Þjóðviljinn - 12.03.1985, Síða 3
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Atli
V. Þýskaland
Bayem réð gangi
mála í Köln
Schumacher vondur. Stuttgartfrábœrt íseinni hálfleik. Atli
bestur hjá Diisseldorf. Janus aftur með eftir hundsbitið
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Það kom mér á óvart hversu vel
Bayern Munchen lék gegn hinu
sterka liði Kölnar hér í Köln á
laugardaginn. Mestan hluta
leiksins stjórnaði Bayern gangi
mála og vann sanngjarnan sigur,
0-2. Með honum stendur liðið
mjög vel að vígi á toppi Bundes-
ligunnar í knattspyrnu og með
þessu áframhaldi stendur það
uppi sem meistari í vor.
Búist var við 60 þúsund áhorf-
endum en aðeins 45 þúsund
mættu. Sennilega sátu 15 þúsund
heima vegna þess að snillingurinn
Pierre Littbarski lék ekki með
Köln, hann er í fjögurra leikja
banni. Sókn Kölnar var í rúst,
Klaus Allofs var settur í stranga
gæslu og þar með réð Bayern
lögum og lofum á vellinum. Góð
vöm og frábær miðja hjá Bæjur-
um sem tóku forystu á 28. mín.
þegar Dieter Höness, sem er í
hörkuformi þessa dagana,
skoraði með skalla, 0-1. Loks á
60. mín. tók Köln við sér þegar
Gerd Strack var settur inná.
Hann var bara 20 sekúndur að
komast í fyrsta færi Kölnar í
leiknum en skaut í hliðarnetið.
Köln sótti eftir þetta en Bayern
missti aldrei tökin á leiknum og
mínútu fyrir leikslok tryggði Lot-
har Mattháus liðinu sigur, vipp-
aði snyrtilega yfir Toni Schumac-
her í Kölnarmarkinu af 30 m færi.
Flautað til leiksloka, Uli Höness
og Udo Lattek, æðstu menn Bay-
ern, hlupu inná, en enginn fagn-
aði eins og Mattháus. Hann hafði
á 10. mín. leiksins lent í samstuði
við Schumacher sem reiddist
gífurlega og öskraði lengi á Matt-
háus, félaga sinn úr landsliðinu.
Eftir leikinn sagði svo hinn óút-
reiknanlegi markvörður: „Ég
fyrirgef honum þetta ekki á næstu
dögum!“ Sveið greinilega sárt að
fá markið á sig.
Úrslit í Bundesligunni:
Stuttgart-Uerdingen.............5-2
Mannheim-Bremen.................1-1
Dusseldorf-Bielefeld............1-1
Frankfurt-Braunschweig..........2-0
Schalke-Kaiserslautern..........1-1
HamburgerSv-Karlsruher..........0-0
Gladbach-Leverkusen.............1-1
Köln-Bayern Munchen.............0-2
Bochum-Dortmund.................4-1
Stuttgart var 0-1 undir í hálf-
leik gegn Uerdingen og hafði
leikið hörmulega illa. Meistar-
arnir tóku síðan hressilega við sér
eftir hlé og Klinsmann og
Reichert, sem nú náðu vel saman
í framlínunni, skoruðu strax, 2-1.
Mörk frá Wöhrlin (sjálfsmark),
Allgöwer ogK.H. Förster fylgdu
í kjölfarið, 5-1, en Funkel skoraði
fyrir Uerdingen úr vítaspyrnu á
lokamínútunni. Lárus Guð-
mundsson sást lítið hjá Uerding-
en að þessu sinni. Hann fékk 5 í
einkunn og var tekinn útaf 12
mínútum fynt leikslok. Ásgeir
Sigurvinsson lék ekki með Stutt-
gart, er ekki búinn að ná sér eftir
meiðslin.
Atli Eðvaldsson var besti mað-
ur Dusseldorf ásamt Peter Löhr
þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við
Bielefeld. Báðir fengu 3 í ein-
kunn. Mikil veikindi herja enn á
lið Dusseldorf og það hefði getað
fengið leiknum frestað af þeim
sökum. Atli lék á miðjunni og á
þeim stutta kafla sem sýndur var í
sjónvarpinu geystist hann þríveg-
is upp kantinn og sendi vel fyrir
mark Bielefeld. Búrscher kom
Bielefeld yfir en Fach jafnaði
fyrir Dússeldorf. Leikurinn ein-
kenndist af misheppnuðum send-
ingum, Atli og Löhr voru þeir
einu sem gerðu eitthvað af viti.
