni
skoruðu Valsmenn 4 stig og
klúðruðu auk þess dauðafærum á
óskiljanlegan hátt, þannig að KR
stóð uppi sem sigurvegari, loka-
staðan 75-78.
Byrjun leiksins var mjög góð
og eftir aðeins 3 mín. var staðan
orðin 8-9. Mikill hraði og opið
spil. Þá byrjuðu sveiflurnar, KR-
ingar notfærðu sér lélegan kafla
Valsmanna og náðu 11 stiga for-
ystu, 14-25. Valsmenn drifnir
áfram af Jóhannesi Magnússyni
áttu næsta góða kafla og
minnkuðu muninn í 1 stig, 26-27.
Þá var það aftur KR og juku þeir
aðeins muninn fyrir leikhlé í 39-
45.
Valsmenn mættu ákveðnir
eftir hlé og eftir 5 mín. höfðu þeir
jafnað og komist yfir 53-51. Þá
fóru villuvandræði að hafa áhrif á
þá. Jóhannes fékk sína 4. villu þá
og Kristján Ágústsson og Einar
Olafsson stuttu síðar. Valsmenn
léku illa og létu dómgæsluna fara
í taugarnar á sér. Birgir Mikaels-
son komst m.a. inn f 3 sendingar
sem gáfu körfur og náðu KR-
ingar 12 stiga mun 61-73. Lokum
leiksins hefur verið lýst, en þar
áttu Valsmenn góðan kafla,
vörnin sterk á meðan allt var í
rúst hjá KR-ingum, sem lögðu
heldur mikla áherslu á að halda
boltanum sem lengst og lá við að
þeir féllu á því.
Leikurinn var nokkuð
skemmtilegur, en of sveiflu-
kenndur og með of mörgum mis-
tökum til að geta talist góður.
Það hlýtur að vera áhyggjuefni
hjá báðum liðunum að þrátt fyrir
ljómandi kafla á milli geti þau
spilað jafn hörmulega og raun
ber vitni á næstu mínútu.
Hjá Valsmönnum var Jóhann-
es bestur og hefur ekki oft verið
betri á sínum langa ferli. Hann
lenti þó í villuvandræðum og fékk
5. villuna þegar staðan var 71-73.
Aðrir voru svipaðir að getu, en
bakverðirnir gerðu sig seka um
heldur mörg mistök.
Hjá KR var Guðni Guðnason
bestur í jöfnu liði og virðist hann
kunna vel við að spila á móti Val.
Þá voru þeir Ástþór Ingason og
Birgir M. einnig góðir.
Stig KR: Guöni 22, Ólafur Guömunds-
son 14, Birgir M. 10, Þorsteinn Gunnars-
son 10, Matthías Einarsson 8, Jón Sig-
urðsson 6, Ástþór 4 og Birgir Jóhannsson
4.
Stig Vals: Jóhannes 17, Tómas Holton
13, Jón Steingrimsson 10, Kristján 10, Tor-
fi Magnússon 9, Einar 4, Björn Zoéga 4,
Páll Arnar 4, Sigurður Bjarnason 2 og
Leifur Gústafsson 2.
Dómarar voru Bob Iliff og Sig-
urður Valur og voru þeir sam-
kvæmir sjálfum sér allan leikinn
og höfðu góð tök á honum. Blæ-
brigðamunur er þó á dómgæslu
Bretans og íslensku dómaranna.
-gsm
Ivar Webster var stigahæstur
Haukanna gegn ÍS.
Körfubolti
Besti
leikur
ÍS
Tapaði 85-77 fyrir
Haukum í Firðinum
Körfubolti - úrvalsdeild
Lauflétt í Njarðvík
Mestur munur32 stig og UMFN vann ÍR102-73
Njarðvíkingar fóru leikandi
létt með ÍR-inga í Njarðvík á
föstudagskvöldið. Þeir voru
kornnir í 10-1 eftir örskamma
stund og það var vísbending um
að hverju stefndi. I hálfleiknum
munaði 26 stigum, 58-32, og
mestur var munurinn 32 stig, 73-
41. ÍR tök þá kipp og lagaði
stöðuna í 75-56 en lokatölur urðu
102-73, stórsigur UMFN.
