Þjóðviljinn - 31.08.1985, Page 16
MENNING
Septem 85
Við erum
síðustu
móhíkanarnir
segir Valtýr Pétursson einn af félögum
septemberhópsins sem nú opnar
sína 13.sýningu
Kaktusar og þykkblöðungar
Mál og menning hefur gefið út
glæsilega bók um kaktusa og
þykkblöðungaeftir Peter
Chapman og Margaret Mart-
in. Hafsteinn Hafliðason og
Álfheiður Kjartansdóttir
þýddu og staðfærðu.
í bókinni eru leiðbeiningar um
ræktun og umhirðu á 156 kaktus-
um og þykkblöðungum. Gefnar
eru upplýsingar um hagstæðustu
ræktunarskilyrði varðandi raka-
og hitastig, birtu, jarðvegsblöndu
og ýmislegt fleira. í rituðu máli er
að finna ýmsan fróðleik um
plönturnar: vaxtarlag, lögun
blóma, hvemig best sé að fá þær
til að bera blóm og hvað beri að
varast við ræktun. Teiknuð
skýringamynd er af hverri plöntu
og litmyndir af flestum. í bókinni
eru gefin upp latnesk heiti þeirra
plantna sem fjallað er um og
einnig er listi yfir íslensk heiti 123
plantna.
Kaktusar og þykkblöðungar er
160 bls. að stærð og em í henni
156 skýringamyndir og 121 lit-
mynd. Prentstofa G. Benedikts-
sonar annaðist setningu og filmu-
vinnu, en bókin er prentuð í
Belgíu.
Við sýnum alltaf einu sinni á
ári og erum orðin þjóðfélags-
stofnun, sagði Valtýr Péturs-
son einn af félögum septemb-
erhópsins sem í dag opnar
sína 13. sýningu á Kjarvals-
stöðum.
Á þessari sýningu eru tveir
gestir, Hafsteinn Austmann sem
sýnir málverk og vatnslitamyndir
og Jens Urup sem hefur gert
steinda glugga fyrir Sauðárkróks-
kirkju. Hann sýnir gluggana og
skissur.
Félagar í septemberhópnum
eru Guðmunda Andrésdóttir,
Karl Kvaran, Steinþór Sigurðs-
son, Guðmundur Benediktsson,
Jóhannes Jóhannesson, Kristján
Davíðsson og Valtýr Pétursson.
Karl Kvaran og Steinþór Sigurðs-
son sýna þó ekki með að sinni.
Hópurinn byrjaði reyndar að
sýna 1947 og kjarninn úr þeim
hóp voru með og endurreistu
septemberhópinn. Tveir úr
hópnum eru fallnir frá, þeir Þor-
valdur Skúlason og Sigurjón Ól-
afsson. Guðmundur Benedikts-
son kom inn þegar Sigurjón iést
og sýnir hann fjórar eða fimm
höggmyndir.
„Septemberhópurinn er sér-
stakur að því leyti að hafa haldið
svona lengi saman og dálítið í átt
við það sem á sér stað í nágrann-
alöndunum. Áður en maður veit
af er maður orðinn gamall í hett-
unni en allir þeir sem hér sýna eru
fullmótaðir listamenn. Það getur
verið að þessi sýning sé fjöl-
breyttari en fyrri sýning að því
leyti að við erum með þessi
steindu gler og meira af vatnslita-
myndum en verið hefur áður.
Sýningin er ekki afmörkuð við
neina listastefnu, hér eru bæði
abstrakt myndir og fígúratífar.
Við erum síðustu móhíkanarnir í
vissum skilningi og verður hver
og einn að ráða út úr því, við
segjum ekki meir.
Það veitir ekki af að gera grín
að sjálfum sér. Það er verið að
eyðileggja sýningar með ofhleð-
slu. Það eru 3 til 4 sýningar úti í
bæ sem opna á hverjum laugar-
degi og fólk er að verða þreytt á
þessu.
Málverkið er í fyrirrúmi frekar
en einhverjir ismar. Það þykir ör-
ugglega sveitó og púkó en við
erum vanir því að vera skammað-
ir. Um tíma vorum við skammað-
ir fyrir að vera frjálslyndir en
erum núna skammaðir fyrir að
vera of íhaldssamir. En það er
viss órói í kringum okkur og það
er góðs viti, það er þá eitthvað
sem kemur við fólk.
