Þjóðviljinn - 28.03.1985, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
Fimleikar
Arnór og
Hanna Lóa
Arnór Diego Hjálmarsson, Ár-
manni, og Hanna Lóa Friðjónsdóttir,
Gerplu, urðu unglingameistarar 1985
í fimleikum en unglingameistaramót-
ið fór fram í Laugardalshöllinni á
sunnudaginn. Þá var keppt í eldra
flokki, ,rSenior”, og þar stóðu sig best
Davíð Ingason, Armanni, sem var
íslandsmeistarí í fyrra, og Kristín
Gísladóttir, Gerplu, fyrrum íslands-
meistari kvenna.
Skólamót
406 með
Hinu árlega innanhússknatt-
spyrnumóti grunnskólanna í Kópa-
vogi lauk fyrir skömmu og var það
númer 17 í röðinni. Það er haldið á
vegum Breiðabliks og skólanefndar
Kópavogs. Þátttakendur voru 406,
helmingur stúlkur og helmingur
drengir. Gunnsteinn Sigurðsson,
Haraldur Erlendsson og Valdimar
Kr. Valdimarsson sáu um mótið.
Þessir skólar unnu til verðlauna:
3. bekkur stúlkur: 1. Kópavogs-
skóli. 2. Snælandsskóli. 3. bekkur
drengir: 1. Hjallaskóli. 2. Digranes-
skóli. 4. bekkur stúlkur: 1. Kópa-
vogsskóli. 2. Snælandsskóli. 4. bekk-
ur drengir: 1. Kársnesskóli. 2. Digra-
nesskóli. 5. bekkur stúlkur: 1. Kópa-
vogsskóli. 2. Snælandsskóli. 5.
bekkur drengir: 1. Digranesskóli. 2.
Snælandsskóli. 6. bekkur stúlkur: 1.
Digranesskóli. 2. Kársnesskóli. 6.
bekkur drengir: 1. Kársnesskóli. 2.
Digranesskóli. 7. bekkur stúlkur: 1.
Þinghólsskóli. 2. Digranesskóli. 7.
bekkur drengir: 1. Þinghólsskóli. 2.
Digranesskóli. 8. bekkur stúlkur: 1.
Digranesskóli. 2. Þinghólsskóli. 8.
bekkur drengir: 1. Þinghólsskóli. 2.
Digranesskóli. 9. bekkur stúlkur: 1.
Þinghólsskóli. 2. Digranesskóli. 9.
bekkur drengir: 1. Þinghólsskóli. 2.
Digranesskóli.
Verðlaunaafhending fer fram í
Þinghólsskóla miðvikudaginn 17.
apríl kl. 17. Sigurvegarar fá allir
mynd af liðinu til minningar ásamt
bikar fyrir skólann. Þeir sem lentu í
öðru sæti fá verðlaunaskjal fyrir
skólann sem á verða rituð nöfn þeirra
sem skipuðu liðið.
íþróttakennarar
Félagið
50 ára
íþróttakennarafélag íslands heldur
uppá 50 ára afmæli sitt á þessu ári og
af því tilefni ætla íþróttakennarar að
berast mikið á nú um helgina.
Þeir hittast í húsi BSRB, Grettis-
götu 89, á morgun, föstudag, kl. 16.
Þar verður fyrst glæsilegt afmæliskaffi
en síðan verður fundað um ýmis mál-
efni. Á laugardagsmorgun verður
haldið námskeið í badminton í
íþróttahúsi Kársnesskóla í Kópavogi
og eftir hádegi verður leikið blak á
sama stað. Kvöldhátíð
íþróttakennarafélagsins verður síðan
haldin um kvöldið í húsi rúg-
brauðsgerðarinnar í Borgartúni 6.
Jón Sigurðsson skorar körfu fyrir KR og Einar Bollason, lengst til hægri,
fylgist með. Þessi mynd er tekin fyrir nokkrum árum er þeir léku saman
með KR. í kvöld verða þeir andstæðingar, Jón þjálfar KR en Einar þjálfar
Hauka. „Hvorugur getur tapað", segir Einar, „Jón er Hafnfirðingur og óg
er KR-ingur!“
Úrslitaleikur
Tvö fram-
tiöarliö
Haukar og KR í úrslitum í Höllinni
kl. 21 í kvöld
Úrslitaleikirnir í bikarkeppni KKÍ fara fram í Laugardalshöll-
inni í kvöld. Kl. 19 leika ÍS og ÍR til úrslita í kvennaflokki en kl. 21
mætast svo Haukar og KR T úrslitaleik í karlaflokki.