Lið Njarðvíkinga var jafnt og
sterkt. Arni Lárusson átti mjög
góðan leik, sem og fsak Tómas-
son. Valur Ingimundarson
skoraði mest að vanda en var þó
langtímum saman utan vallar.
Teitur Örlygsson gerði góða hluti
Kristján Rafnsson.
Krístján í
Breiðablik
Kristján Rafnsson, sem hefur
verið einn sterkari leikmanna
KR-inga í körfuknattleik undan-
farin ár, er hættur hjá Vestur-
bæjarliðinu og hefur gengið yfir í
raðir Breiðabliksmanna í Kópa-
vogi sem leika í 2. deild. Blikarnir
ættu með því að eiga aukna
möguleika á 1. deildarsæti en flest
bendir til að þeir komist í úrslita-
keppni 2. deildar.
gsm/VS
þann skamma tíma sem hann var
inná.
Gylfi Þorkelsson var langbest-
ur ÍR-inga en liðsheildin hjá þeim
var reglulega slök.
Stig UMFN: Valur 21, Isak 17, Árni 16,
Gunnar Þorvaröarson 15, Teitur örlygs-
son 9, Jónas Jóhannesso.i 8, Hreiöar
Hreiðarsson 6, Ellert Magnússon 6, Hafþór
Botnlið Hibernian kom mjög á
óvart með því að sigra Rangers
2-1 á útivelli í skosku úrvals-
deildinni í knattspyrnu á laugar-
daginn. Hibs hafði aðeins fengið
eitt stig úr síðustu 7 leikjunum en
náði forystu er Brian Rice skoraði
á 8. mínútu. Ian Ferguson jafnaði
en varamaðurinn Colin Harris
tryggði Hibs sigur.
Aberdeen burstaði Morton, 5-
0. Mitchell, Weir, McDougall,
Cooper og Terrin skoruðu mörk-
in. Hearts tapaði 0-1 fyrir
St.Mirren en tveimur leikjum var
frestað. Staðan í úrvalsdeildinni
eru þessi:
Aberdeen.....23 17 3 3 52-16 37
Celtic.......21 13 5 3 48-20 31
Rangers......23 9 10 4 30-18 28
Óskarsson 4 og Helgi Rafnsson 2.
Stig ÍR: Gylfi 24, Hreinn Þorkelsson 13,
Karl Guðlaugsson 9, Ragnar Tofason 9,
Björn Steffensen 9, Hjörtur Oddsson 5 og
Vignir Hilmarsson 4.
Bob Iliff og Jón Otti Ólafsson
dæmdu leikinn vel.
-SÓM/Suðurnesjum
DundeeUtd ... ... 22 11 4 7 38-25 26
St.Mirren ... 23 11 3 9 29-34 25
Hearts ...23 10 2 11 29-36 22
Dundee ...22 6 5 11 29-34 17
Dumbarton.... ... 22 5 6 11 24-34 16
Hibernian ... 23 4 5 14 20-41 13
Morton ... 23 4 1 17 21-62 9
Haukastúlkurnar lentu í vand-
ræðum með botnlið Njarðvíkinga
í 1. deild kvenna í Hafnarfirði í
fyrrakvöld. Aðeins þrjú stig
skildu liðin í lokin, Haukar sig-
ruðu 49-46 og eru þar með jafnir
Besti leikur Stúdenta í úrvals-
deildinni í vetur dugði þeim ekki til
sigurs gegn Haukum er liðin mættust í
íþróttahúsinu í Hafnarfirði á sunnu-
dagskvöldið. Átta stig skildu liðin að í
lokin, 85-77 eftir að Haukarnir höfðu
verið yfir í hálfleik, 40-30.
