Þjóðviljinn - 31.08.1985, Síða 7
HEIMURINN
Suður-Afríka
Átökín verða æ harðari
Efnahagsástandið ferhríðversnandi. Seðlabóndinn gerðurútí bónarferð.
Höfðaborg og víðar - Óeirðirnar
í Suður-Afríku fara harðnandi
dag frá degi og undanfarna
þrjá sólarhringa hafa yfir 20
manns fallið og hundruð
manns særst í átökum lög-
reglu og mótmælenda gegn
aðskilnaðarstefnu hvíta minni-
hlutans. í gær urðu hörðustu
átökin í Höfðaborg og svo virð-
ist sem þau fari harðnandi í
borgarhlutum þar sem fólk af
blönduðum uppruna býr, en í
hverfum blökkumanna dregur
heldur úr þeim.
í hverfinu Mitchell Plain í
Höfðaborg urðu átökin mest í
gær. Að sögn yfirvalda skemm-
dust 11 hús og 7 bflar í eldi og yfir
1 100 bflar skemmdust af völdum
grjótkasts. Unglingar með grím-
ur fyrir andlitunum hlóðu götu-
vígi víða um hverfið og kveiktu
svo í þeim. Einnig köstuðu þeir
bensínsprengjum og grjóti. Ekki
Þetta
líka...
...Góð saia var á uppboði í London
þar sem til sölu voru ýmsir hlutir
sem verið hafa í eigu frægra tón-
listarmanna. Hæsta verðið var
greitt fyrir bifreið af gerðinni Aston
Martin DB5, árgerð 1965, en hana
keypti bítillinn George Harrison
eftir að hafa séð James Bond aka
um á slíkum bíl á tjaldinu. Fór bíll-
inn á rúma miljón. Jakki sem Elvis
Presley var í á tónieikum árið 1969
I fór á kvartmiljón og trommusett
sem Ginger Baker barði á sínum
tíma lagði sig á liðlega 200 þúsund
krónur. Ekki er vitað hvort útsend-
arar Poppminjasafnsins hafa sótt
uppboðið.
er vitað um mannfall því starfs-
fólki sjúkrahúsa hefur verið
bannað að skýra frá tölu þeirra
sem komið er með og lögreglan
neitar að gefa upp tölur.
í Mitchell Plain eru heimaslóð-
ir Állan Boesak, leiðtoga Lýð-
ræðisbandalagsins sem handtek-
inn var s.l. þriðjudag. Hann er
vel látinn í hverfinu og er hand-
taka hans ásamt með árás lög-
reglunnar á göngu sem fara átti á
miðvikudaginn að fangelsinu sem
hýsir Nelson Mandela talin vera
orsök óeirðanna í gær.
Sendinefnd frá Efnahags-
bandalagi Evrópu kom til Suður-
Afríku í gær og lýstu ráðherrarnir
sem hana skipa þungum áhyggj-
um sínum og áhuga á að afnema
aðskilnaðarstefnuna. Desmond
Tutu biskup hefur fallist á að
hitta ráðherrana að máli en jafn-
framt gefið þá yfirlýsingu að hann
eða aðrir leiðtogar blökkumanna
muni ekki ræða við fleiri sendin-
efndir sem komi til Suður-Afríku
á skilmálum yfirvalda.
Efnahagsástandið í Suður-
Afríku fer hríðversnandi og hafa
yfirvöld neyðst til að loka fyrir
gjaldeyrisviðskipti til þess að
stemma stigu við fjármagnsflótta
og gengisfalli randsins. I gær fór
bankastjóri seðlabanka landsins
áleiðis til Bretlands og Banda-
ríkjanna þeirra erinda að fá er-
lenda lánadrottna til að veita hag-
stæðari greiðslukjör af erlendum
skuldum Suður-Afríku og til að
afla nýrra skyndilána til að bjarga
við efnahag landsins.
Frá Lusaka í Zambíu bárust
þær fréttir að Afríska þjóðar-
ráðið hygðist halda fund með
nokkrum valdamiklum mönnum
úr viðskiptalífi Suður-Afríku
með það fyrir augum að afnema
aðskilnaðarstefnuna. Greindu
talsmenn samtakanna, sem eru
bönnuð í Suður-Afríku, frá því
að samkomulag væri um að halda
fundinn en staður og stund hafa
ekki verið ákveðin.
