Þjóðviljinn - 02.10.1986, Síða 2
p-SPURNINGIN-
Bandalag jafnaðar-
manna hefur nú samein-
ast Alþýðuflokknum.
Þýðir þetta að fjórflokka-
kerfið sé ósigrandi?
Jónína S. Jónsdóttir, hús-
móðir:
Ég veit nú ekki um fjórflokkakerfið
en ég held að þetta sé skárra en
var með þessaflokka. Þeir áttu það
margt sameiginlegt að sameining
er sjálfsögð. Mér hafa fundist flokk-
ar og samtök óþarflega mörg í ís-
lenskum stjórnmálum-
Sigmundur Guðmundsson,
vinnur í Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunni:
Mér fannst þetta nú gönuhlaup hjá
þeim sem stóðu að stofnun Banda-
lags jafnaðarmanna í upphafi.
Samt varð ég nú hlessa á þessum
fréttum um sameiningu. Um ósigr-
andi fjórflokkakerfi hef ég ekkert að
segja.
Einar Jón Másson:
Ja, benda ekki síðustu atburðir til
þess að þetta kerfi sé ósigrandi?
En ég verð nú að segja að ég átti
ekki von á þessari framvindu mála.
Birgir Guðjónsson, deildar-
sjóri í Hagkaupum:
Satt best að segja er ég illur yfir
þessum málalokum. Mér finnst að
það sé hreinlega verið að versla
með þingflokka og þetta Banda-
lagsfólk hafi verið að svíkja þá sem
studdu það og kusu.
Karl Eiríksson,
á eftirlaunum:
Fjórflokkakerfið hef ég lítið hugsað
um. En mér finnst þetta þokkaleg
niðurstaða. Bandalagið var hálf-
gerð vitleysa frá upphafi. Ég hef
alltaf litið á Bandalag jafnaðar-
manna sem hluta af Alþýðuflokkn-
um.
FRÉITIR
Afmœli
Hátíð í Háskólanum
Nýrfáni á 75 ára afmœli. Hátíðarsamkoma í
Háskólabíói, heiðursdoktorar, fyrirlestrar og bœkur
Það hefur varla framhjá
neinum farið að Háskóli Is-
lands fagnar nú 75 ára afmæli. Sá
fögnuður mun taka á sig ýmsar
myndir og ná hámarki sínu nú í
októbermánuði. Mikii hátíð
verður haldin í Háskólabíói
næstkomandi laugardag 4. októ-
ber, þar sem afmælisins verður
formlega minnst, m.a. með því að
dreginn verður að húni nýr fáni
Háskóla íslands.
Meðal þess sem gerist á hátíð-
arsamkomu Háskólans á laugar-
daginn er að lýst verður kjöri
heiðursdoktora og eru þeir tut-
tugu að tölu, jafnt útlendir fræði-
menn sem íslendingar. Þó eru
ekki allir fræðimenn; þjóðhöfð-
ingi Dana Margrét II. fær
heiðursdoktorsnafnbót í tilefni af
farsælum lyktum erfiðs handrita-
máls og ljóðskáldið Snorri Hjart-
arson fær nafnbótina doktor litt-
erarum islandicarum honoris
causa, en áður hafa hana hlotið
Halldór Laxness, Gunnar Gunn-
arsson og Þórbergur Þórðarson.
Margt fleira verður að sjálfsögðu
á dagskrá í Háskólabíói á laugar-
daginn.
En Háskólinn minnist afmælis-
ins ekki einungis með samkomu-
haldi. Gerðar hafa verið tvær
myndir: Kynningarmynd unnin
upp úr gömlum heimildum um
upphaf og þróun Háskóla íslands
og verður hún sýnd í sjónvarpi 7.
október; Síðari myndin er um
Háskólann í dag og verður einnig
sýnd í sjónvarpi. Þá kemur út
Rannsóknarskrá; doðrantur þar
sem birt eru viðfangsefni kennara
skólans. Konungsbók Eddu-
kvæða er gefin út ljósprentuð í
viðhafnarútgáfu, fyrirlestrar
verða haldnir, allar deildir
skólans gangast fyrir „opnu húsi“
12. október og út kemur bók eftir
Pál Sigurðsson um húsnæðis- og
byggingarsögu Háskólans.
