Þjóðviljinn - 31.08.1985, Side 6
ÍÞRÓTTIR
2. deild
KAnáði IBV
✓ S
Tvö mörk áfyrsta korterinu gegn IBI
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
Stjörnulið
Fastamaður
fellur út
Guðjón Þórðarson frá Akranesi
sem hefur verið fastamaður í Stjörnu-
liði Þjóðviljans frá byrjun í sumar
missir sæti sitt eftir 15. umferð 1.
deiidarinnar í knattspyrnu. Halldór
Áskelsson úr Þór dettur einnig út en í
staðinn koma Skagamaðurinn Ólafur
Þórðarson og Framarinn Guðmund-
ur Torfason. Að þessu sinni stillum
við Stjörnuliðinu upp eftir leikaðferð-
inni 3-5-2 og það lítur þannig út:
Markvöröur:
Þorsteinn Bjarnason, fBK (11)
Varnarmenn:
Guðni Bergsson, Val (15)
Freyr Sverrisson, fBK (13)
Valþór Sigþórsson, fBK (13)
Tengiliöir:
Karl Þórðarson, |A (14)
Ólafur Þórðarson, (A (12)
Siguróli Kristjánsson, Þór (15)
Ómar Torfason, Fram (17)
Árni Sveinsson, (A (15)
Framherjar:
Ragnar Margeirsson, IBK (17)
Guðmundur Torfason, Fram (12)
KA-ÍBÍ 4-1 (2-0) * *
KA náði ÍBV að stigum við
topp 2. deildarinnar með góðum
sigri á daufum og ósamstilltum ís-
firðingum á Akureyrarvellinum í
gærkvöldi. ísfirðingar mega enn
gæta sín á 3. deildinni en KA ætl-
ar ekkert að gefa eftir í barátt-
unni um 1. deildarsæti.
Staða KA var orðin góð eftir
korter, eða 2-0. Steingrímur
Birgisson lék upp allan völl á 6.
mínútu og alveg innað markteigs-
horni. Þar gabbaði hann Hreiðar
Sigtryggsson markvörð og renndi
knettinum í netið, 1-0. Á 15. mín-
útu fékk hann sendingu frá Hin-
rik Þórhallssyni í vítateig ÍBÍ og
skoraði aftur, 2-0. Á milli fékk
ÍBÍ sitt eina umtalsverða færi í
fyrri hálfleik, Ragnar Rögnvalds-
son fékk boltann frá Kristni
Kristjánssyni og skaut hárfínt
■framhjá.
Það næsta markverða gerðist á
65. mínútu. Þá varði Hreiðar vel
skalla Tryggva Gunnarssonar.
Tveimur mínútum síðar
Frakkland
Nantes tapaði
Nantes, mótherjar Vals í UEFA-
bikarnum í knattspyrnu, töpuðu sínum
fyrsta leik í frönsku 1. deildinni á þessu
keppnistímabili í gærkvöldi. Þeir töpuðu
óvænt 1-0 í Marseilles, gegn einu
botnliðanna. Paris St. Germain jók forystu
sína um eitt stig með jafntefli, 0-0, í Nice en
Bordeaux burstaði Monaco 5-1 og renndi
sér uppfyrir Nantes og Lens í annað sætið.
-VS/Reuter
minnkuðu ísfirðingar muninn,
Þorvaldur Jónsson sló boltann frá
marki sínu en til Rúnars Vífils-
sonar sem sendi hann rakleitt til
baka í markið, 2-1. Njáll Eiðsson
átti skot rétt við samskeyti ísa-
fjarðarmarksins á 75. mínútu en
bætti það upp þegar hann skoraði
úr vítaspymu á 80. mín. eftir að
Steingrímur hafði verið felldur,
3-1. Þrjú KA-mörk og ekkert frá
Tryggva - það gat ekki staðið
lengi og á 85. mín. lék hann á tvo
varnarmenn ÍBÍ og skoraði af ör-
yggi sitt 14. mark í deildinni.
Hann var síðan fyrir opnu marki
á lokamínútunni en skaut í stöng-
ina utanverða.
Maður leiksins: Friðfinnur
Hermannsson, KA.
-K&H/Akureyri
Grand Prix
Einar
þriðji
Einar Vilhjálmsson hafnaði í
þriðja sæti í spjótkastinu á Grand
Prix mótinu sem fram fór á
Heysel-leikvanginum í Brússel í
gærkvöldi. Hann kastaði 85,60
metra en Duncan Atwood frá
Bandaríkj unum kastaði 87,14
metra og Tom Petranoff landi
hans 85,68 m. Sigurður Einars-
son varð fimmti en kastaði aðeins
73,58 metra. Oddur Sigurðsson
keppti í milliriðli í 400 m hlaupi á
Heimsleikum stúdenta í Japan í
gær en komst ekki í úrslit.