Siðvenjur
Konur verða
lesbískar
Peking - Að sögn blaðs í Kína
ýta giftingarsiðir í héraðinu
Fujian í Austur-Kína undir það
að konur verði lesbískar. í sex
þorpum í héraðinu tíðkast það
að fólk giftist á barnsaldri. Eftir
brúðkaupið eyðir það aðeins
2-3 dögum saman og snýr svo
aftur heim til föðurhúsanna.
Að sögn blaðsins eyða hjón
nóttunum saman á stórhátíðum
eingöngu og þá er til siðs að kon-
an gangi til fundar við eiginmann
sinn með hulið andlitið svo hann
sjái hana ekki. „Afleiðingin af
þessum slæma sið er sú að margir
karlmenn verða eirðarlausir og
drykkfelldir. Margar kvennanna
hneigjast til þess að verða lesbí-
ur“, segir blaðið og bætir því við
að sjálfsmorð og sefasýki séu
einnig útbreidd í héraðinu.
5
■ 1 1 1 #4* 3
Hvítþvottur. Þótt heldur hafi sljákkað í umræðunni um skýrslu Bernard Tricots sem hreinsaði frönsku leyniþjónustuna af allri sekt í málinu sem risið hefur út af Rainbow Warrior, skipi Grænfriðunga, eru eftirmálin í gangi hér og þar. Tveir útsendarar leynijDjónustunnar eru enn í haldi á Nýja-Sjálandi og eigandi seglskútunnar Ouvea frá Nýju-Kaledóníu hefur ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur þremur öðrum útsendurum frá Frakklandi. Þeir höfðu, að sögn Tricot, það hlutverk að njósna um Grænfriðunga á Kyrrahafinu en daginn áður en Rainbow Warrior var sökkt hurfu þeir skyndilega frá Auckland. Viku seinna hvarf skútan af yfirborði sjávar og er talið víst að þremenningarnir hafi sökkt henni. Mennirnir þrír eru eftirlýstir á Nýja-Sjálandi fyrir morð og skemmdarverk en þeir ganga nú lausir í Frakklandi. Meðfylgandi mynd eftir franska skopteiknarann Plantu þarnfast ekki skýringa.
Nígería
...Þegar verkamenn við efnaverk-
smiðju í Bombay á Indiandi höfðu
uppi mótmæli vegna kjaramála úti
fyrir vinnustað sínum í gær kom
upp leki á tanki sem hafði að
geyma klór með þeim afleiðingum
að einn lést og 69 veiktust, sumir
aivarlega. Þetta er annar klórlek-
inn í Bombay á stuttum tíma en í
lok júní var farið með 113 manns á
sjúkrahús eftir samskonar leka.
...Farþegi í lítilli flugvél í Ástralíu
skreið út á væng vélarinnar og
lagaði hjólabúnað hennar sem
vildi ekki læsast niðri þegar lenda
átti. Öðrum megin nægði að ýta á
hjólabúnaðinn sem féll í rétt far en
hinum megin neyddist maðurinn
til að binda hjólabúnaðinn niður
með beltum farþeganna og sætis-
ólum vélarinnar. Lendingin tókst
vel.
Babangida opnar fangelsin
Lagos - Hinir nýju valdhafar í
Nígeríu opnuðu í gær aliar
gáttir á illræmdasta fangelsi
landsins og sýndu rúmlega
100 fanga sem þar hefur verið
haldið í trássi við lög. Er þetta
liður í herferð stjórnarinnar
gegn mannréttindabrotum
sem voru tíð meðan Buhari
hershöfðingi var við völd.
Aðstoðarlögreglustjóri lands-
ins, Mohammed Gambo, kom
Zimbabwe
Sautján felldir
Harare - Uppreisnarmenn í
Zimbabwe réðust í fyrrakvöld
á bóndabýli og skóla í suður-
hluta landsins og felldu a.m.k.
17 manns að því er heimildir í
Harare herma. Sveitir úr her og
lögreglu leita uppreisnar-
mannanna sem taldir eru vera
15 talsins.
Þessi atburður er einn sá blóð-
ugasti sem orðið hefur undanfar-
in þrjú ár. Uppreisnarmennirnir
réðust á bóndabæ í nágrenni
borgarinnar Mwenezi og skutu
a.rn.k. 13 manns til bana áður en
þeir hurfu á braut á stolnum far-
artækjum. Síðar réðust þeir á
fleiri bæi og brenndu barnaskóla
til grunna. Bfll eins bóndans
fannst yfirgefinn og sundur-
skotinn en eiganda hans, sem er
hvítur landeigandi, er saknað.