Hér er aðeins stiklað á stóru í
væntanlegum uppákomum sem
tengjast 75 ára afmæli Háskóla
íslands, en forsvarsmenn skólans
hafa góðu heilli ákveðið að nota
tækifærið til að kynna starfsemi
skólans betur fyrir almenningi.
-pv
Starfsfólk Ríkisútvarpsins á Akureyri t.f.v.: Björn Sigmundsson tæknifulltrúi, Þórir Jökull Þorsteinsson fróttamaður, Inga
Eydal dagskrárgerðarmaður, Finnur Magnús Gunnlaugsson dagskrárgerðarmaður, Sigríður Guðnadóttir skrifstofu-
maður, Bergsteinn Gíslason tæknimaður, Björg Þórðardóttir starfsmaður auglýsingadeildar, Erna Indriðadóttir deildar-
stjóri, Pálmi Matthíasson dagskrárgerðarmaður og Gísli Sigurgeirsson fréttamaður.
RÚVAK
Opið hús á fimmtudag
Útsendingartími svœðisútvarpsins fœrður til og breytingar á dagskrá
skömmu kom fram að margir eru
óánægðir með að geta ekki valið
á milli þess hvort þeir hlusta á
svæðisútvarpið eða rás 2.
Reyndar er rétt að geta þess að
Grímseyingar geta valið á milli
svæðisútvarpsins og rásar 2 þar
sem þeir hafa möguleika á að ná
tveim endurvarpsstöðvum rásar 2
með mismunandi senditíðni.
f sömu könnun kom fram að
Svæðisútvarp Akureyrar og ná-
grennis á góðan hljómgrunn
meðal hlustenda og nýtur stöðin
mests stuðnings meðal fólks á
þrítugs- og fertugsaldri.
Ákveðið hefur verið að einnig
verði gerð sú breyting á tilhögun
dagskrár í svæðisútvarpinu að
Hjá Ríkisútvarpinu á Akureyri
verða nokkrar breytingar
með vetrardagskrá og ber þar
hæst breyttan útsendingartíma
svæðisútvarps. Hér eftir hefst
svæðisútvarp klukkan 18:00 og
stendur til klukkan 19:00, alla
daga nema sunnudaga.
Svæðisútvarpið fyrir Akureyri
og nágrenni hefur verið sent út á
milli klukkan 17:00 og 18:30 og
þar sem notast er við dreifikerfi
rásar 2 við þessar sendingar hafa
hlustendur á þessu svæði ekki átt
kost á að hlusta á rás 2 á þeim
tíma sem svæðisútvarpið sendir
út. í hlustendakönnun sem Ríkis-
útvarpið á Akureyri lét gera fyrir
framvegis verða ákveðnir viku-
legir þættir á hverjum degi.
Þegar útsendingartíminn
breytist verður skipt um upp-
hafsstef í svæðisútvarpinu.
Þessar breytingar taka gildi
fimmtudaginn 2. október og
þann dag verður almenningi boð-
ið að heimsækja Ríkisútvarpið á
Akureyri, Fjölnisgötu 3a, þiggja
þar kaffi og pönnukökur og
skoða húsakynni útvarpsins.
„Þetta er ríkisútvarp sem þýðir
að það er í eigu okkar allra og ég
hvet fólk til að koma hér og skoða
útvarpið sitt,“ sagði Erna Indrið-
adóttir, forstöðumaður ríkisút-
varpsins á Akureyri.
-yk.
Karpoff hafði hvftt í 21. skákinni ■
heimsmeistaraeinvíginu. Uppkom af-
brigði af drottningarindverskri vörn
sem þeir félagar tefldu í nokkrum
skákum í fyrsta einvígi sínu fyrir
tveim árum og 70-80 skákum. Þeir
virtust þó lítið hafa lært og litlu hafa
gleymt því lengi vel héldu þeir sig á
kunnuglegum slóðum.
Kasparoff lék vörnina framarlega
og skipti ott og títt á mönnum. Upp
kom jafnt endatafl. Skákin fór í bið
eftir 41. leik hvíts. Biðskákin verður
tefld í dag en á morgun er svo 22.
skákin og hefur Kasparoff þá hvítt.
