Þjóðviljinn - 07.05.1985, Side 2
V. Þýskaland
„Nú höfum við titilinn“
Yfirburðir Bayern gegn Gladbach en Bremen missti niður2-0 forskotgegn
Leverkusen. Góður útisigur Diisseldorf og sigrar hjá Stuttgart og Uerdingen.
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Þegar Bayern Miinchen hafði
gjörsigrað Borussia Mönchengla-
dbach 4-0 frammi fyrir 78 þúsund
áhorfendum á laugardaginn
gengu ailir leikmenn liðsins til
búningsklefanna, nema Dieter
Höness. Hann beið úti á vellinum
uns hann heyrði úrslitin úr leik
Werder Bremen og Bayern Le-
verkusen. Þegar þau komu, 2-2,
hljóp hann inní klefa og þaðan
heyrðust gífurleg fagnaðarlæti.
Bayern er komið með tveggja
stiga forskot á Bremen þegar
fimm umferðir eru eftir og Udo
Lattek þjálfari sagði: „Nú höfum
við titilinn í hendi okkar.“
Bayern hafði yfirburði gegn
Gladbach með Lothar Mattháus í
banaformi gegn sínum gömlu fé-
lögum, en hann, Sören Lerby,
Laus Augenthaler og Holger
Willmer léku allir frábærlega.
Höness skallaði í netið á 34. mín.
og síðan kom Mattháus með
glæsiskalla, 2-0, á 48. mín. Ro-
land Wohlfarth og Reinhold
Mathy bættu við mörkum og stór-
sigur var staðreynd.
í Bremen stefndi allt í öruggan
sigur heimaliðsins á Leverkusen
framanaf. Yasuhiku Odudera
skoraði eftir 12 mínútur og strax á
eftir bætti Rudi Völler öðru
marki við. En Völler lék einn af
eðlilegri getu hjá Bremen, miðja
liðsins var slöíc, og þeir Falko
Götz og Alois Reinhardt jöfnuðu
leikinn fyrir Leverkusen með
tveimur mörkum í seinni hálfleik.
Gífurleg vonbrigði fyrir leik-
menn Bremen og 18 þúsund
áhorfendur púuðu á þá í leikslok.
Úrslit urðu þessi í Bundeslig-
unni um helgina:
Bayern-Gladbach.................4-0
Bremen-Leverkusen...............2-2
Stuttgart-Schalke...............1-0
Dortmund-Dusseldorf........
Uerdingen-Bochum...........
Köln-Hamburger SV..........
Braunschweig-Kaiserslautern
Bieleteld-Karlsruher.......
Mannheim-Frankfurt.........
. 1-2
.3-1
. 2-1
. 2-1
. 4-1
.3-1
®GUND|R )
DOPPEL DUSCH
-sjampó og sápa
í sama clropa!
Helmut Roleder markvörður
Stuttgart hlýtur að hafa lesið
skammirnar um sig í Þjóðviljan-
um því hann sýndi markvörslu í
heimsklassa þegar Stuttgart vann
Schalke 1-0. Lið Stuttgart var
mjög slakt, enda vantaði sex
fastamenn. Júrgen Klinsmanna
skoraði sigurmarkið á 63. mín-
útu. Klaus Fichtel hjá Schalke
setti nýtt leikjamet í Bundeslig-
unni, hann lék sinn 520. leik og
bætti þar með met Willi Neuber-
gers.
Dússeldorf sýndi fágæta bar-
áttu í Dortmund og vann þýðing-
armikinn 2-1 sigur. Þar með
aukast líkurnar á að liðið haldi
sæti sínu í deildinni. Ralf Loose
kom Dortmund yfir á 6. mínútu
en Sepp Weikl jafnaði á 15. mín.
fyrir Dússeldorf. Gúnter Thiele
skoraði síðan sigurmarkið á 66.
mínútu. Atli Eðvaldsson kom
inná í hálfleik hjá Dússeldorf og
fékk 4 í einkunn.
Uerdingen vann loks eftir fjóra
leiki í röð án sigurs. Sigurinn
gegn Bochum, 3-1, var sanngjarn
og besti maður liðsins var Peter
Loontiens, sem hefur tekið
stöðuna af Lárusi Guðmunds-
syni, var besti maður Uerdingen
og fiskaði tvær vítaspyrnu sem
Funkelbræður, Friedhelm og
Wolfgang, skoruðu úr. Á milli
jafnaði Klaus Fischer fyrir Boc-
hum en Franz Raschild innsiglaði
sigur Uerdingen með marki á 80.
mín. Lárus kom inná sem vara-
maður á síðustu mínútu leiksins.
Köin vann sigur á Hamburger í
ágætum leik. Hamburger var
betra í fyrri hálfleik og þá skoraði
Ditmar Jacobs með skalla, 0-1.
