Þjóðviljinn - 16.04.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.04.1985, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTHR ÍÞRÓTTIR V-Pýskaland Dusseldorf.......26 6 7 13 42:57 19 Bielefeld........27 4 11 12 32:53 19 Braunschweig....26 7 2 17 30:61 16 Karlsruher.......26 3 9 14 34:69 15 Frá fyrsta Islandsmóti hins nýstofnaða Karatesambands. Á myndinni að ofan er maður mótsins, /Evar Þorsteinsson, til vinstri, í átökum við lærisvein sinn, Gísla Pálsson, í opna flokknum. Á neðri mynd eigast við Árni Einarsson, til vinstri, og Karl Gauti Hjaltason. Myndir: Valdís. Einvígið er hafið Bayern og Bremen bítast um meistaratitilinn. Eiga nánast sömu lið eftir. Atli nefbrotnaði. Magnús kom inná hjá Braunschweig. Maður helgarinnar sektaður! Frá Jóni H. Garðarssyni frétta- manni Þjóðviljans í V- Þýskalandi: Einvígi Bayern Miinchen og Werder Bremen um meistaratitil- inn í knattspyrnu er hafið - Bor- ussia Mönchengladbach heltist úr lestinni á föstudagskvöldið við tapið í Bremen sem við sögðum frá á laugardaginn. Öll önnur lið verða nú að einbeita sér að sæti í UEFA-keppninni, eða þá að berj- ast við að forðast fall. Bremen og Bayern eiga eftir að leika við nán- ast sömu andstæðinga, bæði eiga eftir heimaleiki við Leverkusen og Kaiserslautern og útileiki við Bochum, Braunschweig og Karls- ruher. Bayern á að auki útileik gegn Hamburger og heimaleik við Gladbach en Bremen útileiki við Köln og Dortmund og heimaleik við Bielefeld. Bayern náöi þriggja stiga for- ystu á ný með 3:0 sigri á Schalke á laugardaginn. Aðeins Junghans í marki Schalke kom í veg fyrir mun stærri sigur, svo og þversláin sem nötraði fjórum sinnum eftir skot Bæjara. Norbert Nachtweih skoraði rétt fyrir hlé og Holger Willmer og Roland Wohlfarth bættu við mörkum. Úrslit um helgina urðu þessi: Stuttgart-Dusseldorf..............5:2 Bremen-Gladbach...................2:0 Kaiserslautern-Karlsruher.........3:1 Braunschweig-Leverkusen...........0:2 Bielefeld-Bochum..................2:3 Bayern Múnchen-Schalke............3:0 Köln-Frankfurt....................2:0 Uerdingen-Hamburger SV........frestaö Dortmund-Mannheim.............frestaö Viðbótarupplýsingar um leik Stutt- gart og Diisseldorf á föstudagskvöld- ið: Atli Eðvaldsson nefbrotnaði strax á 3. mínútu leiksins en harkaði af sér og lék hann á enda. Náði sér aldrei á strik og fékk 5 í einkunn. Dusseldorf lék frábærlega í fyrri hálfleik, hefur sennilega aldrei sýnt betri knatt- spyrnu í vetur, og hefði verðskuldað 1:4 forystu í hléi, í stað 1:1. Þegar Stuttgart komst síðan yfir gaf Diiss- eldorf eftir. Atli átti stærstan þátt í jöfnunarmarkinu í fyrri hálfleik - hann skallaði þá í Bernd Förster og þaðan hrökk knötturinn í netið. Magnús Bergs kom inná sem vara- maður hjá Braunschweig í fyrsta sinn í langan tíma -19 mínútum fyrir leiks- lok gegn Leverkusen. Þaö breytti engu, Braunschweig