Nú eru þrjár skákir eftir, ef þessi er
frátalin, og kapparnir jafnir að vinn-
ingum. Kasparoff heldur titlinum á
jöfnu svo slagurinn stendur um það
hvort Kasparoff tekst að vinna eina
skák enn.
Hvítt: Karpoff Svart: Kasparoff.
1. d4-Rfó 4. g3-Baó
2. c4-eó 5. b3-Bb4+
3. Rf3-bó 6. Bd2-Be7
Hugmyndin með biskupsskákinni
er að taka d2-reitinn af drottningarr-
iddaranum.
Skákin
Jafnteflisleg biðskák
7. Bg2-0-0 10. Bd3-Rf-d7
8. 0-0-d5 H. Rdc7-Rxd7
9. Re5-c6 12. Rd2-...
En riddarinn þrjóskast við og
kemst þangað á endanum. Hér stend-
ur hann vel, valdar bæði c4 og e4 sem
eru mikilvægir reitir í stöðu hvíts.
12. ...-Hc8
13. e4-dxc4
f sjöttu skak fyrsta einvígisins lék
Karpoff, sem þá stýrði svörtu mönn-
unum, 13. ... b5. Eftir miklar svipt-
ingar í miðtaflinu vann hann með frá-
bærri endataflsmennsku. Hér er siglt
mun lygnari sjó.
14. bxc4-b5 16. Dc2-Dc7
15. Hel-bxc4 17. Rfl-e6
Svartur upprætir miðborð hvíts.
fyrst réðst hann að því frá hlið (14...
b5) en nú framanvið. Hvítur fær ekki
frið til að leika Re3, Ha-dl og e5 en
það mundi henta honum vel.
18. Re3-exd4
19. Bxd4-Bc5
Eftir 19. ... Re5 20. Dc3 Rd3 21.
Bxg7 stendur hvítur hartnær til vinn-
ings. Svartur verður a ná kaupum á
drottningarbiskupi hvíts. Nú getur
hvítur ekki leikið 20. Bc3 Re5 21.
Db2 Rd3 og drottning hans er í upp-
námi. Biskupinn verður því að hverfa
af vettvangi en eftir það eru kóngs-
sóknarmöguleikar hvíts nánast úr
sögunni.
20. Bxc5-Rxc5
21. Rxc4-Hf-d8
22. Ha-dl-Hxdl
23. Hxdl-Hd8
24. Hxd8+-Dxd8
25. h4-Dd4
Hvítur varð að leyfa hrókakaup þvt
ella hefði svartur hertekið d-línuna.
Nú hefst endataflið.
26. Db2-Dxb2
27. Rxb2-f6
28. f3-K17
29. Bfl-Bb5
30. K12-Ke6
Hvítur má ekki drepa á b5 (Bxb5,
cxb5) því þá ætti svartur færi á að
mynda sér frípeð á drottningarvæng.
Svartur hagnast heldur ekki á bi-
skupakaupum, hvorki nú né síðar því
riddari hvíts heldur aftur af svarta
kónginum frá c4-reitnum.
31. Bc4+-Kd6 37. Kc3-Bc6
32. Ke3-Rd7 ^8- Rf2-Rb6
33. f4-Rb6 39- Bb3-Ra8
34. Bg8-h6 40. Kd3-Rb6
35. Rd3-Rd7 41. Bc2
36. Kd4-c5+
Hér fór skákin í bið og lék Kaspa-
roff biðleik. Hann getur verið ánægð-
ur með jafnteflið enda getur svartur
lítið aðhafst. Hann tapar t.d. á því að
leika peðum sínum áfram því þá yrðu
þau veikari. Hvítur hefur nú mar-
gvaldað e-peðið og gæti reynt að bæta
stöðu riddarans (Rdl-e3-f5 eða c4).
Þá má reyna peðaframrás á kóngs-
væng. Með tilliti til stöðunnar t ein-
víginu er ekki ólíklegt að Karpoff tefl-
di skákina áfram, þó ekki væri til ann-
ars en að þreyta Kasparoff svolítið en
jafntefli eru líklegustu úrslitin.
-2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 2. október 1986