Undanfarin þrjú ár hafa yfir
200 manns fallið í árásum skæru-
liða sem andæfa stjórn Mugabes.
Stjórnin hefur ásakað stjórnar-
andstöðuflokkinn, Zapu, og leið-
toga hans, Joshua Nkomo, fyrir
að styðja uppreinsarmenn.
Nkomo hefur svarið það af sér.
skýrði frá því að í Ikoyi fangels-
inu í Lagos einu saman hefði yfir
100 manns verið haldið í trássi við
lög. Fyrr um daginn hafði hann
gengið um fangelsið með hópi
fréttamanna og sýnt þeim fang-
ana sem margir hverjir báru
menjar um barsmíðar og pynting-
ar. Yfirmaður öryggissveitanna
sem ráku þeitta fangelsi ásamt
fleiru hefur verið leystur frá störf-
um og er nú í haldi.
Meðal fanganna var einn Þjóð-
verji og bandarísk kona og talið
er víst að fleiri útlendingar séu í
haldi hjá öryggissveitunum. Er
þeim flestum gefið að sök að hafa
komið inn í landið á ólöglegan
hátt. Sumir fanganna höfðu verið
í haldi í 18 mánuði án þess að
koma fyrir rétt eða vera formlega
ákærðir.
Hin nýja stjórn Babangidas,
sem áður var yfirmaður herafla
landsins, lét það verða eitt sitt
fyrsta verk að nema úr gildi rit-
fram í sjónvarpi í fýrrakvöld og
REUTER
Umsjón:
ÞRÖSTUR HARALDSSON
skoðunarlög sem kváðu á um
langa frelsissviptingu þeim til
handa sem gagnrýndu stjórn Bu-
haris. Allir fréttamenn sem sátu í
fangelsi í krafti þeirra laga hafa
verið látnir lausir skilmálalaust.
í gær tók 28 manna stjórnarráð
við völdum af herforingjastjórn
Buharis. Margir sem sátu í þeirri
síðarnefndu halda völdum sín-
um. Babangida kom í gær í fyrsta
sinn fram opinberlega eftir að
hann tók völdin í sínar heldur.
Hann sagði á blaðamannafundi
að stjórn sín myndi þegar í stað
grípa til ráðstafana gegn verð-
bólgu og atvinnuleysi. Hann
sagði að Nígería myndi standa í
skilum með afborganir af er-
lendum skuldum, sem nema
uþ.b. 20 miijörðum dollara, „þó
að hraðinn á afborgunum muni
e.t.v. hægjast til þess að létta
þrýstingi af efnahagslífi lands-
ins“.
Hann sagði að áhersla yrði
lögð á bætt samskipti við ná-
grannaríki Nígeríu sem mörg
hver hafa orðið fyrir barðinu á
þeirri ákvörðun Buharis að loka
Íandamærunum og senda erlenda
verkamenn heim. Einnig gaf
hann í skyn að stjórn hans vildi
bæta samskiptin við bresk
stjórnvöld en þau hafa verið
mjög stirð síðan útsendarar Bu-
haris reyndu að ræna fyrrverandi
ráðherra í London og smygla
honum úr landi.
Laugardagur 31. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Póstur
Danir fá
fyrst
Kaupmannahöfn - í könnun
sem dönsku neytendasam-
tökin hafa látið gera í átta
löndum Evrópu kom í Ijós að
póstur berst viðtakanda fyrst í
Danmörku en síðast á ítaliu.
Könnunin fór þannig fram að
194 bréf voru send af stað með
pósti sama daginn í löndunum
átta. í Danmörku bárust 95%
bréfanna til viðtakenda daginn
eftir. Noregur kom næstur, þar
fengu 82,5% viðtakenda bréfin
sín daginn eftir, síðan komu Bret-
land, Vestur-Þýskaland, Hol-
land, Frakkland og Austurríki en
í þessum löndum bárust 55-79%
bréfanna daginn eftir sendingu.
Á Ítalíu kom ekkert bréfanna
til skila daginn eftir og einungis
eitt af hverjum fimm voru komin
til viðtakenda þremur dögum
eftir að þau fóru af stað.