Þjóðviljinn - 28.03.1985, Side 7
Þingeyri
V.-ís.
Áhugamenn
um atvinnumál
Félagssvœðið Þingeyri og nágrenni
Fyrir nokkru var stofnað Félag
áhugamanna um atvinnumál á
Þingeyri og nágrenni. Tilgangur
félagsins er fyrst og fremst að
stuðla að fjölbreyttara atvinnulífi
á þessu svæði. Starfssvæði félags-
ins cr Auðkúluhreppur, Þing-
eyrarhreppur og Mýrahreppur.
Félagið er engum háð og meining
félagsmanna, sem eru sjö talsins
nú í upphafi, er að láta fyrirfram
ákveðnar kennisetningar og for-
dóma hafa sem minnst áhrif á
starfsemi þess.
Þetta áhugamannafélag mun
einkum leita til Japana um fyrir-
myndir í starfi sínu. Þeir hafa,
sem kunnugt er, náð þjóða lengst
í þróun atvinnuvega sinna og hef-
ur „japanska efnahagsundrið",
sem svo er kallað, byggst að veru-
legu leyti á því, hversu opnir þeir
hafa verið fyrir nýjungum, auk
þess sem þeir hafa byggt á forn-
um grunni heimilismenningar.
Fyrsta verkefni áðurnefnds
áhugamannafélags hefur verið að
hrinda úr vör nýju fyrirtæki á
Þingeyri, sem ber nafnið
Leikfangasmiðjan Alda hf. Fjór-
ir starfsmenn munu vinna hjá því
fyrirtæki í upphafi og mun nánar
skýrt frá þessu innan tíðar.
Félagið mun athuga í fullri al-
vöru hvort ekki er hægt að koma
á hagkvæmum heimilisiðnaði á
starfssvæðinu, m.a. með því að
virkja það hugvit, sem vitað er að
býr með fólki á þessu svæði. Það
er öllum vitanlegt að hinar
dreifðu byggir þurfa á fleiri
starfsmöguleikum að halda, ef
þær eiga ekki að líða undir lok
eða dragast stórlega saman. Það
hefur sýnt sig, að ekki þýðir að
bíða eftir því lon og don að hið
opinbera komi með ný fyrirtæki á
silfurbakka út í héruðin. Hér
veltur allt á því að heimamenn
hafi sjálfir manndóm og frum-
kvæði til að bera, enda mun það
farsælast.
Stjórn F.Á.A. skipa þeir
Ólafur V. Þórðarson, Þingeyri og
Hallgrímur Sveinsson, Hrafns-
eyri. Þeir, sem hefðu hug á að
vita nánar um málefni þetta, snúi
sér til þeirra.
-mhg
Olíufélögin
Greiði áfram landsútsvar
segir bæjarstjóm Njarðvíkur
Á fúndi bæjarstjómar Njarðvíkur
þann 5. mars sl. var m.a. rætt um þau
áform, að fdla niður landsútsvar af
olíufékjgunum og atvinnumál á
Suðumesjum almennt.
Mótmælti bæjarstjómin því harð-
lega að leggja niður landsútsvörin og
telur „eðlilegt að ríkisvaldið sjái af
eigin tekjustofnum til lækkunar
gjalda olíufélaganna ffekar en að ráð-
ast á tekjustofna sveitarfélaganna,
sem svo mjög hafa verið rýrðir á liðn-
um árum”.
Þá lýsir bæjarstjóm yfir fyllsta
stuðningi við alla þá, sem snúið hafa
„bökum saman til að standa vörð um
atvinnulíf og afkomu almennt á
Suðumesjum”. Skorar bæjarstjómin
á alþingismenn og aðra, sem hlut eiga
að máli, að gera nú þegar ráðstafanir
til að draga úr öiyggisleysi um atvinnu
fiskvinnslufólks og annarra, sem að
sjávarútvegi starfa. Felur bæjarstjóm
bæjarráði „að leita enn frekari leiða
en nú er gert til styrktar og aukningar
atvinnu í byggðaiiaginu”. -mhg
Grundarfjörður
þremur heimilum og hafa þær
„tarnir" lagst á heimilin á mis-
mundandi heppilegum tíma. Því
er ljóst, að félaginu verður mikill
styrkur að því að eignast húsnæði
þótt lítið sé.
Síðastliðin ár hefur varla verið
haldinn sá fundur í félaginu að
ekki hafi verið rætt um húsnæðis-
vandann. Um árabil hafa starfað
nefndir með það hlutverk að
finna félaginu húsnæði, en alltaf
rákust menn þó á sama vegginn,
það er að ekki fannst það hús-
næði, sem talið var að félagið gæti
fjármagnað kaup á. En er ljóst
var að Borgarbraut 1 var föl fyrir
kr. 150.000 var ákveðið að láta
slag standa og demba sér út í
kaupin þótt ekki væri augljóst
hvaðan peningar yrðu teknir til
þessa og ljóst væri að endurbygg-
ingarkostnaður yrði a.m.k. kr.
200 þúsund. Húsið var sem sé
keypt og er það bjargföst trú okk-
ar, að við munum sigrast á öllum
vandamálum sem upp kunna að
koma, með sameiginlegu átaki.
Allt það fé, sem þegar hefur
verið greitt til húskaupanna, er
fjárframlög frá einstaklingum.
Nú þegar er hafin endurbygging á
húsinu og stefnt er að því að taka
það í notkun sem fyrst.
Ólöf Hildur
Alþýðubandalagsfélag Grund-
arfjarðar er athafnasamur félags-
skapur. Meðal annars gefur það
út ágætis blað, er nefnist Birting
og nú hefur það staðið í hús-
kaupum, aðþví er segir í blaðinu.
Við gefum Olöfu Hildi orðið:
Alþýðubandalagsfélag
Grundarfjarðar hefur fest kaup á
húseigninni Borgarbraut 1 og
voru samningar um kaupin undir-
ritaðir 15. jan. sl. Húsið er mjög
illa farið og nauðsynlegt að gera á
því verulegar endurbætur en fé-
lagið væntir þess að geta nýtt sér
húsið undir starfsemi sína. Hús-
næðisleysið hefur talsvert háð
starfsemi félagsins á undanförn-
um árum og er þar bæði átt við
hið almenna félagsstarf og útgáfu
Birtingar. Félagsstarfið hefur
hingað til farið fram á hinum
ýmsu stöðum og ekki hefur alltaf
verið auðvelt að fá fundarað-
stöðu á hentugum tíma.
Blaðið hefur verið unnið á
Unnið að endurbótum á húsnæðinu.
Alþýðubandalagið
eignast húsnæði
Fimmtudagur 28. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7