Haukárnir náðu fljótlega undir-
tökunum, komust í 26-13 og undir lok
hálfleiksins í 38-22 en ÍS náði að laga
stöðuna í 40-30 fyrir hlé. Munurinn
hélst síðan svipaður út síðari hálf-
leikinn og sigur Hauka komst aldrei í
hættu.
Pálmar Sigurðsson stjómaði spili
Haukanna mjög vel og Ivar Webster
var grimmur undir körfunni. Nýlið-
inn Ivar Ásgrímsson komst einnig
mjög vel frá leiknum.
Lið ÍS var mjög jafnt, sóknarleikur
liðsins var mun beittari en í undan-
förnum leikjum og vörnin var þokka-
Ieg lengst af. Jón Indriðason var í
miklu stuði og skoraði fjórar þriggja
stiga körfur.
Stig Hauka: Ivar W. 20, Ivar Ásgríms-
son 18, Pálmar 15, Ólafur Rafnsson 11,
Henning Henningsson 10, Eyþór Árnason
og Reynir Kristjánsson 4.
Stig (S: Guðmundur Jóhannsson 20,
Jón Indriðason 18, Árni Guðmundsson 13,
Heigi Gústafsson 9, Karl Ólafsson 7, Eirík-
ur Jóhannesson 6, Ragnar Bjartmarz 4.
-Frosti
Staðan
í urvalsdeildinni í körfuknattleik eftir
leiki helgarinnar:
Njarövík..... 12 11 1 1098- 888 22
Haukar....... 12 9 3 998- 904 18
KR........... 13 7 6 1068-1018 14
Valur........ 12 6 6 1055-1016 12
ÍR........... 12 3 9 893-1001 6
(S........... 13 1 12 929-1214 2
Stigahæstir:
Valur Ingimundarson, Njarðvík....300
IvarWebster, Haukum..............242
Pálmar Sigurösson, Haukum........242
GuðniGuönason, KR.................239
GuðmundurJóhannsson, fS..........224
ÁrniGuðmundsson, (S...............204
Birgir Mikaelsson, KR.............198
ÓlafurGuðmundsson, KR.............190
TómasHolton, Val..................189
KristjánÁgústsson, Val............184
Hreinn Þorkelsson, |R............170
Torfi Magnússon, Val..............166
Gylfi Þorkelsson, |R.............161
IsakTómasson, Njarðvík...........155
Jón Steingrímsson, Val............142
KR á toppnum. Staðan í deild
er þessi:
KR..................9 7 2 429-352 14
Haukar..............9 7 2 369-333 14
IS..................9 4 5 401-340 8
IR..................9 4 5 318-336 8
Njarðvík............8 0 8 211-377 0
Körfubolti
Grindavík úr
mestu hættunni
Grindvíkingar eru komnir
úr mestu fallhættunni í 1.
deild karla eftir góðan sigur á
Reyni Sandgerði á laugardag-
inn, 59-56, í Njarðvík.
Keflvíkingar unnu síðan stór-
sigur á botnliði Laugdæla á
Seifossi á sunnudaginn, 102-
47, og hafa fjögurra stiga for-
skot. Staðan í 1. deild er þessi:
Keflavlk.
Fram....
ReynirS
ÞórAk...
Grindavik
Laugdælir
.10 9 1 903-665 18
• 9 7 2 743-532 14
. 12 6 6 866-892 12
.8 4 4 614-630 8
.8 2 6 540-618 4
.9 0 9 437-766 0
Skotland
Ovænt tap Rangers
Stórsigur Aberdeen
-ab/VS
Körfubolti
Naumt hjá Haukum
10 S^ÐA ~ ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 15. janúar 1985
IÞROTTIR
FH-ingar
Badminton
Byrjunin hjá okkur kostaði gífurlegtþrek, sagði Kristján Arason
Ekki hœgt að leyfa sér að slaka á eftirl5 mínútur, íEvrópuleik, sagði Guðmundur Magnússon
Frost
Dönsku dómararnir Leif
Eliasen og Palle Thomasen voru
frekar mistækir.
