Þjóðviljinn - 31.08.1985, Blaðsíða 2
Útboð
Safnræsi við Kópavog.
Tilboð óskast í að gera safnræsi 600-800 mm með-
fram Kópavogi ásamt aðliggjandi lögnum svo og 500
mm PEH útrásarleiðslu, samtals 1586 lengdarmetra.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræð-
ings Kópavogs, Fannborg 2, frá og með þriðjudegin-
um 3. sept. 1985 gegn kr. 6.000,- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 14.00 mánu-
daginn 30. sept. 1985 og verða þau opnuð þar kl.
14.15 að viðstöddum þeim bjóðendum, sem þar
mæta.
Bæjarverkfræðingur
[nýi tónlistarskólinn ;ínnúk4i ámi-392K3 nno:66Z7-4446
Frá Nýja
tónlistarskólanum
Innritun nemenda fyrir næsta skólaár fer fram í
skólanum frá miðvikudegi 4. sept. til föstudags 6. sept.
kl. 17-19.
Nemendur frá í fyrra komi á miðvikudag og
fimmtudag og staðfesti umsóknir sínar frá í vor með
greiðslu á hluta skólagjaldsins.
Tekið verður á móti nýjum umsóknum föstudaginn
6. sept. á sama tíma.
Innritun í forskóla, fyrir börn á aldrinum 6-8 ára, verð-
ur alla dagana frá kl. 17-19.
Skólinn verður settursunnudaginn 15. sept. kl. 17.30.
Frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík
Tónlistarskólinn í Reykjavíktekurtil starfaföstudaginn
20. september n.k.
Inntökupróf verða sem hér segir: fimmtudaginn 5.
sept.: píanódeild kl. 13, strengjadeild kl. 14, blásara-
deild kl. 16.
Föstudaginn 6. september: söngdeild kl. 13, tón-
fræðadeild kl. 15.
Innritaðir nemendur staðfesti umsóknir sínar og greiði
fyrri hluta skólagjalds þriðjudaginn 10. sept. og mið-
vikudaginn 11. sept. kl. 9-15 á skrifstofu skólans,
Skipholti 33.
Skólastjóri
Rannsóknarmaður-
bútækni
Rannsóknastofnun Landbúnaðarins, bútæknideild,
Hvanneyri, óskar að ráða rannsóknamann til starfa.
Almenn búfræðimenntun ásamt þekkingu og meðferð
búvéla áskilin. Framhaldsmenntun í bútækni æskileg.
Upplýsingar í síma 93-7500.
Rannsóknamaður -
efnagreiningar
Rannsóknastofnun Landbúnaðarins óskar að ráða
rannsóknamann á efnagreiningarstofu. Upplýsingar
um menntun og fyrri störf sendist fyrir 17. sept. til
Rannsóknastofnunar Landbúnaðarins, Keldnaholti,
110 Reykjavík.
Sólheimar í Grímsnesi
Þroskaþjálfar og starfsfólk með áhuga á meðferðar-
starfi óskast til starfa. Upplýsingar veitir aðstoðarfor-
stöðumaður í síma 99-6430.
Hjörtur Líndal Gunnarsson,
lést þann 13. ágúst s.l. Jarðarförin hefurfariðfram. Þökkum
auðsýnda samúð.
Gunnar Baldur Guðnason
Hreindís Elfa Sigurðardóttir
og systkini hins láta.
FRÉTTIR
Dalvík
Uppsagnimar
dregnar til baka
Söltunarfélagið gekk að tilboði KEA. Dalborgin landar á
Dalvík á mánudaginn. Atvinnuástand enn ótryggt.
Söltunarfélagið h.f. á Dalvík
ákvað í gær að ganga að til-
boði Frystihúss KEA um að
greiða 24 krónur fyrir kOóið af
kola í stað 17 króna sem er hið
opinbera verð í landinu fyrir
fyrsta flokk. Þar með er komið í
veg fyrir hráefnisskort í frystihús-
inu í bUi og uppsagnir starfsfólks-
ins hafa verið dregnar til baka.
Togarinn Dalborg sem er í eign
Söltunarfélagsins, átti að sigla til
Englands með afla sinn sem er
aðallega koli þar sem verð fyrir
kola er mun hærra þar en hér.
