Þjóðviljinn - 12.03.1985, Page 1
Undanúrslitin
Yfirvegun
og öryggi
Njarðvíkyfirfrá 7. mínútu og vann KR
öðrusinni, nú 94-82. „VilfáHaukana“,
segir Valur
Nei, KR-ingar náðu ekki að
ógna íslandsmeisturum Njarð-
víkinga að marki í Laugardals-
höllinni í gærkvöldi. Eftir að
UMFN hafði náð forystu á 7. mín-
útu leiksins hafði maður alltaf á
tilflnningunni að hún yrði ekki af
hendi látin. Svo fór heldur ekki,
Njarðvíkingar héldu sínu striki
og sigruðu 94-82. Þeir leika því til
úrslita um íslandsmeistaratitilinn
öðru sinni, við Hauka eða Val.
KR-ingar byrjuðu af krafti og
voru 8-4 yfir eftir 5 mínútur. Val-
ur Ingimundarson hafði eytt
þeim tíma í að stilla skot-
maskínuna en síðan varð fókus-
inn réttur og hann hitti úr sex
skotum í röð. Á þeim kafla náði
UMFN forystunni í eitt skipti
fyrir öll, 12-10 og síðan 24-15.
KR-ingar gáfu sig ekki,
minnkuðu muninn niður í tvö
stig, 33-31, en Njarðvík leiddi 41-
37 í hléi.
Fljótlega í síðari hálfleik komst
Njarðvík í 63-53 og þá varð enn
Ijósara hvert stefndi. Yfirvegun
og öryggi voru aðalsmerki Suður-
nesjamanna, þeir léku eins og sá
sem valdið hefur allt til leiksloka,
hikstuðu örlítið þegar KR gerði
sína síðustu örvæntingarfullu til-
raun og lagaði stöðuna í 86-80 en í
lokin gerði Njarðvík átta stig
gegn t veimur - öruggur sigur var í
höfn. Úrslitaleikirnir næsta verk-
efni - þátttöku KR á þessu ís-
landsmóti er lokið.
Það var sterkur heildarsvipur á
liði UMFN. Valur í aðalhlutverki
að vanda - óstöðvandi í sókninni
og í vörninni skilaði hann frábæru
verki, hélt hinum hættulega
Guðna Guðnasyni svo vel í
skefjum að hann skoraði aðeins
þrjú stig í fyrri hálfleik. Jónas Jó-
hannesson og Gunnar Þorvarðar-
son léku feikivel í vörn og sókn,
Jónas hefur ekki verið svona at-
kvæðamikill í sóknarfráköstun-
um lengi. Isak Tómasson reif sig
uppúr ládeyðunni sem hann hef-
ur verið í undanfarið og skoraði
15 stig á jafnmörgum mínútum í
seinni hálfleik. Aðrir skiluðu sínu
- Árni Lárusson óhemju yfirveg-
aður var og ómetanlegur liðs-
maður síðustu mínútumar. „Við
erum í góðu formi, nú vil ég fá
Hauka í úrslitunum og mala þá,“
sagði Valur við undirritaðan eftir
leikinn. Hverjir sem andstæðing-
arnir verða, þá vita þeir að hverju
þeir ganga gegn Val og félögum.
KR hefur lokið sínu í þessu ís-
landsmóti - en mikið má vera ef
þetta lið sem Vesturbæingar eru
að skapa verður ekki í fremstu
röð næstu árin. Meiri reynsla er
allt sem þarf. Hún er ekki til stað-
ar enn - þess vegna var sigri
UMFN ekki ógnað að marki.
Birgir Mikaelsson var besti mað-
ur iiðsins í gærkvöldi eftir að hafa
verið mistækur framan af. Jón
Sigurðsson lék meira með en yfir-
leitt í vetur og var drjúgur og
Matthías Einarsson komst mjög
vel frá leiknum. Guðni náði sér
ekki á strik fyrr en of seint.
Stig UMFN: Valur 38(5 fráköst), Isak
15(2), Jónas 14(15), Gunnar 12(8), Ellert
Magnússon 6(2), Árnl 6, Hafþór Óskars-
son 2(2), Helgi Rafnsson 1 (2) og Jón Viðar
Matthiasson (1). Hreiðar Hreiðarsson lék
ekki með, var I leikbanni.
Stig KR: Birgir M. 26(9 fráköst), Guðni
16(4), Jón 15(2), Matthías 10(6), Ástþór
Ingason 7(2), Þorsteinn Gunnarsson 6(2)
og Birgir Jóhannsson 2(1).
Hörður Tulinius og Rob Iliffe
dæmdu leikinn þokkalega.
_____________________________-VS.
Bikarinn
„otóru“ fiðin
a neimaveffi
Lrvalsdeildarliðín I
eru í btkarkeppni b
hvort við annað þegai
Ha,.kUndanÚrslitan"a
HaukarmætaFranií|
sm“re‘r,K £
H«»k»r-KR er (,»(",j
slitaleikur - en allt get
Landsliðsmarkverðirnir Henning Henningsson úr Haukum og Tómas Holton
úr Val krækja saman klóm í baráttunni í gaerkvöldi. Henning hefur betur -
eins og Haukarnir þegar upp var staðið. Mynd: E.ÓI.