tapaði 0:2 og ekkert nema fall blasir við liðinu. Eftir leikinn var svo Aleksander Rist- ic þjálfari rekinn úr embætti. Dirk Schlegel og Herbert Waas skoruðu mörk Leverkusen. Greinarhöfundur sá leik Kölnar og Frankfurt og hefði betur setið heima - þetta var lélegasti leikur helgarinn- ar. Frankfurt lék án fimm fastamanna og átti aldrei möguleika - Köln lék mjög illa en vann auðveldlega með mörkum frá Uwe Bein og Stefan Eng- els. Klaust Fischer átti frábæran leik í útisigri Bochum í Bielefeld og hann skoraði eitt markanna - sitt 14. fyrir Bochum í vetur. Bochum berst nú um sæti í UEFA-bikarnum, öllum á óvart. Kaiserslautern átti ekki í vand- ræðum með fallstimplað lið Karlsru- her, komst í 3:0 eftir 35 mínútur og slappaði síðan af. Efstu lið og neðstu Bundesligunnar BayernM.........27 16 7 4 63:34 39 Bremen..........26 14 8 4 69:40 36 Gladbach........26 13 6 7 64:39 32 Hamburger.......25 11 8 6 46:36 30 Bochum..........26 10 9 7 44:37 29 Köln............26 13 3 10 49:44 29 Stuttgart.......27 12 4 11 69:47 28 Uerdingen.......26 11 6 9 47:41 28 Bogarnir spenntir í Seljaskólanum. Mynd: Valdís. Bogfimi Elísabet varð önnur Finnar Norðurlandameistarar í Seljaskóla Finnar meistarar urðu Norðurlanda- i bogfimi fatlaðra á laugardaginn er Norðurlanda- mótið í þessari grein fór fram í íþróttahúsi Seljaskóla í Reykja- vfk. Finnar hlutu 1628 stig í keppninni, Norðmenn 1#9 stig, Svíar 1509, Danir 1456 og íslend- ingar ráku lestina með 1362 stig. Elísabet Vilhjálmsdóttir náði langbestum árangri íslensku keppendanna en hún varð önnur í kvennakeppnini með 506 stig. Tarja Pasto frá Finnlandi sigraði með 528 stig og Sirkka-Liisa Coll- in landa hennar varð þriðja með 487 stig. í karlakeppninni urðu íslensku keppendurnir fimm í neðstu sæt- unum. Pálmi Þ. Jónsson fékk 436 stig, Óskar Konráðsson 420, Rúnar Björnsson 411, Jón Eiríks- son 363 og Einar Helgason 295 stig. Veijo Viinikka frá Finnlandi sigraði með 557 stig, Erling fcarlsen frá Noregi varð annar með 543 stig og Raimo Tirronen frá Finnlandi þriðji með 542 stig. Stig þriggja hæstu keppenda frá hverju landi voru lögð saman til að fá út heildarstigatöluna í landskeppninni og hjá Islandi töldu því stig Elísabetar, Pálma og Óskars. - VS Ulrich Sude markvörður Gladbach var valinn maður helgarinnar fyrir að verja vítaspyrnurnar tvær í Bremen á föstudagskvöldið. Hann var síðan sektaður um 3.000 mörk fyrir að segj- ast vonast eftir því að Bremen yrði meistari - hann þyldi ekki lengur geislabauginn um höfuð Latteks þjálfara Bayern! Peir Sören Lerby og Lothar Matt- háus hjá Bayern voru valdir í lið vik- unnar hjá Kicker í áttunda sinn, ásamt Rudi Völler frá Bremen. Völl- er er markahæstur í deildinni með 19 mörk, Karl Allgöwer hjá Stuttgart hefur skorað 17 og Klaus Allofs hjá Köln 16. Badminton Fimm ára veWi á enda Skíði Guðmundur og Guðrún bikarmeistarar Guðmundur