Þjóðviljinn - 01.10.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.10.1985, Blaðsíða 1
Sviss Sigurður skoraði Sigurður Grétarsson skoraði eitt mark þegar Luzern vann góð- an útisigur á Chaux-de-Fonds, 3:1, í svissnesku 1. deildinni í knattspyrnu á laugardaginn. Luzern er í þriðja sæti, aðeins einu stigi á eftir Uli Stielike og félögum í Neuchatel sem skutust á toppinn með 1:0 sigri á Aarau. Servette tapaði hinsvegar 3:0 fyrir Young Boys. Neuchatel hef- ur 14 stig eftir 9 umferðir, Ser- vette og Luzern 13, en síðan koma Grasshoppers, Sion og Yo- ung Boys með 12 stig. - VS Danmörk Ribe byrjar Gunnar skoraði 3 í Holbœk „íslendingaliðið“ Ribe vann góðan útisigur í Holbæk, 20:14, í fyrstu umferð dönsku 1. deildar- innar í handknattleik á sunnu- daginn. Staðan í hálfleik var 12:8, Ribe í hag, og sigur liðsins var aldrei í hættu. Ole Lauridsen skoraði 6 marka Ribe, Anders Dahl-Nielsen og Gunnar Gunnarsson 3 hvor. Hinn gamalkunni Mogens Jepp- esen varði mark Ribe allan tím- ann, en hann og Gísli Felix Bjarnason eru markverðir nýlið- anna eins og kunnugt er. Holbæk er nú talið lakasta lið deildarinn- ar en byrjunin hjá Ribe er góð samt sem áður. _ ys Húsavík Ómar kyrr? Omar Rafnsson, fyrrum lands- liðsbakvörður í knattspyrnu, leikur að öllum líkindum áfram með Völsungum í 2. deildinni næsta sumar. Miklar líkur voru taldar á að hann færi aftur til Breiðabliks en hann hefur mikinn áhuga á að dveija áfram á Húsa- vík. - VS Eðvarö Þ. Eðvarðsson hefur náð frábærum árangri á þessu ári. Akureyri Haiidór valinn sá besti Halldór Askelsson úr Þór var á laugardaginn kjörinn Knattspyrnu- maður Akureyrar 1985. Hann var út- nefndur efnilegasti leikmaður I. deildar af leikmönnum 1 deildarlið- anna fyrir skömmu eins og kunnugt er. Siguróli Kristjánsson, Þór, varð annar, Baldvin Guðmundsson, Þór, þriðji, Erlingur Kristjánsson, KA, fjórði og fimmta sætinu deildu þeir Jónas Baldursson, Vaski, og Bjarni Sveinbjörnsson, Þór. - K&H/Akureyri Sund Eðvarð á heims- listann! Attundi besti í Evrópu og 21. í heimi Eðvarð Þ. Eðvarðsson frá Njarðvík er á „heimslistanum" í 100 m baksundi, fyrstur íslenskra sundmanna. Hann hefur náð 21. besta tíma í heiminum í þessari grein á árinu, 57,92 sekúndur. Igor Poliansky frá Sovétríkjunum á besta tímann, 55,24 sek. Tími Eðvarðs er sá áttundi besti hjá Evrópubúa, en Eðvarð náði sjötta sæti á Evrópumeistar- amótinu í sumar. Hann er einnig á lista yfir 25 bestu Evrópubúa í 200 m baksundi, er þar í 22. sæti með 2:05,77 mínútur. - VS Ragnar „Mjög spenntur“ Skrifaði undir til tveggja ára hjá Waterschei „Ég er mjög spenntur fyrir þessu og hlakka til að leika í belgísku 1. deildinni. Aðstæður hjá Waterschei eru mjög góðar og liðið hefur leikið ágætlega undanfarið þótt það sé aðeins um miðja deild,“ sagði Ragnar Margeirsson frá Keflavík í samtali við Þjóðviljann