Undanúrslitin
Haukar höfðu það í Höllinni
Haukar undir en sneru leiknum við í lokin og unnu 81 -80. Þriðji leikur í Hafnarfirði annað kvöld
Annar leikur Vals og Hauka í
úrslitakeppninni í körfuknattleik
var ekki síður spennandi en sá
fyrri. Leikið var í Höllinni í gær-
kvöldi og þegar rúmar 2 mín.
voru til leiksloka var staðan 62-71
fyrir Hauka, en með miklu harð-
fyigi tókst Valsmönnum að jafna
72-72 áður en leiktíma lauk. Var
þá framlengt og náðu þá Haukar
að knýja fram sigur 80-81. Stað-
an í hálfleik var 38-37 fyrir Val.
Leikurinn var nánast endur-
tekning á leiknum í Hafnarfirði.
Reyndar ekki eins góður, en jafn
spennandi og þróaðist á sama
hátt. Jafnt var í byrjun, en síðan
komust Haukar yfir, 8-12. Mest
komust þeir 6 stig yfir og um
miðjan hálfleikinn var staðan 18-
23. Þá tóku Valsmenn kipp og
komust yfir 24-23. Liðin skiptust
síðan á að hafa forystuna fram að
leikhlé er staðan var 38-37.
Seinni hálfleikurinn var mjög
jafn þar til 9 mín. voru eftir og
staðan 61-61. Þá fór allt að ganga
á afturfótunum hjá Val. Þeir
misstu Torfa Magnússon útaf
með 5 villur þegar 5 mín. voru
eftir og skoruðu ekki stig í 5 mín.,
þannig að þegar 4 mín. voru eftir
var staðan orðin 61-69 og síðan
62-71. Valsmenn tóku þá að
pressa allan völlinn og setti það
Haukamenn út af laginu. Einar
Ólafsson 3ja stiga körfu og Krist-
ján Ágústsson 4 stig og 2 mín.
eftir. Kristinn Kristinsson fékk 2
vítaskot þegar 90 sek. voru eftir
og hitti úr öðru og staðan 72-68.
Valsmenn stálu boltanum af
Pálmari Sigurðssyni þegar 35 sek.
lifðu af leik og Tómas Holton
minnkaði muninn í 2 stig. Þegar
síðan aðeins 7 sek. voru eftir
komst Leifur Gústafs inn í send-
ingu, gaf fram á Kristján en
Ólafur Rafnsson braut á honum
og fékk Kristján 2 vítaskot og að-
eins 4 sek. eftir. Hann hitti úr
báðum og jafnaði. Því þurfti að
framlengja.
Kristinn kom Haukum strax
yfir, en Jóhannes Magnússon
svaraði með 4 stigum. Þegar 2
mín. voru eftir voru Valsmenn
yfir 78-76 og með boltann, en
hittu ekki og Pálmar jafnaði. í
næstu sókn misstu Valsmenn
boltann, Haukar brunuðu upp,
skutu en hittu ekki, Pálmar náði
frákastinu og skoraði og fékk auk
þess eitt vítaskot sem hann nýtti.
Jóhannes minnkaði muninn í 1
stig og var síðan nálægt því að ná
boltanum þegar 16 sek. voru
eftir, það gekk þó ekki og
Haukar héldu haus og spiluðu af
skynsemi það sem eftir var og
stigu síðan stríðsdans þegar bjall-
an gall.
Eins og í fyrri leiknum þá gat
sigurinn lent hvorumegin sem var
og því ekki nema sanngjarnt að
hann skulu hafa lent hjá
Haukum. Hvorugt liðið náði að
sýna eins skemmtilega kafla og
oft áður, en spennan vann það
upp. Torfi var besturíjöfnu Vals-
liði og Leifur var geysisterkur í
fráköstum. Þeir Kristján, Tómas
og Jón Steingríms áttu einnig
góðan leik. Athygli vakti að Sig-
urður Bjarnason sem sýndi
snilldarleik í Hafnarfirði fékk
nánast ekkert að spreyta sig.
Haukar börðust mjög vel og
stóðu sig allir vel. ívar var sterkur
og Pálmar í fyrri hálfleik og fram-
lengingu en daufur í seinni hálf-
leik. Henning Henningsson,
Ólafur, Kristinn og Hálfdán
Markússon stóðu allir vel fyrir
sínu.
Stlg Val*: Kristján 16, Tómas 14, Torfi
12, Jón 11, Leifur 9, Jóhannes og Einar 8
og Björn Zoega 2.
Stlg Hauka: Ivar 25, Pálmar 19, Hálfdán
11, Henning og Kristinn 9, Ólafur 7.
Dómarar voru Jón Utti og
Sigurður Valur og skiluðu þeir
góðri dómgæslu í erfiðum leik.
Sagt eftir leikinn:
Pálmar Sigurðsson, fyrirliði
Hauka: „Við gerðum þau mistök að
hætta að spila og hugsa of mikið um
að tefja þegar Valsmenn fóru að
pressa stíft. Við náðum þó loksins að
halda haus í stað þess að missa allt
r.iður eins og oftast áður. Vörnin kom
betur út hjá okkur núna og hafði það
mest að segja. Þessi lið eru mjög jöfn
og getur allt gerst í þessum leikjum."
Torfi Magnússon, fyrirliði Vals:
„Við vorum óheppnir með skot í
framlengingunni og auk þess vantaði
nokkuð á baráttuandann í meirihluta
seinni hálfleiks. Við náðum þó að
koma honum upp í restina þó það hafi
ekki dugað að þessu sinni.“
Því má bæta við að einn leikmanna
lét þau orð falla að liðin væru svo jöfn
að það væri eins hægt að kasta upp um
úrslitin!
-gsm
UMSJÓN: VfÐIR SIGURÐSSON
Þriðjudagur 19. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9