í öðrum leikjum kom jafntefli
Hamburger og Karlsruher mest á
óvart. Karlsruher var m.a.s. nær
sigri í leiknum. Dietmar Jacobs
hjá Hamburger var rekinn af
leikvelli - það er farinn að fjúka
einn landsliðsmaður í hverri um-
ferð Bundesligunnar!
Stefan Kunz hjá Bochum er ekki
bara atvinnuknattspyrnumaður,
hann er líka í fullu starfi sem lögreglu-
þjónn, þótt ótrúlegt megi virðast.
Þetta virðist fara ágætlega saman - á
laugardag skoraði hann 2 mörk í 4-1
sigri Bochum á Dortmund og er ann-
ar markahæsti leikmaður liðsins í vet-
ur með 8 mörk!
Efstu og neðstu lið Bundeslig-
liðsins í seinni hálfleik en kom ekki í
veg fyrir 5-0 tap.
Siegen tapaði fyrir Lutgendort-
mund 2-0 í Westfalen-riðli Oberlig-
unnar (3. deildar) og datt niður í 3.
neðsta sæti. Hilmar Sighvatsson lék
allan leikinn með Siegen en Ómar Jó-
hannsson var tekinn útaf 15 mínútum
fyrir leikslok.
Efstur á óskalistanum
Enn ekki verið boðinn nýr samningur
Atli Eðvaldsson slær hér á létta strengi með
íranum Liam Brady. Atli leikur stórt hlutverk í
liði Dusseldorf, ekki síst utan vallar.
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
í stórri grein um Fortuna Diiss-
eldorf sem birtist í Kicker nú á
dögunum er talsvert fjallað um
Atla Eðvaldsson. Þar kemur fram
að Dusseldorf hefur enn ekki boð-
ið honum nýjan sanúwng i stað
þess sem rennur út í vor. Hins
vegar er vitað að Atli er efstur á
óskalista Kremers þjálfara sem
vUI ólmur halda honum, enda
leikur Atli geysistórt hlutverk í
liðinu, innan vallar sem utan.
Utan vallar virðist Atli ávallt
hafa orð fyrir leikmönnum Dúss-
eldorf og nú um helgina stakk
hann upp á því að Dússeldorf léki
gegn Bielefeld á leikvelli áhuga-
unnar eru:
Bayern M .22
Bremen .21
Uerdingen . 21
Gladbach . 20
Köln .20
Stuttgart .22
Dússeldorf...
Bielefeld....
Braunschw..
Karlsruher...
Dortmund....
Janus Guðlaugsson lék að nýju
með Fortuna Köln í 2. deildinni eftir
hundsbitið fræga. Fortuna var að tapa
4-0 í hálfleik í Duisburg þegar hann
var settur inná - hann var besti maður
Handbolti
Sigur án áhuga
Ahugalausir Víkingar sigruðu
Þór í síðasta leik forkeppni ís-
landsmótsins í handbolta.
Leikurinn fór fram í Seljaskólan-
um í gærkvöldi að viðstöddum ör-
fáum áhorfendum sem að ein-
hverjum ástæðum höfðu ekkcrt
betra við tímann að gera. Leikur-
inn skipti Víking engu máli, þeir
hafa sín þrjú stig upp í úrslitak-
eppnina, Þórarar taka með sér
sex stig niður í fallkeppnina, eru
með næst slökustu útkomuna þar
eftir forkeppnina, aðeins Breiða-
blik stendur verr að vígi.
Fyrri hálfleikur var allan tím-
ann jafn og sjaldnast munaði
meira en einu marki. í hálfleik
höfðu borgarbúar forystuna, 8-7.
í seinni hálfleiknum skyldi
fyrst að með liðunum, Víkingar
náðu þriggja marka forystu 12-9
og síðar sex marka forskoti 19-13,
það reyndist of stór biti fyrir ný-
liða Þórs. Lokatölur 24-19.
Hornamennirnir Karl Þráins-
son og Guðmundur Guðmunds-
son voru frískastir Víkinga en
þeir Viggó Sigurðsson og Hilmar
Sigurgíslason gerðu einnig góða
hluti.
Gylfi Birgisson og Sigbjörn
Óskarsson voru í aðalhlutverkum
hjá Þór.
Mörk Víkings: Karl 7, Viggó 6/3v, Guö-
mundur 5, Hilmar 4, Þorbergur Aöalsteins-
son og Einar Jóhannesson 1.