Með því að fá 24 krónur fyrir
kílóið telur útgerðarfélagið að
jafn hagkvæmt sé að landa á Dal-
vík, því Dalborgin getur náð að
landa tvisvar þar á meðan hún
landar einu sinni á sama tíma er-
lendis.
Þrátt fyrir að Dalborgin muni
landa á Dalvík á mánudaginn er
átvinnuástand á Dalvík enn ó-
tryggt að sögn Gunnars Aðal-
björnssonar frystihússtjóra. Enn
er ráðgert að láta Baldur sigla
með aflann úr næstu veiðiferð.
„Það er uggur í fólki sem skiljan-
íegt er, hræðslan við atvinnuleysi
er mikil. í frystihúsinu vinnur nær
eingöngu heimafólk og það er
mikið af fullorðnu fólki hj á okkur
sem hefur unnið hjá fyrirtækinu í
mörg ár“, sagði Gunnar í samtali
við blaðið í gær. Gunnar sagði
enn fremur að verið væri að
endurskoða þá ákvörðun að láta
Baldur sigla.
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í
gær eru öll útgerðarfélög á Dal-
vík meira eða minna í eigu KEA,
sem jafnframt er eigandi frysti-
hússins. Það má því segja að með
ákvörðuninni í gær hafi KEA
tekið eigin tilboði um verð á kol-
anum.
Kristján Ólafsson, forseti
bæjarstjórnar á Dalvík, er einnig
sjávarútvegsfulltrúi KEA og á
sæti í stjórn allra útgerðarfyrir-
tækja í bænum, Söltunarfélags-
ins, Upsastrandar, og Útgerð-
arfélags Dalvíkur.
Stefán Bjarnason bæjarstjóri
situr einnig í stjórn allra þessara
útgerðarfélaga. Hann situr í
stjórn Söltunarfélagsins og Út-
gerðarfélags Dalvíkur fyrir hönd
bæjarins og í stjórn Upsastrandar
fyrir hönd Söltunarfélagsins, sem
á þar 63%. Báðir áttu þeir þátt í
þeirri ákvörðun að láta Dalborg-
ina sigla með afla.
„Ég get svarað því fyrir mig, að
mér finnst það ekki eðlilegt að
einn maður sitji í svo mörgum
embættum. Ég lít aftur á móti á
það sem skyldu mína að gera það
sem farið er á leit við mig sem
bæjarstjóra. Reyndar hef ég beð-
ist undan þessum stjórnarse-
tum“, sagði Stefán í gær þegar
Þjóðviljinn spurði hann hvort
honum fyndist eðlilegt að svo
mikil völd söfnuðust á hendur svo
fárra manna í litlu bæjarfélagi.
gg
Skólastefna
Ráðstefna
um skóla-
stefnu
í dag er haldin að Borgartúni 6
ráðstefna um íslenska skóla-
stefnu. Það eru Bandalag kenn-
arafélaga og Kennaraháskóli ís-
lands sem efna til ráðstefnunnar
og er hún öllum opin. Flutt verða
fjögur erindi og framsögumenn
eru þau Jónas Pálsson, rektor
Kennaraháskóla íslands, Sólrún
Jensdóttir, skrifstofustjóri í
menntamálaráðuneytinu, Svan-
hildur Kaaber, formaður Banda-
lags kennarafélaga og dr. Wolf-
gang Edelstein, prófessor við
Max Planck Rannsóknastofnun-
ina í Vestur-Berlín. Ráðstefnan
stendur frá klukkan 9.00-17.00.
-vd.
Kvenfélög
Styrkur og sQómviska Geirs
Yfirlýsingfrá Kvenfélaginu Vorhvöt
Kvenfélagið Vorhvöt fagnar með
þjóðinni þeirri snjöllu lausn sem
fundin hefur verið á hinni afar við-
kvæmu deilu innan íslensku ríkis-
stjórnarinnar um mataræði banda-
rísku hermannanna á Keflavíkurflug-
velli.
Kvenfélagið Vorhvöt lýsir aftur á
móti furðu sinni á því að í allri þeirri
miklu umfjöllun sem mál þetta hefur
fengið hefur enginn séð ástæðu til að
geta sérstaklega um þá einskæru og
hugsjónaríku fórnarlund sem utan-
ríkisráðherra landsins Geir Hall-
grímsson hefur sýnt.
