Þjóðviljinn - 07.05.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 07.05.1985, Blaðsíða 1
Urslit í næstsíðustu umferð ensku knatt- spyrnunnar sem leikin var i gær: 1. deild: Arsenal-Southampton...........1-0 Aston Villa-LutonTown.........0-1 Chelsea-Sheff. Wed............2-1 Coventry-Liverpool............0-2 Everton-Q.P.R.................2-0 Ipswich-Stoke.................5-1 Leicester-Sunderland..........2-0 Manch.Utd.-NottmForest........2-0 Newcastle-Tottenham...........2-3 West Ham-Norwich..............1-0 2. deild: Barnsley-Wimbledon............0-0 Cardiff-Cr.Palace.............0-3 Leeds-Shrewsbury..............1-0 Middlesboro-Birmingham........0-0 NottsCounty-Manch.City........3-2 Oldham-Fulham.................2-1 Portsmouth-Carlisle...........3-1 Sheff.Utd.-Blackburn..........1-3 Wolves-Huddersfield...........2-1 3. deild: Bolton-Bradford City..........0-2 Burnley-Bristol City..........0-1 Derby County-Swansea..........1-1 Doncaster-Orient..............1-1 HullCity-YorkCity.............0-2 Lincoln-Walsall...............0-0 Plymouth-Newport..............1-0 Preston N.E.-Wigan............2-5 Reading-Brentford.............0-0 Rotherham-Cambridge...........0-1 4. deild: Crewe-Darlington..............2-2 Hartlepool-Blackpool..........0-2 Hereford-Exeter...............1-2 Mansfield-Southend............1-0 Peterboro-Chesterfield........0-0 PortVale-Colchester...........3-2 Rochdale-Scunthorpe...........3-3 Stockport-Halifax.............0-3 Swindon-Chester...............4-4 Torquay-Norhampton............0-2 Tranmere-Bury.................3-2 Wrexham-Aldershot.............1-0 Staðan 1. delld: Everton....37 26 6 5 83-36 84 Manch.Utd 40 21 10 9 73-41 73 Tottenham 39 21 8 10 74-46 71 Liverpool. .. 37 19 10 8 58-29 67 Arsenal....41 19 8 14 59-47 65 Southton.... 40 18 10 12 53-46 64 Sheff.Utd.... 40 16 14 10 56-42 62 Nott.For...40 18 7 15 55-48 61 Chelsea....39 16 12 11 59-46 60 A.Villa....41 15 11 15 59-58 56 Leicester .. . 41 15 6 20 65-69 51 W.B.A......40 15 6 19 54-60 51 Newcastle.. 41 13 12 16 55-70 51 Q.P.R......41 13 11 17 52-69 50 Watford....38 12 13 13 68-63 49 Luton......38 13 9 16 51-58 48 Ipswich....39 12 10 17 44-55 46 WestHam.. 37 11 12 14 44-59 45 Norwich....40 12 9 18 44-63 45 Coventry.... 37 12 4 21 40-61 40 Sunderland41 10 10 21 38-60 40 Stoke......39 3 8 28 23-84 17 2. deild: Oxford.....40 24 8 8 77-34 80 Birmham... 41 24 7 10 58-33 79 Man.City .... 41 20 11 10 61-39 71 Portsmouth 41 19 14 8 67-50 71 Blackburn... 41 20 10 11 63-39 70 Leeds......41 19 12 10 66-42 69 Brighton...40 18 12 10 49-32 66 Shr.bury...41 18 11 12 66-51 65 Fulham.....41 18 8 1 5 67-64 62 Grimsby....40 17 8 15 68-60 59 Barnsley...41 14 16 11 42-38 58 Wimbledon 41 15 10 16 69-74 55 Huddfld....40 15 9 16 50-60 54 Oldham.....41 14 8 19 44-65 50 Cr.Palace... 41 12 12 17 46-63 48 Carlisle...41 13 8 20 48-62 47 Charlton...40 11 11 18 47-55 44 Sheff.Utd. .. 