Þjóðviljinn - 31.08.1985, Page 1
SUNNUDAGS-
BLAÐ
MENNING
„Enginn rekur mig út í hom“
Fjármálaráðherra svarar árásum formanns Sjálfstœðisflokksins og Morgunblaðsins í ítarlegu viðtali við Þjóðviljann.
„Efá að reyna einu sinni ennþá verða báðir aðilar að taka afleiðingunum. Aðalhagsmunagœslumenn
Keflavíkurliðsins í Sjálfstæðisflokknum.
Bandaríkjamennflytja hingað vörur ogfólk eins og á millifylkja heima hjá sér. “
áður. Ef á að reyna einu sinni
enn, þá verða báðir aðilar að taka
afleiðingunum af því“, segir Al-
Það rekur mig enginn út í
horn. Það hefur verið reynt
Kvennarannsóknir
Troðfullt
hús
Yfir tvö hundruð manns fylltu
salinn þegar Anna G. Jónasdóttir
hélt fyrirlestur sinn í fyrrakvöld,
við upphaf ráðstefnunnar um
kvennarannsóknir. En Anna,
sem er lektor í Svíþjóð, hefur
staðið framarlega á Norður-
löndum í umræðum um hug-
myndafræði kvennahreyfinga.
í gær var svo ráðstefnunni fram
haldið í Odda, hugvísindahúsi
Háskólans, og ljóst að hún hefur
hlotið miklar undirtektir. Mjög
athyglisverðir fyrirlestrar verða
svo um helgina, meðal annars um
kvennarannsóknir í lögfræði og
raungreinum. Þannig verður
merkilegur gestafyrirlestur Ul-
rike Schildman sem ber heitið
„The Women’s Health Move-
ment and the New Reproductive
Technologies“. Ráðstefnunni
lýkur á sunnudag. -ÖS
Furður
Fíllinn
sem er
buffaló!
Fflar gieyma aldrei, segir sag-
an, en í Kruger þjóðgarðinum í
Suður-Afríku er þó einn sem þjá-
ist af svo alvarlegri minnisbilun,
að hann er fyrir löngu búinn að
gleyma að hann er fill.
Fílakálfurinn Tembeka - sem
þýðir tryggur - var upphaflega
notaður í tilraun með bóluefni
gegn gin- og klaufaveki, og var þá
hafður í húsi með buffalóum.
Þegar honum var svo sleppt, leit
hann ekki við fílahjörðinni sem
beið hans heldur tók á rás til buff-
alóhjarðar sem var skammt frá.
Buffalóarnir tóku honum opnum
örmum, vörðu gegn árásum
ljóna, og nú hefur Tembeka litli
rölt um frumskóga Kruger þjóð-
garðsins í 14 ár og talið sig vera
buffaló!
Dýrafræðingar, sem hafa fylgst
með Tembeka bíða nú spenntir
eftir framvindunni, því nú er
hann orðinn kynþroska, og þá
vænta þeir þess að hann gerist
blíðlyndari við skyldmenni sín af
veikara kyninu, því haldi náttúr-
an rétt á spöðum hlýtur Tembeka
að finnast fflakvendin gæfulegri
til ásta en afrískar buffalódömur.
-ÖS
bert Guðmundsson fjármálaráð-
herra m.a. I ítarlegu viðtali við
Þjóðviljann sem birt er í sunnu-
dagsblaðinu. Albert svarar þar
árásum formanns Sjálfstæðis-
flokksins og Morgunblaðsins á
hann vegna framgöngu ráðherr-
ans um að íslenskum lögum og
reglum sé fylgt varðandi dvöl
bandaríska hersins hérlendis.
„Ég hef aldrei heyrt það fyrr að
það þurfi að halda fundi í Sjálf-
stæðisflokknum til að taka
ákvörðun um það hvað flokks-
menn, hvort sem þeir eru í trún-
aðarstörfum eða ekki, hafi frum-
kvæði útávið. Þetta er alveg nýtt
fyrir mér og ég verð að ræða þetta
við formann flokksins“, segir Al-
bert.
Varðandi árásir Morgunblaðs-
ins á sig í leiðurum undanfarna
daga segir fjármálaráðherra:
„Blindir menn vilja sjá, en þeir
geta það ekki“.
Þá telur fjármálaráðherra að
menn hafi misstigið sig í sam-
skiptum við herinn ef ein lög eigi
að gilda fyrir herliðið en önnur
fyrir íslendinga. „Hafi einhver
komist upp með að brjóta af sér í
34 ár, nægir ekki að segja við
dómarann að komin sé hefð á af-
brotin og þau eigi því að viður-
kennast sem atvinnugrein.“
í viðtalinu lýsir Albert því
einnig yfir að ekki verði hjá því
komist að skoða nánar vöruinn-
flutning íslenskra aðalverktaka á
Keflavíkurflugvöll og bendir á að
margar þær athugasemdir sem
Kristján Pétursson tollgæslu-
stjóri hefur haft fram að færa í
þeim efnum séu hárréttar. „Kjöt-
málið hefur ekkert að gera með
persónur í Sjálfstæðisflokknum,
en hitt er annað mál að aðal-
hagsmunagæslumenn Keflavík-
uraðilanna eru jú í Sjálfstæðis-
flokknum“, segir fjármálaráð-
herra.
~«g-
Sjá viðtal við Albert á bls. 7 í
sunnudagsblaði.
Sjá Innsýn um Sjálfstæðis-
flokkinn bls. 5 í laugar-
dagsblaði.
ísal
Svindlað á súráli
Coopers og Lybrant „leiðréttiru súrálskaup Álversins um litlar 19 miljónir.
Tap íársskýrslu verður gróði við endurskoðun.
Enn einu sinni hefur endur-
skoðunarfyrirtækið Coopers
og Lybrant gert athugasemdir við
ársreikninga Alversins í
Straumsvík. Samkvæmt árs-
reikningi ísal fyrir sl. ár var tap á
rekstrinum fyrir skatta rúmar 18
miljónir. Endurskoðun leiðir
hins vegar í Ijós að hagnaður varð
af rekstrinum uppá 600 þúsund
krónur.
Endurskoðunarfyrirtækið
komst að þeirri niðurstöðu að
verðlag á súráli sem ísal notaði til
framleiðslunnar væri skráð of
hátt í reikningum fyrirtækisins að
því er varðaði innkaup á árinu
1983. Leiðrétting var uppá 19
miljónir króna.
Þessi niðurstaða hefur ekki
áhrif til hækkunar á framleiðslu-
gjaldi ísal fyrir árið 1984 þar sem
hagnaður félagsins er lægri en
fastagjaldið sem það hefur þegar
greitt.
-«g-