Utanríkisráðherra hefur óskað
eftir því að innflutningur á kjöti til
Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli
verði kærður og í sjónvarpsviðtali þ.
20. ág. sl. lýsti hann því yfir að hann
skyldi glaður taka að sér að vera hinn
stefndi í málinu.
Hver einasta kona í Vorhvöt er
þess fullviss að göfuglyndi af þessari
stærðargráðu er einstakt í sögunni -
og kvenfélagið í heild sinni harmar að
fyrir hönd þjóðarinnar skuli enginn
hafa þakkað utanríkisráðherra þetta
drengskaparbragð. Hafi íslensku
þjóðinni nokkru sinni verið bjargað
frá smán þá var það þarna.
Hvort Bandaríkjaher eða banda-
rísk stjórnvöld hafa þakkað svo sem
vert væri er ekki vitað, en svo mikið
er víst að ekki hefur það verið gert
opinberlega og er það ekki síður
harmsefni. Hafi bandarískur varnar-
her nokkru sinni verið varinn af vask-
leik þá var það þarna.
Menn mega gjarna hafa þá stað-
reynd í huga að enn sem komið er
a.m.k. neyðast s.k. lýðræðisþjóðir til
að beita allsherjarkosningum til að
T elji utanríkisráðherra það viðeigandi
að Kvenfélagið Vorhvöt kæri hann þá
er félagið reiðubúið að taka það til
velviljaðrar athugunar. Mynd. Sig.
knýja einstaklinga upp á valdastóla.
Þess munu því fá dæmi, ef nokkur,
að lýðræðisþjóð geti státað af því að
eiga ráðherra sem tekið hefur á sig
alla þá ábyrgð sem slíku embætti fylg-
ir af hugsjón einni saman. En þar
eigum vér íslendingar einmitt Geir
Hallgrímsson utanríkisráðherra.
Menn mega sannarlega minnast
þess oftar en gert er að Geir Hall-
grímsson situr á Alþingi íslendinga
þrátt fyrir að þjóðin bæri ekki gæfu til
að veita hæfileikum hans og hugðar-
efnum stuðning í síðustu kosningum.
Hann er þess vegna ekki bundinn af
neinum kosningaloforðum. Hann
hefur engar raunverulegar skyldur
við íslensku þjóðina. Hann situr á
þingi í krafti eigin ágætis og
stjórnvisku. Fátt sýnir betur styrk
Geirs Hallgrímssonar.
Geir Hallgrímsson hefur nánast
óumbeðinn tekið á sínar herðar hið
vafasama hlutverk utanríkisráðherra
landsins, enda á fárra færi að fara
með svo valdamikið embætti.
Og í starfi sínu sem utanríkisráð-
herra hefur hann með stakri natni og
eljusemi lagt æ meiri rækt við að gæta
svo sameiginlegra hagsmuna íslend-
inga og Bandaríkjamanna að hvorug
þjóðin bæri skarðan hlut frá borði
kæmi einhversstaðar upp ágreiningur
vegna samskipta þessara annars nán-
ustu vinaþjóða sem um getur.
Kvenfélagið Vorhvöt gerir sér ljóst
að ekki muni hlaupið að því að meta
Geir Hallgrímsson fyllilega að verð-
leikum en félagið vill hvetja a.m.k.
íslensku þjóðina til að hugleiða á
hvern hátt Geiri Hallgrímssyni yrði
best þakkað og að breyta síðan í sam-
ræmi við sannfæringu sína.
Kvenfélagið Vorhvöt leyfir sér að
lokum að lýsa undrun sinni á því dáð-
leysi sem virðist ríkja í herbúðum
Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
Er engu líkara en ráðið ætli að
heykjast á því að verða við óskum
utanríkisráðherra um að kæra kjöt-
innflutninginn á Keflavíkurflugvöll.
Kvenfélaginu Vorhvöt þykir það
óbærileg tilhugsun að láta fórnarlund
Geirs Hallgrímssonar liggja ónýtta og
lýsir Vorhvöt því hér með yfir að telji
utanríkisráðherra það viðeigandi að
Kvenfélagið Vorhvöt kæri hann þá er
félagið reiðubúið að taka það til vel-
viljaðrar athugunar.
R.v.k. 29/8 ’85
Kvenfélagið Vorhvöt
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. ágúst 1985