-VS/Reuter
Staöan
f 2. deildarkeppninni sigur KA á ÍBI: í knattspyrnu eftir
Breiöablik .. 15 9 4 2 28-13 31
Ibv .. 15 8 6 1 37-13 30
KA .. 15 9 3 3 32-14 30
KS .. 15 7 3 5 21-19 24
Völsungur .. 15 6 3 6 24-22 21
UMFN .. 14 4 4 6 10-17 16
(Bl .. 16 3 7 6 15-25 16
Skallagrímur .. 15 4 4 7 19-34 16
Fylkir .. 15 3 3 9 12-20 12
Leiftur .. 15 2 3 10 10-31 9
í dag mætast KS-Leiftur, ÍBV-
Völsungur, Skallagrímur-Breiðablik
og UMFN-Fylkir. UMFN og KA leika
í næstu viku.
Jónsmálið
Valur-Nantes
Þekkja íslenska knattspymu
gegnum atvinnumennina
Vildu kaupa Ásgeir. „Afhverju í ósköpunumfór Karl
heim ? “. Léku hér 1966, muna lyktina best! Ottast ekki kulda,
hrœddir við hvassviðri. Fimm landsliðsmenn í liðinu
Þrír franskir landsliðsmenn,
júgóslavneskur markakóngur og
argentínskur landsliðsmaður eru
stærstu trompin hjá franska
knattspyrnuliðinu Nantes sem
leikur gegn Valsmönnum í
UEFA-bikarnum á Laugardal-
svellinum þann 17. september.
Nantes var fyrir níunda umferð
frönsku 1. deildarinnar í gær-
kvöldi í öðru sæti og taplaust.
Fimm jafntefli og þrír sigrar og
aðeins Paris St. Germain fyrir
ofan. „Við getum náð 1. sætinu
en keppnin verður hörð við París-
arliðið, Monaco og meistarana
Bordeaux,“ sögðu framkvæmda-
stjóri liðsins og aðstoðarmenn
hans sem komu hingað til lands í
vikunni til að sjá ieik í A og Vals.
Framkvæmdastjórinn og þjálf-
ari liðsins eru ekki alls ókunnir
aðstæðum hér á landi - þeir léku
hér með Nantes á Laugardal-
svellinum haustið 1966 í Evrópu-
keppni meistaraliða. Nantes
vann þann leik 3-2 og síðan 5-2 í
Frakklandi. Helsta minning
þeirra frá leiknum var lyktin sem
barst með vindinum frá fiskvinns-
lunni við höfnina! Framkvæmd-
astjórinn tók um nefið og gretti
sig þegar hann rifjaði þetta upp.
Hann hræðist mest að það verði
hvasst þegar lejkurinn fer fram.
„Kuldi er ekkert vandamál fyrir
okkur, sl. vetur fór frostið niður í
16 gráður í Nantes,“ sagði hann.
Jose Toure er bjartasta vonin í
frönsku knattspyrnunni um þess-
ar mundir. Hann er blökkumað-
ur, ættaður frá Afríkuríkinu
Malí, og er stuttu búinn að vinna
sig inní franska landsliðið. Hann
átti stórkostlegan leik þegar Fra-
kkar sigruðu Uruguay 2-0 á dög-
unum. „Þegar Toure er í réttum
ham er hann bestur allra, en hann
skortir stöðugleika,“ segir stjór-
inn um stjörnuna. Tveir aðrir
leikmenn Nantes léku gegn Ur-
uguay, varnarmaðurinn sterki
Yvon Le Roux og William Ayac-
he sem einnig leikur í vörninni.
Vahid Halilhodzic, júgóslavneski
landsliðsmaðurinn, er einn mesti
markaskorari í Evrópu þó hann
Karl Þórðarson. „Af hverju í ósköpu-
num fór hann heim?“ spurðu forráða-
menn Nantes.
sé orðinn 33 ára gamall. Hann
verður örugglega Valsvörninni
erfiður. Þá keypti Nantes í sumar
argentíska landsliðsmanninn
Burruchaga og eru miklar vonir
bundnar við hann.
Það kom í ljós að Frakkarnir
voru vel kunnugir íslenskum
knattspyrnumönnum, þeir
sögðust þekkja íslenska knatt-
spyrnu í gegnum atvinnumennina
á meginlandi Evrópu. Ásgeir Sig-
urvinsson er í miklum metum hjá
þeim - þeir vildu meira að segja
óðir og uppvægir kaupa hann
eftir að hafa leikið æfingaleik við
Stuttgart fyrir tveimur árum.
„Þannig leikstjórnanda viljum
við fá en því miður vildi Stuttgart
alls ekki láta hann,“ sögðu Fra-
kkarnir.
Þeir gáfu líka Karli Þórðarsyni
góð orð. „Þessi litli og fljóti hjá
Laval? Mjög góður - afhverju í
ósköpunum hætti hann og fór
heim?“. Um Teit Þórðarson
sögðu þeir að hann hefði staðið
sig vel fyrsta árið hjá Lens en ekki
sýnt mikið eftir það. Ekki spör-
uðu þeir lýsingarorðin þegar þeir
nefndu Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra. „Knattspyrnu-
áhugamenn í Frakklandi sem
komnir eru um fimmtugt nefna
Albert í hvert skipti sem þcir
ræða um knattspyrnu.“
Frakkarnir eru mjög spenntir
fyrir íslandsferðinni og til marks
Allt stefnir í að Anderlecht hafi
sömu yfirborði í belgísku 1.
deildarkeppninni á þessu keppn-
Lstímabili og í fyrra. Á miðviku-
dagskvöldið vann liðið Molenbe-
ek 3-1 á útivelli og hefur hlotið 7
stig úr fyrstu 4 umferðunum. Be-
veren vann Waregem og er með 6
stig, eins og Beerschot sem gerði
markalaust jafntefli við Ghent á
útivelli.
