Þjóðviljinn - 14.09.1985, Page 8

Þjóðviljinn - 14.09.1985, Page 8
VtÐTALIÐ Svavar Gestsson: þörf umræða í Alþýðubandalaginu. Frjálshyggjan er höfuðóvinurinn Viðtal við Svavar Gestsson, formann Alþýðubandalagsins - Svavar, það er óhœtt að segja að það eru sviptingar kringum Al- þýðubandalagið og innan þessfer nú fram kröftug umrœða um stefnu og vinnubrögð. Hvað finnst þér um þessa umrœðu? „Ég held hún sé til marks um það, að við viljum snúa frjáls- hyggjuöflin niður, og finna leiðir til þess. Ég held að umræðan þjóni þvf marki. Við viljum efla Alþýðubandalagið sem sterkan sósíalískan flokk gegn frjáls- hyggjunni. Af því leiðir að hún er af hinu góða svo lengi sem hún er heiðarleg og drengileg." - Pér finnst umrœðan semsé góð? „Já, en gallinn er sá, að and- stæðingablöðin reyna að nota hana gegn Alþýðubandalaginu, til þess að snúa það niður. Það er reynt að persónugera hlutina með beinum hætti. Ég tel hins vegar að það sé hverfandi hætta á að þessi viðbrögð anstæðingablaðanna spilli Al- þýðubandalaginu. Ég erbúinn að vera formaður í Alþýðubanda- laginu í fimm ár og ég hef fengið yfir mig gusur í hverjum einasta mánuði, í hverri einustu viku og mér finnst það bara eins og heilbrigðisvottorð að fá framan í sig skítinn úr Staksteinum Morg- unblaðsins á morgnana.“ - Þú lítur þá fyrst og fremst á árásirnar gegn þér sem skírteini uppá gott pólitískt heilsufar? „Ég geri það, já“. - Finnst þér þá, að andstœðing- ar Alþýðubandalagsins séu með þessu að reyna að berja niður um- rœðu um málefni og reyna að snúa henni upp á persónur? „Ég held það. Eg held að við sem höfum komið nálægt Þjóð- viljanum þekkjum það, báðum megin frá, þannig að það er engin ástæða til að kippa sér upp við það. Ég er þess vegna ekki að neinu leyti smeykur um stöðu Al- þýðubandalagsins. Mér finnst að í umræðunni sé mikil einlægni, og heiðarleiki. Og drenglyndi. Við erum að reyna að finna aðferðir til að skapa forsendur til að við getum, eícki bara varist, heldur sótt, og að við getum sigrað!“ - Hvaðfinnst þérþá- í einlœgni - um ýmis atriði sem komafram í punktunum frá hinni frœgu mæðranefnd, til dœmis að þeir sem tali fyrir munn flokksins séu „þungir og ábúðarmiklir karlar og þar skorti sárlega konur? „Þarna ráðum við ekki einir. Það eru ríkisfjölmiðlarnir sem kalla til fólk, heimta formanninn, heimta þennan eða hinn forystu- manninn. í vetur gerði ég tilraun til þess að troða öðrum inn í um- ræðuþátt í sjónvarpinu, fyrst og fremst til að sýna að við eigum mikið af baráttuhæfu fólki. Ég hótaði að ganga út úr þættinum, skilja stólinn eftir auðan og fyrir rest þá þrábað Páll Magnússon mig að koma í þáttinn, því annars færi hann bara út um þúfur. Ég snautaðist því til að fara. En ég vil sýna fleira fólk, vegna þess að við eigum svo mikið, mikið meira af góðum mönnum. í verkalýðsfé- lögum, í flokkstarfinu, allstaðar um landið“. - Þetta kemur ekki vel fram þegar flokkurinn talar til almenn- ings. Myndir þú sjálfur vilja beita þér fyrir því, að meira af yngra fólki, og fleiri konur mœltu fyrir munn Alþýðubandatagsins? „Það er engin spurning. Þaó á að vera þannig. En ég vil mama á, að við eigum mjög ötula æsku- lýðsfylkingu, og mjög öfluga kvennafylkingu innan flokksins í dag. En gallinn er hins vegar sá, að karlarnir eru ennþá í yfirgnæf- andi meirihluta sem atvinnupólit- íkusar. Við þurfum fleiri konur þar á meðal. En ef við lítum til dæmis á varaþingmenn okkar og borgarfulltrúa í Reykjavík, þá sýnist mér bara vanta herslumun- inn.