Köln var sterkara eftir hlé en
Hamburger hugsaði meir um
vörnina. Pierre Littbarski og
Klaus Allofs áttu stórgóðan leik
með Köln ásamt Skotanum Vinc-
ent Mennie og Allifs jafnði á 69.
mínútu. Stefan Engels skoraði
síðan sigurmark Kölnar fjórum
mínútum síðar.
Braunschweig á enn veika von eftir
sigurinn á Kaiserslautern og ný
leikaðferð hjá nýjum þjálfara réði þar
mestu um úrslit. Sigi Reich skoraði
öll fjögur mörk Bielefeld í fall-
slagnum gegn Karlsruher og lið hans
getur því enn haldið sér uppi. Það var
þó slök dómgæsla sem var vendi-
punkturinn í þeim leik. Mannheim
lék sinn 13. leik í röð án taps og stefnir
á sæti í UEFA-bikarnum í fimmta
skipti.
Staða efstu og neðstu Iiða í Bund-
esligunni:
Bayern..........29 17 7 5 68-36 41
Bremen..........29 15 9 5 76-46 39
Köln............29 16 3 10 57-49 35
Gladbach........29 13 8 8 65-44 34
Mannheim........29 11 11 7 41-40 33
Hamburger.......27 12 8 7 49-39 32
Uerdingen.......28 12 7 9 50-42 31
Stuttgart.......29 13 4 12 70-49 30
Dusseldorf......29 8 8 13 46-59 24
Dortmund........29 10 4 15 41-56 24
Bielefeld.......29 5 12 12 37-55 22
Karlsruher......29 4 10 15 41-76 18
Braunschweig... 29 8 2 19 33-68 18
Fortuna Köln gerði jafntefli, 1-1,
gegn St. Pauli á útiveíli í 2. deild.
Janus Guðlaugsson átti góðan leik
með Fortuna og fékk 3 í einkunn.
Fortuna er áfram í 12. sæti deildarinn-
Handbolti
Island naumlega
í lokakeppnina
Mark dœmt afFinnum í lokin
ísiand tryggði sér sæti í loka-
keppni heimsmeistaramótsins í
handknattleik karla 21 árs og
yngri með því að sigra í forriðli
sem leikinn var í Danmörku um
helgina. ísland sigraði Holland
21-20 og gerði jafntefli við Finna,
20-20. Finnar sigruðu einnig
Hollendinga með einu marki en
með lægra markaskori en íslend-
ingar.
Naumt var það líka gegn Finn-
um. ísland var undir, 20-16, þeg-
ar skammt var til leiksloka, en
náði að jafna, 20-20, 8 sekúndum
fyrir Ieikslok. Finnar skoruðu
síðan mark í lokin og var það í
fyrstu dæmt gilt en dómararnir
komust síðan að þeirri niður-
stöðu að leiknum hefði verið lok-
ið áður en markið var skorað,
eftir samráð við tímaverði. Mjög
umdeilt - en ísland leikur í loka-
keppninrii á Ítalíu næsta vetur.
Valdimar Grímsson var
markahæstur gegn Hollending-
um með 5 mörk en Geir Sveins-
son, Jakob Jónsson og Hermund-
ur Sigmundsson skoruðu 4 mörk
hver. Gegn Finnum skoraði Jak-
ob síðan 8 mörk en Karl Þráins-
son 4. -VS
Sigrún Blomsterberg (7) og Margrét Theodórsdóttir (13) i hörkuslag við norsku stúlkurnar I Seljaskólanum á laugardaginn. Mynd: E.OI.
Handbolti
Kafsigling fyrst en
sá seinni mun betri
Noregur í A-keppnina eftir tvo sigra hér á landi. Kolbrún
varði af snilld í báðum leikjunum.
Noregur tekur þátt í A-heimsmeist-
arakeppni kvenna í handknattleik eftir
tvo örugga sigra á íslenska landsliðinu
hér á Iandi um helgina. íslensku stelp-
urnar voru kafsigldar í fyrri leiknum í
Digranesi á föstudagskvöldið, 21-7, en
léku mun betur í síðari leiknum í Selja-
skóla á laugardaginn sem þær töpuðu
einnig, 26-18.
Það var taugastrekkt lið sem hóf'fyrri
ieikinn. íslensku stelpurnar héldu bolt-
anum varla og var hann annaðhvort útaf
eða í höndum norska liðsins. Það var
engu líkara en skyttur íslenska liðsins
væru í fríi. Engin skaut og allir tilburðir
voru kæfðir í fæðingu af sterkri vörn og
frábærri markvörslu norska liðsins.