Jóhannsson frá Isafirði og Guðrún H. Kristjáns- dóttir frá Akureyri urðu bikar- meistarar SKI í alpagreinum 1985, Guðmundur eftir harða keppni við Daníei Hilmarsson frá Dalvík og Guðrún fékk mikla mótspyrnu frá Snædísi Ulriks- dóttur frá Reykjavík. Efstir í bikarkeppni karla urðu þessi: GuðmundurJóhannsson, Isaf..........150 Daníel Hilmarsson, Dalvík..........145 Árni Þ. Árnason, Reykjavík..........84 Ólafur Harðarson, Akureyri..........84 Helgi Geirharðsson, Reykjavík.......80 Efstar í bikarkeppni kvenna: Guðrún H. Kristjánsd. Akureyri.....150 Snædís Úlriksdóttir, Reykjavík.....140 Tinna T raustadóttir, Akureyri..... 110 BryndísViggósdóttir, Reykjav........87 Signe Viðarsdóttir, Akureyri........68 Ails hlutu 29 karlar og 19 konur stig í bikarkeppninni í vetur. Guðmundur Adolfsson, TJþR, batt enda á fimm ára sigurgöngu Brodda Kristjánssonar, TBR, í einliðaleik karla á íslands- meistaramótinu í badminton sefli fram fór á Akranesi um helgina. Guðmundur sigraði Brodda í úr- slitaleiknum, 18:15 og 15:12. Broddi sigraði samt sem áður tvöfalt - í tvfliðaleik karla og tvenndarleik. í tvfliðaleiknum urðu hann og Þorsteinn P. Hængsson, TBR, íslandsmeistar- ar eftir sigur á Snorra Ingvarssyni og Árna Þór Hallgrímssyni, TBR, í úrslitaleik, 18:16 og 15:11. Broddi og Kristín Magnús- dóttir, TBR, urðu síðan Is- landsmeistarar í tvenndarleik - þau unnu Þorstein P. Hængsson og Ingu Kjartansdóttur, TBR, 15:4 og 15:7 í úrslitum. Þórdfs Edwald varð íslands- meistari í einliðaleik kvenna í annað skipti. Hún sigraði Kristínu Magnúsdóttur, sem varð meistari sl. tvö ár, með 11:2,8:11 og 12:10 í spennandi úrslitaleik. Þórdís varð einnig Islands- meistari í tvíliðaleik kvenna. Þar lék hún með Elísabetu Þórðar- dóttur og þær sigruðu Kristínu M. og Ingu K. í úrslitaleik 15:2, 9:15 og 15:5. Ása Pálsdóttir, IA, varð þó sig- ursælust allra á íslandsmeistar- apiótinu. Hún varð þrefaldur ís- landsmeistari í A-flokki, sigraði í einliðaleik kvenna, tvfliðaleik kvenna með Fríðu Tómasdóttur, ÍA, og í tvenndarleik en þar lék hún með Þórhalli Jónssyni, ÍA. Haraldur Hinriksson, ÍA, sigraði í einliðaleik karla og einnig í tví- liðaleik karla þar sem hann lék með Hauki P. Finnssyni, TBR. Eysteinn Björnsson, TBR, sigraði í einliðaleik í öðlinga- flokki (40 ára og eldri) og í tví- liðaleik unnu hann og Óskar Guðmundsson, KR. Jón Árna- son, TBR, sigraði í einliðaleik í æðsta flokki (50 ára og eldri) og í tvíliðaleik með Ríkharði Pálssyni, TBR. - VS Guðmundur sigraði Brodda og er íslandsmetstari í einliðaleik karla. Þórdís meistari í kvennaflokki. Broddi vann þó tvöfalt - Ása þrefalt. Guðmundur Adolfsson - Islandsmeistari í einliða- leik karla. Þórdís Edwald - íslandsmeistari I einliða- og tvíliðaleik kvenna. Karate Ævar hafði Ajtlp Fjorug ursutaglima i opnaflo/cknum. Ævar, Atli ogJon r Ævar Þorsteinsson, Breiða- bliki, sigraði Atla