Þjóðviljinn - 26.02.1986, Blaðsíða 15
IÞROTTIR
Reiðarslag í Genf
Landsliðið hefur sennilega aldrei leikið verr en í stórslysaleiknum við snögga
Kóreumenn. Bogdan: Okkar handbolti eittstórt núll. Guðmundur Guðmundsson:
Gífurlegt áfall. Jón Hjaltalín: Eg ersár
Bogdan landsliðsþjálfari: Úff!
Varpa orðin SVISS ’86 jafn
dimmum skugga á sögu íslensks
handknattleiks og DANMÖRK
’78? Það er full snemmt að segja
af eða á um það en eftir tapið ljóta
fyrir Suður-Kóreu í Genf í gær-
kvöldi eru yfirgnæfandi líkur á að
svo verði. Úrslitin, 29-21, eru
reiðarslag fyrir handknattleiks-
íþróttina á ísiandi, reiðarslag
fyrir landsliðsmennina sem hafa
lagt á sig ótrúlega vinnu í undir-
búningnum fyrir keppnina,
reiðarslag fyrir forystu HSÍ sem
hefur lagt allt sitt undir, og kjafts-
högg framaní allan þann stóra
hluta íslensku þjóðarinnar sem
hefur beðið A-keppninnar með
óþreyju og eftirvæntingu í marga
mánuði.
Ég er sár, sagði Jón Hjaltalín
Magnússon formaður HSÍ, og
maðurinn á bakvið undirbúning-
inn einstæða, þegar hann rölti til
búningsklefa íslenska liðsins eftir
leikinn. Betra liðið vann, Kóreu-
menn voru rólegir og yfirvegaðir,
en okkar menn óeðlilega tauga-
óstyrkir. Við höfum gert allt sem
við höfum getað til að liðið væri
sem best undirbúið og vonbrigðin
eru mikil.
Flestir sem Þjóðviljinn ræddi
við eftir leikinn í gærkvöldi voru á
því að tvennt hefði öðru fremur
ráðið úrslitum. Taugaóstyrkur ís-
lensku leikmannanna og hinn
hræðilegi tveggja mínútna kafli í
lok fyrri hálfleiks - þegar ísland
hafði breytt stöðunni úr 1-7 í 9-9
en fékk á sig fjögur mörk eins og
hendi væri veifað.
Þarna gerðum við afdrifarík
mistök, sagði Guðmundur Guð-
mundsson, við fórum að skjóta of
fljótt og allt fór í vitleysu. Þessi
fjögur mörk réðu úrslitum, sagði
Bogdan Kowalczyk landsliðs-
þjálfari. Við vorum of æstir, feng-
um á okkur þrjú sóknarbrot og
Kóreumenn nýttu sér það til
fullnustu, sagði Páll Ólafsson.
ísland skoraði ekki mark
fyrren á 12. rnínútu, þá hafði
í kvöld leikur ísland við Tékk-
óslóvakíu. Sigur þar, og helst
stór, er það eina sem getur forðað
okkar liði frá því að þurfa að
leika um 13.-16. sæti á mótinu.
Ef liðið leikur af eðlilegri getu
er hægt að sigra tékkana, sagði
Bogdan. Þetta er enganveginn
búið, sagði Þorbjörn fyrirliði, og
Kórea gert fjögur, eftir 14 mínút-
ur stóð 1-7. Hvað var að gerast?
Ekki gátu Kóreumenn verið að
koma á óvart, íslensku leikmenn-
irnir áttu að gjörþekkja þá. Þeir
spiluðu nákvæmlcga eins og við
bjuggumst við, ekkert í leik
þeirra kom okkur á óvart, sagð
Þorbjörn Jensson fyrirliði. Of
taugaóstyrkir, sögðu flestir, og
það er sennilega rétt. Ekkert
gekk upp, framstæð vörn Suður-
Kóreu kom íslenska liðinu úr
jafnvægi, og öll skynsemi rauk út
í veður og vind. Síðan fór allt að
ganga betur og rétt fyrir hlé stóð
9-9. íslenska liðið virtist loksins
vera búið að ná tökum á leiknum.