Einu jöfnu tölur leiksins voru 1-1 en
síðan breyttist það í 1-4, 2-8 og 3-13. í
síðari hálfleik var sama sagan. Þó
hleypti Guðrún Kristjánsdóttir fjöri í
spil íslensku stelpnanna er hún kom
inná. Hún ein virtist hafa einhvern kraft
til jafns við norsku stúlkurnar. Sú eina
sem hélt nokkurn veginn haus allan
leikinn var Kolbrún Jóhannsdóttir
markvörður og varði hún 14 skot. Aðrar
voru slakar, nema Erla Rafnsdóttir og
Guðrún. Vamarleikur íslenska liðsins
VERÐTRYGGÐUR
nn
m
vaxtareikningu
ávaxtar fé þitt
á arðbæran hátt
Betri kjör bjóðast varla
Samvinnubankinn
var kannski ekkert sérlega góður en að
minnsta kosti var hann besti parturinn.
Áberandi fannst undirritaðri hversu
dómararnir dæmdu allt öðruvísi en okk-
ar íslensku 1. deildardómarar. Það
mætti halda að hérlendis viðgengjust
einhverjar aðrar reglur um kvenna-
handbolta, en sjálfsagt má um kenna
áhugaleysi dómara.
Það var nú kannski ekki alveg að
marka þennan leik liðanna, munurinn
er ekki svona mikill þó svona hafi farið í
þetta skiptið, en það fer ekkert á milli
mála að þær norsku eru betri. Samt má
nefria okkar konum til málsbóta að
norska liðið er mun leikreyndara, síðan í
haust hefur það leikið 22 landsleiki en
það íslenska aðeins tvo. Þar er eflaust
mikið um að kenna landfræðilegri stöðu
en vafalaust spila hér einnig inní for-
dómar HSÍ gegn kvennahandbolta þó
landsliðsnefndin hafi staðið sig vel með
þær Björgu Guðmundsdóttur og Helgu
Magnúsdóttur í fararbroddi.
Mörk íslands: Erna Lúðvíksdóttir 2 (2v), Kristín
Amþórsdóttir 2, Margrét Theodórédóttir 1, Erla
Rafnsdóttir 1 og Guðrún Kristjánsdóttir 1.
„Mjög stressaðar“
„Við vorum mjög stressaðar er við
vorum komnar í leikinn,“ sagði Krist-
jana Aradóttir fyrirliði íslands eftir
leikinn. „Þær eru í sjálfu sér ekkert
tekniskari en við en líkamlega eru þær
mun betur á sig komnar. Skytturnar
okkar brugðust, það vantaði skot fyrir
utan. Við bjuggumst alls ekki við
þessu,“ sagði Kristjana.
„Þetta var áfall“
„Ég get ekki sagt annað en þetta hafi
verið áfall,“ sagði Viðar Símonarson
landsliðsþjálfari. „Við losnuðum hrein-
lega ekki úr byrjunarstressinu. Þær eru
sýnilega mun sterkari líkamlega og einn-
ig hafa þær mun meiri samæfingu.
Undirbúningur okkar hefur verið góður
en við áttum slakan leik.“
Mun skárri seinn i leikur
Það var allt annað að sjá íslenska liðið
í síðari leiknum. Skyttur okkar höfðu
greinilega áttað sig á að þær voru komn-
ar til leiks og leikurinn var frekar jafn til
að byrja með. Stelpurnar með Erlu í
fararbroddi spiluðu skemmtilegan
handbolta. Það fór nú samt svo að þær
norsku náðu yfirhöndinni með mjög
góðan leik. Hraðinn var töluvert meiri
hjá þeim og fátið ekki neitt. Þær leiddu
11-8 í hálfleik og komust síðan í 15-9,
20-13 og 24-16 í seinni hálfleik.
íslensku stelpurnar hafa sýnilega ekki
nógu mikinn hraða og ógnuðu norsku
vörninni ekki að ráði. Það var frekar
einstaklingsframtakið sem gilti, þó svo
að skemmtilegum fléttum og samspili
hafi brugðið fyrir. Það var sama og dag-
inn áður - Kolbrún varði markið af
snilld og er illmögulegt að spá nokkru
um endalokn leiksins ef hennar hefði
ekki notið við. Hin fjölhæfa Erla átti
frábæran leik og einnig er hægt að hæla
Ernu og Margréti.
Þessi munur, átta mörk, var mun
raunsærri en 14 mörkin í fyrri leiknum
en samt held ég að fimm mörk hefði
verið eðlilegra. Það var sama sagan eins
og kvöldið áður að íslenska liðið lét
dæma alltof oft á sig leiktafir.
Mörk íslands: Erla 6, Margrét 4, Sigrún Blom-
sterberg 3, Ema 2, Soffía Hreinsdóttir 1, Kristjana 1
(1v) og Kristín 1.
