Þjóðviljinn - 09.07.1985, Blaðsíða 4
ÍÞRÓTTIR
2. deild
Bræður í banastuði
Prjú mörk Kristjáns eftir sendingar Björns. Frábœr seinni
hálfleikur
Völsungur-UMFN 5-2 (2-2) ★ ★★★
Leikurinn á Húsavíkurvelli var
bráðljörugur og skemmtilegur.
Skálabrekkubræður, Beggi og Bjössi
Olgeirs, voru í banastuði og komu
mikið við sögu.
Völsungar hófu leikinn af krafti og
Njarðvíkingar voru nánast áhorfend-
ur fyrstu mínúturnar. Á 4. mín. lék
Björn á varnarmann UMFN útvið
endamörk og sendi hárfína sendingu
á Kristján bróður sinn sem kastaði sér
fram við fjærstöngina og skallaði
Völsungum yfir, 1-0. Völsungar
héldu áfram að sækja en snögglega
snerist leikurinn við. Á 7. mín. bjar-
gaði Gunnar Straumland skoti Guð-
2. deild
Siglfirðingar
stálheppnir!
Jöfnuðu á síðustu stundu
eftir stangarskot ísfirðinga
KS-ÍBÍ 2-2 (1-2) **
Þrátt fyrir að vera öllu sterkari
aðilinn í leiknum mátti KS hrósa
happi yfír að ná cinu stigi útúr
þessari viðureign við ísfirðinga á
laugardaginn. IBÍ leiddi 1-2 oglO
mínútuni fyrir lcikslok slapp
Ragnar Rögnvaldsson í gegnum
Siglufjarðarvörnina en skaut í
stöng. KS slapp með skrekkinn,
og jafnaði svo á 88. mínútu. Mark
Duffíeld einlék glæsilega frá eigin
vítateig að endamörkunum hin-
um megin og sendi fallega á Frið-
fínn Hauksson sem skallaði í net-
ið, 2-2.
KS átti meira í leiknum sem
einkenndist af miðjuþófi og bar-
áttu. Hættuleg færi voru fá og
skorað úr þeim flestum. Gísli Sig-
urðsson markvörður KS varði vel
aukaspyrnu á 8. mínútu en hann
réð ekki við neitt þegar Ragnar
einlék laglega í gegnum vörn KS
og skoraði af stuttu færi, 0-1, á
33. mínútu. Við þetta hresstust
heimamenn við og fimm mínút-
um síðar skallaði Colin Thacker
glæsilega í mark ÍBI eftir auka-
spyrnu, 1-1. Aðeins þrjár mínút-
ur í viðbót og ísfirðingar voru
komnir yfir á ný. Laust skot frá
Hauki Magnússyni sigldi óvænt í
netið, Gísli var víðsfjarri og átt-
aði sig greinilega ekki á skotinu. í
seinni hálfleik gerðist fátt mark-
vert fyrr en í lokin, eins og áður er
sagt - KS var með undirtökin en
náði ekki að skapa sér veruleg
færi.
Ragnar lék miög vel og var
besti maður ÍBI og vallarins.
Kristinn Kristjánsson byggir vel
upp og Guðjón Reynisson stóð
sig með prýði. Mark Duffield og
Colin Thacker stóðu uppúr hjá
Siglfirðingum.
Maður leiksins: Ragnar
Rögnvaldsson, ÍBÍ. rb/Siglufírði
mundar Vals Sigurðssonar naumlega
í horn og uppúr horninu var bjargað á
línu. Á 10. mín. var staðan 1-1. Jón
Halldórsson á vinstri vængnum lék á
varnarmann, átti þversendingu á
Þórð Karlsson sem skoraði af öryggi.
Mínútu síðar var staðan 1-2. Haukur
Jóhannesson skaut á Völsungsmark-
ið, Gunnar náði að slá boltann en
ekki nógu langt og Pórður þakkaði
fyrir sig með öðru marki. Völsu-
ngsvörnin var úti að aka þessar mín-
útur og saknaði tveggja lykilmanna,
Helga Helgasonar sem er meiddur og
Birgis Skúlasonar sem var í leikbanni.