En mörkin umtöluðu í lok hálf-
leiksins gerðu góðar vonir að
engu og í seinni hálfleik varð
munurinn aldrei minni en þrjú
mörk - og góðri stundu fyrir
leikslok voru úrslitin þegar ráðin.
Strákarnir léku of hægt, þeir
voru of taugaóstyrkir og hræddir.
Kóreumenn voru tvöfalt fljótari
og íslenska liðið lék ekki sem heild
aðrir tóku í sama streng. En and-
lega séð voru íslensku leikmenn-
irnir langt niðri eftir leikinn í gær-
kvöld. Það var þrúgandi and-
rúmsloft í búningsklefanum, eng-
inn orðmargur, og greinilegt á
öllum að íslenskur handbolti
hafði orðið fyrir stórslysi.
- VS/Sviss.
heldur sem ósamhæfðir einstak-
lingar. Okkar handbolti var eitt,
eitt stórt núll. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem slíkt hcndir ís-
lenskan handknattleik. Umfjöll-
unin og umgjörðin í kringum
landsliðið heima hefur verið of
tburðarmikil, og leikmenn í fram-
haldi af því gert sér rangar hug-
myndir, sagði Bogdan Kow-
alcsyk.
Við vorum yfirspenntir. Þetta
var einn af þessum leikjum þar
sem ekkert gengur upp - and-
rúmsloftið var vægast sagt þrúg-
andi, sagði Þorbjörn Jensson
fyrirliði.
Þetta er gífurlegt áfall, sagði
Guðmundur Guðmundsson,
hrcinasta stórslys. Við fengum
fullt af færum en nýttum þau
ekki. Við vorum hikandi, staðir,
og komumst hvað eftir annað í
vandræði með boltann í höndun-
um og fengum dæmt á okkur.
Rúmenía
%
Stinga
meiddur
Einn frægasti handknatt-
leiksmaður heims, Vaseli
Stinga, kinnbeinsbrotnaði
snemma í leik Rúmena við
Tékka í gær og er alls óvíst
hvort hann getur leikið meira
með Rúmenunum í Sviss, sem
væri meiriháttar áfall fyrir lið-
ið.
Stinga náði að skora eitt
mark áður en hann var borinn
útaf vellinum, - og var það
þúsundasta mark hans með
landsliði Rúmeníu.
-VS/Sviss
England
Hull tapaði
Nokkrir leikir voru í neðri deildum
í Englandi í gær. Hudderslield tapaði
heima fyrir Hull í 2. deild, 1-2, Black-
pool vann Lincoln 2-0, og Bury vann
Bolton 2-1 í 3. deild, Wrexham vann
Hartlepool í 4. deild 1-0.
I Glasgow vann Manchester United
Celtic í vináttuleik, 3-0.
Við getum ekki leikið verr en í
kvöld, eða það vona ég, sagði Páll
Ólafsson. Það er líklega rétt,
undirritaður hefur að minnsta
kosti aldrei orðið vitni að slakari
frammistöðu íslenska liðsins.
Suður-Kórea er með létt og
skemmtilegt lið, en með
skynsamlegum og eðlilegum leik
hefði ísland átt að sigra. Gegn
svona framstæðri vörn verður að
beita snöggum skiptingum milli
kanta, en það var ekki fyrren í
seinni hálfleik að tilþrif í þá átt
fóru að sjást og þá með ágætum
árangri. Gullna reglan fyrir
leikinn var sú að tapa ekki bolt-
anum í hendur Kóreubúanna
vegna hins mikla hraða þeirra.
Það sem gerðist hinsvegar var að
um tuttugu sinnunt í leiknum
misstu íslensku strákarnir bolt-
ann þannig, eða fengu dæmd á sig
klaufaleg sóknarbrot, Það vó
þungt á metunum þegar upp var
staðið. Þá lék Þorgils Óttar
Mathiesen ekki með, hann er
meiddur, en eins og hann hefur
leikið undanfarið hlyti nærvera
hans að hafa komið að notum.
