Þjóðviljinn - 19.02.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 19.02.1985, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR IÞROTTIR Handbolti Þijú lið jöfh? Yfirburbasigur FH á Val. Aukakeppni um meistaratitilinn? Fyrsti sigur IBV Alfreð Gíslason - 5 mörk. V. Pýskaland Klúður hjá Essen Frá Jóni H. Garðarssyni fréttamanni Þjóðviljans í V.Þýskalandi. Essen klúðraði unnum leik niður í jafntefli gegn botnliðinu Handewitt í Bundesligunni í handknattleik. Stað- an var 20:18 fyrir Essen rétt fyrir leikslok en þá klúðraði landsliðsmað- urinn Joachim Fraatz tveimur sókn- um klaufalega og heimaliðið nýtti sér það til fullnustu og jafnaði, 20:20. Al- freð Gíslason átti góðan leik með Ess- en og skoraði 5 mörk. íslendingaslagurinn, Bergkamen og Lemgo í fallbaráttunni, endaði með jafntefli, 16:16, og bæði lið eru því áfram í mikilli fallhættu. Kiel er eitt á toppnum eftir 23:17 útisigur gegn Húttenberg. Hofweier tapaði 21:28 fyrir Gummersbach og Dank- ersen vann Grosswallstadt 18:14. Kiel hefur 20 stig, Gummersbach, Essen og Grosswallstadt 19 stig. FH skaut sig inní baráttuna um meistaratitilinn í kvennaflokki með því að bursta Val 23-13 í Selj- askólanum á föstudagskvöldið. Þar með eiga Fram, FH og Valur öll áþekka möguleika á sigri, ef FH nær að sigra Fram verða liðin þrjú að líkindum öll jöfn að stig- um á toppnum og verða að heyja aukakeppni um meistaratitilinn. Frábær varnarleikur og stjörnuleikur Margrétar Theórs- dóttur lögðu grunninn að stór- sigri FH. Margrét hóf leikinn á þrumumarki og FH komst í 4-0 á meðan Valsstúlkur noru iðnar við að skjóta í stengur FH- marksins. Valur minnkaði mun- inn í 5-3 en staðan breyttist í 10-5 og síðan 11-7 í hálfleik, FH í hag. Valur skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks en FH svaraði tvívegis, 13-8, og eftir það var mótspyrna Vals úr sögunni. FH var komið í 19-9 þó nokkru fyrir leikslok og tíu mörk skildu er upp var staðið. FH sýndi mjög góðan leik. Margrét frábær og Kristjana Ara- dóttir mjög góð, sérstaklega í vörninni þar sem hún sýnir engu minni snilli en Kristján bróðir hennar. FH beitti skæðum hrað- aupphlaupum og tætti lélega Valsvörnina í sig hvað eftir ann- að. Valsliðið átti hörmulegan dag og átti aldrei svar við leik Hafnar- fjarðarliðsins. Kristín Arnþórs- dóttir var langbest hjá Val. Mörk FH: Margrét 10 (5v), Sigurborg Eyjólfsdóttir 4, Siri Heggen 3, Kristjana 3, Kristín Pótursdóttir 2 og Þorgerður Gunn- arsdóttir 1. Mörk Vals: Kristín 3, Erna Lúðvíksdóttir 3, Magnea Friðriksdóttir 2, Harpa Sigurðardóttirl, Katrín Fredriksen 1, Guð- Verona og Inter Milano, sem berjast um ítalska meistaratiti- linn í knattspyrnu, skildu jöfn á sunnudaginn, 1:1. V.Þjóðverjinn Blak Fimm sigrar ísland vann fímm af sex landsleikjum við Færeyjar í blaki sem fram fóru í Þórshöfn og Klakksvík á miðvikudags- fímmtudags- og föstudags- kvöld. íslenska karlalandslið- ið vann alla þrjá leikina, 3-1, 3-0 og 3-0 og kvennalandsliðið vann tvo leiki, 3-1 og 3-1, en tapaði miðjuleiknum 3-0. Karlaliðið skoraði alls 163 stig gegn 104 í ferðinni en kvcnnal- iðið 134 stig gegn 124. rún Kristjánsdóttir 1, Helga Lúðvíksdóttirl og Sofffa Hreinsdóttir 1. IBV vann sinn fyrsta sigur í deildinni og kom sér úr fallsæti með því að sigra ÍA örugglega, 16-12, á Akranesi á