Þjóðviljinn - 28.03.1985, Qupperneq 9
MENNING
Fornbók-
mennta
saga
Út er komin hjá Forlaginu ný
bók eftir Heimi Pálsson, Frá-
sagnarlist fyrri alda, íslensk bók-
menntasaga frá landsnámsöld til
siðskipta. Bókmenntasaga þessi
er einkum ætluð til kennslu á
framhaldsskólastigi en hentar
jafnframt öllum þeim sem fýsir í
læsilegan fróðleik um íslenskar
fornbókmenntir.
Frásagnarlist fyrri alda skiptist
í þrjá meginkafla. f þeim fyrsta er
fjallað um skeið óskráðra bók-
mennta: eddukvæði og drótt-
kvæði. Annar kaflinn og sá ýtar-
legasti fjallar um sagnaritun mið-
alda. Þar er gerð grein fyrir öllum
greinum lausamálsbókmennta á
tímabilinu 1100-1350, fjallað um
hugmyndaheim sagnanna sem og
listræn einkenni þeirra og rætt
um það samfélag sem skóp þær.
Þriðji og síðasti kaflinn fjallar svo
um blómaskeið rímna og sagna-
dansa.
Frásagnarlist fyrri alda er 191
bls. Ragnheiður Kristjánsdóttir
hannaði kápu. Prentsmiðjan
Oddi hf. prentaði.
ARGUS<€>
, SYNING
A HUGBUNAÐI
FYRIR
Stjórn Rithöfundasambandsins ólyktar um tillögu íhaldsþingmanna
um að leggja íslensk verk fram ö íslensku til bókmenntaverðlauna Norðurlandaröðs
Stjórn Rithöfundasambands
íslands hefur gert eftirfarandi á-
lyktun I tilefni af tillöguflutningi
Halldórs Blöndal, Árna Johnsen
og félaga þess efnis að íslendingar
leggi hér eftir fram á íslensku þau
bókmenntaverk sem keppa eiga
um bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs. Þessi tillaga liggur nú
fyrir alþingi en Árni mælti fyrir
henni á þingi Norðurlandaráðs á
dögunum eins og frægt er orðið.
„Stjórn Rithöfundasambands
íslands álítur tillögu þessa van-
hugsaða.
I fyrsta lagi er þess að geta að
íslendingar hafa jafnan lagt verk
sín fram á íslensku þannig að hug-
mynd flutningsmanna hlýtur að
vera sú að lagður verði niður sá
háttur að láta jafnframt fylgja
þýðingu á viðkomandi verki,
dómnefndarmönnum til glöggv-
unar sem ekki kunna á íslensku
skil. Með því móti yrðu hinar
þjóðirnar að einskorða val sitt til
dómnefndar við þá menn sem eru
fluglæsir á íslensku.
I öðru lagi eru ekki til nein
frambærileg rök fyrir því að öðlist
höfundar, sem skrifa á íslensku,
þennan rétt hljóti hið sama ekki
að gilda um allar aðrar þjóðtung-
ur á þessu menningarsvæði. Geta
menn svo gert sér í hugarlund
hvernig muni ganga að skipa
dómnefndir mönnum sem eru
jafnvígir á íslensku, finnsku,
grænlensku, færeysku og sam-
ísku, auk skandinavísku mál-
anna.
Auðvitað væri æskilegt að verk
á íslenska tungu gæti staðið
jafnfætis bókum á sænsku,
dönsku og norsku fyrir dómnefnd-
inni. Það er ljóst að í flestum
þýðingum glatast eitthvað af
gæðum hins upprunalega texta.
Hvað varðar bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs stöndum
við íslendingar hinsvegar í raun-
inni einungis frammi fyrir vali
milli þess að sætta okkur við það
forskot sem danskir, sænskir og
norskir höfundar óneitanlega
hafa, eða á hinn bóginn hreinlega
hætta þátttöku í samkeppninni.
Að halda til streitu kröfunni
um að verk skuli eingöngu lögð
fram á hinni upphaflegu tungu
getur ekki leitt til annars en að
verðlaunaveitingunni verður
hætt, hún verður óframkvæman-
leg. Þarmeð munu íslenskir höf-
undar endanlega hafa glatað
möguleikanum á að hljóta þessi
verðlaun. Núverandi fram-
kvæmd þessarar verðlauna-
veitingar hefur einnig haft þann
kost að á hverju ári hafa verið
þýddar tvær nýjar íslenskar
bækur höfundunum að kostnað-
arlausu og án þess að þeir hafi
fyrirfram gert samning um útgáfu
þeirra við erlenda forleggjara, en
sá kostur mun að sjálfsögðu glat-
ast nái hugmyndir flutnings-
manna fram að ganga.
Stjórn Rithöfundasambands
íslands.“
Hljómsveitin Centaur heldur tónleika í Safarí í kvöld, ver Ellertsson (að vísu í líki brúðu á myndinni), Guðmundur
fimmtudag, og standa þeir frá 10-0.30. Miðaverð er 200 kr. Gunnlaugsson, Pálmi Sigurhjartarson og Jón Óskar Gísla-
Hljómsveitina skipa frá vinstri: Sigurður Sigurðsson, Hlöð-1 son
Vanhugsuð tillaga
IBMPC
TÖLVUR
28.-30. MARS
Fimmtudaginn 28., föstudaginn
29. og laugardaginn 30. mars n.k.
sýna 15 fyrirtæki hugbúnað fyrir
IBM PC tölvurnar. Á annað hundr-
að mismunandi forrit eru á sýning-
unni sem henta bæði einstakling-
um með minni rekstur, fyrirtækj-
um, skólum og stofnunum. Hér
gefst tækifæri til að kynnast á ein-
um stað þeim fjölbreytta hugbún-
aði sem til er íyrir IBM PC tölvurn-
ar. Þeir sem ætla að fylgjast með
láta þessa sýningu ekki fram hjá
sér fara.
Sýnendur:
FRAMSÝN TÖLVUSKÓLI H.F.
GlSLI J. JOHNSEN
HJARNI S.F.
HUGBÚNAÐUR H.F.
IBM Á ISLANDI
ÍSLENSK FORRITAÞRÓUN S.F.
iSLENSK TÆKI
MAREL H.F.
RAFREIKNIR H.F.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
STJÓRNUNARFÉLAG ISLANDS
TÖLVUFRÆÐSLAN S.F.
TÖLVUMIOSTÖÐIN H.F.
TÖLVUÞEKKING
ÖRTÖLVUTÆKNI H.F.
SÝNINGARSTAÐUR: SKAFTAHLÍÐ 24
Opnunartímar: fimmtudag kl. 9—18
föstudag kl. 9—18
laugardag kl. 9—16
Skaftahlið 24,105 Reykjavik.
Simi 91-27700.