En hún átti eftir að þéttast og á 36.
mín. jöfnuðu Völsungar. Vilhelm
sendi feykigóða sendingu á Jón Leó
Ríkharðsson sem hljóp af sér varnar-
menn UMFN og skoraði stórfínt
mark, laglega gert hjá báðum.
f seinni hálfleik efndu Völsungar
hreinlega til útfarar á Njarðvíking-
um. Þeir skiptu um gír og spiluðu frá-
bæra knattspyrnu sem fékk áhorfend-
ur hvað eftir annað til að berja saman
lúkunum. Á 60. mín. voru Skála-
brekkubræður enn á ferð. Björn
sendi þá beint í fætur Begga og sá var
ekki í vandræðum með að skora sitt
annað mark, 3-2. Sjö mínútum síðar
bjargaði Gunnar skoti Guðmundar
Vals. Rothöggið kom á 79. mín. og
enn voru bræðurnir á ferð. Björn
komst laglega í gegn eftir að hafa
leikið gestina uppúr skónum en í stað
þess að skjóta sjálfur sendi hann netta
hælspyrnu á Begga sem þrumaði
knettinum með stórutánni efst í
marknetið, 4-2. Þriðja mark hans í
leiknum og hefur hann nú gert 4 mörk
í deildinni, og öll eftir sendingar
Björns. Hér sprungu Njarðvíkingar
og Völsungar gengu á lagið. Ómar
Rafnsson og Beggi léku laglega í gegn
og í dauðafæri skaut Beggi rétt yfir.
Fimmta markið kom mínútu fyrir
leikslok. Sigurgeir Stefánsson og
Ómar léku vel saman upp vinstri
vænginn. í vítateignum var hinn geð-
þekki Mývetningur, Jónas Hallgríms-
son í litlum vandræðum með að skora
hjá Erni Bjarnasyni sem fékk því á sig
5 mörk í leiknum, en áður hafði hann
fengið á sig 4 í 7 leikjum.
Völsungar eru greinilega á leið í 1.
deildina. Góðir heimasigrar á ÍBV og
KA og liðið er komið með 14 stig og
er í öðru sæti ásamt KA. Ómar og
Björn léku stórkostlega vel og á
löngum köflum voru þeir yfirburða-
menn á vellinum. Maður leiksins var
Kristján Olgeirsson sem í síðustu
leikjum hefur spilað stöðu framherja.
■ V ».■ ...;
'í:;
Kristján Olgeirsson skoraði 3 marka
Völsungs gegn Njarðvík, öll eftir
sendingar frá Birni bróður sínum.
Venjulega sér hann um að mata fé-
laga sína en að þessu sinni skoraði
hann 3 mörk, öll gullfalleg. Aðrir áttu
einnig góðan dag. Njarðvíkingar léku
ekkert illa í fyrri hálfleik en í þeim
seinni voru þeir hreinlega yfirspilað-
ir. Bestir voru Guðmundarnir, Sig-
urðsson og Sighvatsson. Þórður nýtti
færin vel.
Maður leiksins: Kristján Olgeirsson,
Völsungi.
—ab/Húsavík.
1. deild
Akveönir Þorsarar
Fyrstu útistigin fengust gegn daufum FH-ingum
2. deild
Yfirburðir
Prenna Gunnars gegn Leiftri
Þórsarar komu harðir og á-
kveðnir til leiks í Kaplakrikanum
í Hafnarfírði á laugardaginn og
með þetta, sigurvilja og skynsemi
að vopni náðu þeir sínum fyrstu
stigum á útivelli í sumar í annars
jöfnum leik gegn FH. Leikurinn
einkenndist mjög af miðjuþófi og
kýlingum og var ekki mikið fyrir
augað.
FH-ingar misstu Inga Björn
Albertsson þjálfara útaf meiddan
strax í byrjun og fyrir vikið var
sókn liðsins máttlítil. Jón Erling
Ragnarsson fékk fyrsta færi
leiksins á 25. mín. en skaut yfir
Þórsmarkið af stuttu færi. Á 35.
mín. komst Bjarni Sveinbjörns-
son í dauðafæri við mark FH eftir
glæsisendingu frá Halldóri Ás-
kelssyni en skaut framhjá. Hall-
dór skoraði síðan strax á eftir
fyrir Þór, komst frír inná mark-
teig og skoraði snyrtilega, 0-1.
Halldór Halldórsson markvörður
FH hikaði við að fara út á móti og
gaf nafna sínum þar með tíma til
að athafna sig. Flestir bókuðu
síðan 0-2 í hálfleik þegar Bjarni
komst í dauðafæri á 45. mínútu,
en þá varði Halldór meistaralega.
