Þjóðviljinn - 12.03.1985, Side 4
Urslit
FA-bikarninn
5. umferð
Luton-Watford................1-0
6. umferð
Evertorv-lpswich..............2-2
Manch.Utd-WestHam.............4-2
Barnsley-Liverpool............0-4
1. deild:
Chelsea-Southampton..........0-2
Conventry-Q.P.R..............3-0
Leicester-Sheff.Wed..........3-1
Norwich-Aston Villa..........2-2
Nottm.-For.-Newcastle........0-0
Sunderland-Arsenal...........0-0
2. deild:
Birmingham-Notts Co..........2-1
Cardiff-Fulham...............0-2
Carlisle-Grimsby.............1-1
Cr.Palace-Wolves.............0-0
Leeds-Huddersfield...........0-0
Manch.City-Middlesboro.......1-0
Oldham-Blackburn..............2-0
Portsmouth-Wimbledon.........1-0
Sheff.Utd-Oxford..............1-1
Shrewsbury-Charlton..........1-1
3. deild:
Doncaster-Bristol R...........2-2
Bournemouth-Lincoln..........3-1/
Bristol C.-Bradford C.........2-01
Burnley-Reading...............0-2J
Gilingham-Brentford...........2-0
Hull City-Derby...............3-2
Millwall-York City..........*. 1-0
Orient-Newport............... 1-1
Preston N.E.-Bolton...........1-0
Rotherham-Plymouth............0-2
Walsall-Swansea...............3-0
Wigan-Cambridge...............3-3
4. deild:
Colchester-Chester............1-1
Scunthorpe-Southend...........2-1
Tranmere-Hereford.............0-1
Aldershot-Northampton.........0-0
Bury-Blackpool................1-0
Crewe-Stockport...............2-1
Darlington-Halifax............2-0
Exeter-Chesterfield...........0-1
Hartlepool-Torquay............3-1
Peterboro-Rochdale............1-1
PortVale-Swindon..............2-0
Wrexham-Mansfield.............2-2
Staðan
1. deild
Everton 27 17 5 5 60-31 56
Tottenham 27 16 6 5 53-27 54
Man.Utd 28 14 7 7 51-32 49
South.ton... 29 14 7 8 40-34 49
Liverpool.... 28 13 9 6 40-23 48
Arsenal 29 14 5 10 48-37 47
Shetf.W 28 12 10 6 43-29 46
Nott.For 28 14 4 10 41-36 46
Chelsea 29 10 10 9 42-35 40
Aston Villa.. 28 10 8 10 40-43 38
Nonvich 28 10 8 10 35-39 38
Newcastle.. 30 9 10 11 43-53 37
Leicester.... 28 10 6 12 48-49 36
W.B.A 28 10 5 13 40-43 35
Q.P.R 30 8 11 12 35-50 35
WestHam. 26 8 8 10 33-39 32
Coventry.... 29 9 4 16 31-48 31
Watford 26 7 9 10 47-50 30
Sund.land... 28 8 6 14 30-39 30
Ipswich 25 6 7 12 24-35 25
Luton 26 6 7 13 31-47 25
Stoke 27 2 6 19 17-56 12
2. deild
Man.City .... 30 17 7 6 47-24 58
Birm.ham... 28 17 4 7 39-24 55
Blackburn... 30 15 8 7 52-30 53
Oxford 27 15 6 6 54-26 51
Ports.mth... 29 13 11 5 47-36 50
Fulham 30 15 4 11 54-50 49
Leeds .30 13 9 8 49-32 48
Grimsby.... .30 14 6 I0 57-46 48
Brighton .29 14 6 9 33-23 48
Hudd.fld.... . 29 13 6 10 39-38 45
Barnsley.... .27 11 10 6 33-25 43
Shr.bury .28 11 9 8 48-39 42
Wimbledon 28 11 5 12 53-53 38
Oldham .31 10 6 15 32-53 36
Sheff.U .30 8 11 11 45-49 35
Carlisle .30 9 6 16 33-48 33
Charlton.... . 29 8 7 14 39-46 31
C.Palace... .28 6 10 12 31-45 28
Midd.bro.... . 31 6 8 17 31-47 26
Wolves . 30 6 8 16 30-53 26
Cardiff . 30 6 5 19 35-62 23
NottsCo.... .30 5 6 19 24-56 21
3. deild
Bradford C.. .32 20 e i 6 52-28 66
Millwall ...30 17 7 ’ 6 49-28 58
HullCity .32 16 10 6 51-33 58
Gill.ham .29 17 C i 7 51-40 56
4. deild
Bury........31 18 7 6 54-33 61
Hereford....29 17 7 5 48-24 58
Ch.field....31 16 10 5 47-29 58
Blackpool...31 17 7 7 45-27 58
Markahæstir f 1. deild:
Gary Lineker, Leicester..........17
Garry Thompson, WBA..............17
Kerry Dixon, Chelsea.............16
Mark Falco, Tottenham............15
Graeme Sharp, Everton............15
Imre Varadi, Sheff.Wed...........15
Enskar getraunlr:
3 stig: nr. 2, 7, 12, 13, 19, 23, 30, 32,
43, 47 og 54.