40 10 13 17 52-63 43 Middbro....41 9 10 22 38-57 37 NottsCo....41 10 7 24 45-72 37 Cardiff....41 9 8 24 46-77 35 Wolves.....41 8 9 24 37-76 33 3. delld: Bradford C 45 28 9 8 77-45 93 HullCity .... 45 25 12 8 77-47 87 Millwall...43 24 11 8 68-40 83 BristolC...44 24 8 12 72-44 80 Gillham....42 22 8 12 69-56 74 Orient.....45 11 12 22 51-76 45 Burnley....45 11 10 24 57-71 43 Swansea.. . 44 11 10 23 50-78 43 Preston....45 12 7 26 50-100 43 Cambridge 45 4 9 32 34-92 21 4. deild: Ch.field...45 26 12 7 64-35 90 Blackpool 45 24 13 8 73-39 85 Bury.......45 24 11 10 75-49 83 Darlington 44 22 13 9 62-48 79 Löng bið á enda! Everton meistari eftir 15 mögur ár. Sunderland fallið. West Ham vann heima. Coventry illa statt. Norwich í mikilli hœttu. City tapaði - spenna í 2. deild. Englandsmeistaratitillinn í knattspyrnu er kominn í örugga höfn hjá Everton eftir 2-0 sigur á QPR á Goodison Park í gærdag. Þetta var nánast formsatriði - Everton hefur verið með yfir- burðastöðu í 1. deild undanfarið og ekki tapað leik síðan 22. des- ember. Ótrúleg sigurganga. Miðvörðurinn marksækni, Derek Mountfield, skoraði eftir hornspyrnu á 25. mín. og eftir það hélt Peter Hucker QPR á floti með frábærri markvörslu. Þó átti QPR stöku sókn og Gary Bannister skaut í stöng Everton- marksins eftir eina slíka. En úr- slitastundin rann upp á 83. mín- útu. Pat Van den Hauwe átti glæsisendingu á Graeme Sharp sem skallaði af krafti í netið 2-0 og 50 þúsund áhorfendur risu úr sætum. Meistaratitillinn var í höfn eftir 15 löng ár - einveldi erkifjendanna í Liverpool var á enda. Man. Utd. er þar með öruggt með sæti í Evrópukeppni bikar- hafa og liðið steig stórt skref að öðru sæti 1. deildarinnar með 2-0 sigri á Nottm. Forest. John Gi- dman skoraði úr aukaspyrnu og Frank Stapleton bætti öðru marki við. Tottenham er í sömu hugleið- ingum og vann 3-2 í Newcastle. David Leworthy, Glenn Hoddle og Garth Crooks skoruðu fyrir Tottenham en Peter Beardsley úr tveimur vítaspyrnum fyrir Newc- astle. Graham Rix tryggði Arsenal Belgía sigur á Southampton og liðið á veika von um Evrópusæti. Sheff. Wed. tapaði hins vegar öðru sinni á þremur dögum og er að misa sénsinn. Kerry Dixon skoraði tví- vegis fyrir Chelsea en Mark Smith gerði mark Sheff. Wed. Sunderland er fallið í 2. deild eftir 2-0 tap í Leicester. Staða Coventry versnaði enn við ósigur á heimavelli gegn Li- verpool, 0-2, og miklar iíkur eru á að liðið falli í 2. deild ásamt Sund- erland og Stoke. Paul Walsh Anderlecht meistari Anderlecht, lið Arnórs Guð- johnsens, varð um helgina belgískur meistari í knattspyrnu í 18. sinn með því að sigra Mechel- en 5-0 á heimavelli. Enn eru fjór- ar umferðir eftir í belgísku 1. deildinni en Anderlecht er komið með 11 stiga forystu og hefur ekki tapað lcik það sem af er keppnis- tímabilinu - nema gegn Real Ma- drid í UEFA-bikarnum. Arnór hefur ekki gengið frá nýjum samningi við félagið en reiknað er með að hann semji til eins árs innan skamms. Hann hefur átt við meiðsli að stríða í vetur og sama og ekkert Ieikið með. -VS Handbolti Hans kyrr Hans Guðmundson