Þjóðviljinn - 28.03.1985, Blaðsíða 5
MENNING
Textílfélagið 10 ára
Skúlptúrar eftir Guðrúnu Marínósdóttur.
Tíu áreru liöin frá því 11
konur tóku sig til og stofnuðu
Textílfélagiö. Þaövar reyndar
árið 1974 að félagið var stofn-
að og nú telur það 40 meðlimi.
Ekki verður annað hægt að
segja en það sýni grósku út af
fyrir sig. Ekki eru mörg listafé-
lög sem nærfjórfalda með-
limatölu sína á einum áratug.
En það er ekki fjöldi meðlima
sem mestu máli skiptir heldur
sú gróska sem birtist í starfi og
verkum þeirra. Allurvestur-
salur Kjarvalsstaða hefur ver-
ið lagður undir afmælissýn-
ingu félagsins og vesturgan-
gurinnað auki. Másjáþartex-
tíl af öllu tagi; fatnað, þrykkog
vefnað og kennir þar eins
margra grasa og sýnendur
eru margir.
Þetta er vegleg sýning og er
ekki að efa að hún á eftir að verða
félaginu til enn frekari framdrátt-
ar á komandi árum. Eins og oft
hefur komið fram áður, er Text-
ílfélagið aðili að Samnorræna
textíl-þríæringnum, en það er
HALLDÓR
B. RUNÓLFSSOI'
samsýning allra norrænna textfl-
félaga og farandssýning sem
flakkar milli Norðurlandanna.
Frjáls tjáning
og nytjalist
í heild hefur vel tekist til með
þessa sýningu. Hún er ekki of-
hlaðin og nýtur hvert verk sín
ágætlega. Sum verkin eru risastór
en önnur smá, þannig að sýning-
arnefnd hefur þurft að vera út-
sjónarsöm í staðarvali. Með því
að leyfa lofti að leika um miðbik
salarins má í flestum tilfellum sjá
Kjóll eftir Evu Vilhelmsdóttur.
verkin frá víðu sem þröngu sjón-
arhorni og njóta stærstu verkin
þess. Gangurinn er e.t.v. örlítið
Kaldur andi í Sortudýki
Fœreyingar deila grimmt um uppsögn Hjartar Pálssonar
í Færeyjum er rnikið rætt og
ritað um uppsögn Hjartar Páls-
sonar forstöðumanns Norður-
landahússins. Eins og fram kom í
útvarpsfréttum hafa þessar um-
ræður rekið Erlend Patursson
þingmann Þjóðveldisflokksins til
að leggja fram fyrirspurn til fær-
eyska menntamálaráðherrans i
Landsþinginu um þá atburði sem
urðu til þess að Hjörtur sagði upp
starfi sínu,
Erlendur Patursson kom fyrst-
ur fram með hugmyndina að
byggingu Norðurlandahússins og
var hún nokkuð umdeild í fyrstu.
í blaðinu Fríu Föroyar er fjallað
um málefni Hjartar nýlega í
leiðara og segir þar að enginn ef-
ist nú um ágæti hússins. Hins veg-
ar hafi menn efast um ágæti þess
að ráða danskan mann til for-
stöðu fyrir húsinu í upphafi.
Hann hafi þó hlotið ágætan
starfsfrið.
Síðan segir í leiðaranum:
„Haustið 1984 tók nýr maður
við starfinu og urðu margir til að
fagna þeirri ákvörðun að ráða ís-
lending til starfsins, því samvinna
okkar við bræðraþjóðina í vestri
hefur á seinni árum verið minni
en nábýlið og frændsemin krefj-
ast.“
í lok leiðarans er þess krafist að
aðdragandi uppsagnar Hjartar sé
kannaður til hlítar til þess að fá
svar við m.a. þessum spurning-
um:
„Hver stendur á bakvið þetta
áhlaup gegn færeysk-íslensku
samstarfi? Eru það einstakir
starfsmenn Norðurlandahússins?
Eru það fulltrúar Færeyja í stjórn
hússins? Eða er kaldur andi fyrr-
verandi ’ forstöðumanns enn á
sveimi yfir steinunum uppi í
Sortudýki? Þetta mál verður að
rannsaka á hæsta stigi. Þennan
skammarblett verður að þvo af
færeysku þjóðinni.“ Til skilnings-
auka á málsgreininni um kaldan
anda fyrrum forstöðumanns má
geta þess að nafn hans er Steen
Cold. -ÞH
vandræðalegri, einkum sá hluti
sem snýr að inngangi.
En hvað má segja um stefnur í
íslenskum textíl? Greinilegt er að
fatahönnuðir sækja í sig veðrið,
en á fyrstu árum félagsins var
slíkt nánast óþekkt fyrirbæri. Það
bendir til aukinna tengsla textíl-
hönnuða og fatamarkaðar eða
nytjamarkaðar. Væri undarlegt
ef fataframleiðendur tækju ekki
mið af slíkri þróun. Enn er þó of
snemmt að spá fyrir um framtíð
slíkrar sveiflu, enda vantar mikið
á að hún sé afgerandi þáttur í
starfsemi félagsmanna.
Enn er frjáls tjáning óháð
nytjalist mest áberandi, en þar
hafa breytingar átt sér stað. Hlut-
lægur myndvefnaður sem áður
fyrr var mjög áberandi, er á
undanhaldi fyrir huglægari og
efnisminni tjáningu. Þrykkið hef-
ur sótt í sig veðrið á kostnað vefn-
aðarins og eru stærstu verk sýn-
ingarinnar þess eðlis.
Þó er hér stór hópur veflistar-
manna og tj áir sig að mestu leyti á
óhlutbundinn hátt. Ákveðin fág-
un er í fyrirrúmi og ekki ber
mikið á tilfinningasemi. Svip-
mótið er fremur kyrrlátt og klass-
ískt.
Heilsteypt
yfirbragð
Ólíkt málaralistinni á okkar
tímum eiga óhefluð vinnubrögð
ekki upp á pallboðið í Textflfé-
laginu. Hins vegar eru vönduð
vinnubrögð, íhygli og yfirvegun
áberandi. Það ætti að vera til þess
að auka Textílfélaginu fylgi með-
al sýningargesta, en eins og menn
vita þá kemur íhaldssemi Islend-
inga í veg fyrir að aðrar listgrein-
ar en málaralist njóti sannmælis.
Reyndar er sú furðulega ein-
stefna í listmati einn helsti drag-
bíturinn á starfsemi félaga á borð
við Textflfélagið.
Þessi sýning á að geta ruslað
burt slíkum efasemdum um gildi
textflsins. Alltént hefur starfsemi
félagsins ekki verið árangursluas,
því heilsteyptara framlag hafa ís-
lenskir textíllistamenn ekki boð-
iðuppá, né jafnari. 0- lam. Ef
einhvers er að sakna er það e.t.v.
að þessar konur skuli ekki hafa
lagt allt húsið undir sig.
Flmmtudagur 28. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5