Þjóðviljinn - 08.06.1985, Síða 2
FRÉTTIR
Fiskverkunarfólk
■ New Order
- The Perfect Kiss 12“45rpm
Ný tveggja laga plata frá New Order, sem ekki er aö finna á
LP plötunni. Frábær dansmúsík, sem örugglega fylgir vin-
sældum Blue Monday vel eftir.
■ Bubbi
- Kona
KONA er Ijúfasta og fallegasta plata sem, Bubbi hefur
nokkurn tíma sent frá sér. Sterk lög, fallegar útsetningar,
tilfinningaríkir og sterkir textar. Aöstoöarmenn Bubba á
þessari plötu eru margirfremstu tónlistarmenn landsins.
■ New Order
-Low Life
Ný plata frá einni virtustu hljóm-
sveit Breta. Plata sem aðdáend-
ur New Order hafa beðið eftir
með óþreyju í 3 ár. Low-Life fékk
strax feikigóðar viðtökur er-
lendis. Enda er hér tvímælalaust
um að ræða eina vönduðustu
plötu ársins.
■ The Smiths
- Meat Is Murder
Umsagnir gagnrýnenda tala sinu
máli um gæði The Smiths.
„Fyrsta plata Smiths var góð en
þessi er enn bétri...“
Gunnl. Sigfússon - HP
„Kjarngóð og markviss"
Lára - Þjóðviljinn
„Þetta er verulega góð hljóm-
sveit, og platan sú besta í langan
tíma.“ (EINKUNN: 9 af 10)
Árni Daníel - NT
Nýjar/athyglisverðar plötur
■ Cotton Club - Úr kvlkmyndinni
■ Dead Or Alive - Youthquake
■ David Knopfler - Behlnd The Lines
■ Dire Stralts - Brothers In Arms
■ Eurythmlcs - Be Yourself Tonight
■ Imperiet - Bla Himmien Blues
■ Killlng Joke - Night Tlme
■ Leonard Cohen - Various. Positions
■ Miles Davis - You're Under Arrest
■ Pat Metheny Group - Flrst Circle
■ Prince - Around The World In A Day
■ Rockabilly Psychosls - Cramps, Gun Club o.fl.
■ Smiths - Meat Is Murder
■ Smiths - Shakespear's Sister 12“45rpm
■ Smlths - Willlam 12“45
■ Smiths - This Charming Man 12“45rpm
■ Tears For Fears - Songs From The Big Chair
■ Tom Petty - Southern Accents
■ Wlilie And The Poor Boys - UC. Watts. B. Wyman.
J. Page)
■ Working Week - Worklng Night
■ Yello - Stella
Athugið eigum fyrirliggjandi fjölbreytt úrval af. Rokkbókum
-Duran Duran, Prince, Wham, Rolling Stones. Barmmerki
- Duran Duran, Prince, Frankie o.fl. o.fl. Bluestónlist Þjóð-
lög. Jazz. Klassík.
Sendum i póstkröfu samdægurs
Laugavegi17
Sími12040.
gramm
Ömgga atvinnu!
Jón Kjartansson: Lengri uppsagnarfrestur aðalmálið
„Okkar höfuðkrafa er um
aukið atvinnuöryggi fiskverkun-
arfólks, og er samhljóða 1. grein í
frumvarpi Guðmundar Joð og
fleiri um aukin réttindi fiskverk-
unarfólks sem þeir í þinginu eru
nú líklega búnir að svæfa“, sagði
Jón Kjartansson, formaður
verkalýðsfélagsins í Eyjum.
„Fiskverkunarfólk býr nú við
viku uppsagnarfrest, sem er
auðvitað algerlega óviðunandi.
Það er grundvallaratriði að þessu
sé breyíí. í annan stað leggjum
við til að tekið verði upp sérsiakí
fiskvinnsluálag, 25 krónur sem
leggist ofaná tímakaup alls fisk-
verkunarfólks á hvaða tíma sólar-
hringsins sem er. Þriðja krafa
okkar er um að þátttaka á svo-
kölluðum sérnámskeiðum, sem
ráðuneytið er að undirbúa og
eiga að vera framhald grunnnám-
skeiða í fiskvinnslu, gefi rétt til
10-15% kauphækkunar. Og
vegna þess að ekki gefst öllum
kostur á að sækja námskeiðin, þá
leggjum við til að þeim hinum
sömu bjóðist sama launahækkun
hafi viðkomandi unnið 5 ár eða
lengur í fiskvinnslu“.