2 stig: nr. 3, 4, 8, 9, 24, 37, 46 og 52.
1'/2 stig: nr. 6, 16, 21, 28, 33, 34, 38,
39, 40, 41, 44, 49, 51, 53 og 55.
lanRush-
þrenna í Barns- \
ley.
England-bikarinn
Rush raðar!
Skoraði þrjú og lagði eitt upp á
Oakwell
Ian Rush er óðum að bæta sér upp öll mörkin sem hann
missti af þvi að skora þegar hann lá í meiðslum fyrri hluta
vetrar. Hann slökkti bikarvonir Barnsley nánast uppá
eigin spýtur á sunnudaginn, skoraði þrjú mörk og lagði
eitt upp þegar Liverpool vann 0-4 sigur á Oakwell í 6.
umferð bikarkeppninnar. Skaut Liverpool í undanúrslit-
in en þar leikur einnig Manchester United ásamt sigur-
vegurunum í Luton-Millwall og Ipswich-Everton.
Barnsley náði aldrei að kveikja hjá sér þann neista sem
til þarf í svona bikarleik en tókst þó að halda Liverpool í
skefjum framyfir leikhlé. Eftir að Rush hafði skorað
uppúr sendingu frá Kenny Dalglish var aldrei spurning
um úrslit. Rush gaf á Ronnie Whelan sem skoraði, 0-2,
Rush gerði þriðja markið eftir
stórgóða sókn og sendingu
frá Dalglish og fjórða markinu
bætti hann við rétt fyrir leikslok.
Þrátt fyrir allar hrákspárnar
í háust og vetur er Liverpool
á höttunum á eftir þremur
vegsemdum - FA- bikarnum,
enska meistaratitlinum
og Evrópubikarnum. -VS
England - bikarinn
Norman Whitesi-
de-þrennagegn
West Ham.
Whiteside í vígahug
Fyrsta þrenna hansfyrir Man. Utd. kom liðinu í undanúrslit. West Ham fékk
ekki frest. Everton náði naumlega jöfnu á heimavelli. Watford óheppið ogúrleik
„Það þarf tvo í tangó,“ sagði
hinn geðþekki fréttamaður BBC,
Bryan Butler, eftir leik Manc-
hester United og West Ham í 6.
umferð enska bikarsins á laugar-
daginn. Sá sem dansaði best á
laugardaginn var norður-írski
landsliðsmaðurinn Norman
Whiteside. Stórleikur hjá stráksa
þcgar Rauðu Djöflarnir tryggðu
sér sæti í undanúrslitum bika-
rsins. Kappinn skoraði þrennu og
er það í fyrsta skipti sem hann
nær að skora þrjú mörk í leik með
aðalliði Man. Utd. Það sem meira
er, að núna spilar Whiteside í
nýrri stöðu. Vegna meiðsla nokk-
urra lykilmanna Man. Utd hefur
strákur leikið á miðjunni í nokkr-
um síðustu leikjum með þeim ár-
angri að hann hefur sjaldan spil-
að betur.
Það var mikil stemmning í en-
ska bikarnum og fullar stúkur á
Old Trafford og Goodison Park.
Forráðamenn West Ham reyndu
að fá leiknum frestað vegna
glórulausrar flensu og meiðsla
nokkurra lykilmanna liðsins.