“ - Finnst þér að sú gagnrýni að flokkurinn sé ekki nógu opinn og lýðrœðislegur eigi við rök að styðjast? „Hvað er lýðræði? Lýðræði er m.a. það að bera virðingu fyrir sjónarmiðum þeirra sem maður er að starfa með. Lýðræði er þess vegna ekki valdapot eða valdapó- litík. Hins vegarer eitt grundvall- aratriði þess það, að þeir sem eru saman til dæmis í stjórnmála- flokki, þeir hafi opinn möguleika til að setja sín sjónarmið fram, til að tala heiðarlega og þeir finni að það sé hlustað á þá. Ég er sannfærður um að í Alþýðu- bandalaginu höfum við lagt okk- ur fram um að skapa forsendur fyrir góða umræðu. En ef þú spyrð, hvort flokkurinn sé nógu lýðræðislegur að þessu leyti, þá er svarið nei, á þessu sviði er alltaf hægt að gera betur.“ - Við höfum orðið vör við að meðal ungs fólks eiga vinstri skoðanir undir högg að sœkja, við erum nú í öldudal meðal ungs fólks. Hvernig telurðu best að ná til ungs fólks? „Ég held að það sé alveg rétt sem segir í margnefndum um- ræðutesum mæðranefndar, að leiðin sé sú, að skýra betur þær aðferðir sem við viljum beita til að koma á manneskjulegu, lýð- ræðislegu þjóðfélagi.Við þurfum að skerpa framtíðarmyndina, hina sósíalísku framtíðarmynd. Frjálshyggjan hefur riáð hljóm- grunni,og af mörgum ástæðum. Eitt er minnkandi hagvöxtur í kjölfar olíukreppunnar, og fleira kemur til. En aðalatriðið er það, að talsmönnum frjálshyggjunnar hefur tekist að telja fólki trú um að það geti bjargað sér eitt. Frjálshyggjan gengur út á það eitt, eins og góður maður sagði, að kenna fólki að gefa skít í náungann. Og það sem frjáls- hyggjunni hefur tekist, líka hér á landi, er að höggva á stuðninginn milli hinna hraustu og heilbrigðu annars vegar og svo láglauna- fólksins, fátlaðra, veikra og aldr- aðra hins vegar. Ég held að meg- inverkefni okkar sé þá, að fá fólk til að skilja, að við leysum aldrei nein vandamál nema við vinnum saman!“ „Ég er líka sannfærður um að viðgangur Æskulýðsfylkingar- innar sýnir að við eigum þarna leið. Hitt er svo það, að þessir flokkar eins og Alþýðubandalag- ið, eins og krataflokkarnir á Norðurlöndum, þeir hafa orðið að taka þátt í að stjórna þjóðfé- laginu í kompaníi við aðra. Þá hefur gerst á stundum, að mála- miðlunin hefur farið að verka eins og hin upphaflega stefna. Þannig hefur sérstæðan týnst, glatast. Og þetta auðvitað veldur flokki einsog Alþýðubandalag- inu vissum taktískum vanda. Það verður að skýra sína sérstöðu. Hvernig við viljum breyta þessu þjóðfélagi og fá menn til að skoða Alþýðubandalagið út frá því. Leiðin til að ná til unga fólksins er að skýra út fyrir því, að við eigum lausn, að eina vonin fyrir ísland gegn frjálshyggjunni