Utrecht tók forystuna í hol-
iensku 1. deildinni sama kvöld
með 2-0 sigri á Roda. Leikur
kvöldsins var þó viðureign Ajax
og PSV Eindhoven - Eindhoven
vann góðan útisigur, 4-2, Utrecht
er með 7 stig en Den Bosch, sem
Japönsk blöð höfðu í gær eftir
Kim 11 Chong, formanni kóre-
ansksjapansks vináttufélags, að
ef Alþjóða Olympíunefndin sam-
þykkti ekki tiilögu Norður--
Kóreumanna um að leikarnir
1988 verði haldnir bæði í Norður-
og Suður-Kóreu muni Norður-
Kórea ekki taka þátt í þeim.
Norður-Kóreumenn báru í síð-
asta mánuði fram þá tillögu að
um það má nefna að alls verða
um 130 manns með í för. Leik-
menn og þjálfarar 22, um 40
stjórnarmenn, gestir og auglýs-
endur, um 30 blaðamenn og
kringum 40 stuðningsmenn. Þeir
líta á ferðina sem kjörið tækifæri
tii að skoða þetta ævintýraland og
ætia að nýta hana vel og fara eins
víða og mögulegt er.
-VS
vann Venlo 4-0, Feyenoord, sem
vann Go Ahead 5-0, og PSV
Eindhoven hafa 6 stig hvert.
ítölsku meistararnir Verona
töpuðu 1-0 fyrir 2. deildarliðinu
Bologna í bikarkeppninni. Ju-
ventus náði aðeins jafntefli
heima, 1-1 gegn öðru 2. deildar-
liði, Monza. Onnur helstu úrslit:
Sampdoria-Monopoli 1-0,
Padova-Napoli 0-0, Empoli-Inter
Milano 1-1, AC Milano-
Reggiana 1-0, Udinese-Genoa 4-
0, Triestina-Torino 1-1, Roma-
Ascoii 3-0 og Messina-Bari 1-0.
Eins og sést á þessu áttu flest 1.
deildarliðin mjög í vök að verj-
ast.
-VS/Reueter
þeir héldu leikana í samvinnu við
nágranna sína. Suður-Kóreu-
menn sögðu tillöguna spunna af
pólitískum toga og hún væri borin
fram til þess að eyðileggja
leikana fyrir þeim. Forseti Al-
þjóða Ólympíunefndarinnar hef-
ur lýst því yfir að ekki komi til
greina að skipta leikunum milli
þjóðanna tveggja.
Fulltrúar Sovétmanna komu til
„Látum þá
almennu
eiga sig“
Löglega skipað
segir dómstóll ISI
, Jonsmálinu er lokið - það er
ekkert sem við getum gert í fram-
haldi af þessu nema leita til al-
mennra dómstóla og það látum
við eiga sig. En eftirstöðvarnar
hljóta einhverjar að verða - í Ijós
hefur komið að KSÍ hefur sett sér
reglur sem ógerlegt er að starfa
eftir,“ sagði Magnús Óskarsson
lögmaður Þróttara í Jónsmálinu í
samtali við Þjóðviljann í gær-
kvöldi.
Dómstóll ÍSÍ komst að þeirri
niðurstöðu í gær að dómstóll KSÍ
sem dæmdi KR í hag í málinu hafi
verið löglega skipaður. Þróttarar
sættu sig ekki við að formaður
KSÍ skipaði dómstólinn og kærðu
það atriði til dómstóls ÍSI.
KR telst því endanlega sigur-
vegari í fyrsta leik íslandsmótins
gegn Þrótti, 4-3. Vesturbæingar
standa því áfram í baráttunni um
íslandsmeistaratitilinn en Þrótt-
arar ramba á barmi falls í 2. deild.
-VS
Suður-Kóreu nú í vikunni til að
líta á aðstæður. Sovétmehn hafa
stutt tillögu Norður-Kóreu en
taismenn íþróttahreyfingarinnar
þar í landi segjast hafa fengið
„grænt ljós“ til að taka þátt í
mótum í Suður-Kóreu og að
undirbúningur Sovétmanna fyrir
leikana í Seoul 1988 sé kominn
vel á veg.
-VS/Reuter
Evrópuknattspyrnan
Anderlecht óstöðvandi
Utrecht efst í Hollandi. Verona tapaði
Ólympíuleikarnir
Hættir Norður-Kórea við?
Sovétmenn með grœnt Ijósfyrir leikana í Seoul
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. ágúst 1985