Haukar höfnuðu í öðru sæti á nýloknu íslandsmóti eftir hörku-
leiki gegn Njarðvík en KR lenti í fjórða sæti. Bæði lið eiga á að
skipa mörgum ungum leikmönnum, meðalaldur beggja er um 20
ár, aðeins hærri hjá Haukunum. KR-ingar eru með 7 menn af 10
úr 2. flokki en hjá Haukunum eru fjórir 2. flokksleikmenn.
„Þetta verður án efa skemmtilegur leikur“, sagði Einar Bolla-
son, þjálfari Hauka og fyrrum KR-ingur. „Það er skemmtilegt að
einmitt þessi tvö lið skuli leika til úrslita í ár - ég hef þá trú að það
líði ekki mörg ár þar til baráttan um æðstu titla í íslenskum
körfuknattleik standi eingöngu á milli Hauka og KR. Þetta er tvö
ung framtíðarlið.“
„Haukarnir eru með gríðarlega skemmtilegt lið“, sagði Jón
Sigurðsson, þjálfari KR og Hafnfirðingur. „Ég hélt með þeim í
baráttunni við Njarðvík, en nú er þetta orðið ágætt hjá þeim, nú
er komið að okkur!“
KR hefur 10 sinnum orðið bikarmeistari frá 1966 og er núver-
andi handhafi bikarsins, vann Val á frækilegan hátt í úrslita-
leiknum í fyrra. Haukarnir eru enn án metorða í íslandsmóti og
bikarkeppni en eins og framfarirnar hafa verið hjá þeim virðist
aðeins tímaspursmál hvenær fyrsti bikarinn komist í höfn.
-VS
Heimsmeistarakeppnin
Rush galopn-
aði 7. riðil!
Skoraði sigurmark Wales á Hampden
Ian Rush hefur gefið Walesbú-
um nýja von um að komast til
Mexíkó - hann skoraði sigur-
mark Wales í óvæntum sigri á
Skotum á Hampden Park í Glas-
gow, 0-1, í undankeppni HM í
32. tap Luxemburgara í röð. Fjórir
vináttulandsleikir fóru fram í gær-
kvöldi og urðu úrslit þessi: Spánn-ír-
land 0-0, Sovétríkin-Austurríki 2-0,
Rúmenía-Pólland 0-0 og
Sivss-Tékkóslóvakía 2-0. _ ys.
knattspyrnu. Urslitin galopna 7.
riðil, Skotar, Spánverjar og Wal-
esbúar hafa 4 stig hvert en Island
2 stig. Skotland og Walcs hafa
leikið 4 leiki, Spánn og ísland
þrjá.
Skotar ollu miklum vonbrigð-
um og þegar sigurmarkið frá
Rush kom mínútu fyrir leikhlé
mátti heyra saumnál detta meðal
hinna 62 þúsund áhorfenda á
Hampden. Þetta var fyrsti sigur
Wales í Skotlandi í 34 ár.
V.Þjóðverjar burstuðu Mötlu 6-0,
5-0 í hálfleik, í 2. riðli. Uwe Rahn 2,
Karl-Heinz Rummenigge 2, Felix
Magath og Pierre Littbarski skoruðu
mörkin. Belgar tóku forystu í hinum
jafna 1. riðli með því að vinna Grikki
2-0 í Brussel. Mörkin gerðu Verc-
auteren og Scifo. Júgóslavía vann
Luxemburg 5-0 í 4. riðli og var þetta
England
Wilkinson
til Everton
Everton, efsta liðið í 1. deild
ensku knattspyrnunnar, keypti í
gær markaskorarann Paul Wilk-
inson frá Grimsby fyrir 250 þús-
und pund.
Aston Villa sigraði Stoke 2-0 í
1. deild í gærkvöldi. Didier Six og
varnarmaður Stoke gerðu mörk-
in. Wimbledon vann Shrewsbury
4-1 í 2. deild.
- E.Ól./VS.
Blak
Þróttur bikarmeistari
Þróttarar urðu bikarmeistarar
karla í blaki eina ferðina enn þeg-
ar þeir sigruðu ÍS 3-0 í úrslitaleik
í Digranesi í gærkvöldi. Þróttur
vann fyrstu hrinu 15-8, aðra 17-
15 og þriðju 16-14. ÍS var lengi
yfír í tveimur síðari hrinunum og
var komið í 13-6 í þeirri síðustu.
Á eftir léku Breiðablik og ÍS til
úrslita í bikarkeppni kvenna en
leiknum var ekki lokið er blaðið
fór í prentun. - VS.
