Þjóðviljinn - 25.02.1986, Page 1
Landsliðið
Stöndum og föllum
með leiknum í kvöld
íslensku strákarnir tilbúnir íslaginn við Suður-Kóreu og líst vel á sig í íþróttahöllinni
Frá Víði Sigurðssyni í Sviss:
„Við stöndum og föllum með
leiknum við Suður-Kóreu, fram-
haidið ræðst algerlega af því
hvernig okkur gengur í Genf ann-
að kvöld. Það er mikilvægt að
byrja vel í keppninni, og við erum
í besta hugsanlegu formi fyrir
Snjóar
Þoriiergur
ókominn
Sennilega ekki með
gegn Kóreu
Þorbergur Aðalsteinsson var
enn ekki kominn til móts við ís-
ienska liðið í gærkvöldi. Flugi
hans seinkaði vegna snjókomu í
Ziirich og kom þangað rétt seint í
gærkvöldi. Hann átti þá eftir á
þriðja hundrað kílómetra til Gen-
far.
Vegna þessa verður að teljast
ólíklegt að hann leiki með liðinu í
kvöld. -VS/m
Bogdan Kowelszyk í uppáhaldsstellingu landsliðsþjálfarans.
leikinn og bíðum hans af mikilli
óþreyju“ sagði Þorbjörn Jensson
fyrirliði íslenska landsliðsins í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Landsliðið æfði í gær í höllinni
Palace de Sport í Genf, sem
leikið verður í í kvöld. „Mér líst
vel á hana, nýtt parkettgólf,
mátulega stamt, og þetta er stór
og gömul höll“, sagði Bjarni
Guðmundsson. „Hún er gríðar-
lega stór, og það var gott að fá að
kynnast henni til að átta sig á
fjarlægðunum“ sagði Þorbjörn.
Pressan á íslenska liðinu fyrir
leikinn í kvöld er gífurleg. Mest-
allur undirbúningur þess síðustu
vikur hefur miðast við leikað-
ferðir Suður-Kóreu. „Þeir hafa
víst verið að grúska í okkur líka
og skoða leiki okkar, þannig að
sennilega er jafnt á komið með
liðunum" sagði Þorbjörn.
Liðið sem leikur í kvöld verður
ekki valið fyrren um hádegisbilið
í dag. Allar líkur eru þó á að það
verði þannig skipað:
Markverðir: Einar Porvarðar-
son og Kristján Sigmundsson.
Aðrir leikmenn: Kristján Ara-
son, Atli Hilmarsson, Páll Ólafs-
son, Þorgils Óttar Mathiesen,
Bjarni Guðmundsson, Guð-
mundur Guðmundsson, Sigurður
Gunnarsson, Alfreð Gíslason,
Þorbjörn Jensson, Steinar Birgis-
son.
Þá hvfla þeir Ellert Vigfússon,
Þorbergur Aðalsteinsson, Jakob
Sigurðsson og Geir Sveinsson.
HM/Sviss
Rúmenar
í basli
Lenda á íslendinga-
hótelinu!
Rúmenska landsliðið sem flest-
ir telja eitt hinna illvígari á HM í
Sviss var enn ekki komið til lands-
ins í gærkvöldi vegna snjóa á flug-
völlum. Liðið á að ieika fyrsta
leik sinn í dag, og gæti þessi
seinkun komið því afar illa.
Að auki lenda rúmenarnir í
þeim ósköpum að vera á sama
hóteli og stór hópur íslenskra
handknattleiksáhugamanna í
Bern, og má búast við að þjálfari
liðsins þurfi að hafa sig allan við
að halda báðum hópum sæmilega
stilltum.
-VS/m
HM/Sviss
Bogdan veðjar á Júgó
í mótsblaði sem kemur út í
Sviss í tengslum við heimsmeist-
arakcppnina eru níu af sextán
landsliðsþjálfurum þátttökuland-
anna beðnir að giska á úrslit í
þremur efstu sætum keppninnar.
Þjálfari íslenska landsliðsins gisk-
ar á þessi lið: Júgóslavar í fyrsta
sæti, Rúmenar í annað, Vestur-
Þjóðverjar í þriðja.