föstudags- kvöldið. Eyjastúlkurnar veittu- síðan KR harðvítuga mótspyrnu í Seljaskólanum á laugardaginn en KR náði að sigra, 18-15. Hans-Peter Briegel jafnaði fyrir Verona eftir að Altobelli hafði komið Itölum yfír. AC Milano vann góðan sigur á Juventus, 3:2, og skoraði Ray Wilkins eitt markanna. Michel Platini og Paolo Rossi gerðu mörk Juventus sem á nú sáralitla möguleika á að halda meistara- titlinum. Torino vann 1:0 sigur á Udinese og er í þriðja sæti,er með 24 stig, en Verona hefur 28 stig og Inter Milano 27. Þrátt fyrir 0:0 jafntefli gegn Real Sociedad jók Barcelona for- ystu sína í spænsku 1. deildinni uppí 10 stig. Atletico Madrid tap- aði nefnilega á heimavelli fyrir Valencia, 2:3. Barcelona er með 41 stig, Atletico Madrid 31, og Gijon er komið í þriðja sæti með 29 stig eftir 2:1 útisigur gegn Real Betis. Nantes vann 4:0 sigur á Tours í frönsku 1. deildinni en Borde- aux, sem ekki lék um helgina, er þó með þriggja stiga forskot, 39 stig gegn 36 hjá Nantes. Toulon er í þriðja sæti eftir 2:0 sigur á Auxerre, með 31 stig. - VS Handbolti Skagamenn í úrslit Akurnesingar lögðu Reyni frá Sandgerði að velli í A-riðli 3. deildarinnar á Akranesi á föstu- dagskvöldið. Úrslit urðu 31:28 eftir 15:13 fyrir ÍA í hléi. Þar með er Ijóst að ÍA og Afturelding fara í úrslitakeppnina, ÍA er endan- lega öruggt og Aftureldingu dug- ir 4 stig úr 4 leikjum, tveimur við Sindra, einum við Njarðvík og einum við Reyni. Það er nánast formsatriði. Staðan í A-riðli er þessi: ÍA................8 7 0 1 231:170 14 Afturelding........6 5 0 1 168: 97 10 ReynirS...........8 5 0 3 260:168 10 Njarðvík..........8 3 0 5 208:200 6 Sindri.............4 1 0 3 66:127 2 Ögri...............8 0 0 8 88:259 0 - VS -HrG/VS Evrópuknattspyrnan Jafntefli á toppnum Mmi w ||» . - ■ i - j- mm / ) í 1 ú| L ÚmJ 1 a IjI pÁ 7 ' \y Sm/M \v jlffi eUjl Æ Wl •ÆWmMw , - Æb w >& S AdSBHMm Fylkir— íslandsmeistari í karlaflokki. Aftari röð f.v.: Jóhannes Óli Garðarsson formaður Fylkis, Ólafur Magnússon þjálfari, Gústaf Vífilsson, Harald- ur Úlfarsson, Brynjar Níelsson, Brynjar Jóhannesson, Valur Ragnarsson.GuðmundurSigurðssonformaðurkn.deildarog Friðrik Guðmunds- son. Fremri röð: KristinnGuðmundsson, HilmarÁrnason, Anton Jakobsson fyrirliði, Jón B. Guðmundsson og Tryggvi Pótursson. Mynd:-eik. Körfubolti Fram tapaði á Akureyri! Þórsarar gerðu Keflvíkingum mikinn greiða með því að sigra Framara í öðrum leik liðanna af tveimur í 1. deild karla á Akureyri um helgina. Fram vann Þór 75:69 á föstudagskvöldið en Þórsarar sneru blaðinu við á laugar- dag og sigruðu 93:83. Þór var yfir í hálfleik á föstudagskvöldið, 41:37, en Fram náði að sigra eftir spennandi leik. Þorvaldur Geits- son skoraði 24 stig fyrir Fram og Jóhann Bjarnason 19. Jóhann Sigurðsson gerði 26 stig fyrir Þór, Konráð Ósk- arsson 19 og Björn Sveinsson 10. Laugardagsleikurinn var hnífjafn í hléi, 38:38, en Þór náði góðri forystu snemma í seinni hálfleik, 61:48. Akur- eyringarnir létu forskotið ekki af hendi og unnu með 11 stiga mun. Ekki bætti úr skák fyrir Framara að þeir lentu í miklum villuvandræðum undir lokin. Konráð gerði 31 stig fyrir Þór, Jón Héðinsson 19, Jóhann S. 15 og Björn 11. Þorvaldur skoraði 17 stig fyrir Fram, Ómar Þráinsson 15, Björn Magnússon 14 og Guðbrandur Sigurðsson 12. - K&H/Akureyri Tveir