Síðari hálfleikur var daufari,
lítill kraftur í FH-ingum og Þórs-
arar sættu sig við eitt mark og
bökkuðu. Sterk vörn hjá þeim
með Árna Stefánsson sem lykil-
mann. FH fékk að ráða ferðinni
og pressaði oft þungt, Baldvin
Guðmundsson varði frá Jóni Er-
ling úr dauðafæri á 63. mín. og
Þórsarar björguðu tvisvar á línu
rétt á eftir - mark lá í loftinu en
það kom hinum meginn'a síðustu
sekúndunni. Kristján Kristjáns-
son komst þá í gott færi og skaut,
Guðmundur Hilmarsson varði
með höndum á línu. Vítaspyrna,
Jónas Róbertsson skoraði, 0-2,
og þar með var flautað til leiks-
loka.
-*g-
Kvennaboltinn
Tap og sigur KA
ÍA áfram með fullt hús stiga
Skallagr.-Leíftur 4-2 (3-0) ***
Borgnesingar léku á laugardaginn
sinn sjötta leik í röð í 2. deildinni án
taps - og höfðu mikla yfírburði gegn
Ólafsfirðingum. Mörkin hefðu getað
orðið mun fleiri en fjögur og það var
ekki fyrr en heimamenn slökuðu á að
gcstirnir náðu að skora tvisvar.
Róbert Gunnarsson átti fyrsta
hættulega skotiö, á mark Skallagríms
á 11. mín., en Kristinn Arnarson
varði vel. Síðan hófst stórskotahríð
hinum megin, Gunnar Jónsson var
tvisvar nálægt því að skora, átti m.a.
sláarskot á 19. mín, áður en hann
skoraði, 1-0, með laglegu skoti á 23.
mín. eftir að Björn Axelsson hafði
skotið í varnarmann. Björn átti síðan
gott skot sem var varið en hinum
megin forðaði Björn Jónsson marki á
síðustu stundu eftir að Róbert hafði
komist í gegn. Á 40. mín. átti Sigur-
geir Erlendsson meinleysislega auka-
spyrnu inní vítateig Leifturs, Gunnar
Orrason stökk hæst og skallaði í net-
ið, 2-0. Tveimur mínútum síðar gekk
mikið á í vítateig Leifturs, fimm horn
í röð, Björn Jóns átti skalla í slá í þeim
hamagangi, og eftir fimmta hornið
skoraði Gunnar Orra öðru sinni, 3-0.
Gunnargerði síðan sitt þriðja mark
á 7 mínútum þegar hann skoraði eftir
að hafa leikið á tvo Ólafsfirðinga á
annarri mínútu seinni hálfleiks, 4-0.
Björn Axelsson fékk tvö færi og
Gunnar Jónsson eitt til að bæta við
markatöluna, en síðan dofnaði yfir
Skallagrími og Leiftur komst loks inní
leikinn að einhverju ráði. Halldór
Guðmundsson skoraði með skalla
eftir horn á 70. mínútu og á 82. mín.
felldi Sigurgeir hann í vítateig Skalla-
gríms og Sigurbjörn Jakobsson
skoraði úr vítaspyrnunni, 4-2. Síðan
varði Kristinn gott skot frá Geir Ág-
ústssyni, en sigri Skallagríms varð
aldrei ógnað.
Lið Skallagríms var jafnt og
heilsteypt, allir stóðu fyrir sínu en
Gunnar Orra maður leiksins fyrir
mörkin þrjú. Róbert var bestur Ól-
afsfirðinga og fyrirliðinn Guðmundur
Garðarsson stóð sig vel.
Maður lciksins: Gunnar Orrasun,
Skallagrími.
-eop/Borgarnesi
FH-Þór 0-2 (0-1) **
Mörk Þórs:
Halldór Áskelsson 36. mín,
Jónas Róbertsson 90. mín. (víti)
Stjörnur FH:
Dýri Guömundson *
Kristján Gislason *
Viðar Halldórsson *
Stjörnur Þórs:
Árni Stefánsson *•
Halldór Áskelsson ••
Bjarnl Sveinbjörnsson •
Dómari Friðjón Eðvarðsson **
Það stefnir allt í harða fallbar-
áttu í 1. deild kvenna í knatt-
spyrnu eftir útslit helgarinnar.
KÁ vann á Isafirði en tapaði í
Keflavík - þar með stefnir allt í
fall ísafjarðarstúlknanna en
spurningin virðist ætla að verða
um hverjar fylgi þeim niður.
KA náði að sigra 1-0 á ísafirði á
laugardaginn með marki Önnu
Gunnlaugsdóttur og hélt síðan til
Keflavíkur. Þar vann ÍBK 3-2,
komst í 2-0 í fyrri hálfleik með
tveimur mörkum Katrínar
Eiríkssdóttur en í seinni hálfleik
skoraði Guðný S. Magnúsdóttir
fyrir ÍBK og þær Þórdís Sævars-
dóttir og Valgerður Brynjars-
dóttir fyrir KA.