Við vorum 7 sem endurvöktum
septemberhópinn og var þá borið
á brýn að viö værum að lifa á
fornri frægð. Þá var það orðin
frægð að hafa verið á september-
sýningum. Þeir elstu í þessum
hóp eru aldir upp við afskaplegt
mótlæti. Fyrir 20 árum vorum við
útilokaðir frá öllu sem hét og var
en nú erum við farnir að gera það
sama við aðra. Það er ekkert við
því að gera, maðurinn er alltaf
maður.”
Sýning er opin kl. 14-22 alla
daga og lýkur 15. september.
-aró.
Erindið hefst kl. fjögur - og
verða umræður um efnið að því
ioknu. „Námsgagnastofnun” og
„Hagþenkir - félag handhafa
höfundarréttar á fræðiritum og
kennslugögnum” gangast fyrir
erindisflutningum og umræðu-
fundinum. Allt áhugafólk er vel-
komið.
Dr. Wolfgang Edelstein
stjórnar uppeldis- og kennslu-
fræðirannsóknum við Max Plank
Indistut fur Bildforschung í Berl-
ín. Hann gegndi ráðgjafarhlut-
verki við skólarannsóknadeild
menntamálaráðuneytisins með-
an sú deild starfaði, einkum í
sambandi við endurnýjun og
mótun námsefriis og námsskrár í
samfélagsfræði og hefur. ritað
Dr. Wolfgang Edelstein var um árabil
ráðgjafi við skólarannsóknadeild
menntamálaráðuneytisins eða þar til
Ragnhildur Helgadóttir lagði þá deild
niður. Hann starfar nú í Berlín.
margt um skólastefnu á íslandi og
stundað rannsóknir hér.
Austurbœjarbíó
Afmœlistónleikar
Harðar Torfasonar
Afmælistónleikar Harðar
Torfasonar, leikstjóra og
lagahöfundarverða haldnirí
Austurbæjarbíói þann 4. sept-
ember nk. Þar koma fram auk
Harðarsem ísenn heldur
uppá tuttugu ára sviðsferil og
fertugsafmælið, þau Megas,
Bubbi Morthens, Bergþóra
Árnadóttirog Kristín Olafs-
dóttir.
Þessir fimm listamenn teljast
allir til kynslóðar íslenskra trúba-
dúra, en með fyrstu plötu sinni
1971, má segja að Hörður hafi
rutt trúbadúrum braut hér
heima. Nafn trúbadúra er dregið
af skáldum sem sungu kastala-
frúm í Suður-Frakklandi man-
söngva á miðöldum.
í dag teljast til trúbadúra þeir
sem dirfast að troða upp aleinir
með gítarinn sinn, syngja eigin
lög og þá oftst við eigin texta - þar
sern meiningin er oftar en ekki
sögð umbúðalaust. Það hafa
fimmmenningarnir sem koma
fram í Austurbæjarbíói löngu
verið þekktir fyrir og ætti því að-
dáendum þeirra að gefast ein-
stakt tækifæri til að rifja upp
gömul kynni sem tengjst ýmsu
fleiru en gítarnum einum.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og
verður leikarinn Viðar Eggerts-
son kynnir á þeim.
Forsala aðgöngumiða hófst
miðvikudaginn 28. ágúst í Aust-
urbæjarbíói og Bókabúð Lárusar
Blöndal á Skólavörðustíg 2.
Fyrirlestur
Alitamöl í skólastarfi
Dr. Wolfgang Edelstein rœðir nómsefnisgerð
og kennslufrœði
Dr. Wolfgang Edelsteinflytur
erindi þriöjudaginn 3. sept-
ember í Kennslumiðstöð
Námsgagnastofnunar,
Laugavegi 166, sem nefnist:
Álitamál í skólastarfi - hug-
leiðingar um námsefnis-
gerð og kennslufræði.
UTSALA ii
Alullargólfteppi á..
A mánudag hefst útsala á
einlitum og munstruðum
alullargólfteppum.
Einstakt tækifæri til kjara-
kaupa á vandaðri vöru.
Bíla- og dyramottur
á aðeins
50.- kr. stykkið.
Allskonar teppabútar.
...ótrúlega
lágu verði
Álafossbúðin
Vesturgötu 2
sími 22090
Útsala III
hefst 9. sept. á
áklæðum og
fataefnum.