gegn einum: Brynjar Níelsson og Haraldur Úlfarsson, Fylkismenn, þjarma að Skagamanninum Herði Jóhannessyni í úrslitaleiknum. Lokatölur urðu líka hlutfallið 2:1, Fylkir vann 6-3. Mynd:-eik. Innanhússknattspyrna VIÐ RÝMUM VEGNA FLUTNINGA TEPPABUMN SiOUMÚLA 31 Körfubolti Kæruleysi Sitt lítið af hverju er Kæruleysi og alvara, skemmtileg tilþrif og hroðaleg mistök. Af þessum andstæðum einkenndist viðureign Vals og ÍR í úrvals- deildinni í fyrrakvöld. Þarna var nánast um æfíngu að ræða, upphitun fyrir úrslita- leikina en Valur sigraði 91-80 eftir jafnan og spennandi leik þar sem úrslitin réðust undir lokin. Staðan í hálfleik var 44-39, Val í hag, en ÍR komst af og til yfír, í báðum hálf- leikjum. Bæði lið hvíldu mikið sína bestu menn, enkum Valsarar sem deildu leiknum jafnt á og alvara Valur vann ÍR 91:80 milli manna. Kristján var í lykilhlutverki hjá Val í fyrri hálfleik en Tómas Holton í þeim seinni. Gylfi og Hreinn Þorkelssynir voru atkvæðamestir hjá ÍR og Björn Stef- fensen var góður í fyrri hálfleik. Stig Vals: Tómas 17, Kristján 16, Torfi Magnússon 11, Páll Arnar 8, Einar Ólafsson 8, Leifur Gústafsson 8, Björn Zoega 8, Sigurður Bjarnason 7, Jóhannes Magnússon 6 og Svali Björgvinsson 2. Stig ÍR :Gylfi 18, Hreinn 17, Ragnar Torfason 14, Björn 11, Jón örn Guðmundsson 8, Hjörtur Oddsson 6 og Karl Guðlaugsson 6. Jóhann Dagur og Rob lliffe dæmdu leikinn vel. -VS KR geystist framúr Stakk af eftir hlé og vann IS 83:62 KR sigraði ÍS í úrvalsdeildinni í Haga- skóla á sunnudaginn. Leikurinn var mjög slakur framanaf, skotnýting beggja liðanna fyrir neðan allar hellur og gott spil var sjald- séð. Enda fór svo að stig fyrri hálfleiksins urðu aðeins 51. KR 26, IS 25. í seinni hálf- leiknum tóku KR-ingar sig til í andlitinu, geystust fram úr og sigruðu örugglega, 83- 62. ÍS skoraði fimm fyrstu stig leiksins og var heldur skárri aðilinn í byrjun. Það var ekki fyrr en á síðustu mínútum hálfleiksins að KR seig framúr. Seinni hálfleikur var síðan allt önnur sjón, KR-ingar komu ákveðnir til leiks og góður varnarleikur þeirra var Stúdentum ofviða. Stigin hlóðust upp hjá KR og er upp var staðið munaði 21 stigi á liðunum, 83-62. Guðni Guðnason átti góðan leik fyrir KR og þá lék Birgir Jóhannsson mjög vel í seinni hálfleik. Hjá ÍS var Valdimar Guðlaugsson pott- urinn og pannan í flestu sem var reynt. Aðr- ir stóðu honum langt að baki. Stig KR: Guðni 20, Birgir J. 18, Þorsteinn Gunnars- son 13, Matthías Einarsson 12, Birgir Mikaelsen 10, Ástþór Ingason 8, Ómar Guðmundsson og Bjöm Ind- riðason 2. Stig (S: Valdimar 24, Guðmundur Jóhannsson 12, Ágúst Jóhannesson 8, Jón Indriðason 5, Árni Guð- mundsson og Björn Leósson 4, Þórir Þórisson 3, Helgi Gústafsson 2. Fylkir skaut þeim stóm ref fyrir rass Árbæingarnir Islandsmeistarar eftir 6-3 sigur á Skagamönnum Knattspyrna er óútreiknanleg, ekki síst innanhúss. Allir veðjuðu á að ,rstóru“ liðin myndu berjast um meistaratitilinn innanhúss í Laugardalshöllinni um helgina en það fór á annan veg. Fylkismenn úr Árbænum skutu öllum ref fyrir rass, slógu Kcflavík og Breiðablik ásamt harðskeyttu liði Mývetninga út í riðlakeppni 1. deildar, unnu Val í undanúrslit- unum og sigruðu síðan Akurnes- inga glæsilega í úrslitaleiknum, 6- 3. Fyrri undanúrslitaleikurinn var milli ÍA og KR. KR-ingar voru