er Alþýðu- bandalagið". - Ertu þá þeirrar skoðunar að til að beita sér gegn frjálshyggj- unni þurfi Alþýðubandalagið að skerpa sérstöðuna að miklum mun? „Ég er sannfærður um að ein ástæðan fyrir því hversu frjáls- hyggjuöflin hafa náð langt hér á landi er sú, að stjórnarandstaðan er í fjórum flokkum. Við þurfum að fá fólk til að sameinast gegn þeirri ríkisstjórn um afl sem síðan hefur burði til þess að taka við af henni. Ég varð þess vegna fyrir gífurlegum vonbrigðum með undirtektir hinna stjórnmálaflokkanna við tillögu okkar um það og tel þá hafa sýnt ábyrgðarleysi. En þú getur verið viss um, að við munum leggja höfuðáherslu á að vera neikvæð við þessi mannfjandsamlegu sjónarmið markaðshyggjunnar á öllum sviðum." - En hvað er það, Svavar, sem veldurþvíþá, að stjórnarandstöð- unni hefur ekki orðið mjög á- gengt, að það virðist hafa verið doði yfir henni? „Þetta er klisja. Stjórnarand- staðan hefur ekki verið neitt dauf. Hún hefur verið með mikið af málum, mikið af umræðum, mikið af árásum. En það veikir stjórnarandstöðuna að vera skipt á fjóra flokka, og það veikir hana auðvitað líka, að það var gerð hallarbylting í ríkisútvarpinu. Það eru flokkspólitískir gæðingar Sjálfstæðisflokksins sem stjórna ríkisútvarpinu í dag. Þetta hefur þau áhrif að það sem við erum að segja og gera, það sést ekki og heyrist ekki í ríkisfjölmiðlunum. Bæði við og aðrir flokkar hafa brotist um en þess er ekki getið.“ - Telur þú, að tök ríkisstjórn- arflokkanna á ríkisútvarpinu hafi valdið því að raddir stjórnarand- stöðunnar fái ekki að heyrast í ríkisfjölmiðlunum í sanngjörnum mœli? „Já, ég tel að það sé veruleg skýring". - Eftir þá umrœðu sem er í gangi, þá er þess að vænta að það hlaupi kraftur íflokkinn. Hvað er framundan? „Fyrst má telja, að við erum með í gangi mjög alvarlega vinnu í sambandi við atvinnu- og efna- hagsmál. Tilganginn hafið þið rakið í Þjóðviljanum, það er ný sókn til að tryggja sjálfstæði ís- lensku þjóðarinnar. Þessi vinna hefur verið í gangi í kjördæmun- um, í miðstjórninni og kemur svo fyrir landsfundinn í haust. Hún verður grundvöllur okkar kosn- ingabaráttu á komandi vetri, og landsfundurinn verður upphaf hennar. Nú, við erum með mið- stjórnarfund í byrjun október, eins og Morgunblaðið hefur verið svo vinsamlegt að auglýsa fyrir okkur. Við verðum með Nám- stefnu um nýja sókn í atvinnulíf- inu um næstu helgi, við erum með undirbúning að verulega kröft- ugu starfi í Alþýðubandalaginu hér í Reykjavík, við verðum með fundi alít í kringum landið hér í lok september, og þegar þing kemur saman munum við leggja fram fjölmörg ný og þarfleg mál. Ég vil sérstaklega nefna frum- varp til laga til verndar prentfrelsi með stofnun sérstaks prentfrels- issjóðs, sem ég hef nú í smíðum. En fyrir utan þetta, þá held ég það skipti mjög miklu máli fyrir okkur að gera fólki grein fyrir hvað frjálshyggjan er að gera. Hún er að breyta þessu þjóðfé- lagi frá því að vera þjóðfélag þar sem það er sjálfsagt mál að leggja allt á sig fyrir þá sem minna mega sín, yfir í þj óðfélag hinnar algj öru