Erlendsson, Karatefélagi Reykjavíkur, í skemmtilegri úrslitaglímu í opn- um flokki á fyrsta Islandsmótinu í karate sem fram fór í Garðabæ á laugardaginn. Þeir Ævar og Atli hlutu tvenn gullverðlaun hvor á mótinu ásamt Jónínu Olesen, KFR. Ævar náði strax góðri forystu í úrslitaglímunni, fékk hálft stig fyrir Uraken (högg með bak- hnefa) og Ippon fyrir að fella Atla og fylgja eftir með höggi. Atli svaraði með tveimur högg- um að andliti, staðan þá 1 1/2 gegn 1. Ævar komst í 2-1 með Gyaku-zuki (höggi að bol) en Atli svaraði með sínu þriðja höggi að andliti, 2-1 1/2. Ævar lauk síðan glímunni með því að skora sitt annað Ippon, fullnaðarstig, með Ura Mawashi geri (öfugu snúningssparki) og úrslitin urðu því 3-1 1/2, Ævari í vil. Árni Einarsson, KFR, hafnaði síðan í þriðja sæti í opna flokkn- um og Gísli Pálsson, Breiðabliki, varð fjórði. Halldór Narfi Stefánsson, Þórshamri, sigraði í kata (ein- með 2 gull hvert. staklingskeppni) unglinga, undir 16 ára, hlaut 18,8 stig. Maris Joc- humsson, sem er nýbyrjaður að æfa á ný eftir tveggja ára hlé, varð annar með 18 stig og í þriðja sæti varð Kristjana Sigurðardóttir, Gerplu, með 16,2 stig. Jónína Olesen, KFR, og Kristín Einarsdóttir, Gerplu, voru í sérflokki í kata kvenna. Jónína sigraði með 22,6 stig en Kristín hlaut 21,4. Marie Stefáns- dóttir, Stjörnunni, varð þriðja með 18,9 stig. Atli Erlendsson, KFR, sigraði í kata karla eftir harða keppni. Hann fékk 24,6 stig, Árni Einars- son, KFR, 24,4stig og Karl Gauti Hjaltason, Þórshamri, 23,4 stig. Þá var komið að bardaganum, kumite, og kvenfólkið byrjaði. Þar fékk Jónína Olesen, KFR, sín önnur gullverðlaun, Elín Eva Grímsdóttir, Þórshamri, varð önnur og Sigrún Guðmundsdótt- ir, Þórshamri, þriðja. Kristjana Sigurðardóttir, Gerplu, vakti mikla athygli en hún veitti Jónínu harða keppni í fyrstu umferð. Árni Einarsson, KFR, sigraði í kumite karla undir 65 kg. Karl Sigurjónsson, Þórshamri, varð annar og Visente Carraso, KFR, þriðji. onina Atli Erlendsson, KFR, sigraði í 73 kg flokki. Sigurjón Gunnars- son, KFR, varð annar og Bjarni Kristjánsson, KFR, þriðji en hann stóð sig vel gegn Atla. Jóhannes Karlsson, KFR, sigr- aði nokkuð óvænt í 80 kg flokki, en Gísli Klemenzson, Þórshamri, sem talinn var sigurstranglegast- ur, mátti sætta sig við þriðja sæt- ið. Annar varð Víkingur Sigurðs- son, Þórshamri. Hann vakti at- hygli fyrir sérstakan stfl og fer ótroðnar slóðir í glímunni. Ævar Þorsteinsson, Breiða- bliki, sigraði síðan í þyngsta flokknum, yfir 80 kg. Karl Gauti Hjaltason, Þórshamri, varð ann- ar og Magnús Blöndal, upprenn- andi, sókndjarfur og rauðhærður risi úr Þórshamri, hafnaði í þriðja sætinu. KFR var með besta útkomu allra félaganna á mótinu. Félagið hlaut 6 gull, 3 silfur og 3 brons. Þórshamar fékk 1 gull, 5 silfur og 4 brons, Breiðablik (Ævar) fékk 2 gull, Gerpla 1 silfur og 1 brons og Stjarnan 1 brons. Auk þessara