„Þetta var svona í jafnara lagi, skárra
en í gær. Þó hefði 3-5 marka sigur Nor-
egs verið eðlilegri úrslit,“ sagði Viðar
landsliðs'þjálfari.
-HrG
Knattspyrna
Urslit
íkvöld
Urslitaleikur Reykjavíkurmótsins {
knattspyrnu fer fram á gervigrasinu í
Laugardal kl. 20.30 í kvöld. Þar mætast
Fram og Valur, sem sigruðu Fylki og
Þrótt í undanúrslitunum. Þróttarar
tryggðu sér þriðja sætið í fyrrakvöld er
þeir unnu Fylki 2-1. Kristján Jónsson og
Nikulás Jónsson skoruðu fyrir Þrótt en
Kristinn Guðmundsson fyrir Fylki.
V.Þýskaland
Eimrígið heldur áfram
Bergkamen og Lemgo bítast umfallið. Essen kyrrt íþriðja
sœti. Siggi skoraði helming.
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V. Þýska-
landi:
Einvígi Gummersbach og Kiel,
liðs Jóhanns Inga Gunnarssonar,
um vestur-þýska meistaratitilinn
í handknattleik er að ná hámarki.
Bæði lið unnu örugga sigra um
helgina, Kiel vann Schwabing 24-
29 (9-8 I hálfleik) og Gummers-
bach vann Húttenberg 24-15 á
útivelli. Gummersbach hefur því
eins stigs forystu þegar tvær um-
ferðir eru eftir en Kiel er með
betri markatölu.
Bergkamen og Lemgo berjast
hinsvegar hatrammri fallbaráttu
og bæði töpuðu um helgina. Sig-
urður Sveinsson skoraði helming
marka Lemgo, 8(4 víti) er liðið
tapaði 22-16 í Dússeldorf og Atli
Hilmarsson gerði 3 mörk fyrir
Bergkamen sem tapaði 20-19
fyrir Hándewitt.
Essen er og verður í þriðja sæt-
inu, það breytist ekki úr þessu.
Nú gerði liðið jafntefli við Dank-
ersen, 19-19, á útivelli og skoraði
Alfreð Gíslason 5 marka Essen.
Hofweier vann Reinefusche
Berlin 25-22 og Grosswallstadt
vann Massenheim 22-16. Mass-
enheim er nú sama sem fallið í 2.
deild. Tvö neðstu lið falla en það
þriðja neðsta mætir þriðja liði 2.
deildar í aukaleikjum.
Gummersbach............24 524-454 37
Kiel...................24 524-452 36
Essen..................24 471-390 33
Schwabing..............24 476-476 26
Grosswallstadt.........24 458-471 25
Dusseldorf.............24 474-464 24
Hofweier...............24 519-519 24
Dankersen..............24 447-445 23
Reinefusche Berlin.....24 511-514 20
Hándewitt..............24 475-525 20
Bergkamen..............24 468-493 18
Lemgo..................24 433-478 18
Huttenberg.............24 489-538 17
Massenheim.............24 421-470 15
Hameln, liðið sem Kristján
Arason leikur með næsta vetur, á
möguleika á sæti í Bundeslig-
unni. Hameln er öruggt með ann-
að sætið í norðurriðli 2. deildar,
er 4 stigum á undan Bjarna
Guðmundssyni og félögum í
Wanne-Eickel þegar tvær um-
ferðir eru eftir. Hameln mætir
liði númer tvö úr suðurriðlinum í
úrslitum um 3. sæti 2. deildar.
Sigurliðið þar leikur síðan auka-
leiki gegn þriðja neðsta liði
Bundesligunnar um sæti þar
næsta vetur.
Handbolti
Jenstil
Framara
Jens Einarsson landsliðsmark-
vörður í handknattleik hefur ver-
ið ráðinn þjáifari hjá nýliðum
Fram í 1. deildinni næsta vetur.
Jens hefur undanfarin ár leikið
með KR en áður með Víkingi og
ÍR. Jens hefur mikið þjálfað í
yngri flokkum, svo og í knatt-
spyrnu, en þetta er hans fyrsta
verkefni með meistaraflokk karla
í handbolta. Þetta er mikið áfall
fyrir KR-liðið, Jens hefur verið
hornsteinninn í leik þess en eins
og kunnugt er hafa KR-ingar
einnig misst Jakob Jónsson til
Stavanger í Noregi.
-VS
éerum
ÖaUadaga
íslensKa
MAÍ1985
12 3 4 8 9 10 11
12 13 14 1 ■ 15 16 17 18
19 20 26 27 2! j 281 22 23 24 25 29 30 31
FÉLAG ÍSLENSKRA
IÐNREKENDA
Hallveigarstígl 101 Reykjavík sími 91 27577