Þjóðviljinn - 26.02.1986, Qupperneq 16
Aðalsími: 681333. Kvóldsfmi: 681348. Helgarsími: 81663.
DJÓÐtflUINN
Flugstöðin
Miðvikudagur 26. febrúar 1986 47. tölublað 51. örgangur.
Ekki farið að lögum
Nýtt deiliskipulag afflugstöðvarsvœðinu. Réttur Miðneshrepps að enguhafður.
Sveitarfélög á Suðurnesjum mótmœla. Elsa Kristjánsdóttir: Verður kœrt tilfélagsmálaráðuneytisins
Málið snýst um hvaða lög eiga
að gilda í þessu landi. Svæð-
ið sem flugstöðin stendur á til-
heyrir lögsögu Miðneshrepps og
því er það okkar að fjalla um
skipulagsmál á þessu svæði. Við
teljum að þarna hafi ekki verið
farið að lögum og munum því
kæra málið til félagsmálaráðu-
neytisins, sagði Elsa Kristjánsdótt-
ir oddviti Miðneshrepps í samtali
við Þjóðviljann í gær.
í síðasta mánuði auglýsti flug-
vallarstjóri Keflavíkurflugvallar
nýtt deiliskipulag af svæðinu í
kringum nýju flugstöðina, en
ekkert samráð var haft við
hreppsnefnd Miðneshrepps. Það
sama var uppi á teningnum þegar
aðalskipulagið var samþykkt.
Stjórn Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum mótmælti þessum
vinnubrögðum í gær í bréfi til
skipulagsstjórnar ríkisins og telur
að réttur sveitarfélagsins hafi ver-
ið hundsaður.
Skilningur utanríkisráðun-
eytisins á þessu máli hefur verið
sá, að þar sem þarna sé um að
ræða svonefnt varnarsvæði og þar
að auki í eigu ríkisins, sé það
utanríkisráðuneytisins að fjalla
um þessi mál en ekki Miðnes-
hrepps. Varnarmáladeild hefur
jafnframt neitað að greiða bygg-
ingargjöld vegna flugstöðvarinn-
ar, en það mál er komið til kasta
dómstóla.
„Samkvæmt lögum skiptir ekki
máli hver er eigandi landsins,
hreppamörkin gilda ávallt. Flug-
stöðin er talin borgaraleg bygging
svo og þær byggingar sem eru á
nýja deiliskipulaginu, og því er
það okkar hlutverk að fjalla um
þessi mál. Þetta staðfestir enn
eina ferðina að það virðist vera
stefna varnarmáladeildar að hafa
frekju og yfirgang að leiðarljósi í
samskiptum sínum við sveitarfé-
lögin á þessu svæði“, sagði Elsa
Kristjánsdóttir í gær. -gg-
AB-Reykjavík
Listinn
lagður fram
Steinar Harðarson
kosningastjóri: Rífandi
startfyrir kosningarnar.
Á morgun, fímmtudag verður
haldinn félagsfundur í Alþýðu-
bandalaginu í Reykjavík, þarsem
tillaga kjörnefndar um framboðs-
lista í komandi kosningum verður
lagður fram.
„Þetta er góður listi, sterkur
framboðslisti og er í sjálfu sér ríf-
andi start fyrir kosningarnar",
sagði Steinar Harðarson kosn-
ingastjóri ABR í samtali við
Þjóðviljann í gær. „Ég álít að við
eigum mikla möguleika á að bæta
heilmiklu við okkur hér í Reykja-
vík.
Að kosningu lokinni um list-
ann, verður umræða um stefnu-
mál Alþýðubandalagsins í borg-
armálum. Félögum hefur verið
sent bréf um ýmsar hugmyndir og
við hvetjum sem flesta að mæta á
fundinn og taka þátt í stefnumót-
uninni", sagði Steinar Harðar-
son.
Fundurinn hefst kl. 20.30 að
Hverfísgötu 105. -óg
Sjá flokksdálk bls. 14
Filippseyjar
að má hiklaust segja að með-
an ég var í Manila hafí allt
samfélagið verið undirlagt af
stjórnmálabaráttunni og allir
virtust samdóma um að ekki yrði
aftur snúið. Fólkið þarna var í
sigurvímu, vongott og fulll
bjartsýni, sagði Guðni Bragason
fréttamaður sjónvarpsins, í sam-
tali við Þjóðviljann í gær, en hann
kom til landsins í fyrrakvöld eftir
nokkurra daga dvöl í Manila á
Filippseyjum.