landsliðs- maður úr FH fékk tilboð um að þjálfa lið Þórs Vestmannaeyjum og leika með því í 2. deildinni næsta vetur. Hans sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að hann hefði ákveðið að taka því ekki og leika áfram með íslandsmeistur- um FH sem þegar hafa misst tvo sterka leikmenn, Kristján Arason og Svein Bragason. -VS skoraöi bæði mörk Liverpool. West Ham vann í fyrsta sinn á heimavelli síðan í nóvember, lagði Norwich að velli 1-0. Norw- ich, mjólkurbikarmeistararnir sjálfir, eru nú komnir í fjórða neðsta sæti og í bullandi fall- hættu. Luton er hins vegar sama og sloppið eftir 1-0 útisigur gegn Aston Villa. Brian Stein skoraði sigurmarkið. Ipswich steig einnig stórt skref með 5-1 sigri á Stoke - Kevin Wilson gerði þrjú mark- anna. Man. City tapaði óvænt fyrir Notts County í 2. deild og fjögur lið berjast því enn um 3. sætið - City, Portsmo- uth, Blackburn og Leeds. Mögu- leikar City eru þó langmestir, sigur heima gegn Charlton á laugardag tryggir 1. deildarsæti. Eitt sæti enn réðist endanlega í gær, Darlington náði 4. sæti 4. deildar og þar með sæti í 3. deild. - VS. Fatlaðir Fyrsti bikarinn er í höfn hjá Kevin Ratcliffe fyrirliða og félögum í Everton - enski meistaratitillinn. Sigrar liðið einnig í ensku bikarkeppninni og Evrópukeppni bikarhafa? Ina setti Norður- landamet ína Valsdóttir úr Ösp hlaut gullverðlaun og setti Norður- landamet i 100 m flugsundi í flokki þroskaheftra á Norður- landameistaramóti fatlaðra í sundi sem fram fór í Turku i Finn- landi um helgina. Ina synti vega- lengdina á 1:34,54 mín. Island hlaut að auki 4 silfur- verðlaun og 8 brons á mótinu og sett voru 11 íslandsmet og 2 ung- lingamet. ína fékk tvö silfur, í 100 m baksundi og 50 m flugsundi, Jónas Óskarsson hlaut silfur í 100 m baksundi og Sigrún Huld Hrafnsdóttir í 100 m bringusundi. Sigurður Pétursson hlaut 4 brons, Sigrún Huld og Hrafn Logason 2 brons hvort. Auk þeirra kepptu Edda Bergmann og Oddný Ott- arsdóttir fyrir hönd íslands á mótinu. -VS Noregur Mest fjallað um Bjama Lokaði markinu gegn Kongsvinger og Brann er efst Frá Markúsi Einarssyni frétta- manni Þjóðviljans í Noregi: Bjarni Sigurðsson landsliðs- markvörður er sá leikmaður í norsku 1. deildinni í knattspyrnu sem mest er fjallað um eftir aðra leikhelgina. Bjarni og félagar náðu markalausu jafntefli á úti- velli gegn Kongsvinger og eru ef- stir í deildinni með 3 stig úr tveimur leikjum. Leikurinn sjálfur var slakur og Kongsvinger fékk fjölmörg færi, maður gegn manni, en ávallt lok- aði Bjami markinu. Hann fékk 2, næsthæstu einkunn, hjá norska Dagblaðinu og aðeins tveir aðrir f deildinni náðu því. Hjá Verdens Gang fékk hann 7 af 10 mögu- legum og fékk enginn í deildinni hærri einkunn en þrfr þá sömu. í Dagblaðinu birtust af honum tvær myndir, önnur sjö dálka en hin tveggja dálka. Guðbjörn Tryggvason lék ekki með Start sem tapaði 2-0 fyrir Lilleström. Bjami Sigurðsson. UMSJÓN: VtÐIR SIGURÐSSON Þriðjudagur 7. mai 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.