félaga tóku Selfyssingar þátt í mótinu, svo og keppendur frá Álftanesi og Hvolsvelli. -VS Evrópuknattspyrnan Annað tap Verona Áfram langefst. Anderlechtþarffimm í viðbót. Verona tapaði sínum öðrum leik á þessum vetri í ítölsku 1. deildarkeppninni í knattspyrnu á sunnudaginn. Torino kom þá í heimsókn og náði að sigra 2-1. Samt hefur Verona fjögurra stiga forystu þegar aðeins fimm um- ferðum er ólokið svo meistaratit- illinn blasir áfram við. Verona hefur 36 stig en Torino, Juventus, Inter Milano og Sampdoria eru með 32 stig hvert. Graeme Soun- ess skoraði fyrir Sampdoria sem vann AC Milano 2-1 og Zbigniew Boniek skoraði tvö marka Ju- ventus í 3-2 sigri á Udinese. Forysta Anderlecht í Belgíu minnkaði úr 11 stigum í 10 er liðið gerði jafntefli, 1-1, við FC Brúgge. Sjö umferðir eru eftir og Anderlecht^arf aðeins fimm stig í viðbót til að tryggja sér meistar- atitilinn. Anderlecht er með 48 stig, Waregem 38 og FC Briigge 37 stig. Nantes vann aðeins á í Frakklandi, sigraði 3-1 í Strasbourg á meðan Bor- deaux gerði 1-1 jafntefli í Sochaux. Bordeaux hefur 51 stig en Nantes 46 þegar sex umferðum er ólokið. Ajax vann Go Ahead 2-0 á útivelli í hollensku 1. deildinni og PSV Eind- hovenburstaðiHaarlem7-1. LeikFe- yenoord og Maastricht var frestað. Ajax hefur 44 stig og á níu leiki eftir, PSV er með 40 stig og á 8 leiki eftir og Feyenoord hefur 37 stig en á 10 leiki eftir. Excelsior, lið Heimis Karls- sonar, tapaði 2-0 í Groningen og er í þriðja neðsta sætinu en þrjú lið falla. Barcelona gerði markalaust jafn- tefli heima gegn Atletico Bilbao í næstsíðustu umferðinni á Spáni. For- ysta liðsins er þá níu stig þar sem Atl- etico Madrid tapaði 1-0 gegn Rea! Zaragosa. -VS Handbolti Ómar Torfason skoraði fyrstu tvö mörk sín fyrir Fram. Knattspyrna Fram á enn von Aukastig gegn KR Framarar eiga enn sigurvon í A-riðli Reykjavíkurmótsins í meistaraflokki karla í knatt- spyrnu eftir 3:0 sigur á KR-ingum á gervigrasinu í fyrrakvöld. Þeir fengu þar með dýrmætt aukastig. Guðmundur Steinsson skoraði fyrsta markið og Ómar Torfason bætti síðan tveimur við, sínum fyrstu mörkum fyrir Fram. Staðan í A-riðli er þá þcssi: Þróttur......2 2 0 0 4:1 5 Fram.. IR... KR.... .2 1 0 1 3:1 3 .2 0 1 1 2:4 1 .2 0 1 1 1:4 1 Þróttur á eftir að leika við KR og Fram við ÍR en síðarnefndi leikurinn fer fram á fimmtudags- kvöldið. í kvöld verður, leikið I B-riðlinum, Fylkir og Valur mæt- ast kl. 20.30 á gervigrasinu. Stað- an í A-riðli er þessi: Valur.................1 1 0 0 2:0 2 Ármann.......... Fylkir.......... Víkingur........ Sigurliðin úr riðlunum leika um efsta sætið, lið númer tvö um þriðja sætið o.s.frv. - VS .2101 1:2 2 . 