-VS
Jón Erling Ragnarsson átti góðan leik gegn Herschi og hér skorar hann eitt marka FH. Mynd: -eik.
Júdó
Akureyringar fjöl-
mennir og sigursælir
Akureyringar voru bæði fjöl-
mennir og sigursælir á meistara-
móti drengja í júdó sem fram fór í
íþróttahúsi Kennaraháskólans á
laugardaginn. Þeir áttu 21 kepp-
anda af 78 sem mættu til leiks og
flugu heim með sex gullverðlaun
af átta. Þeir áttu að auki mann
númer tvö í fjórum flokkum og
númer þrjú í tveimur.
Keppt var í þremur aldurs-
flokkum og í tveimur til þremur
þyngdarflokkum innan þeirra.
Sigurvegarar í flokki 9-10 ára
voru Júlíus Árnason, ÍBA, og
Haukur Garðarsson, Ármanni, í
flokki 11-12 ára Jón Ó. Ámason,
Gauti Sigmundsson og Vern-
harður Þorleifsson, allir úr ÍBA,
og í flokki 13-14 ára sigruðu þeir
Baldur Stefánsson, ÍBA, Eiríkur
Kristinsson, Ármanni, og Karl
Jónsson, ÍBA.
Keppendur voru frá 6 félögum,
ÍBA, Á rmanni, Gerplu, Júdófé-
lagi Reykjavíkur, UMFG og
UMFK.
-VS
tapaði í
Hong Kong
Kínverjum gekk vel á fyrsta
„Grand-Prix“ móti ársins í bad-
minton sem lauk í Hong Kong um
helgina. Jang-Jang kom nokkuð
á óvart með því að sigra Danann
Morten Frost 15-10 og 15-11 í úrs-
litum í einliðaleik karla og kín-
versku stúlkurnar sigruðu í
einliða- og tvfliðaleik kvenna.
Danir náðu í sigurvegarana í tví-
liðaleik karla, þar sigruðu þeir
Jan Helledie og Steen Fladberg.
X - -vs
að Sveinn Bragason, sem var að
komast í form eftir langvinnandi
meiðsli, sneri sig á síðustu æfing-
unni og gat ekki leikið með.
Pálma Jónssonar Svíafara var
sárt saknað og kom það best fram
í því að FH skoraði úr aðeins
tveimur hraðaupphlaupum í
leiknum. Öðruvísi mér áður brá.
Haraldur Ragnarsson lék mjög
vel í markinu og hélt liðinu á floti
á verstu köflunum. Kristján Ara-
son og Hans Guðmundsson voru
drjúgir en köflóttir. Jón Erling
Ragnarsson komst best frá
leiknum af útispilurunum, lék vel
í vinstra horninu, og Valgarður
Valgarðsson var traustur hægra
megin, sem og í horninu sem var
alltof lítið notað. Þorgils Óttar
hefur oft leikið betur. Þegar verst
lét voru það óðagotið og skot-
græðgin sem stórskemmdu sókn-
arleik FH og slíkt má liðið ekki
leyfa sér í seinni leiknum. Guð-
mundur Magnússon þjálfari
sagði: „Þegar lið á séns á að kom-
ast í 4-liða úrslit í Evrópukeppni
getur það ekki lcyft sér að slaka á
eftir 15 mínútur og hætta að ein-
beita sér. Menn leystu ekki verk-
efni sem fyrir þá voru lögð og
þetta hefur lfka verið að ske í
deildaleikjunum hjá okkur und-
anfarið. Ég veit hreinlega ekki
hvað þetta er, ég sé enga hand-
boltalega skýringu á þesu. Þreyta
eða leiði koma helst til greina“,
sagði Guðmundur, sem var ósátt-
ur við frammistöðu sinna manna.
Svona leik hefði ekki þýtt að
bjóða uppá gegn Honved í 2. um-
ferðinni - þá væri FH ekki að
leika um sæti í undanúrslitunum
nú.