í gær. Ragnar bættist í hóp íslenskra atvinnuknattspyrnumanna í fyrra- kvöld er hann skrifaði undir samning við Waterschei. Samningurinn er til tveggja ára og Ragnar heldur til Belgíu eftir nokkra daga. Einn annar erlendur leikmaður leikur með Waterschei og er sá frá Búlgaríu. Lárus Guðmundsson hóf sem kunnugt er atvinnuferil sinn hjá Wat- erschei og varð bikarmeistari með liðinu vorið 1982. - VS Valsstúlkur Fimleikar Belgíuför Hlín Bjarnadóttir og Hanna Lóa Friðjónsdóttir verða fulltrú- ar íslands í 15 landa keppni í fim- leikum sem fram fer í Belgíu um næstu helgi. Þær eru báðar úr Gerplu í Kópavogi. „Erfiður leikur“ Valur vann 18-15 á steingólfi í Tongeren „Þetta var erfiður leikur, við þurft- um að hafa fyrir sigrinum. Hann hafðist með æðislega góðri vörn og frábærri markvörslu Kristínar Þor- leifsdóttur. Þetta er ekki búið en það er gott að vera með þrjú mörk í for- skot fyrir leikinn hér heima,“ sagði Erna Lúðvíksdóttir, landsliðskona í handknattleik, í samtali við Þjóðvilj- ann í gær. Valur vann Tongeren 18-15 í fyrri Akureyri vlðGuHskóAjd ,nattspV^Jar0e9inV'ö ’serT1ooG*b^ndUr Gústaf og Bjöm Akureyrarfélögin KA og Þór gengu frá þjálfaramálum sínum fyrir næstu knattspyrnuvertíð nú um helgina. KA endurréð Gústaf Baldvinsson sem stjórnar liðinu því þriðja árið í röð á næsla keppnistímabili. Leik- menn voru einhuga um endurráðn- ingu Eyjamannsins. Þórsarar gengu frá samningum við Björn Árnason í fyrrakvöld. Hann þjálfaði lið þeirra árið 1983 en stýrði liði Víkinga 1984 og fram á mitt sl. sumar. - K&H/Akureyri leik liðanna í Evrópukeppninni sem fram fór í Tongeren í Belgíu á sunnu- daginn. Leikurinn var jafn allan tím- ann en Valur þó oftast yfir, 8-7 í hálf- leik. Tongeren komst í 10-9 en Valur náði undirtökunum á ný. Að sögn Ernu var leikið á steingólfi og fyrir fullu húsi áhorfenda sem hvöttu sitt hð óspart. „Þetta var þeim mun sætari sigur fyrir vikið og sér- staklega gott vegna þess að þetta er okkar fyrsti leikur í haust,“ sagði Erna. Hún sagði að Tongeren hefði aðeins notað 8 leikmenn, enda þjálf- arinn pólskur, og leikmenn liðsins væru eldsnöggir og hefðu skorað flest sín mörk úr hraðaupphlaupum. „Með sterkri vörn sigrum við þetta lið aftur í Höllinni á laugardaginn,“ sagði Erna. Kristín Arnþórsdóttir skoraði 4 mörk, Magnea Friðriksdóttir 3, Soff- ía Hreinsdóttir 3, Guðrún Kristjáns- dóttir 3, Erna Lúðvíksdóttir 2, Steinunn Einarsdóttir 2 og Harpa Sig- urðardóttir 1 mark. -VS England Giles hættur Johnny Giles, fyrrum leikmaður Leeds og írska landsliðsins í knatt- spyrnu, sagði í gær upp starfi sínu sem framkvæmdastjóri 1. dcildarliðs- ins West Bromwich Albion. WBA situr á botni 1. deildarinnar ensku hefur tapað 9 leikjum i röð, og hefur aldrei byrjað jafn illa. -VS/Reuter UMSJÓN: VfÐIR SIGURÐSSON

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.