taldir sigurstranglegastir í mótinu, ekki síst eftir að hafa sigrað Framara í riðlakeppninni, ásamt fráfarandi íslandsmeistur- um Þróttar sem reyndar voru ekki svipur hjá sjón. KR komst í 2-0 og 3-1 gegn ÍA en Skaga- seiglan er söm við sig og Árni Sveinsson skoraði sigurmark ÍA aðeins 5 sekúndum fyrir leikslok, 4-3. Þá léku Valur og Fylkir. Fylkir náði undirtökunum, 2-0 og 3-1, en Valur jafnaði, 3-3, í byrjun seinni hálfleiks. Þegar ein og hálf mínúta var eftir skoraði Brynjar Nielsson glæsimark fyrir Fylki, þrumufleygur í slána og inn, og Gústaf Vífilsson innsiglaði sigur- inn með marki úr vítaspyrnu á lokasekúndunni, 5-3. í úrslitaleiknum skoraði Árni fyrst fyrir í A eftir glæsilega hæl- sendingu Karls Þórðarsonar en Brynjar og Anton Jakobsson svöruðu fyrir Fylki, 2-1. Hörður Jóhannesson nýtti sér síðan hroðaleg mistök Gústafs og jafn- aði, 2-2. Haraldur Úlfarsson tók . sig til íbyrjun seinni hálfleiks og skoraði tvö glæsimörk frá Innanhússknattspyrna Eldsnögg vítakeppni Breiðablik endurheimti meistaratitilinn í kvennaflokki með 3-2 sigri á IA. Breiðabiik endurheimti meist- aratitilinn í kvennaflokki í innan- hússknattspyrnu - með því að sigra meistara síðasta árs, IA, 3-2 eftir framlengingu og víta- spyrnukeppni í Laugardalshöll- inni í fyrrakvöld. Ásta B. Gunnlaugsdóttir skoraði eina mark fyrri hálfleiks fyrir Breiðablik eftir að hafa farið illa með tvö dauðafæri en Ásta Benediktsdóttir jafnaði fyrir ÍA rétt fyrir hlé. Erla Rafnsdóttir kom Breiðabliki yfir 20 sek. síð- ar, en 40 sek. eftir það jafnaði Laufey Sigurðardóttir, 2-2. Ekki meira skorað, ekki heldur í fram- lengingu, og því gripið til víta- keppni. Reglurnar voru að þar gátu ráðist úrslit á fyrstu spyrnu og svo fór - Laufey brenndi af fyrir ÍA og náði síðan ekki að verja skot Ástu Maríu Reynis- dóttur sem þar með tryggði Breiðabliki íslandsmeistaratitil- inn. Úrslit leikja í kvennaflokki urðu þessi í C og D-riðlum en frá A og B-riðlum sögðum við í laugardagsblaðinu: C-riðill: Fylkir-KA..............................2-2 ÍA-ÍBÍ.................................6-2 Erla Rafnsdóttir jafnar fyrir Breiðablik, komi vörnum við. Mynd:-eik. IBÍ-KA...............................4-1 lA-Fylkir.............................9-0 lA-KA.................................7-0 ÍBl-Fylkir...........................5-1 íA 6 stig, ÍBÍ 4, KA 1 og Fylkir 1 stig. D-rlðill: Þór A-Hveragerði.....................4-1 KR-Selfoss...........................5-1 Þór A-Víðir...........................4-2 2-2, án þess að Laufey Sigurðardóttir KR-Hveragerði.......................7-0 Selfoss-Víðir.......................1-1 KR-ÞorA.............................7-1 Selfoss-Hveragerði..................2-1 KR-Viðir............................4-0 Þór A.-Selfoss......................3-0 Víðir-Hveragerði....................2-2 KR 8 stig, Þór A. 6, Selfoss 3, Víðir 2 og Hveragerði 1 stig. -VS Breiðablik - íslandsmeistari í innanhússknattsþyrnu kvenna 1985. Mynd:-eik. punktalínu, 4-2 en hinn lipri Að- alsteinn Víglundsson minnkaði munin, 4-3. Skagamenn pressuðu en Fylkir lék skynsamlega og yfir- vegað og þegar 2.05 mín. voru eftir skoraði Kristinn Guð- mundsson með hörkuskoti, 5-3. Hann innsiglaði síðan óvæntan sigur Árbæinganna með marki úr hraðaupphlaupi hálfri mínútu fyrir leikslok, 6-3. Keppt