Hollenska liðið er skipað
kraftmiklum leikmönnum og
óárennilegum en þeir nýttust
ekki í sóknarleiknum eins og við
hefði verið að búast. „Þeir voru
líkamlega sterkari en við en þá
vantaði allt leikskipulag, ógnunin
í sóknarleiknum hjá þeim var
ekki markviss“, sagði Kristján
Arason.
„Petta œtti að nœgja“
,JEf við leikum af eðlilegri getu,
ættu þessi 8 mörk að nægja okkur
til að komast í undanúrslitin, það
er mín sannfæring. Ekkert er þó
öruggt í Evrópukeppni, sterk lið
tapa þar oft með 10 mörkum á
útivelli, en ef rétt hugarfar verður
' tii staðar hjá okkur í Hollandi
hljótum við að komast í gegn“,
sagði Kristján. Guðmundur
þjálfari var einnig bjartsýnn:
„Við munum taka seinni lcikinn
eins og hvern annan leik og ætlum
okkur sigur í honum. Ég hef enga
hugmynd um aðstæður eða
áhorfendur í Hoilandi, en eitt
mun ég örugglega leggja fyrir
mína menn þar: ég læt taka
miðjumanninn númer 7 (Jacobs)
úr umferð. Hann er þeirra lykil-
maður“, sagði Guðmundur.
Mörk FH: Kristján 9 (4v), Hans 6, Jón
Erling 3, Valgarður 3, Þorgils Óttar 2 og
Guðjón Árnason 1.
Mörk Herschi: Jacobs 4, Louwers 4,
Wlijm 3, Hamers 2, Wijsters 2 og van der
Hoff 1.
FH-Herschi í Höliinni í fyrra-
kvöld - 8-1 eftir 15 mínútur.
Auðvelt, sögðu menn, og sáu fyrir
sér risasigur íslandsmeistaranna
á Hollandsmeisturunum. En
sterkbyggðir Hollendingarnir
bitu frá sér, minnkuðu muninn í
fjögur mörk og gátu farið með
hann niður í þrjú áður en
Hafnfirðingarnir tóku við sér á
ný og tryggðu sér átta marka
sigur, 24-16. Átta mörk, og þau
ættu að duga FH-ingum til að
komast í 4-liða úrslitin í Evrópu-
keppni meistaraliða.
Fyrsta korterið var ári gott hjá
FH-ingum. Þeir léku sérstaklega
góðan varnarleik og eftir að
Herschi hafði skorað fyrsta mark
leiksins komu átta hafnfirsk
mörk í röð, 8-1. En þá virtist
púðrið vera á þrotum og afgangur
fyrri hálfleiks var hrein leikleysa.
„Byrjunin hjá okkur kostaði
gífurlegt þrek. Varnarleikurinn
var mjög hreyfanlegur og síðara
korter hálfleiksins vorum við
mjög þreyttir í sókninni. Það kom
síðan fram í því að einbeitingin
var ekki sem skyldi“, sagði Krist-
ján Arason.
Byrjunin á seinni hálfleik
(staðan var 11-5 í hléi) var hreinn
farsi. Hroðaleg mistök á báða
bóga og ekkert skorað fyrstu sex
mínúturnar. FH komst í 13-6 og
14-7 en þá færðist líf í þá hol-
lensku og þeir minnkuðu muninn
í 15-11. FH náði að rétta úr kútn-
um og komst í 21-12 skömmu
fyrir leikslok. Herschi minnkaði
það niður í 23-16 á lokamínútun-
um en Guðjón Árnason átti loka-
orðið á síðustu sekúndunum, 24-
16.
Mjög köflóttur leikur hjá FH-
ingum, og kannski ekki furða,
aðeins átta menn voru notaðir í
leiknum. Breiddin er einfaldlega
ekki meiri og ekki bætti úr skák
Enginn risasigur en ætti að duga
Þriðjudagur 15. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11