Þjóðviljinn - 31.08.1985, Side 12
DÆGURMAL
Frá Öskjuhlíðarskóla
Starfsfólk mæti mánudag 2. september kl. 10. Nem-
endur árdegisdeilda mæti fimmtudag 5. september kl.
11, og nemendur síðdegisdeilda sama dag kl. 14.
Afhending stundaskrár.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudag
6. september.
Skólastjóri
Starf í
skýrsluvéladeild
Óskum eftir að ráða Operator í Skýrsluvéladeild
vegna tölvukaupa.
Æskilegt er að umsækjendur hafi góða undirstöðu-
menntun.
Hér er um að ræða lifandi starf fyrir réttan og áhuga-
saman aðila.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá Starfs-
mannahaldi, Ármúla 3, sími 81411.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÖLA3 SlMI 81411
Starf í
Brunadeild
Óskum eftir að ráða starfsmann í Brunadeild til al-
mennra skrifstofustarfa.
Æskilegt að umsækjendur geti byrjað sem fyrst og
hafi til að bera færni í skrifstofustörfum.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar hjá Starfsmanna-
haldi, Ármúla 3, sími 81411.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA3 SÍMI81411
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Starfsmaöur við Tómstundaheimilið í Félagsmið-
stöðinni Árseli. Um er að ræða 50% stöðu. Tóm-
stundaheimilið er starfrækt milli kl. 9.00 og 17.00
daglega og er ætlað 7-11 ára börnum. Menntun og
reynsla á sviði uppeldismála æskileg.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
78944, frá kl. 9.00 til 17.00, alla virka daga.
• Skrifstofumaður í afgreiðslu Félgsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Vonarstræti 4. (100% staða).
Um er að ræða skjalavörslu, innkaup á skrifstofu-
vörum, afhendingu launaávísana, yfirferð
reikninga, afleysingu gjaldkera o.fl. Stúdentspróf,
verslunarmenntun og/eða reynsla í skrifstofu-
störfum kæmi sér vel. Starfið er laust í byrjun sept-
ember.
Nánari upplýsingar veitir yfirmaður fjármála- og
rekstrardeildar F.R. í síma 25500.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00,
mánudaginn 9. september 1985.
Kennara vantar
Kennara vantar að Grunnskóla Þórshafnar: íþróttir og
almenn kennsla.
íbúð í boði.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 96-81164.
Tvœr einstakar
Art of Noise
og Zoolook
Vörumerki Art of Noise.
í upphafi erafsökunarbeiðni.
Þær tvær plötur sem hér fá
dóm eru fyrir margt löngu
komnar út, en hafa hingað til
þurft að sitja á hakanum á
meðan aðrar, og yfirleitt
ómerkilegri plötur, hafafengið
forgang, vegna þess hvað
þæreru auðmeltari. Hérer
um að ræða hljómplötur sem
eiga eftir að sitja í öndvegi í
plötusafninu: Who’s Afraid
of the Art of Noise og Zoo-
look.
Hver er (Listina við Hávað-
ann?(?)) hræddur við List
Hávaðans?/! Listarinnar bænum!
Ekki ég. Þ.e. ekki svo mjög eftir
að ég hlustaði vel og vandlega á
þetta afkvæmi Trevors Horn og
félagsskaparins Art of Noise.
Það verður að teljast til undan-
tekninga þegar plötu á borð við
þessa rekur á fjörur manns í þessa
dags suddalegu auglýsinga- sölu-
firringu sem allt er að kæfa, og er
þá lítið sagt. - Gustuk og aftur
gustuk.
A Listilegum Hávaða úir og
grúir af göldrum og gerningum,
án háreysti nokkurntíma. Hljóð-
gerflaleikfimi þeirra Garys
Langan, Anne Dudley, J.J.
Jeczalik og Trevors Horn er
hreinn unaður, þau virðast ráða
yfir allri þeirri tækni sem blessað-
ir svuntuþeysarnir búa sjálfir yfir.
Og það má semsagt nota kímni-
gáfu líka þegar leikið er á þessi
galdratól, hún leikur lausum hala
á plötunni ásamt textum eða orð-
um hugmyndafræðings Frankie
Goes To Hollywood, Pauls
Morley.