var í 1. deild og 3. deild í karlaflokki um helgina og áður hafði keppni í 2. og 4. deild farið fram. Úrslitíriðlinum urðu þessi: 1. deild A-riðill: FH-Víkingur.........................4-4 Valur-FH............................5-4 Valur-KA............................4-4 KA-Víkingur.........................6-4 Valur-Víkingur.......................6-3 FH-KA................................5-4 Valur 5 stig, KA 3, FH 3 og Víkingur 1 stig. B-riðill: (BK-HSÞ.b...........................5-4 Fylkir-lBK..........................5-4 HSÞ.b-Breiðablik....................6-5 Fylkir-Breiðablik...................5-3 Fylkir-HSÞ.b........................9-6 Breiðablik-ÍBK.......................6-4 Fvlkir 6 stig, Brciðablik 2, ÍBK 2 og HSÞ.b 2 stig. C-riðill: KR-Þróttur R.........................6-3 Fram-ÞrótturR........................9-1 Fram-Víðir...........................4-3 KR-Víðir.............................9-5 KR-Fram..............................4-3 Þróttur R.-Víðir.....................7-1 KR 6 stig, Fram 4, Þróttur R. 2 og Víðir 0 stig. D-riðill: Skallagrímur-lBl.....................2-2 (A-ÞórA..............................3-2 Skallagrimur-Þór A...................2-1 lA-lBl...............................6-2 lA-Skallagrímur......................5-2 ÞórA-ÍBl.............................6-5 ÍA 6 stig, Skallagrímur 3, Þór A. 2 og ÍBI1 stig. Víkingur, HSÞ b, Víðir og ÍBÍ féllu því í 2. deild en sæti þeirra í 1. deild taka Grótta, Selfoss, Haukar og KS. 3. deild A-riðill: HV-Árvakur..........................4-4 VíkingurÓ.-Súlan....................6-2 Árvakur-Súlan.......................6-3 H V-Víkingur Ó......................7-2 Vikingurö-Árvakur...................5-2 HV-Súlan............................7-6 HV 5 stig, Víkingur Ó. 4, Ár- vakur 3 og Súlan 0 stig. B-riðlll: LeiknirF.-ÞórVe.................... 7-6 Neisti-Tindastóll.................. 7-3 Neisti-Leiknir F................... 6-3 ÞórVe.-Tindastóll..................12-2 Tindastóll-Leiknir F................. 6-4 Neisti-ÞórVe......................... 6-6 Neisti 5 stig, Þór Ve. 3, Leiknir F. 2 og Tindastóll 2 stig. Glæsi- legur árangur Neista frá Djúpa- vogi, þetta er aðeins í annað sinn sem liðið tekur þátt í mótinu og það leikur í 2. deild að ári. C-riðlll: ReynirS-Einherji....................5-3 ReynirÁ-Augnablik...................3-2 Einherji-ReynirÁ....................4-4 ReynirS.-Augnablik..................4-2 Einherji-Augnablik..................7-3 ReynirS.-ReynirÁ....................5-4 Reynir S. 6 stig, Einherji 3, Reynir Á. 3 og Augnablik 0 stig. D-riðill: IK-Stjarnan........................ 7-6 fK-Valur Rf........................ 3-2 Stjarnan-Magni..................... 9-5 Stjarnan-Valur Rf..................11-5 [K-Magni...........................13-4 ValurRf.-Magni..................... 8-2 ík 6 stig, Stjarnan 4, Valur Rf. 2 og Magni 0 stig. HV, Neisti, Reynir S. og ÍK leika því í 2. deild að ári í stað Njarðvíkur, Týs Aftureldingar og Árroðans. Súlan, Tindastóll, Augnablik og Magni falla í 4. deild en í stað þeirra koma Vorboðinn, Hafnir, Víkverji og Leiknir Reykjavík upp í 3. deild. -VS 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. febrúar 1985 Þriðjudagur 19. febrúar 1985 ÞJÓÐVIUINN - SlÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.