Þjóðviljinn - 31.08.1985, Page 4
LEIÐARI
Refsiaðgerðir gegn Suður-Afrflcu
Apartheid stefna suðurafrískra stjórnvalda á
skilda fyrirlitningu alls heimsins. Meðferð hinna
fimm miljón manna yfirstéttar á 25 miljónum
blökkumanna hefur vakið ógeð og fyrirlitningu
um alla veröld. Blökkufólki er haldið f járngreip-
um hervalds, sem svokölluð „menningarríki“ á
Vesturlöndum halda við með stöðugum vopna-
sölum, og öll helstu mannréttindi einsog við
þekkjum þau eru fótum troðin þegar hin svarta
þjóð Suður-Afríku er annars vegar. Svertingjum
er ekki einasta haldið við hungurmarkið með
hraklegum launakjörum, þeim er einnig meinað
að fara frjálsir ferða sinna, þeir fá ekki að
mennta sig einsog hinir hvítu, og fá ekki einu
sinni að vinna eða búa þar sem þeir vilja.
Á síðustu áratugum hefur margsinnis legið
við borð að ailsherjar bylting brytist út gegn
hinum hvítu kúgurum. Með ótrúlegu ofbeldi,
morðum, ránum og nauðgunum, hefur ræn-
ingjastjórn yfirstéttarinnar þó ævinlega tekist að
brjóta allar frelsunarhreyfingar á bak aftur.
Morð af handahófi hafa verið notuð til að hræða
og skelfa hina kúguðu svertingja frá því að rísa
upp, leiðtogar fjöldahreyfinga í fæðingu hafa
verið drepnir með pyntingum í fangelsum
stjórnarinnar einsog Steve Biko, eða verið fang-
elsaðir ævilangt einsog Nelson Mandela.
Nú hillir hins vegar loksins undir það, að
svartir suðurafríkumenn brjóti af sér hlekki kúg-
unarinnar. Ólgan magnast dag frá degi, morð-
unum fjölgar og frá því yfirstandandi hrina hófst
hefur stjórnin drepið yfir 700 manna, og fang-
elsað þúsundir.
Hvernig getum við, sem teljum okkur styðja
réttlætið og viljum jöfnuð allra manna án tillits til
litarháttar, hjálpað hinum svörtu bræðrum okk-
ar í Afríku?
Flestir eru þeirrar skoðunar að besta vopn
siðvæddra þjóða til að brjóta niður kynþáttaað-
skilnaðarstefnuna, sé að beita efnahagslegum
refsiaðgerðum. Úlfar í sauðargæru hafa hins
vegar reynt að kæfa raddir sem mæla fyrir slík-
um aðgerðum, og haldið því fram, að slíkt yrði
svertingjum sjálfum í óhag, og væri þar að auki
á móti þeirra eigin vilja.
Þess vegna er fróðlegt að heyra hvað hinir
kúguðu blökkumenn undir stjórn P.W. Botha
segja sjálfir.
Breska stórblaðið Sunday Times gerði fyrir
skömmu könnun á viðhorfum þeirra til efna-
hagslegra refsiaðgerða. Næstum helmingur
þeirra, eða 48 af hundraði, voru þeirrar skoðun-
ar að slíkar aðgerðir myndu gera svertingjum
sjálfum erfiðar fyrir. Samt sem áður voru 77 af1
hundraði svertingjanna á þeirri skoðun að
þjóðum heimsins bæri að setja slíkar að-
gerðir á!
Blökkumenn í Suður-Afríku eru með öðrum
orðum reiðubúnir að taka á sig afleiðingar slíkra
aðgerða, því þeir vita, að einungis með því að
kippa fótunum undan efnahag hinnar hvítu yfir-
stéttar er von til þess að takast megi að aflétta
kúguninni.
Þess vegna er það skoðun okkar að íslenska
ríkisstjórnin eigi á vettvangi þjóðanna að styðja
allar tillögur um refsiaðgerðir gegn Suður-
Afríku, og beita sér þegar í stað fyrir því að
íslensk fyrirtæki hætti öllum viðskiptum við
Suður-Afríku. Það hlýtur að vera skýlaus krafa
allra réttlátra íslendinga.
íslenskt aparttieid
Framkoma gagnvart föngunum fyrrverandi,
sem Vernd ætlaði að hýsa í nýkeyptu húsi sínu
á T eigunum, sýnir að það er víðar apartheid en í
Suður-Afríku. Það er sannarlega harmsefni,
hvernig fólk, sem vafalaust telur sig fylgja boð-
orðum kristninnar í daglegu lífi, hefur komið
fram við þessa menn, sem eru fullir vilja til að
verða góðir og nýtir þegnar. Meira að segja
borgarstjórinn sjálfur virðist telja þá óhæfa til að
búa innan um annað fólk. Hann vill hýsa þá
„annars staðar í borginni". Hvar annars staðar?
Ef þeir eru ekki boðlegir borgurum Teigahverfis-
ins, er þá Davíð Oddsson búinn að finna
eitthvert annað hverfi, sem er nægilega „annars
staðar“ og þá væntanlega nægilega „annars
flokks“ til að tilvonandi gestum Verndar hlotnist
sú náð að vera til?
Afstaða Þjóðviljans er einföld: fangarnir fyrr-
verandi hafa tekið út sína refsingu og teljast því
hafa greitt sína skuld við þjóðfélagið að fullu.
Þeir eiga fyllsta rétt á því að búa hvar sem þeim
sýnist, og hvar sem Vernd kýs að búa þeim
heimili. Ef við eigum að fara að draga fólk í dilka
eftir þeim línum sem ýmsir íbúar Teiganna og
borgarstjórinn í Reykjavík virðast ætla nota í
þessu máli, hvar endum við þá? Verður þá ekki
að koma þeim sem eru sjúkir á geði fyrir „ann-
ars staðar", drykkjusjúklingum og öðrum sem
um stundarsakir hafa lent í kreppu - langri eða
skammri? Ætlar borgarstjórinn að fara að búa til
reykvísk „gettó" fyrir þá sem í hans augum eru
annars flokks borgarar?
Við fangana fyrrverandi segjum við þetta:
velkomnir aftur og gangi ykkur sem best -
þið eruð fullt eins dýrmætir og við hin.
-ÖS
Ó-ÁLÍT
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Rltstjórar: Árni Berqmann, össur Skarphéðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, Mörður Árnason, Páll Valsson, Sigríður Pétursdóttir, Sævar Guð- björnsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson. Ljósmyndir: Einar Ólason, Valdís Öskarsdóttir. Útllt og hönnun: Filip Franksson, Svava Sigursveinsdóttir. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvæmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrlfstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen. Afgreíðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarsia: Jenny Borgedóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Hú8mæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumula 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 30 kr. Sunnudagsverð: 35 kr. Áskriftarverð ó mánuði: 360 kr. Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN' Laugardagur 31. ágúst 1985