Þjóðviljinn - 26.02.1986, Page 5
ÞJOÐVILJINN
Umsjón:
Mörður Árnason
Á vit liðins tíma
Hringur JóhannessoníGallerí Borg
Háskólatónleikar
Píanó og
fimm
blásarar
Á Háskólatónleikum í Norræna
húsinu í dag leika fímm blásarar
og einn píanóleikari verk eftir
Hans Melchior Brugk, þýskt
samtímaskáld (f. 1919).
Flytjendurnir eru Martial Nar-
deau (flauta), Kristján Þ. Step-
hensen (óbó), Sigurður R.
Snorrason (klarínett), Þorkell
Jóelsson (horn), Björn Árnason
(fagott) og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir (píanó).
Tónleikarnir eru haldnir í há-
deginu, hefjast kl. 12.30 og
standa í um það bil hálftíma.
í Gallerí Borg við Austurvöll
stendur nú yfir sýning á gömlum
myndum eftir Hring Jóhannes-
son. Verkin eru frá 7. áratugn-
um, en þá var Hringur að feta sig
inn á listabrautina og móta sinn
persónulega stíl. Á sýningunni
má sjá olíumálverk, pastelmynd-
ir og teikningar, m.ö.o. alla þá
miðla sem Hringi hafa verið hug-
leiknastir og gefst því ágætt tæki-
færi til að kanna upphafið á ferli
hans.
Hringur er af þeirri kynslóð
listamanna sem hófu feril sinn í
einhvers konar tómarúmi, sem
myndaðist þegar áhrif ab-
straktmálverksins voru að fjara
út og nýlistin hafði ekki ennþá
rutt sér til rúms. Þetta millibilsá-
stand hefur stundum verið kallað
popp-tímabilið, en sú nafngift er
mjög vafasöm, því það er álita-
mál hvort hægt er að tala um ís-
lenska popp-list sem ákveðið
tímabil. Raunar er ekkert í ís-
lenskri myndlist sem kallast getur
hreinræktað popp, a.m.k. ekki í
engilsaxneskri merkingu orðsins.
verka hans, eitthvað sem svíkur
lögmál hreinnargeometríu. Þetta
eru í rauninni fígúratívar rnyndir
og það sem í fyrstu virðist flatak-
ennt er einfaldlega samspil ljóss
og skugga. Yfirbragð þessara
mynda er ekki svo frábrugðið
vissum verkum bandaríska mála-
rans Lyonels Feiningers, sem
þekktur var fyrir að brjóta ljósið í
myndum sínum niður í geometr-
íska fleti.
Smám saman taka yrkisefnin í
myndum Hrings á sig ákveðnari,
hlutbundinn svip. í pastelmynd-
unum gerist það fyrr en í mál-
verkunum og teikningarnar virð-
ast ávallt hafa verið að einhverju
leyti hlutbundnar. Það er lands-
lagið sem Hringur velur sér sem
yrkisefni og flestar pastelmynd-
anna eru stílfærðar landslags-
myndir. Stílfærslan er leifar geo-
métríunnar, en um nriðjan 7. ára-
tuginn virðist raunsæið vera búið
að ná yfirhöndinni. Sumar þess-
ara pastelmynda virðist vera
undir austrænum áhrifum, eink-
um japönskum.
Olíumálverkin þróast eftir öðr-
um leiðum. Þau hafa ekki þær
ákveðnu línur sem setja svip sinn
á pastelmyndirnar, né þau
skörpu formskipti sem skilja að
mismunandi fleti. Að vísu eru
málverkin frá ofanverðum árat-
ugnum og í þeim fæst Hringur
fyrst og fremst við ljósbrigði og
skuggabrigði. Þarna má sjá spegl-
anir í vatni, viðfangsefni sem oft
hefur brugðið fyrir í seinni verk-
urn hans. Það er áberandi hve
einföld málverkin eru. jafnvel
tómleg og á sína vísu eru þau sum
hver mjög í anda austrænnar list-
ar.
Af sýningu Hrings rná sjá að
viðfangsefni þau sem einkenna
list hans í dag eiga rætur að rekja
til mynda hans á 7. áratugnum.
Það ber vott um mjög samfellda
og heilsteypta þróun að ákveðnu
marki. Þessi málverk eru greini-
legur undanfari seinni nrynda og
yfir þeim hvílir sú ró, sem er að-
alsmerki bestu mynda Hrings.
HBR
Musica antiqua
Snorri Örn með lútu sína (mynd: EÓI)
við abstraktlist og tóku að rækta
hlutbundin yrkisefni að nýju í
verkum sínum. Einn þessara
listamanna var Hringur og má
rekja þróun hans frá óhlutbund-
inni list yfir í hlutbundna með því
að fylgja ártölum verka hans á 7.