Guðni fylgdist með atburðum
á Filippseyjum í síðustu viku og
fram á laugardag. í gær urðu þau
tíðindi hins vegar að Marcos for-
seti lét af völdum og flýði í her-
stöð Bandaríkjanna utan við
Manila. Guðni sagði að allt fram
að þeim tíma hafi menn búist við
hverju sem var af Marcosi, hann
hafi verið vís til að leggja út í
blóðuga borgarastyrjöld og
freista þess að halda völdum sín-
um. Hann hefur verið við völd á
Filippseyjum í um 20 ár og hafa
herlög gilt í landinu lengst af
þeim tíma.
„Fólkið bindur miklar vonir
við Corazon Aquino og hún hef-
ur verið sameiningartákn and-
stöðuaflanna. En þess ber að
gæta að stjórnarandstaðan er
samansett af mjög sundurleitum
hópi og það er með öllu óljóst
hvað gerist á næstunni. Fólkið er
mjög bjartsýnt, en það er hætt við
að það verði fyrir vonbrigðum
þegar reynt verður að mynda
nýja stjórn“, sagði Guðni í gær.
íslenskir fjölmiðlar hafa ekki
verið mjög iðnir við að senda
fréttamenn á vettvang atburða í
fjarlægum heimshlutum og því
vekur þessi för Guðna nokkra at-
hygli. Aðspurður um þetta sagði
hann að það væri að sjálfsögðu
mjög fróðlegt fyrir fréttamenn að
geta kynnt sér atburði þar sem
þeir eru að gerast. „Þetta gerir
mannig kleift að segja betri fréttir
af gangi mála. En guð minn góð-
ur, ég hefði vissulega ekkert haft
á móti því að vera þarna lengur,
°g fylgjast með því sem gerst hef-
ur eftir heimkomuna".
-gg
Guðni Bragason nýkominn frá Filipseyjum: blaðamenn þurfa oftar að eiga þess kost að komast á vettvang og kynna sér atburði af eigin raun. Ljósm. E.OI.
Fólkið í sigurvímu
Marcos kominn í Clark herstöðina. Guðni Bragason fréttamaður nýkominn
frá Manila: Mikil bjartsýni ríkjandi. Gœti reynst erfitt að mynda nýja stjórn
Húsafriðun
Bjamaborg endurbyggð
Borgarráð ákvað ígœr að ganga að tilboði Dögunar íhúsið.
Möguleiki á að Dögunfallifrá tilboðinu? Sigurjón
Pétursson: Viljayfirlýsing um varðveislu
Borgarráð ákvað á fundi í gær
að ganga að tilhoði Dögunar
s.f. í Bjarnaborg sem stcndur á
horni Hverfisgötu og Vitastígs.
Dögun bauð 3.4 miljónir í húsið
og hyggst endurbyggja það með
það í huga að þar vcrði 10-13
íbúðir.
Sigurjón Pétursson borgar-
ráðsmaður sagði í símtali við
Þjóðviljann í gær að hann liti á
þetta sem viljayfirlýsingu borg-
arráðs til að varðveita húsið, en
mikil áhersla hefur verið lögð á
það. M.a. hefur Ragnheiður Þór-
arinsdóttir borgarminjavörður
beint því til borgarráðs. Gengið
var að tilboði Dögunar með þeim
fyrirvara að ekki var gengið að
skilyrði fyrirtækisins um að
stækka lóð Bjarnaborgar í átt að
Vitatorgi. Sá möguleiki er því
fyrir hendi að Dögun falli frá til-
boðinu. Auk Dögunar bauð
Hvoll h.f. í húsið til niðurrifs.
„Það var mjög ánægjulegt að fá
þetta tilboð og það sýnir að það
er hægt að varðveita Bjarnaborg.
Það er auðvitað það sem mestu
máli skiptir", sagði Sigurjón.
Samningarnir
Fiskvinnslan
segir nei
Enn voru kvöld- og næturfund-
ir hjá samninganefndum ASÍ/VSÍ
í gær. Það sem helst gerðist í gær
var það að fulltrúar fískvinnsl-
unnar afsögðu með öllu að skrifa
undir fast gengi. Þar með er talið
að hugmyndin að því að koma
verðbólgu niður í 7% sé úr sög-
unni og aftur verði farið að miða
verið 9% verðbólgumarkið.
Samningafundur stóð cnn þegar
Þjóðviljinn fór í prentun.
-S.dór