Markvarslan var skásti hlekkur
íslenska liðsins. Einar Þorvarðar-
son varði 11 skot í leiknum og
Kristján Sigmundsson 9. Þetta
segir sína sögu um varnarleikinn,
20 skot, en 29 mörk samt skoruð
hjá liðinu. Ekki er hægt að hæla
neinurn ísókninni. Allirgerðu sig
seka um slæm mistök, menn eins
og Atli Hilmarsson og fleiri náðu
sér aldrei á strik. Kristján Arason
gerði kannski einna fæst mistök,
en utanaf velli skoraði hann að-
eins fjögur mörk úr tólf tilraun-
um.
Mörk íslands: Kristján Arason
10 (6 víti), Þorbergur Aðalsteins-
son 4, Sigurður Gunnarsson 2,
Bjarni Guðmundsson 2, Páll Ól-
afsson 2, Þorbjörn Jensson 1.
Mörk Suður-Kóreu: Kang 12
(3 víti), Choi 6 (1 víti), Lee 4 (1
víti), Kim 3, Dh. Park 2, Yd.
Park 1, Koh 1.
VS/Sviss
Aukakeppnin
Gagnslaus
lokaumferð
Síðustu leikirnir í aukakeppn-
inni um fyrstudeildarsæti næsta
árs (verði breytingin samþykkt á
HSÍ-þinginu) fóru fram um helg-
ina. Ljóst var að úrslitin skiptu
engu, KR og Haukar höfðu þegar
tryggt sér sætin tvö.
HK vann Þrótt 32-20, og
Haukar unnu KR 23-18. Loka-
staðan ví. rð: KR 8 stig, Haukar 6,
HK 4, Þróttur 2.
Bikarglíman
Ólafur sigraði
Ólafur Haukur Ólafsson KR,
sigraði í eldri flokki í bikarglímu
GLÍ í íþróttahúsi Kennarahá-
skólans á laugardaginn. Lárus
Björnsson varð hlutskarpastur í
yngri flokknum.
Olafur lagði Jón E. Unndórs-
son Leikni, í úrslitaglímunni á
klofbragði. Þriðji varð Pétur
Yngvason, Mývetningi.
Lárus glímdi aukaglímu um
efsta sætið við Davíð Jónsson.
Þriðji varð Arngrímur Jónsson, -
allir úr Mývetningi.
Sjö kepptu í eldri flokknum,
sex í hinum yngri.
Leikurinn
í tölum
Markaröð: 0-1, 0-2, 0-3, 0-4,
1- 4 (Kristján/v), 1-5, 1-6, 1-7,
2- 7 (Þorbjörn), 3-7 (Þorberg-
ur), 4-7 (Kristján), 4-8, 5-8
(Kristján/v), 6-8 (Kristján), 7-
8 (Páll), 7-9, 8-9 (Páll), 9-9
(Þorbergur), 9-10, 9-11,9-12,
9-13. (Leikhlé). 9-14, 10-14
(Kristján/v), 11-14 (Þorberg-
ur), 11-15, 11-16, 12-16
(Kristján), 12-17, 13-17
(Kristján), 14-17 (Bjarni), 14-
18, 14-19, 15-19 (Bjarni), 16-
19 (Kristján/v), 16-20, 16-21,
17-21 (Kristján/v), 17-22, 17-
23, 17-24, 18-24 (Sigurður),
19- 24 (Þorbergur), 19-25, 19-
26, 20-26 (Sigurður), 20-27,
20- 28, 21-28 (Kristján/v), 21-
29.
Kristján Arason skoraði 10
mörk, þar af 6 úr vítum. Atti 8
misheppnuð skot, tapaði bolta
einu sinni, átti þrjár sendingar
sem gáfu mark.
Páll Ólafsson skoraði 2 mörk.
Átti 4 misheppnuð skot, tapaði
bolta þrisvar.
Atli Hilmarsson skoraði ekki.
Átti 4 misheppnuð skot, tapaði
bolta fjórum sinnum, átti eina
sendingu sem gaf mark.