Það er sama hversu oft maður
setur Who’s Afraid of the Art of
Noise á fóninn, aldrei verður
maður leiður, því margt ber við í
tónaflóðinu; á stundum þykist
maður heyra vitnað í sígild verk,
rokk sem klassísk (áberandi er
stefið í lagi The Who frá ’71 Baba
O’Riley) en vitnanir hverfa útí
veður og vind jafnharðan og þær
„birtast“ og eitthvað annað tekur
við. Platan er heilsteypt verk
nokkurra aðila með flest sitt á
hreinu, hvergi of né van í einu
eða öðru en alltaf iiber brilliant.
Útgáfufyrirtæki Trevors Horn
ZTT (Zang Tuum Tuum) er ein
af björtu vonunum í músíkbrans-
anum og vitandi það að framvegis
megi maður eiga von á jafn góð-
um plötum frá Listilega Hávaða
genginu og „Hver er hræddur...“
er ekkert að óttast.
„Listin á sér óvin er kallast fá-
fræði“ segir í gömlum skræðum,
og fáfræði er óvinur Pauls Morl-
ey.
Smá speki frá Paul Morley,
latnesk, og skilji nú hver sem bet-
ur getur:
„Porcellus in domo magnifica
media in fago habi-tabit, fagus
media in silva erat et Porcellus
media in domo vivebat. Apud
domum tabula quaedam fracta
erat, ita inscripta:
„TRANSITUS VE“.“
Við fengum Jóhönnu Sveins-
dóttur, latínukennara og blaða-
mann með meiru, til að líta uppúr
kynlífi íslenskra karla smástund
og snúa texta þessum yfir á móð-
urmálið símleiðis. Og grunur
okkar um háspekilegt gildi text-
ans reyndist á órökum reistur. Jó-
hönnu þótti hann í Véfréttarstíl:
„Gríslingur bjó í miðju tré í
dásamlegu húsi, tréð var í miðj-
um skóginum og gríslingurinn
hafði aðsetur sitt í miðju húsinu.
Við húsið var brotin tafla hvar á
var ritað:
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN
„Farðu framhjá ef þú vilt“.“
Dáleiðandi
og uppvekjandi
Því miður veit ég alltof lítið um
þann tónlistarmann sem heiður-
inn á af plötu sem heitir Zoolook,
Jean-Michel Jarre, því án þess að
ýkja skapaðan hlut er þessi plata
hans einhver sú mergjaðasta sem
undirrituð hefur heyrt um langt
árabil.
Tónlistin er að mestu fram-
reidd með hljóðgerflum, þ.e.
melódían sjálf, en auk þeirra
bera sígild hljóðfæri ljóðlínuna
uppi.
Yfir þessari plötu ríkir dulúð
og seiðandi kraftur sem erfitt er
að lýsa á annan hátt en dáleið-
andi. Hljóð heyrast á tuttuguog-
fimm tungumáíum, m.a. heyrast
mál frumbyggja Ástralíu, aborig-
inies, afganska, arabíska, balan-
íska, buhndi mál, chad, kínver-
ska, eskimóamál, gabonska, ind-
verska, ungverska, japanska,
sioux-indíánamál, tíbetska o.fl.
Einnig dýrahljóð, sérílagi
mögnuð fílsöskur, hafa á mann
undarleg áhrif.
Laurie Anderson á sinn þátt í
að gera þessa plötu jafn frábæra
(afsakið stórt orð, en hér er það á
réttum stað) og hún er. Þeim sem
ekki hafa heyrt plötu sem er
hvorttveggja í senn uppvekjandi
og dáleiðandi en hafa áhuga er
skilyrðislaust bent á að verða sér
úti um Zoolook. Og þótt margir
kunni að kalla mig dóna fyrir að
halda slíku fram, þá er ég reiðu-
búin að fara með þá nafnbót í
gröfina.
Þessi plata er tvímælalaust ein-
hver sú fallegasta og besta
„instrumental" plata ásamt með
Who’s Afraid of the Art of Noise
sem komið hefur út á áratugnum.
Kennarar
Almennan kennara vantar við Grunnskóla Grindavík-
ur. Húsnæði fyrir hendi.
Nánari upplýsingar veitir skólastióri í símum 92-8555
og 92-8504.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
Verkamenn
við lagningu jarðsíma á stór-Reykjavíkursvæðið.
Nánari upplýsingar verða veittar í síma 26000.
Tilkynning
csasp skattgreiðenda
Dráttarvextir vegna vangreiddra þinggjalda verða
reiknaðir að kvöldi miðvikudagsins 4. september n.k.
Vinsamlegast gerið skil fyrir þann tíma.
Fjármálaráðuneytið
30. ágúst 1985.