Þjóðviljinn - 28.03.1985, Qupperneq 8
FLÓAMARKAÐURINN
Volvo 242L árg. 75
meö upptökuvél, ekinn ca. 75 þús.
km., sprautaður í nóvember. Upplýs-
ingar eftir kl. 18 í síma 29672 og um
helgina.
Til sölu
þvottavél, notuð 1 ár, kæliskápur án
frystis, 82 cm á hæð, gamalt afsýrt
furuhjónarúm, má nota sem 2 stök
rúm, barnakerra án skerms, ruggu-
hestur fylgir ókeypis. Sími 29672 eftir
kl. 18 og um helgina.
Ódýr húsgögn
til sölu
Tekk sófaborð á kr. 1000.-, sófi með
rúmfatageymslu á kr. 2.500.0. Upp-
lýsingar í síma 39307 eftir kl. 20.
Rafmagnshellur
fyrir 2 potta til sölu. Sími 23089 e. kl.
18.
Reglusöm eldri kona
óskar eftir íbúð á leigu í Þingholtunum
eða gamla austurbænum. Fyrirfram-
greiðsla ef óskað er. Upplýsingar í
síma 685032.
Pioneer SA 6300
og Marantz 1060 til sölu. Sími 30623.
Ösp
Höfum kaupendur að sérhæð í nýja
miðbænum, 2ja herb. í miðbænum,
3-4ra herb. Háaleiti-Heimum.
Vantar allar stærðir eigna á skrá.
Opið til 21 á kvöldin.
Ösp, fasteignasala
Hverfisgötu 50,
sími 27980 og 17790.
Svefnbekkur til sölu
selst mjög ódýrt.
Upplýsingar í síma 20051 eftir kl. 21.
Ýmislegt
fyrir börn
til sölu, t.d. rimlarúm, Hókus pókus
stóll, taustóll og gærukerrupoki.
Einnig til sölu Necchy saumavél.
Upplýsingar í síma 46447.
Batik - tauþrykk
Námskeið í batik og tauþrykki hefjast
í hverri viku. Upplýsingar í síma
44124.
Kennari Guðbjörg Jensdóttir.
Handþrykkt rúmteppi
til sölu. Upplýsingar í síma 44124.
Óska eftir
3ja-4ra herb. íbúð til leigu frá 1. júlí.
Upplýsingar í síma 18571 e. kl. 17.
Óska eftir tveimur
notuðum útihurðum, gefins eða á
góðu verði. Upplýsingar í síma 92-
1948 Keflavík.
Til söiu
stór og góður hefilbekkur. Uplýsingar
í síma 74950.
Flóamarkaður -
kökubasar
að Klapparstíg 28, 2. hæð, laugard.
30. mars frá kl. 10-18.
Foreldra- og styrktarfélag heyrnar-
daufra og Esperantofélagið.
Lesendur athugið
Flóamarkaðurinn er ókeypis þjón-
usta fyrir áskrifendur. Aðrir, sem vilja
auglýsa, þurfa að skreppa til okkar og
borga 200 krónur. Ekki sakar að
segja frá kynningaráskrift (2 mánuð-
ir) sem kostar 460 kr. Venjuleg mán-
aðaráskrift kostar 330 kr.
Þríhjól óskast
Mig vantar lítið þríhjól, helst Winter,
má vera bilað. Upplýsingar í síma
30504.
Marantz
hljómtækjasamstæða
og nýjar barnakojur til sölu; einnig
uppþvottavél. Upplýsingar í síma
16289.
Pels til sölu
á kr. 11 þúsund
Upplýsingar í síma 16471.
Bíll til sölu
Daihatsu Charade árg. 79. Upplýs-
ingar í síma 14823, milli kl. 13 og 18 í
dag og næstu daga.
Skíði og skíðaskór
Til sölu skíði (100 cm, 120 cm og 140
cm), einnig skíðaskór nr. 31. Upplýs-
ingar í síma 19848 síðdegis á föstud.
og laugard.