áratugnum.
Elstu myndirnar á sýningunni
eru greinilega geometrískar, þótt
sú flatarmálsfræði sé ljóðrænni
en sú sem við eigum að venjast
frá hendi listamanna á 6. áratugn-
um. Það er eitthvað í flatarmáls-
fræði Hrings sem vísar til seinni
Endurreisnar-
tónlist í
Kristskirkju
Hitt er svo annað mál að popp-
listin hafði sín áhrif hér sem ann-
ars staðar og varð þess valdandi
að margir listamenn sneru baki
Gamall er afskaplega afstætt
orð, - en í tónlistarsögunni er það
notað um evrópska músík áður
en klassík og rómantík skella á, -
og Snorri Örn Snorrason úrtón-
listarhópnum Musica antiqua
segir barokk og endurreisnartón-
list í sókn um alla álfuna.
Annað kvöld eru tónleikar
Musica Antiqua í Landakots-
kirkju, leikin og sungin gömui
tónlist, eftir Palestrina, Victoria,
Viadana, Morley, Wilbye, Dow-
land meðal annars, og Snorri
sagði Þjóðviljanum í stuttu spjalli
að hér yrði á ferð bæði kirkjuleg
tónlist, fyrst og fremst sungin, og
veraldleg, fyrst og fremst leikin,
verk frá 16. og 17. öld.
Musica Antiqua varð til fyrir
fimm árum með frumkvæði
Snorra, Kamillu Söderberg,
Sesselju Ólafsdóttur og Helgu
Ingólfsdóttur, og síðan hafa ýms-
ir hljóðfæraleikarar og söngvarar
komið til liðs. Dagskráin annað
kvöld er hin þriðja í röðinni sem
nokkurn veginn sami hópurinn
stendur að, tónlistarmenn með
lútu, blokkflautur og viola da
gamba, plús átta manna söng-
hópur skipaður ýmsu tónlistar-
fólki, sem margt er þó betur
þekkt fyrir annað en söng: Jón
Stefánsson stjórnandi Langholts-
kirkjukórsins, Helgi Bragason
orgelleikari og kórstjóri, Kjartan
Óskarsson klarinettuleikari og
lúðrasveitarstjóri, Svava Kristín
Fyrirlestur
Létt sér-
hljóðahjal
Á fundi íslenska málfræðinga-
félagsins í dag kl. 17.15, stofu 422
í Arnagarði flytur Tor Ulset
norskulektor við HÍ fyrirlestur
sem nefnist Létt hjal um létta sér-
hljóða í austur-norsku.
Tor spjallar um efnið á norsku,
sennilega með Gubbrandsdals-
hreim, og eru allir velkomnir.
Ingólfsdóttir og söngvarinn Hall-
dór Vilhelmsson með dætrum
sínum tveimur Mörtu og Hildi-
gunni, og Sverrir Guðjónsson
sem áður var vel kunnur
dægurlagasöngvari fæst hér við
alt-rödd sem yfirleitt er séreign
kvenna.
Snorri segir að áhugi á iðkun
gamallar tónlistar hafi vaknað
hjá sér og Kamillu, konu sinni,
við nám þeirra í Sviss, - „erlendis
hefur skilningur og áhugi á þess-
ari tónlist aukist mjög undan-
farna tvo áratugi, og listamenn
lagt sig fram við að túlka og flytja
hana, - í sem upprunalegastri
mynd.“
Á tímum klassíkur og róman-
tíkur hvarf þessi tónlist í skugg-
ann, segir Snorri, Mendehlson
dró að vísu Bach frammí dags-
ljósið, en aðrir höfundar barokks
og endurreisnartíma voru varla
leiknir fyrr en á 20. öld. Og
flutningurinn hefur viljað mótast
af stíl og smekk sem á upptök í
rómantíkinni, - en á 15., 16. og
17. öld voru notuð annarskonar
hljóðfæri og nótnamerki frá-
brugðin því sem síðar varð, enda
ætlast til að menn lékju ýmsa
kafla af fingrum fram, og
skreyttu meginlaglínur innan ák-
veðinna skilgreindra marka. Þess
vegna er nú lögð áhersla á að nota
gömul hljóðfæri eða endursmíð-
uð á gömlum grunni, og reynt að
fylgja nótum og leiðbeiningum
frá samningstíma verkanna.
Tónleikunum annað kvöld í
kirkju Krists á Landakotstúninu
verður þrískipt, fyrst verk þýskra
höfunda, þá enskra og loks
spænskra. Það er Tónlistarfélag
Kristskirkju sem heldur tónleik-
ana, - en tónleikar á vegum þess í
vetur ná að lokum að stikla á tón-
listarsögunni gjörvallri. _m
HALLDÓR
B. RUNÓLFSSOt
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5