sérhyggju. Eftir 1970 þá gaf Sam- band ungra Sjálfstæðismanna út ályktun sem hét Báknið burt. Um það skrifaði ég upp og niður í Þjóðviljanum. í þessu plaggi voru mikil tíðindi sögð, þar var frjálshyggjan að birtast í fyrsta sinn hér á landi. En þó man ég að nokkrir félagar mínir sögðu sem svo, að þetta væri svo út úr kort- inu, að þær hugmyndir sem þar birtust yrðu aldrei að veruleika. En hvað hefur gerst? - Á 10-12 árum hefur þetta plagg orðið að veruleika. Þetta er stefna Sjálf- stæðisflokksins í dag. Og það segir líka sína sögu hvert Sjálf- stæðisflokkurinn sækir sína for- ystumenn í dag. Inná skrifstofur VSÍ! Slíkt hefði þótt ótrúlega fjarstæða í þeim flokki áður fyrri, vegna þess að Sjálfstæðisflokkur- inn gerði að minnsta kosti til- raunir til að breiða yfir sitt stétt- areðli. Nú eru allir forystumenn hans hins vegar kontóristar hjá VSÍ. Og „ávísanakerfið“ svokall- aða, sem SUS er að flagga með þessa dagana og Þjóðviljinn sagði frá í gær, það er nákvæmlega það sem getur gerst hér ef við spyrn- um ekki við fótum. Og við skulum átta okkur á því að bar- áttunnar er þörf. Lífskjörin eru léleg, kaupið lágt og erfitt að lifa, vegna þess hvernig fólkið kaus í síðustu kosningum. Menn verða að gera sér grein fyrir, að það er samhengi á milli atkvæðisins og athafnarinnar. Og það er fráleitt að hugsa til þess, að núna, þegar allir eru sáróánægðir með kaupið, þá segist fólki í stórum stíl ætla að kjósa Sjálfstæðis- flokkinn. Þetta er fjarstæða. Ég ætla að taka dæmi um það, sem við þurfum að einhenda okkur í að benda fólki á. Hvað heldurðu aó það hafi verið mörg nauðung- aruppboð í Reykjavík auglýst á árinu? — 3141 eign hefur verið auglýst. Á sama tíma í fyrra var þessi tala 2113. Auglýstum upp- boðum hefur því fjölgað um 50 af hundraði á þessu eina ári. Þetta sýnir hvert frjálshyggjan er að leiða: hún er að kreista blóð undan nöglunum ástritandi fólki! Það er sama hvert er litið. í heilbrigðismálum og skólamálum hefur framþróunin í raun og veru verið stöðvuð á mörgum sviðum. Sfðan að þessi stjórn tók við hef- ur til dæmis ekki verið veitt ein einasta staða í heilsugæslu í Reykjavík. Biðlistar aldraðra hafa aldrei verið jafn langir og nú. í okkar tíð lágu fyrir plön og peningar um hvernig ætti að leysa þessa biðlista upp. En eins og hefur komið fram hér í Þjóðvilj- anum, þá er slugsað við allar framkvæmdir fyrir aldraða, sama gildir um fatlaða. Hins vegar er dekrað við fjársýsluöflin. Menn gera sér hins vegar ekki grein fyrir þessu. Hvað vita margir til dæmis að eftir áramótin geta út- lendir bankar reist hér útibú? Áhrif frjálshyggjunnar eru allt í kringum okkur og eiga eftir að magnast enn, ef ekkert verður að gert. Það er okkar hlutverk að reisa flaggið og ráðast gegn þess- um draug. Þá fara múrar mark- aðshyggjunar að brotna. -Aðlokum, Svavar, verðurkosið um formann á Landsfundi í haust? „Ég hef ekki hugmynd um það. Landsfundurinn ræður sinn for- mann“. -ÖS 8 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Laugardagur 14. september 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.