Crown-
hljómflutningstæki
til sölu. Útvarp, segulband, plötuspil-
ari og tveir hátalarar. Allt ný yfirfarið
og í topp standi.
Verðca. kr. 8.000. Upplýsingarísíma
35884 - Kolbrún.
Sendibíll - Atvinna
Óska eftir atvinnu í sumar, hef sendi-
bíl til umráða. Til greina kemur m.a.
útkeyrsla eða sölumennska hvert á
land sem er. Föst vinna ekki skilyrði.
Geymið auglýsinguna. Upplýsingar í
síma 37779 eftir hádegi.
Auglýsing
um breyttan afgreiðslutíma.
Á tímabilinu 1. apríl - 1. október 1985 verður af-
greiðslutíminn frá kl. 8.20 - 16.00.
Framkvæmdastofnun ríkisins og
Þjóðhagsstofnun.
Hjúkrunarfræðingar
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri óskar að ráða hjúkr-
unarfræðinga í nokkrar fastar stöður og til sumaraf-
leysinga.
Upplýsingar um laun og annað sem sjúkrahúsið hefir
að bjóða veitir hjúkrunarforstjóri í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
BLAÐBERAR
ÓSKAST
Grandi
Skjól
Fossvogur
DJOÐV/Um
LANDID
Þorlákshöfn
Góðir gestir
og félagsstofnun
Eftirfarandi pistill hefur okk-
ur borist, með baráttukveðjum
frá Þorlákshöfn:
Það bar við á öndverðu þessu
ári að stofnað var Alþýðubanda-
lagsfélag í Þorlákshöfn, nánar til-
tekið 24. jan. sl. Þann dag gerðust
þau tíðindi, að Svavar Gestsson,
formaður Alþýðubandalagsins og
Margrét Frímannsdóttir, vara-
þingmaður Alþýðubandalagsins í
Suðurlandskjördæmi, sóttu Þor-
lákshöfn heim.
Þau hittu nemendur grunn-
skólans að máli, fóru á vinnustaði
í þorpinu og spjölluðu við fólk
um hvaðeina er að stjórnmálum
lýtur. Þau gerðu bæði góðan róm
að þessari för sinni og fundu
gjörla, ekki síður en annarsstaðar
þar sem þingmenn flokksins hafa
verið, að fólk hefur ýmislegt til
málanna að ieggja, sem ekki er
víst að þættu góð vísindi á stjórn-
arheimilinu. Það var á fólki að
heyra, að því þætti skipting þjóð-
arauðsins ekki með öllu sann-
gjörn, og skal engan undra.
Um kvöldið var Þorkálshafn-
arbúum svo boðið á fund með
Svavari í félagsheimili staðarins.
Fundurinn var vel sóttur, um-
ræður að lokinni framsögu for-
mannsins með ágætum. Fram
komu fjölmargar fyrirspurnir og
víða komið við í þjóðmálunum,
sem ekki verður tíundað nánar
hér.
Er mjög var liðið á kvöldið var
svo stofnað Alþýðubandalagsfé-
lag og nefnist Alþýðubandalagið
í Þorlákshöfn og nágrenni.
Stofnfélagar voru 17 talsins. Kos-
in var 5 manna stjórn en hana
skipa: Ása Bjarnadóttir, Elín B.
Jónsdóttir, Garðar Guðjónsson,
Ósk Gunnarsdóttir og Þóra Sig-
urðardóttir. Að vísu hafði áður
verið starfandi félag með sama
nafni en það hafði ein-
hvernveginn lognast út af.
En það er ekki nóg að stofna
félag. Síðan á stofnfundinum
góða hafa verið haldnir
allnokkrir félagsfundir, auk þess
sem Bjarnfríður Leósdóttir, for-
maður Verkalýðsmálaráðs Al-
þýðubandalagsins og Margrét
Frímannsdóttir komu og ræddu
verkalýðs- og kjaramál í Félags-
heimilinu 17. febrúar. sl. Þá hef-
ur staðið yfir félagsmálanám-
skeið á vegum félagsins, undir
leiðsögn Margrétar Frímanns-
dóttur. Af þessu má vera ljóst, að
margt horfir til betri vegar í bar-
áttunni og víst er að ekki verður
látið staðar numið að svo komnu.