Félagi Bogdan er mátulega sér-
sinna meðal þjálfaranna. Flestir
þeirra, fimm, segja að Sovétmenn
vinni keppnina, þrír nefna Júgóslava,
einn (sá vesturþýski) Rúmena.
Átta þjálfarar telja að Rúmenar
hafni í öðru sæti, einn nefnir Sovét-
menn, - og má það því teljast almenn
skoðun þeirra sem gerst þekkja til að
úrslitaleikurinn verði milli Sovét-
manna og Rúmena.
Fimm þjálfararanna telja að Júgó-
slavar fái þriðja sætið, aðrir giska á
Austurþjóðverja, Sovétmenn, Vest-
urþjóðverja (Bogdan) og Spánverja
(alsírski þjálfarinn).
- VS/m
Sigrún Blomsterberg brýst í gegn fyrir meistara Fram gegn Haukum. (Mynd. EÓI).
UMSJÓN: MÖRÐUR ÁRNASON
Kvennahandbolti
Fram meistari
Fram-stúlkurnar þurftu að hafafyrir sigrinum
gegnHaukum. ValurvannVíking
íspennandi leik. Stjarnan stal sigri afKR
Framliðið tryggði sér meist-
aratitilinn í kvennahandboltan-
um með sigri yfir botnliði Hauka í
Hafnarfirði á sunnudag.
Fram lagði Haukana að’ velli
með 23 mörkum gegn 18. Leikur-
inn var ekki sá besti sem meistar-
arnir hafa sýnt, og Fram-
stúlkurnar þurftu að hafa fyrir
sigrinum á neðsta liði deildarinn-
ar. Fram hafði yfir í hálfleik, 11-
10.
Arna Steinsen átti ágætan leik
og sömu sögu má segja um Guð-
ríði.
Markahæstar hjá Fram voru
Arna með 6 mörk og Guðríður
með 4. Af Haukum skoraði
Hrafnhildur 6 og þær stöllur Elva
og Ragnheiður 4.
Valur vann Víking með 18
mörkum gegn 17 í mjög spenn-
andi leik í Seljaskóla. Eiríka Ás-
grímsdóttir átti stórleik og
skoraði 9 mörk Víkings. Síðari
hálfleikur var þó sérstaklega vel
spilaður og skiptust liðin á að
skora, um miðjan hálfleikinn var
staðan jöfn, 12-12. Valur hafði
betur á lokasprettinum og lauk
leiknum 18-17.
Mörk Vals: Katrín 4, Erna 4,
Kristín 3, Dúna og Ásta 2 og þær
Harpa, Magnea og Þórey eitt
mark hver.
Mörk Víkings: Eiríka 9, Inga
3, Jóna 2, Sigurrós, Valdís og
Metta 1 hver.
Stjarnan-KR 21-21. Stjarnan
stal sigrinum frá KR í Digranesi.
KR-stelpurnar áttu ágætisleik og
voru tveimur til þremur mörkum
yfir allan leikinn, en á lokasprett-
inum náði þjálfari Stjörnunnar,
Margrét Theodórsdóttir, að
skora jöfnunarmark þeirra og
það aðeins tveimur sekúndum
fyrir leikslok.
KR-liðið var mun sprækará og
áttu þær allar góðan leik. Hrund
Grétarsdóttir, Stjörnunni, átti
bestan leik í liði Stjörnunnar, -
skemmtilegur hornamaður.
Mörk Stjörnunnar: Erla 6,
Hrund 5, Oddný 3, Drífa, Guðný
og Margrét 2 hver, Anna 1.
Mörk KR: Sigurbjörg 8, Elsa
4, Aldís 3, Jóhanna og Hjördís 2
hvor, og þær Karólína og Snjó-
laug 1.
-MHM
Staóan
i 1. delld kvenna:
Fram.......... 10 10 0 0 235-172 20
Stjarnan......10 6 2 2 238-199 14
FH............ 10 7 0 3 182-164 14
Valur......... 10 3 2 5 195-198 8
Víkingur........11 3 2 6 209-217 8
KR............. 10 2 2 6 192-222 6
Haukar......... 11 0 2 9 162-241 2