ÍA vann Þór 3-1 á Akranesi á
föstudagskvöldið og er áfram
með fullt hús stiga. lÁ hafði yfir-
burði í fyrri hálfleik og þá
skoruðu Ragnheiður Jónasdóttir
og Vanda Sigurgeirsdóttir. í
þeim síðari skoraði Anna Einars-
dóttir, 2-1, eftir ljót varnarmistök
Skagastúlknanna, en Vanda
skoraði öðru sinni skömmu fyrir
leikslok og tryggði sigur ÍA.
Staðan í 1. deild kvenna:
lA 6 6 0 0 29-4 18
Breiðablik 5 4 0 1 28-5 12
Þór A 7 4 0 3 10-16 12
KR 7 3 0 4 10-13 9
Valur 5 2 0 3 12-10 6
KA 5 2 0 3 4-6 6
IBK 5 2 0 3 6-28 6
(Bl 6 0 0 6 5-22 0
-ÞBM/sh/VS
2. deild
Enn jafnt hjá IBV
Sanngjörn úrslit í baráttuleik í Eyjum
1 (i-i) ***
IBV-KA
Það var hart barist í Eyjum á
laugardaginn, stundum einum of,
enda mikið í húfi í toppbaráttu 2.
deildar. Þegar upp var staðið voru
úrslitin sanngjörn, fjórða jafntefii
Eyjamanna en gott útistig KA sem
hcldur öðru sætinu í deildinni.
fBV var sterkara í byrjun og Þórir
Ólafsson komst í gott en þröngt færi á
8. mín. og skaut yfir. Síðan jafnaðist
leikurinn og opnaðist og Bjarni Jóns-
son skaut í þvcrslá Eyjamarksins á 13.
mín. Rétt á eftir varði Þorvaldur Ör-
lygsson markvörður KA vel hættulegt
skot frá Sveini Sveinssyni. Sigbjörn
Óskarsson komst tvisvar í gegnum
vörn KA, skaut framhjá og síðan
varði Þorvaldur, og á milli var Tryggi
Gunnarsson í opnu færi við mark IBV
en hitti ekki markið.
Á 35. mín. náði KA forystunni.
Árni Þór Freysteinsson fékk send-
ingu inní vörn ÍBV, sneri á varnar-
mann og skoraði örugglega, 0-1. Að-
eins þremur mínútum síðar fékk
Tómas Pálsson boltann rétt utan víta-
teigs KA og jafnaði með góðu skoti
útvið stöng, 1-1. Njáll Eiðsson skaut
síðan naumlega framhjá marki ÍBV
undir lok hálfleiksins.
Seinni hálfleikur var opinn og jafn,
þrjú hættuleg færi á hvort lið. Tómas
komst tvisvar í gegnum vörn KA en
Þorvaldur og varnarmenn hans björg-
uðu og Ómar Jóhannsson skallaði yfir
af markteig. Hinum megin varði Þor-
steinn Gunnarsson tvívegis mjög vel
frá Tryggva og einu sinni frá Bjarna
Jónssyni.
Markmennirnir voru bestir í liðum
sínum og ekki að sjá á Þorvaldi að
hann sé útispilari að upplagi. Tryggvi
er hættulegur í framlínu KA. Gunnar
Jóhannsson dæmdi þokkalega en
leyfði full mikla hörku.
Maður leiksins: Þorvaldur Orlygs-
son> KA- SE/Eyjum
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 9. júlí 1985
Stadan
í 2. deildarkeppninni í knattspyrnu:
Breiðablik............7 5 1 1 17-8 16
KA....................8 4 2 2 15-7 14
Völsungur............8 4 2 2 15-11 14
ÍBV...................8 3 4 1 12-8 13
KS....................8 3 3 2 11-9 12
fBl.................8 2 4 2 10-10 10
Skallagrímur........8 2 4 2 12-15 10
UMFN..................8 2 3 3 5-9 9
Fylkir.................7 0 3 4 3-9 3
Leiftur................8 0 2 6 6-20 2
Markahæstir:
TryggviGunnarsson, KA.................6
Jóhann Grétarsson, Breiðabliki........5
Tómas Pálsson, IBV....................5
Jón Þórir Jónsson, Breiðabliki........4
Jónas Hallgrímsson, Völsungi..........4
KristjánOlgeirsson, Völsungi..........4
Fylkir og Breiðablik mætast i síðasta
leik 8. umterðar á Árbæjarvellinum kl.
20. i kvöld.