Bjarni Guðmundsson skoraði
tvö mörk úr tveimur tilraunum.
Tapaði bolta þrisvar, átti eina
sendingu sem gaf mark.
Guðmundur Guðmundsson
skoraði ekki. Átti 2 misheppnuð
skot, tapaði bolta fjórum sinn-
um, fiskaði þrjú víti.
Þorbjörn Jensson skoraði eitt
mark. Átti eitt misheppnað skot,
tapaði bolta tvisvar, átti eina
sendingu sem gaf mark.
Þorbergur Aðalsteinsson
skoraði 4 mörk. Átti 4 mis-
heppnuð skot, tapaði bolta þrisv-
ar, átti eina sendingu sem gaf
mark.
Sigurður Gunnarsson skoraði
tvö mörk. Átti tvö misheppnuð
skot, tapaði bolta einu sinni.
Geir Sveinsson skoraði ekki.
Tapaði bolta einu sinni.
Einar Þorvarðarson varði 11
skot, 7 sinnum fór boltinn til ís-
lendinga, 4 sinnum til Kóreu-
manna.
Kristján Sigmundsson varði 9
skot, 4 sinnum fór boltinn til ís-
lendinga, 5 sinnum til Kóreu-
manna.
HM/Sviss
Úrslit
í gær
A-riöill
Júgóslavia-Sovétrikin.......26-22
A-Þýskaland-Kúba............28-24
B-riöill
Sviss-Spánn.................15-15
V-Þýskaland-Pólland.........21 -20
C-riðill
S-Kórea-ísland..............29-21
Rúmenia-Tékkóslóvakia.......23-18
D-riðill
Ungverjaland-Danmörk........25-21
Sviþjóð-Alsir...............24-16
Sigur Júgóslava yfir sovésku
heimsmeisturunum vekur athygli, en
önnur úrslit eru eftir bókinni, - nema
frammistaða Islendinganna.
Á morgun keppa i Bern ísland-
Tékkóslóvakia í C-riðli og V-
Þýskaland-Spánn i B-riðli, í St. Gallen
Sviss-Pólland i B-riðli og i La Chaux-
deFonds Rúmenía-S-Kórea í C-riðli.
Pýskó
Jafntefli
Tveir vesturþýskir 1. deildarleikir í
gærkvöldi: Saarbriicken-Stuttgart 1-
1, Waldhof Mannheim-Borussia
Dortmund 0-0.
Getraunir
Tæp miljón á gulan!
Aðeins einn seðill kom fram með 12 réttum í síðustu lcikviku get-
rauna, og eigandinn, ungur Keflvíkingur, er þarmeð 987.211 krónum
ríkari, á gulan seðil sem gefur honum 4 af 16 röðum með 11 rétta. Fyrir
ellefu rétta fengust 23.884 krónur.
Alþýðublaðið er enn í forystu í getraunakeppni fjölmiðlanna með
samtals 86 rétta. Tíminn er næstur með 80 rétta, þá Þjóðviljinn með 76.
Spáin fyrir helgarleikina er þessi: > c ^ _
Birmingham-QPR............................ 1 1
Chelsea-Watford........................... 1 1
Ipswich-Leicester......................... 1 x
Luton-Sheffield Wednesday................. 1 1
Manch. City-Oxford........................ 1 2
Newcastle-Arsenal.......................... X 2
Nottingham Forest-West Ham................. 2 1
Southampton-Manch. United.................. 2 2
Tottenham-Liverpool........................ 2 2
WBA-Coventry.............................. 1 X
Blackburn-Portsmouth....................... X 2
Hull-Norwich............................... X 1
>
Q
1
1
1
1
1
X
1
2
X
1
2
2
m
Q
X
1
X
1
1
2
X
1
2
1
2
X
£
o
1
1
X
1
1
X
1
X
X
1
2
2
GegnTékkumí kvöld
„Enganveginn búið“ - en geta þeir rétt úr
kútnum?
VÍÐIR
SIGURÐSSON
Miðvikudagur 26. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15