-mhg
Fiskvinnslusalur Meitilsins í Þorlákshöfn.
100 ára
Garðyrkjufélag íslands
Eitt elsta félag landsins
Garðyrkjufélag íslands á
aldarafmæli nú í ár. Verður þess
merkisatburðar minnst með
afmælisfundi á Hótel Sögu á
Hvítasunnudag, 26. maí n.k.,
(afmælisdaginn), og hefst hann
kl. 3. Félagið mun gefa út glæsi-
legan minnispening vegna afmæl-
isins og Póst- og símamálastjórnin
mun minnast þess með útgáfu frí-
merkis í júní.
Nýlega var haldinn aðalfundur
félagsins. Starfsemi þess á liðnu
ári var mjög öflug, eins og oftast
áður. Margir fræðslufundir voru
haldnir, þar sem fjallað var um
ýmsa þætti garðyrkjunnar. Fé-
Fataframleiðslufyrirtækið
Henson h.f. opnaði um síðustu
helgi nýtt verksmiðjuhúsnæði á
Akranesi og er þetta þriðja verk-
smiðjan sem Henson h.f. tekur í
notkun. Aðal húsnæðið er að
Skipholti 37 í Reykjavík en árið
1983 opnaði fyrirtækið verk-
smiðjuhús á Selfossi.
Þegar hafa 20 starfsmenn verið
lagið annaðist innkaup á vor- og
haustlaukum fyrir félagsmenn og
verði mjög stillt í hóf. Það hefur
og til sölu ýmsar garðyrkjubækur
og smávörur varðandi garðyrkju.
Árgjald til félagsins er 500 kr. I
því felst myndarlegt ársrit, Garð-
yrkjuritið. Þá er félagsmönnum
sent upplýsinga- og fréttabréfið
Garðurinn. Félagsmenn hafa
stofnað til fræskipta en margir
áhugamenn safna fræi í görðum
sínum og leggja í sameiginlegan
sjóð, sem aðrir félagsmenn geta
notið góðs af, og pantað sér fræ af
listanum ,enþarerúraðvelja 800
tegundum. Félagsmenn hafa ár-
legan garðaskoðunardag þar sem
fastráðnir til verksmiðjunnar á
Akranesi og verður Sigurður
Lárusson forstöðumaður hennar.
Verkstjóri verður Björg
Hraunfjörð. Hjá Henson h.f.
starfa nú um 100 manns, en fyrir-
tækið hóf starfsemi sína árið
1969. Forstjóri og aðal eigandi
þess er Halldór Einarsson frægur
knattspyrnumaður á árum áður.
-S.dór.
nokkrir garðar eru opnaðir fé-
lagsmönnum.
Félagar í Garðyrkjufélagi ís-
lands eru nú hátt á 6. þús. og
hefur fjölgað ört undanfarin ár.
Sjálfstæðar deildir eru víðsvegar
um landið og starfsemi þeirra
blómleg. Garðyrkjufélagið er nú
eitt elsta félag landsins. Markmið
þess hefur frá upphafi verið að
glæða áhuga íslendinga á garð-
yrkju, bæði matjurta- og skrúð-
garðarækt. -mhg
Stéttarsambandið
Aukafundur
2. apríl n.k.
Stéttarsamband bænda hefur
nú boðað til aukafundar þann 2.
aprfl n.k. Verður hann í Atthag-
asal Hótel Sögu og hefst kl. 9.00.
Á fundinum verður m.a. rætt
um hina alvarlegu fjárhagsstöðu
bænda, lánamál landbúnaðarins,
frumvörp til laga um Búnaðar-
málasjóð og virðisaukaskatt og
endurskoðun laga um Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins en
þess er vænst, að samningu þess
frumvarps fari nú senn að ljúka.
-mhg.
Akranes
Ný fataverksmiðja
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 28. mars 1985