Mörk Þórs: Gylfi 5, Sigbjörn 4, Óskar
Brynjólfsson, Páll Scheving og Steinar
Tómasson 3, Sigurður Friðriksson (eldri)
1/1v.
-Frosti
Körfubolti
n ns 80
Allir með Steindóri!
ALLAR STÆRÐIR SENDIBÍLA
Stórsigur KR-stúlkna
Pola 23 stiga tap gegn Haukum
KR er sama og öruggt með
meistaratitilinn í kvennaflokki í
körfuknattleik eftir stórsigur á
ÍR, 65:43, í 1. deildinni um helg-
ina. KR á eftir að ieika við Hauka
til að hreppa Islandsmeistaratitil-
inn.
Staðan er þessi í 1. deild:
KR..............15 13 2 827:588 26
Haukar..........14 11 3 587:523 22
og þann leik verða Haukastúlk- [g...............[4 f 9 [q
urnar að vinna með 25 stiga mun Njárðvik"!!!!!!!!!""i3 0 13 377Í706 0
10 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN
Sund
Ragnar danskur
meistari
Systkinin Ragnar Guðmundsson og Þórunn Kristín
Guðmundsdóttir stóðu sig frábærlega á danska meistar-
amótinu í sundi sem fram fór um helgina. Ragnar setti
tvívegis íslandsmet í 400 m skriðsundi á föstudagskvöldið
og varð síðan Danmerkurmeistari í 1500 m skriðsundi á
sunnudaginn og bætti þá íslandsmet sitt um hvorki meira
né minna en 22 sekúndur. Þórunn setti íslandsmet í 400 m
skriðsundi kvenna á mótinu.
Á föstudaginn byrjar Ragnar á að synda 4:04,09 mín. í undan-
rásum 400 m skriðsundsins og með því bætti hann eigið íslands-
met um rúmar þrjár sekúndur. í úrslitasundinu, þar sem hann
varð annar, synti hann síðan á 4:00,40 mín, aftur nýtt met og
búinn að bæta sig um 7 sekúndur á kvöldinu.
f fyrradag var síðan 1500 m skriðsundið á dagskrá og þá kom
Ragnar fyrstur í mark á 15:49,11 mín, en gamla íslandsmetið
hans var 16:11,80 mín. Stórkostlegur árangur. Millitíminn á 800
m var 8:27,51 mín, líka Islandsmet.
Þórunn bætti íslandsmet sitt í 400 m skriðsundi á föstudags-
kvöldið, synti vegalengdina á 4:38,40 sekúndum og bætti metið
um eina sekúndu. - VS
mannaliðs í Dússeldorf. Það er
miklu minni leikvangur en hinn
glæsilegi Rheinstadion sem Dúss-
eldorf leikur á. „Það yrði mikið
betri stemmning á svona litlum
velli - það er lítið gaman að leika
fyrir 4,500 manns á velli sem rúm-
ar 70 þúsund áhorfendur“, er haft
eftir Atla.
Guido Buchwald varð nú fyrir
helgina fimmti leikmaður Stutt-
gart til að ganga frá nýjum samn-
ingi við félagið. Áður höfðu Karl-
Heinz Förster, Roleder og Jáger
markverðir og Gúnther Scháfer
gert nýja samninga - ásamt Ás-
geiri Sigurvinssyni sem gekk í
fyrra frá samningi til ársins 1987.
Framtíðin hjá Stuttgart er því
smám saman að skýrast.
Körfubolti
vann i
baráttuleik
Hefur 1 -0 forystu í einvíginu við IS
ÍR-ingar unnu Stúdenta í
fallkeppni úrvalsdeildar KKÍ á
laugardaginn í Scljaskóla.
Leikurinn einkenndist fyrst og
fremst af mikilli baráttu liðanna
frekar en góðum körfuknattleik.
Úrslitin réðust ekki fyrr en á loka-
minútunum er ÍR náði að skora
fimm stig án svars frá ÍS og breyta
stöðunni í 60-54, bæði liðin gerðu
síðan eina körfu á síðustu mínút-
unni og lokatölur því 62-56.
Jafnræði var með liðunum
fyrstu mínúturnar en í síðari hluta
fýrri hálfleiksins náði ÍR góðum
kafla sem tryggði níu stig umfram
ÍS í hléi, 33-24.
í seinni hálfleik náði ÍS fljót-
lega að jafna leikinn en ÍR-ingar
höfðu meira púður á endasprett-
inum, úrslitin 62-56.