Svarið frá KSÍ þeirra enskra var
þvert nei og 17 manna hópurinn
sem fór til Manchester innihélt 6
leikmenn sem voru varla leikfær-
ir. Það sást ekki á leik liðsins
fyrstu 45 mínúturnar því West
Ham hreinlega yfirspilaði
Manchester-liðið. Það kom
nokkuð á óvart að Man.Utd.
skoraði fyrsta markið. Mark
Hughes var þar að verki á 21.
mín. West Ham náði að jafna
þegar Paúl Allen lék laglega í
gegnum Manchestervörnina og
náði að skora með aðstoð varnar-
manns United, Grahams Hogg.
Á 39. mín. tók Whiteside til sinna
ráða og skoraði uppúr horns-
pyrnu, 2:1. í seinni hálfleik sner-
ist leikurinn Man. Utd. í hag og
skömmu eftir hlé jók Whiteside
forystu heimamanna. Paul Allen
minnkaði muninn en síðasta orð-
ið í leiknum átti Whiteside, 4:2,
þegar hann skoraði úr vítaspyrnu
seint í leiknum. Opinn og
skemmtilegur leikur sem bauð
uppá sex mörk en þau hefðu al-
veg eins getað orðið tólf.
Leikur dagsins var á Goodison
Park þar sem heimamenn áttu í
höggi við Ipswich, sem þarna lék
sinn fjórða leik á átta dögum.
Everton yfirspilaði Ipswich fyrstu
mínútur leiksins og mátti Paul
Cooper markvörður tvívegis
hirða boltann úr netinu hjá sér á
fyrstu 4 mínútunum. En bæði
mörkin voru dæmd af. Cooper
kom engum vörnum við á 5. mín-
útu þegar Kevin Sheedy skaut
góðum bogabolta beint í mark-
hornið úr aukaspyrnu, 1:0. En á
15. mín. var staðan orðin jöfn.
Kevin Wilson fékk fyrirgjöf frá
Romeo Zondervan og skaut
lausu skoti á mark Everton. Ne-
ville Southall var klaufi að verja
ekki skotið og boltinn hafnaði í
netinu. Á 31. mín. tók Ipswich
forystuna. Ian Cranson tók langt
innkast á Terry Butcher sem
skallaði niður til Zondervan og
Hollendingurinn þrumaði tuð-
runni í markið, 1:2. Everton lagði
allt í sölurnar til að jafna. Andy
Gray átti t.d. skalla á 74. mín.
sem fór þumlungi yfir markið.
Þegar 12 mín voru til leiksloka
var einum leikmanni Ipswich,
bakverðinum Steve McCall, vik-
ið af leikvelli fyrir brot á Gary
Stevens. Einum færri reyndu
leikmenn Ipswich að halda feng-
num hlut en þegar 5 mín. voru
eftir jafnaði miðvörðurinn Derek
Mountfield með hörkuskalla sem
hinn annars ágæti markvörður
Paul Cooper átti ekkert svar við.
Liðin verða að leika að nýju á
miðvikudaginn á heimavelli
Ipswich, Portman Road.
Luton og Watford áttust við á
Kenilworth Road en liðin höfðu
tvisvar gert jafntefli í 5. umferð.
Luton var meira með boltann í
leiknum en sóknarlotur Watford
voru stórhættulegar. Útherjinn
knái John Barnes lék nú að nýju
með Watford, nýstaðinn uppúr
meiðslum. Á 17. mín. bjargaði
Les Sealey í Lutonmarkinu hæg-
rifótarbíru frá Barnes. Átta mín-
utum síðar var Barnes aftur á ferð
og að þessu sinni var það hinn
alræmdi vinstri fótur sem kapp-
inn sveiflaði. Svo fast var skotið
að Sealey í markinu hafði nærri
hafnað í markinu en á einhvern
máta tókst honum að halda sér og
boltanum utan við marklínuna.
Eina mark leiksins skoraði Wa-
yne Turner á 64. mín. og á 24.
afmælisdaginn sinn. Luton leikur
nú við Millwall í 8-liða úrslitun-
um - annað liðanna fer síðan í
undanúrslit.
- ab/Húsavík
12 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN
England-deildakeppnin
Saumaklúbbur á Stamford
Arsenal klaufar. Stórsigur Coventry. Heppnin með Man. City og
Birmingham.
Deildakeppnin féll nokkuð í skugg-
ann af bikarleikjunum. Öll toppliðin
voru önnum kafin við að tryggja sér
sæti í undanúrslitum bikarsins nema
Tottenham sem átti frí á laugadag.