„I fjórða lagi er breyting á regl-
um um starfsaldurshækkanir,
sem kveða á um að fólk fái þær
hafandi unnið hjá sama vinnu-
veitenda í 6-7 ár. Við viljum
breyta þessu þannig að fólk fái
þetta fyrir fiskvinnsíustörf eftir
ákveðinn árafjölda í sömu grein,
þó það hafi ekki alltaf unnið hjá
sama atvinnurekanda. Að auki
viljum við breyta endurráðning-
arreglum, sem eru nú þannig að
fólk verður að endurráða sig
innan eins árs til að halda réttind-
um og hefur það bitnað mjög
harkalega á konum. Við viljum
líka að fólk sem vinnur tímabils-
bundið í fiskvinnslu geti safnað
sér einhverjum réttindum;
veikindarétti, uppsagnarrétti og
rétti til starfsaldurshækkana.
Þetta fólk getur það ekki nú. Við
förum líka fram á aukaorlof fyrir
fólk sem hefur unnið í 10 ár hjá
sama vinnuveitanda, og við leg-
gjum líka áherslu á að nýju fólki
verði sérstaklega kynnt örygg-
ismál og fleira á vinnustað til þess
að draga úr hárri slysatíðni nýliða
í fiskvinnslu".
Jón sagði að fiskverkunarfóik -
biði nú átekta. „Þeim er vonandi
ljóst að eitthvað verður að gera til
þess að stöðva þann flótta sem nú
er úr þessari undirstöðuatvinnu-
grein“.
-pv
Reykjavík
Bara að
hringja þá
koma þeir
Nú um helgina lýkur hreinsun-
arviku Reykjavíkurborgar og af
því tilefni verða bílar frá
hreinsunardeildinni á ferð um
borgina og taka rusl.
Hreinsunarbílar fara um Ár-
bæjarhverfi og Selás laugardag-
inn 8. júní kl. 10-12, Breiðholts-
hverfi og Seljahverfi sama dag kl.
13-16. Á mánudag verða
hreinsunarbflarnir í Laugarnes-
og Langholtshverfum kl. 10-12,
kl. 13-15 í Bústaða- og Fossvogs-
hverfunum og í Austur- og Vest-
urbæ kl. 15-17.
Jafnframt verður annarri sér-
þjónustu haldið áfram. Rusla-
pokar eru sendir heim án endur-
gjalds sé þess óskað og ruslið
sótt. Stórir ruslagámar eru og við
Meistaravelli, Vatnsmýrarveg
neðan Miklatorgs, Kleppsveg og
Dalbraut, Súðarvog, hjá Arseli
við Rofabæ, Stekkjarbakka, efri
enda Breiðholtsbrautar og
Grensásveg.
Nokkur brögð hafa verið að
því að fólk losaði rusl á óbyggð-
um svæðum sem hreinsunar-
deildin telur óþarfa, það er bara
að hringja í síma 18000 þá koma
starfsmenn hreinsunardeildar-
innar og aka ruslinu á brot.
-aró
Kvennafylkingin
Fundað á sex stöðum
Hundrað konur í undirbúningsvinnu. Tveir bœklingar gefnir út
Nú um helgina gangast konur í
Alþýðubandalaginu fyrir
fundahaldi á sex stöðum vítt og
breitt um landið. Þjóðviljinn
hafði samband við Kristínu A.
Ólafsdóttur starfsmann kvenna í
Alþýðubandalaginu og spurði
hana frekar út í þessi fundahöld.
„Þetta er önnur fundahelgin
sem konur í Alþýðubandalaginu
halda, sem er í beinu framhaldi af
kvennastefnu, sem konur í
flokknum héldu í Ölfusborgum í
mars síðastliðnum. Þar var
ákveðið að fara um landið og
halda opna fundi. Um það bil 100
konur unnu að undirbúningi fyrir
þessa fundi. Við konur í Alþýðu-
bandalaginu teljum að við stönd-
um í tvöfaldri baráttu, hinni sósí-
alísku og kvenfrelsisbaráttunni,
með öðrum orðum tvöfalt stríð.
Við teljum þetta nauðsynlegt
vegna lakari stöðu okkar almennt
útí þjóðfélaginu og innan flokks-
ins.
Við höfum áhuga á að hitta
konur, og ekki endilega konur
tengdar Alþýðubandalaginu,
koma á framfæri í hvaða baráttu
við stöndum og langar okkur að
heyra hvar þeim finnst skórinn
helst kreppa að.
Fundirnir eru ekki með hinu
stífa hefðbundna formi heldur
kappkostum við, að fá sem
flestar til að taka þátt í umræð-
um. Á hverjum stað eru það bæði
heima- og aðkomukonur sem
standa í forsvari og reifa málin.
Síðast voru haldnir fundir á Ak-
ureyri og í Keflavík og var það
einróma dómur að þeir væru sér-
lega gagnlegir og skemmtilegir.
í tilefni fundanna höfum við
gefið út tvo bæklinga þar sem
gerð er grein fyrir helstu áherslu
um málefni okkar“.
-sp