Hvernig sem á því stendur þá
virðast IR-ingar aldrei ná að sýna
sitt rétta andlit gegn ÍS, þrír tap-
leikir ÍR í innbyrðis viðureign lið-
anna bera glöggt vitni um það.
Bræðurnir Hreinn og Gylfi Þor-
kelssynir stóðu einir upp úr með-
almennskunni!
Enginn getur afskrifað Stúdenta
sem úrvalsdeildarlið, ekki mátti
miklu muna að stigin tvö lentu í
höndum þeirra. Þeir spiluðu
leikinn skynsamlega lengst af.
Liðið var mjög jafnt í þessum
leik.
Stig ÍR: Hreinn 23, Gylfi 15, Bragi
Reynisson og Björn Steffensen 6, Karl
Guðlaugsson, Hjörtur Oddsson og Ragnar
Torfason 4.
Stig (S: Guðmundur Jóhannesson 15,
Helgi Gústafsson 10, Ragnar Bjartmarz 9,
Valdemar Guðlaugsson 8, Ágúst Jóhann-
esson 6, Árni Guðmundsson og Eirikur Jó-
hannesson 3, Þórir Þórisson 2.
- Frosti.
Danmörk
„Gamla dómkirkjan
skalf í nýju Mekka!“
Gísli Felix, Gunnar ogAnders Dahl íaðalhlutverkum hjá
Ribe íglæsisigri á verðandi Danmerkurmeisturum
Frá Emil Björnssyni fréttamanni
Þjóðviljans í Danmörku:
„Gamla dómkirkjan skalf á
grunni sínum í hinni nýju Mekka
handboltans, Ribe“, segir í risa-
fyrirsögn í dönsku blaði eftir að 2.
deildarlið Ribe, með Gísla Felix
Bjarnason, Gunnar Gunnarsson
og fyrrum KR-þjálfarann Anders
Dahl-Nielsen í broddi fylkingar,
sigraði Helsingör, efsta lið
dönsku 1. deildarinnar sem er
sama og orðið meistari, 19-17 í
8-liða úrslitum bikarkeppninnar
um helgina.
Gísli Felix Bjarnason (Felix-
sonar) var besti maður vallarins í
Ribe þar sem heimaliðið var ó-
Anders Dahl-Nielsen hefur náð frábærum árangri með Ribe og nú vilja
danskir sjá hann við hlið Leifs Michaelsens með danska landsliðið.
íslendingaslagur
Góður leikur Sigga og Alla
Alfreð gætti Sigurðar og var rekinn útaf þrisvar
Sigurður skoraði tvö síðustu mörk leiksins og jafnaði
Frá úrslitaleik KR og Stjörnunnar í 2. flokki kvenna í handknatt-
leik I Hafnarfirði á sunnudaginn. Stjarnan sigraði 10-9 og varð
(slandsmeistari í 2. flokki kvenna. Það er Stjörnustúlka sem
stöðvar stöllu sína úr KR á myndinni. Keppni í 2. flokki karla fór
fram að Varmá í Mosfellssveit og þar sigraði Víkingur Stjörnuna
19-13 1 úrslitaleik og varð fslandsmeistari. Mynd: eik.
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Sigurður Sveinsson og Alfreð
Gíslason sýndu báðir mjög góðan
leik þegar lið þeirra, Lemgo og
Essen, gerðu jafntefli, 16:16, í
hörkuspennandi viðureign í
Bundesligunni í handknattleik
um helgina. Alfreð var settur til
höfuðs Sigurði í leiknum og braut
þrisvar illa á honum - var rekinn
af velli í þriðja sinn og þar með
itilokaður um miðjan síðari hálf-
eik. Sigurður notaði sér frelsið
>g skoraði tvö síðustu mörk
eiksins, það fyrra úr vítakasti og
það síðara eftir að hafa platað
vörn Essen uppúr skónum og
rennt sér í gegn.
Staðan í hálfleik var 8:11, Ess-
en í hag, og frábært hjá Lemgo að
láta þetta sterka lið aðeins skora
fimm mörk í seinni hálfleik. Á
síðustu sekúndum leiksins fékk
Lemgo aukakast. Stillt upp fyrir
. Sigurð sem lyfti sér og skaut,
þrumuskot, en Hecker mark-
vörður, besti maður Essen, varði
á óskiljanlegan hátt og bjargaði
stigi. Sigurður gerði flest mörk
Lemgo, 6, eitt víti. Fraatz skoraði
8 (3 v) fyrir Essen og Alfreð 4
(lv).
