Þjóðviljinn - 08.06.1985, Síða 16

Þjóðviljinn - 08.06.1985, Síða 16
Ur borgarstjórn FRETTIR Magnús L. forseti Á borgarstjórnarfundi í fyrra- kvöld var kosið í einærar nefndir og ráð. Pál) Gíslason baðst undan endurkjöri sem forseti borgar- stjórnar og var kjörinn Magnús L. Sveinsson. Hann er fjórði for- setinn frá því meirihluti Davíðs tók við, eftir Albert Guðmunds- syni, Markúsi Erni Antonssyni og Páli. Páll Gíslason er fyrsti varafor- seti, Katrín Fjeldsted annar. Þá var kosið til borgarráðs án ann- arra breytinga en þeirrar að fram- sóknarmaðurinn Kristján Bene- diktsson tekur við af Guðrúnu Jónsdóttur, Kvennaframboði, samkvæmt samkomulagi Kvennó, Framsóknar og krata. Engar teljandi breytingar urðu á öðrum nefndum og ráðum. -m Grettisgata Bílastæði óútkljáð íbúar fjölbýlishúss austast á Grettisgötu hafa mótmælt harðlega fyrirætlunum um að taka af þeim bflastæði við róluvöll bakvið Austurbæjar- bíó. íbúarnir vísa til þess að á þessu svæði er bflum afar ónæðissamt vegna bíógesta, nærliggjandi veitingahúsa og Hlemms-unglinga. Á borgarráðsfundi í vik- unni var samþykkt að taka af íbúunum bflastæðin gegn mótmælum ráðsliðanna Sig- urjóns Péturssonar og Guðr- únar Jónsdóttur, en borgar- stjórn samþykkti hinsvegar í fyrrakvöld tillögu frá Sigurði E. Guðmundssyni þarsem málinu er frestað þar til heildarlausn er fundin á bíla- stæðavandræðum í grennd- inni, sérstaklega við Austur- bæjarbíó. Barnabónusinn i gegn Barnabónusinn í Vinnuskóla Reykjavíkur var samþykktur á borgarstjórnarfundi í gær. Til- laga frá Guðrúnu Ágústsdóttur um að sleppa bónusnum og borga þess í stað hærri laun fékk ekki stuðning. í ræðu Guðrúnar kom fram að á fundi leiðbeinenda í Vinnuskólanum kom fram mikil óánægja með bónusinn, enda ekki auðséð hvernig á að reikna hann út fyrir utan efasemdir upp- eldismanna um heillavænleg áhrif slíks samkeppniskerfis á unglinga. MyrvMistn- harttU&nskóU Isímds LetMr-j nomskeio GunnUugurSí briem kentúr í þrjnr vikur, rncmiM^inn 10-júní tUfistutUgsins frntugostH'/jm niu tUfimm-^Vtrkkfyur Kftnqnr: fijrstu byrjindavivuiræði tU vii- -fiMstfiu ntvinnurturnm. NfffWWi í bmíptnrw., Uturíúnnun boluursrMÍ/UfpMe^pin^ cg-fiwr- cefinýM.c&ruxtusufinrLtstmr um ícncmotkwurg sotju stnfiáfsins.c^-lmrituno^fifiir- spurrúr-.Skrijsttfi. MyncMstu. - og HcmÁíÍnskéUi'ÍsUvnUiS/Skip- kolrti 1/Svmi i'jjfio/fiú3tti5- Borgin Ölfusvatn keypt íhaldsfjölskyldafœr 60 milljónir „á silfurfati“. Páll Gíslason: hefði verið gott aðfá eitthvað á blaði r Ihaldsmeirihiuti borgarstjórnar samþykkti í gær að kaupa Ölf- usvatn í Grafningi handa Hita- veitunni fyrir 60 milljónir króna. Oddvitar minnihlutaflokkanna gerðu harða hríð að borgarstjóra fyrir Ölfusvatnsævintýrið, töldu alls ósannað að borgin þyrfti á landinu að halda, sögðu kaupverðið svimhátt og réttindi seljenda furðumikil. Eðlilegra væri að fara eignarnámsleið ef í ljós kæmi síðar að borgin þyrfti að eignast landið. Davíð Ödds- son taldi kaupsamning sinn góð- an og hagstæðan. Sameiginlegri bókun minni- hlutafulltrúanna (nema Kvenna- framboðs sem á fundinum léku fegurðardrottningar) lýkur með þeim orðum að „með þessum landakaupum er íhaldið í Reykjavík að rétta einni kunn- ustu íhaldsfjölskyldu í borginni, sem auk þess er nátengd sjálfum hitaveitustjóranum, geypilega fjárfúlgu á silfurfati". Þetta var í fyrsta sinn sem Ölf- usarvatnsmálin eru rædd af kjörnum fulltrúum í borginni. í umræðunum vakti Adda Bára Sigfúsdóttir meðal annars athygli á því að Hitaveita Reykjavíkur hagaði sér einsog ríki í ríkinu: borgarfulltrúar fengju ekki að fylgjast með ákvörðunum eða hafa áhrif á þær heldur stæðu hverju sinni frammi fyrir gerðum hlut. Páll Gíslason, Sjálfstæðis- flokki, tók óbeint undir þessi orð þegar hann lýsti því yfir í ræðu um Nesjavelli og Ölfusvatn að „það hefði verið gott að fá eitthvað á blaði‘-‘. -m l»ú þarft á líftryggingu að halda til aukins öryggis fyrir þig og þína. Stærð og fjárhagslegur styrkur Sameinaða líftryggingarfélagsins hf. skapa þér örugga lí ftryggingarvemd. Líftrygging hjá Sameinaða líftryggingarfélaginu hf. tryggir öryggi þeirra sem þér er annast um. Tryggmg fyrir þig og þína Sameinaða líftryggingarfélagið hf. er nýtt líftryggingarfélag. Sameinaða líftryggingarfélagið hf er í eigu tveggja af traustustu vátryggingarfélögum landsins, Sjóvátryggingarfélags íslands hf. og Tryggingamiðstöðvarinnar Sameinaða líf tryggingarfélagið hf. er stærsta líftryggingarfélag landsins. & SAMEINAÐA LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ HF SUÐURLANDSBRAUT4 125REYKJAVÍK P.O.BOX5300 SJMI91-82500

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.