Coventry kom mest á óvart með góð-
um sigri á QPR. Terry Gibson hinn
smávaxni skoraði tvívegis í fyrri hálf-
leik, og í þeim síðari bætti Brian Kilc-
line við því þriðja.
Leikmenn Arsenal voru miklir
klaufar að sigra ekki Sunderland á
Roker Park. Brian Talbot fékk
dauðafæri ársins á 41. mín. eftir að
Charlie Nicholas hafði leikið hann frí-
an. Ekkert mark var skorað í
leiknum.
Pað sama var uppi á teningum í leik
Nottingham Forest og Newcastle, lið-
in skildu jöfn án marka.
Forráftamenn Chelsea hafa miklar
áhyggjur þessa dagana. Áhorfendur
gera þeim lífið leitt með slæmri hegð-
an og inni á vellinum gengur hvorki
né rekur. Ekki gátu þeir kvartað
undan áhorfendunum á laugardag í
leiknum gegn Southampton. Var
engu líkara en pöpullinn á Stamford
Bridge væri í saumaklúbb frekar en á
fótboltaleik. Inni á vellinum var sama
lognmollan yfir leik Chelsea og áhorf-
endunum og enn eitt tapið leit dagsins
ljós. Southampton vann 0-2 og átti
Danny Wallace heiðurinn af báðum.
Fyrst var honum hrint í teignum og
réttilega dæmt vítaspyrna sem Dave
Armstrong afgreiddi í netið. Eftir
markið sótti Chelsea nokkuð og var
óheppið að jafna ekki leikinn. í ákaf-
anum gleymdist varnarleikurinn og
tveimur mínútum fyrir leikslok bætti
Wallace við öðru marki. Lawriem
McMenemy, stjórinn þungbrýndi hjá
Southampton, var ekki ýkja kátur
með leik Chelsea eftir fyrri hálf-
leikinn og sagði við tvo fjallgamla
Chelsea-aðdáendur að þeir gætu
leikið seinni hálfleikinn, það kæmi
varla niður á leik liðsins!
Þrettán er greinilega ekki happatala
hjá Sheff.Wed. Eftir að hafa leikið 12
leiki án taps kom ósigurinn í þeim
þrettánda. Imre Varadi kom Shef-
f.Wed. yfir gegn Leicester, en í seinni
hálfleik skoraði Leicester þrívegis,
Gary Lineker, John O ’Neill og Alan
Smith, án þess að Sheff. Wed. næði
að svara.
Eftir markalausan fyrri hálfleik á
Carrow Road opnuðust varnir Norw-
ich og Aston Villa og leik þeirra lauk
með jafntefli, 2-2. Allan Evans
skoraði fyrst fyrir Villa úr vítaspyrnu,
Paul Haylock náði að jafna, en Evans
kom Villa yfir á ný úr vítaspyrnu.
Gary Rowell jafnaði leikinn fyrir
Norwich.
Manch.City hefur tekið góða for-
ystu í 2.deild. Rúmlega 22 þúsund
áhorfendur sáu Dave Phillips taka
forystuna fyrir gegn Middlesboro á
14. mín. Eftir markið tóku gömlu
brrýnin hjá Boro, Tony Mc Andrew
og Irving Nattrass, öll völd og City
var heppið að hirða öll stigin.
Soknarmenn Blachburn klúðruðu
hverju færinu á fætur öðru gegn Old-
ham og töpuðu 2-0. Derrick Parker
skoraði bæði mörkin, það síðara með
því að snúa sér á snilldarlegan hátt og
fíra feikigóðu skoti í markið hjá Terry
Gennoe.
David Seaman, sem Ron Saunders
keypti til Birmingham frá Rotherham
fyrir 100 þúsund pund í haust, bjar-
gaði tveimur stigum á laugardag er
hann varði vítaspyrnu frá Notts
County-leikmanninum Rachid Hark-
ouk 10 sekúndum fyrir leikslok.
Birmingham vann því 2-1, Robert
Hopkins og Wayne Clarke skoruðu
fyrir heimaliðið en Steve Sims fyrir
Cardiff.
Mel Eves kom Sheff. Uth yfir gegn
Oxford en Jeremy Charles jafnaði.
Robert Wilson og Kevin Lock úr víti
skoruðu fyrir Fullham í Cardiff og
Fulham er nú komið í ó.sæti. Neil
Webb gerði sigurmark Portsmouth
gegn Wimbledon. .
6 6 —ab/Húsavík