Atli Hilmarsson og félagar í
Bergkamen unnu góðan sigur á
Schwabing á sunnudaginn, 25:19,
og náðu í dýrmæt stig í fallbarátt-
unni. Kiel tapaði loks eftir langa
sigurgöngu, 22:19 fyrir Hofweier
en er áfram efst. Grosswallstadt
fékk óvæntan skell gegn botnliði
Hándewitt, 25:17, eftir að hafa
leitt 9:12 íhálfleik. Kiel ermeð26
stig, Gummarsbach 25 og Essen
24 en önnur eru talsvert að baki.
Neðst eru Lemgo með 14 stig,
Massenheim með 13, Hútten-
berg, Berlin og Bergkamen með
12 stig og Hándewitt með 9 stig.
England
Man. Utd. gegn
Liverpool!
Risarnir í Liverpool og Manc-
hester United mætast í undanúr-
slituni ensku bikarkeppninnar í
knattspyrnu þann 13. aprfl! Þetta
varð niðurstaðan þegar dregið
Alfreð-
útaf.
fjögur mörk og rekinn þrisvar
Sigurður - sex mörk,
ustu mörk leiksins.
þar af tvö síð-
Blak
Fimmta árið í
röð hjs 1 Þrótti
Þróttarar urðu um helgina íslandsmeistarar í blaki karla fimmta árið í röð. Þeir fullnægðu formsatriðinu með því að sigra Fram 3:0 í Haga- skóla. Þróttarar eiga enn eftir tvo lciki í l.deildinni en þeir skipta ekki máli. IS vann Víking 3:0 og er þar með öruggt með annað sætið. í 1. deild kvenna vann Þróttur sigur á Vflringi, 3:1, og í bikar- keppni kvenna vann ÍS Völs- ung 3:1.
spart hvatt af 2000 áhorfendum.
Hann varði eins og berserkur í
leiknum, ótrúlegustu skot.
Gunnar Gunnarsson og Anders
Dahl voru síðan í aðalhlutverki í
sóknarleiknum, Gunnar gerði 5
mörk, flest með glæsilegum
þrumuskotum. „Mörk Gunnars
voru frábær og hann hlýtur með
þessu að hafa bankað hressilega á
dyr íslenska landsliðsins“, segir í
BT en í því blaði, sem telur sig
það stærsta í Danmörku, er birt
stór mynd af Gísla Felix þar sem
hann fagnar sigrinum í leikslok.
Leikurinn var hörkuspenn-
andi, staðan var 14-14 þegar
skammt var til leiksloka en þá
seig Ribe framúr og náði að
tryggja sér sæti í undaúrslitum
keppninnar.
Anders Dahl
Næst með
lands-
liðið?
Frá Emil Björnssyni fréttamanni
Þjóðviljans í Danmörku:
Anders Dahl-Nielsen, fyrrum
þjálfari KR-inga, er nú sterklega
orðaður við danska landsliðið í
handknattleik. Hann hefur náð
frábærum árangri með Ribe og
liðið er öruggt með sæti í 1. deild
að ári. Óskaparið við stjórnvöl-
inn hjá landsliðinu, að mati
dönsku pressunnar, er Leif Mic-
haelsen, núverandi landsliðs-
þjálfari, og Anders Dahl.
Þrátt fyrir góðan árangur með
Ribe í vetur heldur Anders sig við
jörðina. Eftir bikarsigurinn
frækna á Helsingör um helgina
(sjá annars staðar á síðunni)
sagði Anders: „Það er ekki hægt
að fleyta sér lengi á einum
stjörnuleik. Ribe verður að sýna
jafna og góða leiki næsta vetur til
að eiga einhverja möguleika í
hinni hörðu 1. deildarkeppni.“
Skotland
var í Englandi í gær. Hinn undan-
úrslitaleikurinn verður milli sig-
urvegaranna í leikjum Ipswich-
Everton og Luton-Millwall.
-VS
Tvö
komin
áfram
Dundee United og Motherwell
eru komin í undanúrslit skoska
bikarsins í knattspyrnu. Dundee
United vann St. Mirren 4:1 á úti-
velli, David Dodds gerði tvö
markanna, og Motherwell sigraði
Forfar 4:1. Dundee og Celtic
skildu jöfn, 1:1. Maurice Johns-
ton kom Celtic yfir en John
Brown jafnaði. Loks gerðu He-
arts og Aberdeen jafntefli, 1:1.
Sandy Clarke skoraði fyrir He-
arts en Eric Black fyrir Aberde-
en.
- ab/VS