Öldungamót
Valbjöm óstöövandi
Hann og Ólafur á HM í Róm
Valbjörn Þorláksson, KR-
ingurinn gamalkunni, var óstöðv-
andi á öldungameistaramótinu í
frjálsum íþróttum innanhúss sem
haldið var í fyrsta skipti um sl.
helgi. Hann vann í öllum greinum
í flokki 50-54 ára - var nálægt
eigin heimsmcti í 50 m grinda-
hlaupi (7,6 sek) og hljóp á 7,8 sek,
hljóp 50 metra á 6,5 sek, stökk
5,64 m í langstökki, kastaði kúlu
11,41 m og stökk 1,65 m í há-
stökki.
Marteinn Guðjónsson, ÍR,
sigraði í báðum greinum í flokki
60-64 ára, hljóp 50 m á 8,4 sek og
kastaði kúlu 10,58 m.
í flokki 45-49 ára sigraði Björn
Jóhansson, UMFK, í langstökki,
stökk 4,63 m, og í 50 m hlaupi á
7,5 sek. Ólafur Unnsteinsson,
HSK, kastaði kúlu 11,60 m og
Jón H. Magnússon, ÍR, stökk
1,35 m í hástökki.
I flokki 35-39 ára sigraði
Trausti Sveinbjörnsson, Aftur-
eldingu, í langstökki með 4,63 m
og í 50 m hlaupi á 7,5 sek. Jón M.
ívarsson, HSK, sigraði í kúlu-
varpi með 9,48 m og hástökki
með 1,55 m og Ólafur Guð-
mundsson, KR, sigraði í lang-
stökki, stökk 5,66 m.
Þeir Valbjörn og Ólafur Unn-
steinsson búa sig nú undir heims-
meistaramót öldunga sem haldið
verður f Róm í surnar, 22.-30.
júní.
-VS
Reykjavíkurmótið
Sá fyrsti
í kvöld
Knattspyrna
Fimmtán fara til Kuwait
Priðja boðsferð landsliðsins til Arabalanda. Annarleikurá
mánudag? Enginn atvinnumaður íferðinni. Guðni stjórnar.
íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu, skipað ieikmönnum úr ís-
lenskum liðum, heldur í dag
áleiðis til Kuwait þar sem leikinn
verður landsleikur á sunnudag.
Kuwaitbúar buðu liðinu í þessa
ferð með stuttum fyrirvara en ís-
lenskt landslið hefur tvívegis áður
farið í svipaða ferð. í mars 1982
til Kuwait og þá varð markalaust
jafntefli, og Island vann síðan 2-1
sigur í Saudi-Arabíu í september
sl.
Fimmtán leikmenn hafa verið
valdir til fararinnar og eru þeir
eftirtaldir:
Markverðir:
Friðrik Friðriksson, Fram
Stefán Jóhannsson, KR
Varnarmenn:
Porgrímur Þráinsson, Val
Sævar Jónsson, Val
Guðni Bergsson, Val
Kristján Jónsson Þrótti
Árni Sveinsson, IA
Tengiliðir:
Gunnar Gíslason, KR
Guðmundur Þorbjörnsson, Val
Njáll Eiðsson, KA
Einar Ásbjörn Ólafsson, Víði
Ómar Tortason, Fram
Framherjar:
Guðmundur Steinsson, Fram
Halldór Áskelsson, Þór
Ragnar Margeirsson, ÍBK
Guðni Kjartansson stjórnar
liðinu en aðrir sem fara með því
utan eru Sigurður Hannesson,
Þór Ragnarsson, Sigurjón Sig-
urðsson og Þorsteinn Geirharðs-
son.
Verið er að kanna möguleika á
að leika annan leik í ferðinni og
þá á mánudag. Þar kemur til
greina að leika við Jórdaníumenn
en liðið fer frá London um Jór-
daníu til Kuwait. Liðið er síðan
væntanlegt heim á miðvikudag.
-VS
KR og ÍR kl. 19
Reykjavíkurmótið í knatt-
spyrnu hefst á gervigrasvellinum í
Laugardal kl. 19 í kvöld. Það eru
KR og ÍR sem mætast í þessum
fyrsta leik en ÍR-ingar leika nú í
fyrsta skipti í Reykjavíkurmóti
meistaraflokks.
Liðunum átta er skipt í tvo
riðla. KR, Fram, Þróttur og ÍR
leika í A-riðli en Fylkir, Valur,
Ármann og Víkingur í B-riðli.
Tvö efstu lið komast í undanúrslit
og síðan verður hreinn úrslita-
leikur. Um helgina fara fram
tveir leikir, Fylkir og Víkingur
leika kl. 14 á laugardag og Fram-
Þróttur kl. 20.30 á sunnudags-
kvöld. Allir leikir mótsins verða
leiknir á gervigrasinu.
Fimmtudagur 28. mars 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 15