1 0 1 0 2:2 1 .2 0 1 1 2:3 1 PiHaliðið til Finnlands Piltalandsliðið í handknattleik, 18 ára og yngri, er á förum til Finnlands þar sem það tekur þátt í Norðurlandamóti um n®stu helgi. Undirbúningur liðsins, i#dir stjóm Geirs Hallsteins- sonar, hefur verið mjög góður og er það valið úr hópi rúmlega*eitt hundrað pilta sem sérstaklega vom boðaðir til æfinga sl. haust. Liðið er þannig skipað: Markver&ir: Guömundur Jónsson, Þrótli Hrafn Margeirsson, (R A&rir leikmenn: Ámi Friðgeirss<*i, Gróttu Einar Einarsson, Stjörnunni Gunnar Beinteinsson, FH Ingólfur Steingrlmsson, ÁrMpnni Jón Þórir Jónsson, Breiðablíki Jón Kristjánsson, KA, fyrirtiði Pétur Petersen, FH Sigurjón Sigurðsson, Haukum Skúli Gunnsteinsson, Stjömunni Stefán Kristjánsson, FH Stefán Sleinsen, Vlkingi Útfur Eggertsson, Aftureldingu Þórður Sigurðsson, Val Auk Geirs fara með liðinu til Finnlands þeir Friðrik Guð- mundsson óg Davíð Sigurðsson, sem eiga sæti í drengjalandsliðs- nefnd HSÍ. -VS Bikarleikir HK stóð í FH Öruggur sigur Stjörnunnar á Þrótti Stjarnan og FH eru komin í undanúrslit bikarkeppninnar í handknattleik. Stjarnan vann ör- uggan sigur á Þrótti, 36:28, og FH vann HK 31:25 í Digranesi á sunnudagskvöldið. Leikur Stjörnunnar og Þróttar var jafn framan af en Stjarnan hafði þó ávallt forystuna. Fyrst 3:0 og 6:3 en eftir en eftir 15 mín- útna leik var staðan 7:5. I lok fyrri hálfleiks náði Þróttur að minnka muninn í eitt mark, 14:13. Stjörnumenn komu á- kveðnir til leiks eftir hlé og var mikil barátta í vöm þeirra og markvarsla Brynjars Kvarans góð. Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður var orðinn sex marka munur Stjömunni í hag, 25:17. Þróttarar reyndu þá að minnka muninn með því að taka þrjá menn úr umferð en það dugði ekki til. Sigurjón Guðmundsson og Hannes Leifsson voru bestir Stjörnumanna ásamt Brynjari en hjá Þróttumm stóðu Páll Ólafs- son og Konráð Jónsson sig best. Sigurjón og Hannes gerðu 8 mörk hvor fyrir Stjömuna, Magnús 6, Guðmundur 5, Her- mundur 4, Eyjólfur 2, Gunn- laugur 2 og Skúli 1. Konráð gerði 10 mörk fyrir Þrótt, Páll 7, Sverr- ir 4, Birgir 3, Lárus 2 og Haukur 2. HK kom á óvart Leikur HK og FH var mjög jafn framan af og HK kom FH- ingum á óvart með góðum leik. Um miðjan fyrri hálfleik hafði HK forystu, 11:9. En HK saxaði á forskotið og komst marki yfir fyrir lok hálfleiksins, 14:13. FH- ingar léku síðan mun betur í seinni hálfleik og opnuðu vörn HK oft glæsilega. Um miðjan hálfleikinn var staðan 23:17 fyrir FH og þar með má segja að sigur hafi verið unninn. Sveinn Bragason átti mjög góðan leik með FH en hann tók stöðu Hans Guðmundssonar sem ekki lék með. Haraldur Ragnars- son varði vel. Bestu menn HK vom Björn Björnsson og Ólafur Pétursson. Kristján skoraði 9 mörk fyrir FH, Sveinn 7, Guðjón G. 4, Guðjón Á. 4, Óskar 2, Val- garður 2, Þorgils Óttar 1, Stefán 1 og Sigþór 1. Bjöm skoraði 8 mörk fyrir HK, Ólafur 5, Krist- inn 5, Stefán 3, Ragnar 3 og Rún- ar 1. - hs 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 16. apríl 1985 ÞriðjUdagur 16. apríl 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.